Morgunblaðið - 28.03.2001, Page 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2001 13
Framtíðin hefst ....núna!
Borgartúni 28 • S: 562 2901 & 562 2900 • www.ef.is
134.900,-
Super A
nti-Alia
s Filter
540 lín
ur
stgr.*
TOSHIBA DVD • SD 100
er af 5. kynslóð DVD mynddiskaspilara, með betri
myndgæðum og mun fullkomnari en aðrir bjóða!
TOSHIBA eru fremstir í tækniþróun. Hönnuðir Pro-Logic heimabíókerfisins, Pro-Drum mynd-
bandstækjanna og DVD mynddiskakerfisins.
Önnur TOSHIBA tæki fást í
stærðunum frá 14“-61“
33.750,-stgr.*
29“-33“ eða 37“
100HZ
DIGITAL SCAN
verð m/öllu þessu
frá aðeins
*Staðgreiðsluafsláttur er 5%
TOSHIBA
heimabíó
Nýjasta og fullkomnasta
tækni á einstöku verði!
• Super-5 Digital Blackline myndlampi
• 180-300W magnari
• 3 Scarttengi að aftan
• 2 RCA Super VHS/DVD
tengi að aftan
Super VHS, myndavéla- og
heyrnartækjatengi að framan
• Barnalæsing á stöðvar
• Glæsilegur skápur m/glerhurð
og 3 hillum
• 6 framhátalarar
• 2 bassahátalarar
• 2 x 2 bakhátalarar
KATTARÆKTARFÉLAG Íslands
stóð fyrir alþjóðlegri sýningu á
kynjaköttum dagana 24. og 25.
mars í Íslenska kvikmyndaverinu
í Grafarvogi. Um var að ræða
tvær sýningar þar sem dómarar
frá Hollandi, Finnlandi og Noregi
mátu ketti af öllum stærðum og
gerðum eftir alþjóðlegum rækt-
unarstöðlum.
Alls voru rúmlega hundrað
kettir sýndir og metnir þessa tvo
daga og var það hin eins og hálfs
árs gamla persneska læða Urður
Arnardrangs, sem var valin besti
fullorðni kötturinn og hampaði
því titlinum kynjaköttur sýning-
arinnar báða sýningardagana.
Eigandi hennar er Hörn Ragn-
arsdóttir en hún átti fleiri hlut-
skarpa ketti á sýningunum því
besta ungdýrið báða sýning-
ardagana var Mýrdals Red Rush
sem einnig er persnesk læða í
hennar eigu.
Persneskar læður sátu í fleiri
verðlaunasætum því besti kett-
lingur sýningarinnar á laug-
ardeginum var af þeirri tegund
en það var Brynjars Blue Velvet í
eigu Kristínar Guðmannsdóttur
en á sunnudeginum var besti
kettlingurinn valinn Atlas sem er
abyssiníufress í eigu Sjafnar
Kjartansdóttur.
Bangsi Av Kirwo, sem einnig
er abyssiníufress, var svo valinn
besti geldingurinn báða sýning-
ardagana en eigandi hans er Sig-
rún Björg Aradóttir. Þá var
fressið Simbi valinn besti hús-
kötturinn en húsbóndi hans er
María Isabel Merino.
Að sögn Einars Erlingssonar,
yfirdómþjóns er áhugi á katta-
ræktun stöðugt að aukast hér-
lendis og áætlar hann gróflega að
skráðir kattaræktendur hjá
Kattaræktarfélagi Íslands séu í
kringum tuttugu talsins.
Raymond Sætre, dómari á sýningunni, faðmar
að sér einn verðlaunaköttinn.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Soffía Árnadóttir hampar Oriental-fressinu Herki Axfjörð.
Kynjaköttur sýningarinnar, Urður Arnardrangs Midnight Sun, ásamt eig-
anda sínum Hörn Ragnarsdóttur (t.v) og Hildi Dís Kristjánsdóttur dómþjóni.
Sýning á kynjaköttum í Grafarvogi sl. helgi
Urður Arnardrangs Mid-
night Sun hlutskörpust
SAMGÖNGURÁÐHERRA
kynnti á ríkisstjórnarfundi í gær-
morgun frumvarp til laga vegna
lögskráningar sjómanna. Þar er
lagt til að lögum um lögskrán-
inguna verði breytt í þeim til-
gangi að tryggja að allir sjómenn
á íslenskum skipum, óháð stærð
skipanna, verði slysa- og líf-
tryggðir.
Í minnisblaði með frumvarpi
ráðherra kemur fram að tilgang-
ur lögskráningar sjómanna sé
einkum grundvöllur fyrir skatta-
afslætti sjómanna, að fyrirliggj-
andi séu upplýsingar um áhöfn
skips hverju sinni, að áhöfnin
hafi tilskilin atvinnuskírteini til
starfa á skipum, að áhöfnin sé líf-
og slysatryggð með fullnægjandi
hætti, að sannreyna siglingatíma
vegna öflunar atvinnuskírteinis á
skipi og að áhöfn hafi hlotið ör-
yggisfræðslu í Slysavarnaskóla
sjómanna.
Þess eru dæmi að slys hafa
orðið á bátum sem ekki er skylt
að lögskrá á og sjómenn hafa
slasast eða farist án þess að hafa
verið líf- eða slysatryggðir. Meg-
intilgangur frumvarpsins er að
fyrirbyggja slíkt.
Með breytingu á lögum um
eftirlit með skipum er kveðið á
um að skip sem er minna en 20
brúttótonn fái ekki útgefið haf-
færisskírteini nema fyrir liggi yf-
irlýsing tryggingafélags um
áhafnartryggingu samkvæmt
siglingalögum.
Lagafrumvarp um
lögskráningu sjómanna
Tryggt að allir sjó-
menn verði slysa-
og líftryggðir