Morgunblaðið - 28.03.2001, Page 16
AKUREYRI
16 MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Blönduósi - Níu mjólkurframleið-
endur í A.-Húnavatnssýslu fengu
fyrir skömmu afhentar við-
urkenningar frá Mjólkursamlagi
Húnvetninga (MH) fyrir úrvals-
mjólk framleidda á árinu 2000.
Þessar viðurkenningar voru veitt-
ar á sameiginlegum aðalfundi
samlagsdeildar MH og Félags
kúabænda í A.-Hún. Það voru
Páll Svavarsson mjólkurbússtjóri
og Guðlaugur Björgvinsson, for-
stjóri Mjólkursamsölunnar, sem
veittu viðurkenningarnar. Að
þessu sinni hlutu ábúendur á eft-
irtöldum jörðum viðurkenningu:
Hlíð, Neðri-Harrastöðum, Hróars-
stöðum, Auðólfsstöðum, Steiná
III, Grund, Stekkjardal, Skinna-
stöðum og Eyjólfsstöðum. Vert er
að geta þess að ábúendur á Auð-
ólfsstöðum, hjónin Jóhann Þ.
Bjarnason og Þórunn I. Magn-
úsdóttir, hlutu þessa viðurkenn-
ingu nú í 10. sinn. Verðlaunagrip-
urinn sem mjólkurframleiðendur
fá er eftirlíking af gömlu mjólk-
urbrúsunum sem fyrir löngu hafa
lokið hlutverki sínu en lifa góðu
lífi í endurminningunni.
Austur-húnvetnskir úrvals-
mjólkurframleiðendur. Frá
vinstri: Sigurður Ingimarsson,
Hróarsstöðum, Björn Sigurbjörns-
son, Hlíð, Haraldur Kristinsson,
Grund, Þorbergur Aðalsteinsson,
Eyjólfsstöðum, Reynir Davíðsson,
Neðri-Harrastöðum, Sigurjón
Stefánsson, Steiná III, María
Hjaltadóttir, Neðri-Harrastöðum,
Jóhann Þ. Bjarnason, Auðólfs-
stöðum, og Gerður R. Garð-
arsdóttir, Stekkjardal. Á myndina
vantar Vigni F. Vigfússon,
Skinnastöðum.
Úrvalsmjólkurframleiðendur í A-Húnavatnssýslu
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Ábúendur Auðólfsstaða
hljóta 10. viðurkenninguna
LANDIÐ
Borgarnesi - Ný viðbygging er óð-
um að rísa við Grunnskólann í
Borgarnesi. Búið er að reisa neðri
hæðina og steypa gólf og þessa
dagana er efri hæðin að bætast
við. Samkvæmt áætlun á viðbygg-
ingin að vera tilbúin af hálfu verk-
taka 1. ágúst. Það er bygging-
arfyrirtækið Sólfell sem er
verktaki en Loftorka hf. sér um
burðarvirkið.
Framkvæmdir hafa ekki valdið
truflun á skólastarfinu og athafna-
svæðið var frá upphafi vel afgirt
þannig að nemendum stafaði engin
hætta af. Með tilkomu viðbygging-
arinnar minnkar skólalóðin tals-
vert en á móti kemur almenn
ánægja með einsetinn skóla sem
stefnt er að í haust þegar bygg-
ingin verður tekin í notkun.
Byggingarfram-
kvæmdir við Grunn-
skólann í Borgarnesi
Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir
Neðri hæðin er risin og gólf steypt. Efri hæðin er nú að bætast við.
Ísafirði - Komið hefur verið á
fót nýrri símaþjónustu á
Vestfjörðum. Hjúkrunarfræð-
ingar, læknar, sálfræðingur,
ljósmóðir og félagsfræðingur
skiptast á að ganga með far-
síma sem krakkar á aldrinum
12-25 ára geta hringt í ef eitt-
hvað bjátar á.
Fullum trúnaði er heitið og
hafa allir fagaðilarnir skrifað
undir siðareglur, þar sem
tekið er fram að aldrei skuli
símtöl þessi vera rædd við
óviðkomandi aðila, en þar eru
foreldrar með taldir.
Margvíslegum
spurningum svarað
„Ef einhver hefur áhyggjur
af því til dæmis að vinur hans
hafi anorexíu eða sé þung-
lyndur er hægt að hringja“,
segir Aldís Sigurðardóttir,
forstöðumaður Gamla apó-
teksins sem stendur að þjón-
ustunni í samstarfi við fleiri.
„Einnig er hægt að ræða
kynlíf, barneignir, kynsjúk-
dóma og fleira í þeim dúr. Ef
stelpa hefur áhyggjur af því
að vera ólétt, getur hún feng-
ið hina svokölluðu „eftir á“
pillu með því að hringja í
þjónustuna“, segir Aldís.
Símaþjónustan ber nafnið
Heimur og er síminn 848-
0513. Þjónustan var kynnt í
Grunnskólanum á Ísafirði.
Símaþjónusta
fyrir unglinga í
erfiðleikum
Fullum
trúnaði
heitið
ALMENNT virðist samfélagið taka
því vel að feður taki fæðingarorlof svo
sem þeir eiga nú rétt á, einkum ef um
er að ræða skamman tíma. Gerist
karlmenn heimavinnandi húsfeður
um lengri tíma hafa þeir mætt nokkr-
um fordómum og jafnvel þykir sum-
um að ekki geti verið alveg í lagi með
þessa menn. Þetta var á meðal þess
sem rætt var um á málþingi sem Jafn-
réttisstofa efndi til á Akureyri en það
bar yfirskriftina Það læra börn og
fjallaði um jafnrétti í samstarfi for-
eldra við fæðingu barns.
