Morgunblaðið - 03.04.2001, Page 1
78. TBL. 89. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 3. APRÍL 2001
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, frestaði í gær fyrirhuguðum
þingkosningum um einn mánuð til
þess að geta einbeitt sér að því að fást
við gin- og klaufaveikifaraldurinn í
landinu.
Blair tilkynnti að sveitarstjórnar-
kosningum, sem halda átti 3. maí, yrði
frestað til 7. júní en ljóst er að frest-
unin þýðir einnig að frestun verður á
þingkosningum sem talið er að Blair
hafi ætlað að boða sama dag.
Þetta er í fyrsta sinn sem sveitar-
stjórnarkosningum er frestað í Bret-
landi síðan í seinni heimsstyrjöld og
er skýrt merki um það hve alvarlegur
gin- og klaufaveikifaraldurinn er.
William Hague, leiðtogi stjórnar-
andstöðunnar, hafði sagt að ef Blair
frestaði kosningunum væri óráðlegt
að tilgreina hvenær þær skyldu fara
fram ef baráttan við gin- og klaufa-
veikina tæki lengri tíma en búist væri
við.
En Blair hafnaði þeirri hugmynd.
„Ég tel að það væri alrangt að frest-
unin yrði ótímabundin. Frestun í
stuttan tíma er eitt, ótímabundin
frestun er allt annað mál. Bretland er
enn að fullu starfhæft.“
Stjórnin tilkynnti í gær að horfið
hafi verið frá hugmyndum um að
grípa til bólusetningar í baráttunni
við gin- og klaufaveikina. Yrði einung-
is beitt niðurskurði til að vinna bug á
faraldrinum.
Helstu ráðherrar í stjórn Blair
voru andvígir því að fresta kosning-
unum. Skoðanakannanir hafa sýnt að
Verkamannaflokkurinn ætti vísan
sigur á Íhaldsflokknum ef boðað yrði
til þingkosninga í maí.
Blair
frestar
kosning-
unum
London. AFP.
SLOBODAN Milosevic, fyrrverandi
forseti Júgóslavíu, áfrýjaði í gær
varðhaldsúrskurði sem kveður á um
gæsluvarðhald í mánuð á meðan
ásakanir á hendur honum verða
rannsakaðar.
Bandarísk stjórnvöld tilkynntu í
gær að þau myndu halda áfram að
veita Júgóslavíu fjárhagsaðstoð. Col-
in Powell, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, greindi bandaríska þinginu
frá því í gær að Júgóslavía hefði upp-
fyllt skilyrði fyrir fjárstuðningnum.
Þingið hafði áður lagt bann við frek-
ari aðstoð við Júgóslavíu nema
ákveðnar kröfur um breytingar í lýð-
ræðisátt yrðu uppfylltar. Almennt er
talið að þessi skilyrði hafi verið hvat-
inn að handtöku Milosevic í fyrradag.
Í áfrýjunarbeiðni Milosevic viður-
kennir hann í fyrsta skipti opinber-
lega að stjórnvöld í Belgrað hafi fjár-
magnað hersveitir Serba í Bosníu og
Króatíu í átökunum á Balkanskaga í
upphafi tíunda áratugarins. Í kærum
á hendur Milosevic er því haldið fram
að hann hafi dregið að sér fé er hann
var við völd. Milosevic heldur því hins
vegar fram í áfrýjuninni að hann hafi
ekki notað féð í eigin þágu heldur lát-
ið það renna til uppreisnarsveitanna.
Aðgerðunum hafi hins vegar verið
haldið leyndum á sínum tíma af ör-
yggisástæðum.
Toma Fila, lögfræðingur Milose-
vic, greindi blaðamönnum frá þessu í
gær. Að sögn Fila er Milosevic í haldi
í sérstökum hluta fangelsisins sem
kallaður er Hyatt eftir lúxushótelum
vegna þess að fangaklefarnir eru, að
því er serbnesk blöð herma, innrétt-
aðir á við hótelherbergi.
Carla del Ponti, saksóknari stríðs-
glæpadómstólsins í Haag, sagði í gær
að hún væri að undirbúa nýja kæru á
hendur Milosevic sem þegar hefur
verið kærður fyrir stríðsglæpi gegn
Albönum í Kosovo. Í viðtali við ítalska
dagblaðið La Repubblica sagðist hún
vera viss um að Milosevic yrði fram-
seldur til Haag fyrir árslok 2001.
