Morgunblaðið - 28.03.2001, Qupperneq 35
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2001 35
TÓMASARHAGI 51 - HÆÐ OG RIS -
OPIÐ HÚS - TVÆR ÍBÚÐIR
Hér er um að ræða 5 herb. 116 fm efri sérhæð ásamt 36 fm bílskúr og 4ra
herb. um 97 fm rishæð í fallegu mjög vel staðsettu húsi. Eignirnar seljast
saman eða sitt í hvoru lagi. Mjög fallegt útsýni er úr báðum íbúðunum,
sérstaklega risíbúðinni. Hæðin skiptist í tvær saml. stofur, 3 herb., eldhús,
bað o.fl. Tvennar svalir eru á hæðinni. V. 17,5 m. Risíbúðin skiptist í hol,
baðherb., 2 herbergi, 2 samliggjandi skiptanlegar stofur og eldhús. Stórar
suðursvalir eru út af stofu. Yfir íbúðinni er gott geymsluris. V.13,9 m.
ÍBÚÐIRNAR VERÐA TIL SÝNIS Í DAG (MIÐVIKUDAG)
FRÁ KL. 17-19. 1305
VERULEGAR deil-
ur hafa staðið á Vestur-
löndum um siðferðilega
ábyrgð stórra lyfjafyr-
irtækja gagnvart þró-
unarlöndum og mögu-
leikum þeirra á að
nálgast lífsnauðsynleg
lyf, sér í lagi afar dýr lyf
við alnæmi sem herjar
miskunnarlaust á sí-
stækkandi hóp Afríku-
ríkja sunnan Sahara.
Siðleysi
Mammons
Nýleg málaferli tæp-
lega 40 lyfjafyrirtækja
gegn stjórnvöldum
Suður-Afríku hafa reynst vatn á
myllu þeirra afla sem draga vilja al-
þjóðleg lyfjafyrirtæki til ábyrgðar
fyrir síversnandi ástand heilbrigðis-
mála í Afríku sem og öðrum þróun-
arríkjum. Málsóknin beinist gegn
löggjöf frá árinu 1997 sem heimilar
suður-afrískum stjórnvöldum að
virða einkaleyfisvernd allra lyfja að
vettugi í nafni þjóðarhagsmuna. Sú
staðreynd að lyfjafyrirtæki ætli sér
ekki að una umræddri löggjöf, þykir
til marks um þá ísköldu gróðahyggju
sem þau stjórnist af.
Einkaleyfi lyfja hindra
ekki aðgengi
Mikilvægasta spurningin í þessu
samhengi er e.t.v. sú hvort vaxandi
vandi þróunarríkja á sviði heilbrigð-
ismála sé á einhvern hátt bundinn
einkaleyfum lyfjafyrirtækja, þ.e.
hindra einkaleyfi aðgang þróunar-
ríkja að lífsnauðsynlegum lyfjum?
Samkvæmt upplýsingum frá WHO,
Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni er það
ekki raunin, þar sem um 95% slíkra
lyfa (essential medicine list) eru ekki
bundin einkaleyfum. Um þau 5% sem
eftir standa hafa lyfjafyrirtækin al-
mennt víkjandi reglur
hvað verð og dreifingu
varðar innan þróunar-
landanna í samvinnu við
alþjóðlegar hjálpar-
stofnanir. Þá nemur
raunvernd einkaleyfa
einungis um 5 til 7 ár-
um, þótt þeim sé einum
ætlað að standa undir
gífurlegum rannsókn-
ar- og þróunarkostnaði
lyfjaframleiðenda.
Lyf duga ekki
ein og sér
Hið hrikalega ástand
heilbrigðismála þróun-
arlandanna verður því
ekki rakið til einkaleyfa á lyfjum.
Meginvandinn felst enn fremur ekki í
lélegu lyfjaframboði. Umfangsmikið
samstarf lyfjafyrirtækja og alþjóð-
legra hjálparstofnana veitir nauðsyn-
legum lyfjum á kostnaðarverði þang-
að sem þörfin er brýn og endur-
gjaldslaust þar sem fátæktin er
sárust, því oftar en ekki er lægsta
verð jafnvel of hátt. Staðreyndin er
hins vegar sú að nægt lyfjaframboð
dugar ekki eitt og sér við þær erfiðu
aðstæður sem ríkja. Vandinn er mun
djúpstæðari en svo að Vesturlönd
geti „keypt“ sig frá honum með
ókeypis lyfjasendingum eða með
beinum og óbeinum niðurgreiðslum á
lyfjakostnaði þróunarlanda.