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
og viðskiptaráðherra setti ráðstefn-
una og nefndi m.a. í ávarpi sínu að
mikilar breytingar hefðu orðið síð-
ustu ár, en áður fyrr hefðu karlmenn
ekki tekið mikinn þátt í því umstangi
sem fylgdi því að eignast barn. Við-
horfsbreyting hefði orðið í þjóðfélag-
inu og þeir væru nú virkir þátttak-
endur. Nýju lögin um fæðingarorlofið
hefðu verið stórt skref fram á við í
réttindamálum, en barn hefði nú rétt
á að vera samvistum við báða foreldra
sína á fyrstu mánuðum lífs síns.
Meðal þess sem rætt var á mál-
þinginu voru breyttar áherslur í sam-
starfi foreldra, hlutverk, staða og
samstarf foreldra við fæðingu barns
og hið gullna jafnvægi fjölskyldu og
atvinnulífs. Katrín Ríkarðsdóttir, sér-
fræðingur á Jafnréttisstofu, sagði að
mjög góðar umræður hefðu verið um
þessi mál, en meðal annars hafi komið
fram að nýju lögin myndu hafa þau
áhrif að langflestir feður myndu taka
það fæðingarorlof sem þeir ættu rétt
á. „En menn voru inni á því að flestir
myndu að því loknu flýta sér í vinnuna
aftur, það virðist ekki vera fýsilegt
fyrir karlmenn að vera of lengi í hlut-
verki heimavinnandi húsföður. Menn
voru nokkuð sammála um það,“ sagði
Katrín.
Hún sagði að nú stæði vinnumark-
aðurinn frammi fyrir þeirri staðreynd
að karlmenn hefðu rétt á fæðingaror-
lofi líkt og mæður og það yrði vonandi
til þess að jafna stöðu kynjanna á
vinnumarkaðnum.
Hún sagði að gestir málþingsins
hefðu fagnað því skrefi sem stigið var
með nýju lögunum um fæðingarorlof,
en næst væri að fá það lengt enn meir,
þ.e. til samræmis við það sem tíðkast
á Norðurlöndum, einkum Svíþjóð og
Noreg.
Jafnréttisstofa mun efna til mál-
þings fyrir austan í maí og þá verður
einnig haldið málþing á Vestfjörðum
næsta haust og að því loknu verður
fjórða málþingið í röðinni haldið í
Reykjavík.
Morgunblaðið/Kristján
Hjónin Óskar Jónasson kvikmyndaleikstjóri og Eva María Jónsdóttir
sjónvarpskona, til hægri, höfðu framsögu og tóku þátt í pallborðsum-
ræðum um hlutverk, stöðu og samstarf foreldra við fæðingu barns.
Málþing Jafnréttisstofu um
samstarf foreldra við fæðingu barns
Réttur feðra til
orlofs gæti jafnað
stöðu kynjanna
ÞETTA er í annað sinn á ekki svo
löngum tíma sem Leikfélag Akur-
eyrar ákveður að byrja sýninga-
ferð um Norðurland á barnaleikriti
hér í Grímsey.
Leikritið „Tveir trúðar – mis-
jafnlega vitlausir“, var flutt í
félagsheimilinu Múla um helgina,
við mikinn fögnuð Grímeyjarbarna
og reyndar fullorðinna líka.
Höfundur leikritsins er Aðal-
steinn Bergdal en Skúli Gautason
samdi tónlistina. Þeir starfa báðir
hjá Leikfélaginu á Akureyri, leik-
stjóri verksins er Þráinn Karlsson.
Sýningin var stórgóð og skemmti-
leg með afbrigðum. Það má segja
að trúðarnir Skralli og Lalli hafi
sannarlega farið á kostum. Þeim til
halds og trausts var Herdís Jóns-
dóttir sem Aðalsteinn segir vera
reddara trúðanna númer 1.
Skralli er auðvitað löngu þekkt
persóna – hann var slysabarn Að-
alsteins Bergdal og kom í ljós 4.
ágúst 1974. Faðirinn vildi að það
kæmi fram að Skralli væri
skemmtilegt slysabarn. Skralli
hefur svo vaxið og dafnað í gegnum
árin. Eftir 18 jólaþætti , sem Að-
alsteinn Bergdal skrifaði fyrir Ak-
ureyrarsjónvarpið, þar sem
mamma hans Skralla birtist, var
ákveðið að leyfa Lalla bróður hans
að sýna sig líka.
Lalli greyið getur verið óttalega
vitlaus og ábyrgðarlaus þannig að
stóri bróðir á ekki alltaf sjö dagana
sæla. En allir leikhúsgestirnir í
Múla voru aftur á móti himinsælir
þegar þeir kvöddu þá bræður.
Í sömu ferð var Aðalsteinn
Bergdal með upplestur úr bók
heimspekingsins Síló frá Argent-
ínu. Þar voru settar fram ekki
minni spurningar en: Hver er til-
gangur lífsins? Hvað er hamingja?
Hvernig getum við látið okkur líða
betur? Og síðast en ekki síst.
Hvernig gerum við jörðina
mennska? Segja má frá því að
Skralli og Lalli verða á næstu vik-
um á ferðinni, allt frá Hvamms-
tanga til Vopnafjarðar.
Skralli og Lalli
hefja sýningar-
ferð í Grímsey
Grímsey. Morgunblaðið.