Morgunblaðið - 28.03.2001, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 28.03.2001, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ                                        BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329 Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Í MORGUNBLAÐINU 16. feb. síð- astliðinn rakst ég á heilsíðuauglýs- ingu 7 samfélaga sem kenna sig við Jesú Krist frá Nasaret, undir yfirskriftinni: Í bæn fyrir þér! Síðan segir: „Undanfarnar 7 vikur höfum við og söfnuðir okkar verið að biðja fyr- ir þér. Í 2 Kron. 7:2 segir: Og lýð- ur minn, sá er við mig er kenndur, auðmýkir sig, og þeir biðja og leita auglitis míns og snúa sér frá sín- um vondu vegum, þá vil eg heyra þá frá himnum, fyrirgefa þeim syndir þeirra.“ Síðan segir : „Við teljum að með þessum orðum sé Guð að tala til okkar allra um iðrun og afturhvarf til sannrar Guðkristni. Menn og konur hvarvetna þurfa að snúa sér og leita Guðs til að verndarhendi hans sé yfir landi og lýð.“ Undir þetta skrifa 7 samfélög: Fíladelfia, Vegurinn, Ísl. Krists- kirkjan, Kefas, Kletturinn og Kross- inn. Góð auglýsing. Sú kirkja sem kennt hefur sig við Krist hefur um langt skeið farið vill vegar. Þar hefur þrifist valdabarátta og pólitík sem oft hefur orðið andkristin, valdið sundrung og ýmsu fleiru. Inn smeygt anda Anti-Krists vegna verka fræðimanna og blindra leið- toga sem hafa leitt sauðina til slátr- unar í andlegum skilningi, sett þá í hlekki og læst himnaríki fyrir mönn- um. Matteus 23:13. Gert hús Guðs að fangelsi Anti-Krists! Menn og konur lamin niður þar sem Biblían, heilög ritning, er slitin úr öllu samhengi, múgsefjun beitt, hræðsluáróðri um að drottinn sé að koma, tímasett! Þess eru dæmi að sauðirnir hafi slas- ast á samkomum, lætin slík sumstað- ar! Varla er um að ræða gleði og frið í heilögum anda í slíkum tilvikum. Hvar eru hinir kristnu? Lítið fer fyr- ir þeim þar sem neyðin er, meðal heimilislausra t.d.! Eflaust eru þeir í kirkjunum hlekkjaðir og marðir undir hæl fræðimanna! Jak. 2:14–16. Hvað stoðar það, bræður mínir, þótt einhver segist hafa trú, en hefur eigi verk? Mun trúin geta frelsað hann? Ef bróðir eða systir eru nakin og vantar daglegt viðurværi og einhver yðar segði við þau: Farið í friði, vermið yður og mettið! En þér gefið þeim ekki það sem líkaminn þarfn- ast, hvað stoðar það? Eins er líka trúin dauð í sjálfri sér, vanti hana verkin. Skyldi vera að nú leysist úr læðingi kristilegur her hér á landi? Nú um daginn las ég í Morgun- blaðinu pistil frá séra Ólafi Oddi Jón- syni, Keflavík, þar sem presturinn kastaði sleggjunni til leiðtogans Gunnars í Krossinum sem svaraði hér í Morgunblaðinu. Ég verð að segja að hinn síðari var öllu verri en hinn fyrri: Talandi um auðmýkt, iðr- un og afturhvarf til sannrar Guð- kristni. Guð stendur í mót dramblát- um en auðmjúkum veitir hann náð! Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá! Guð gefi gleði og frið í heilögum anda. ALEXANDER B. GÍSLASON, Hrafnagilsstræti 38, Akureyri. Auðmjúkum veitir hann náð Frá Alexander Birni Gíslasyni: Alexander Björn Gíslason Í AÐDRAGANDA flugvallarkosn- inganna var því lýst yfir af hálfu R- listans, margítrekað, að ef ekki næð- ist tiltekinn fjöldi greiddra atkvæða í kosningunni yrði hún ekki marktæk. Þessi yfirlýsing borgarstjórans og fjölda fulltrúa R-listans breytti fyr- irhugaðri kosningu á þann veg að kjósendur áttu, miðað við þessar yf- irlýsingar, um þrjá kosti að velja. Einn var sá að mæta og greiða at- kvæði gegn vellinum, annar sá að mæta og greiða atkvæði með vell- inum og loks sá að mæta ekki til kosningarinnar og leggja þannig at- kvæði sitt á þá vogarskál að at- kvæðagreiðslan yrði ekki marktæk. Sterkar líkur eru á að fjöldi borg- arbúa hafi tekið þessa afstöðu og því setið heima. Að kosningum loknum er ljóst að samkvæmt yfirlýsingum R-listans eru niðurstöðurnar skýrar. Kosning- in varð ekki marktæk. Við þessa nið- urstöðu bregður hins vegar svo við að borgarstjórinn og hirð hennar lýsir því yfir að niðurstaða kosning- anna sé slík að leiðbeinandi sé um framtíðarskipulag Í Vatnsmýrinni. Ef þetta á að vera bindandi niður- staða kosninganna hefur lygi R-list- ans borið þann ávöxt sem hugsan- lega var með yfirlýsingunni stofnað til, sem sé að andstæðingar brott- flutnings sætu heima en þeir sem vildu völlinn burt næðu yfirhöndinni í dræmri kosningu. Auk lyginnar, sem vissulega ein- kennir mörg vinnubrögð R-listans, grípur liðið og ekki síst borgarstjór- inn til þeirrar lágkúru að afsaka svik sín með því að bera gerðir sínar sam- an við svik og pretti Davíðs Odds- sonar þegar hann og sjálfstæðis- menn í borgarstjórn sviku hunda- hald inn á borgarbúa þrátt fyrir að ljóst væri að gífurlegur meirihluti borgarbúa væri á móti hundahaldi. Allur sá skrípaleikur var gerður fyr- ir Davíð Oddsson, sem sjálfur átti ólöglegan hund í borginni. Ekki er kunnugt um að Ingibjörg Sólrún eigi nokkurra hliðstæðra hagsmuna að gæta – eða hvað? Lítilmannleg eru vinnubrögð R-listans í þessu máli og lítt virðist það fólk freistandi til sam- starfs. KRISTINN SNÆLAND leigubílstjóri, Engjaseli 65, Reykjavík. Lygin bar ávöxt Frá Kristni Snæland:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.