Einkaleyfi eru ekki
orsök vandans
Varnir og meðferð gegn lífshættu-
legum sjúkdómum eru háð þeirri
heilbrigðisþjónustu sem til staðar er
hverju sinni. Neyð þróunarlanda
endurspeglast fyrst og fremst í fjár-
sveltum og vanþróuðum heilbrigðis-
kerfum. Lyfin eru til staðar en ekki
þekkingin og getan til að fylgja flókn-
um lyfjameðferðum eftir. Heilbrigð-
isráðherra Suður-Afríku hefur m.a.
lýst því yfir að þótt alnæmislyf fengj-
ust ókeypis hefðu stjórnvöld ekki efni
á sjálfri meðferðinni. Að hjálpargögn,
hvort heldur lyf eða matvæli, nýtist
ekki sem skyldi, er almennt og alvar-
legt vandamál innan allrar þróunar-
aðstoðar.
Pólitísk úrræði skortir
Umræða um vanda þróunarlanda
og breikkandi bil á milli ríkra og fá-
tækra þjóða er í senn viðkvæm og
vandmeðfarin, auk þess sem hið póli-
tíska landslag umræðunnar er oftar
en ekki afar erfitt yfirferðar. Sið-
ferðileg skylda Vesturlanda til að
bregðast við versnandi heilbrigðis-
ástandi þróunarlanda er á engu að
síður skýr. Fátækt, versta böl mann-
kyns, verður aftur á móti ekki leyst
nema með pólitískum meðulum. Hinn
viðamikli vandi verður ekki leystur
nema með samstilltu átaki og sam-
vinnu ríkisstjórna þróunarlanda og
vestrænna landa. Þá fyrst greiðfær
pólitísk leið hefur verið fundin, mun
þróunarstarf, m.a. lyfjafyrirtækja og
alþjóðlegra hjálparstofnana, skila sér
í raunverulegri hjálp til sjálfshálpar.
Einkaleyfi versta
böl mannkyns?
Hjörleifur
Þórarinsson
Lyf
Neyð þróunarlanda
endurspeglast fyrst
og fremst, segir Hjör-
leifur Þórarinsson, í
fjársveltum og vanþró-
uðum heilbrigðis-
kerfum.
Höfundur er framkvæmdastjóri
GlaxoSmithKline á Íslandi.
Bridsfélagið Muninn,
Sandgerði
Síðastliðinn miðvikudag var spilað
síðasta kvöldið af þremur í Lands-
bankatvímenningi félagsins. Lands-
bankinn í Sandgerði styrkti mótið
með peningaverðlaunum fyrir þrjú
efstu sætin og fyrir 1. sæti voru veitt
10.000 kr. í verðlaun, 6.000 kr fyrir 2.
sætið og 4.000 fyrir það þriðja.
Efstu pör síðasta spilakvöld:
Svala Pálsd. - Guðlaug Friðriksd.64.55
Randver Ragnarss. - Pétur Júlíuss. 60.00
Garðar Garðarss. - Óli Þór Kjartanss. 52.12
Karl G. Karlss. - Guðjón Svavar Jensen51.82
Lokastaðan í mótinu varð þessi:
Randver Ragnarss. - Jóhannes Sigurðss./
Pétur Júlíuss. 56.57 %
Garðar Garðarss. - Óli Þór Kjartanss. 53,89
Ævar Jónass. - Jón Gíslas.53.79
Karl G. Karlss. - Guðjón Sv. Jensen 53.28
Næsta miðvikudagskvöld byrjar
þriggja kvölda hraðsveitakeppni.
Alltaf heitt kaffi á könnunni.
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
Þeir urðu í efstu sætunum í Landsbankamóti Bridsfélagsins Munins,
f.v.: Ævar Jónasson sem varð í 3. sæti ásamt Jóni Gíslasyni, sigurveg-
ararnir Pétur Júlíusson og Randver Ragnarsson og lengst til hægri er
Óli Þór Kjartansson sem varð í öðru sæti ásamt Garðari Garðarssyni.
BRIDS
U m s j ó n A r n ó r G .
R a g n a r s s o n
Gullsmárabrids
Bridsdeild FEBK í Gullsmára
spilaði tvímenning á ellefu borðum
mánudaginn 26. marz. Miðlungur
220. Beztum árangri náðu:
NS
Sigurþór Halldórss. – Viðar Jónss. 279
Unnur Jónsd. – Jónas Jónss. 244
Helga Helgad. – Þórhildur Magúsd. 236
AV
Kristján Guðm.s. – Sigurður Jóhannss. 278
Guðmundur Pálss. – Kristinn Guðm.s. 263
Sverrir Gunnarss. – Einar Markúss. 251
Eldri borgarar spila brids í Gull-
smára 13 mánudag og fimmtudag kl.
12,45. Aðalfundur Bridsdeildar
FEBK í Gullsmára verður haldin við
upphaf spilafundar mánudaginn 2.
apríl.
Félag eldri borgara
í Kópavogi
Þriðjudaginn 20. marz mættu 24
pör til leiks og urðu úrslit þessi í
N/S:
Albert Þorsteinss. - Sæmundur Björnss. 271
Guðm. Magnússon - Þórður Jörundss. 241
Ólafur Ingimundars. - Jón Pálmason 240
Hæsta skor í A/V:
Jóhanna Gunnlaugsd. - Garðar Sigurðss. 269
Bragi Björnss. - Magnús Halldórss. 257
Einar Markússon - Steindór Árnason 254
Sl. föstudag mætti 21 par og þá
urðu úrslit þessi í N/S:
Jón Pálmason - Ólafur Ingimundars. 252
Ásthildur Sigurgíslad. - Lárus Arnórss. 244
Albert Þorsteinss. - Sæmundur Björnss. 244
Hæsta skor í A/V:
Bragi Björnss. - Magnús Halldórss. 253
Jón Andrésson - Ernst Bachman 241
Einar Einarss. - Hörður Davíðsson 235
Meðalskor var 216 báða dagana.
vegna réttlætiskrafna málsaðila.
Refsing er svar samfélagsins við
óvinum sínum, með öðrum orðum
hefnd. Oft er haldið fram að refsing
virki sem forvörn, að hræðsla við
refsingu aftri mönnum frá því að
fremja voðaverk. Það er kominn tími
til að dómskerfið og löggjafarvaldið
athugi þessa kenningu af festu og
einurð og kveði upp úr um gildi henn-
ar.
Hugsanlegt er, að hugtakið „hæfi-
leg refsing“ sé í eðli sínu hefndarhug-
tak, og að við megum búast við því að
einhvern tíma í framtíðinni muni
mannkynið líta til baka og fordæma
það á sama hátt og við fordæmum
hefndarhug fornmanna í okkar eigin
landi, eða hefndarverk nútíma stríðs-
aðila víðs vegar um heiminn. Hugs-
anlega hefði sumum Íslendingum á
þjóðveldisöld fundist sjálfgefið, að
hefndarhugtakið væri öflug forvörn
gegn ofbeldi þeirra tíma, en ljóst er
að Njáll á Bergþórshvoli var ekki
þeirrar skoðunar.
Hér á landi eru líklega flestir sam-
mála Njáli í dag.
Í öðru lagi hefði aftenging hefnd-
arhugtaksins frá kröfum um sam-
félagsöryggi óhjákvæmilega í för
með sér endurskoðun á skilningi
manna á löglíkum.
Spurningin er hér að hve miklu
leyti réttur einstaklingsins eigi að
hafa forgang gagnvart rétti sam-
félagsins. Þetta er ákaflega við-
kvæmt mál, og hefur verið tekið á því
með mismunandi hætti í mannkyns-
sögunni. Í alræðisþjóðfélögum hefur
réttur einstaklings verið fótum troð-
inn af sýndaröryggiskröfum gagn-
vart almenningi, andófsmenn fang-
elsaðir eða sendir á geðveikrahæli
eða þaðan af verra. Það verður að at-
huga gaumgæfilega hvort ríkiskúgun
sé óhjákvæmilegur fylgifiskur auk-
inna samfélagslegra gilda á kostnað
einstaklingsins, eða hvort hún stafi
öllu heldur af veikleika í dómskerfinu
eða skorti á lýðræði. Vera kann að
áhersla á einstaklingsfrelsi leiði ekki
síður til ójafnaðar og kúgunar.
Í þriðja lagi eru dómstólarnir farn-
ir í auknum mæli að eiga við mál sem
áður fyrr voru ekki rædd, eða voru
afgreidd á öðrum vettvangi. Það er
alls ekki víst að dómskerfi sem er
upprunalega sniðið til að eiga við
smáþjófa og ribbalda, og til að vernda
eignarrétt manna, sé í stakk búið til
að eiga við brot sem gerast innan
friðhelgi heimilisins eða kynferðis-
brot milli einstaklinga. Það er greini-
legt að það verður að taka á slíkum
brotum á mun heildrænni hátt en
unnt er innan ramma núgildandi
laga. Þegar grunur um ofbeldi og
kynferðisofbeldi vaknar innan fjöl-
skyldunnar á öll fjölskyldan hlut að
máli, og það að úrskurða að einn ein-
staklingur sé saklaus er alls ófull-
nægjandi meðferð ef það skilur aðra
málsaðila eftir í sárum. Jón Steinar
staðhæfir, að öllum líkindum rétti-
lega, að dómstóll hafi ekki heimild til
að taka á öðrum vanköntum í fari
ákærða sem koma í ljós við réttar-
höldin; en það er að sjálfsögðu jafn
mikil óhæfa að láta slík mál þar með
niður falla.
Í málum þar sem fjölskylda deilir
um afbrot innan veggja heimilisins er
greinilega mikill harmur á ferð.
Sýknudómur á hendur einum máls-
aðila er fráleitt lausn á málinu; dóms-
kerfinu og samfélaginu í heild ber
skylda til að taka á málinu á mun full-
komnari hátt. Það er mikill ósómi ef
lagabókstafsmenn gera lítið úr til-
raunum annarra til að vekja máls á
þessum vanda.
Höfundur er lektor við Háskóla
Íslands. Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður.
Brandtex fatnaður
Nýbýlavegi 12, sími 5544433