Lögreglan í Belgrað sýndi í gær
vopnabúr það er fannst í hýbýlum
Milosevic. Þar mátti m.a. sjá riffla,
vélbyssur og handsprengjur. Lög-
reglan sagði glæparannsókn vera
hafna á því hvort Milosevic hafi
skipulagt varðsveit þá er kom, með
skothríð á lögregluna, í veg fyrir
handtöku hans sl. laugardag. Einnig
er hafin undirbúningur að kæru á
hendur Mariju Milosevic, dóttur for-
setans fyrrverandi, vegna þess að
hún greip til vopna er faðir hennar
var handtekinn í fyrradag.
Bandaríkjastjórn heitir Júgóslavíu áframhaldandi stuðningi
Milosevic áfrýjar
varðhaldsúrskurði
Belgrað. AFP, Reuters.
Reuters
Lögreglumaður sýnir vopn sem fundust í bústað Slobodans Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu.
Brjálæðið yfirstaðið/30
LÖGREGLUMENN og kafarar
flotans í Kenýa reyndu í gær að ná
upp líkum allt að hundrað manns
sem létu lífið er tvær rútur rákust
saman á brú og féllu síðan í fljótið
Sabaki á sunnudag. Fyrst í stað voru
bílflökin að hluta til sýnileg en vegna
mikilla rigninga hækkaði vatnsborð
árinnar og huldi þau í gærkvöldi.
„Allir æptu, það heyrðist mikill
hvellur, síðan varð mikil ringulreið
og rúturnar steyptust báðar fram af
brúnni,“ sagði einn af þeim sem kom-
ust af, Peter Kaimosi er slapp með
skrámur. Hann var einn af 23 sem
lifðu slysið af. „Mér tókst að komast
út úr rútunni og synda í land,“ sagði
hann.
Talsmaður lögreglu sagði útilokað
að slá nokkru föstu um fjölda þeirra
sem hefðu lokast inni í bílunum en
þeir gætu hafa verið allt að eitt
hundrað. Rúturnar voru báðar á leið
til ferðamannastaðarins Malindi við
ströndina og er talið að þær hafi rek-
ist á þegar fremri rútan varð að
nema staðar vegna kyrrstæðrar
smárútu. Algengt er að fleiri farþeg-
ar séu í rútum í Kenýa en heimilt er
og mannskæð bílslys eru tíð.
Reuters
Björgunarmenn í Kenýa að störfum í vatnsflaumi árinnar Sabaki í gær.
Mannskætt rútuslys
Malindi í Kenýa. AFP.
KÍNVERSKIR embættismenn
sögðu í gærkvöld að 24 manna áhöfn
bandarísku njósnaflugvélarinnar,
sem neyddist til að lenda á Hainan-
eyju í Kína eftir árekstur við kín-
verska herflugvél á sunnudag, væri
þar í haldi. George W. Bush Banda-
ríkjaforseti krafðist þess í gær að
fólkið fengi að „snúa heim án tafar,
heilt á húfi.“
Fréttavefur BBC hafði í gærkvöld
eftir Richard Boucher, talsmanni
bandaríska utanríkisráðuneytisins,
að kínversk stjórnvöld hefðu heitið
því að sendimenn Bandaríkjastjórn-
ar fengju að hitta meðlimi áhafnar-
innar í dag. CNN skýrði frá því að
hópurinn hefði verið aðskilinn og að
fólkinu væri haldið föngnu á nokkr-
um stöðum en ekki var ljóst hvar eða
við hvernig aðstæður.
Bandaríska njósnavélin, sem er af
gerðinni EP-3 og hafði bækistöðvar í
Kadena-herstöðinni á Okinawa í
Japan, var að fljúga könnunarflug í
Suður-Kínahafi, um 70 sjómílum
undan ströndum Hainan-eyjar, þeg-
ar hún rakst á kínverska herflugvél.
Kínverska vélin hrapaði í hafið og
leit að henni hafði ekki borið árangur
í gærkvöld. Flugmaðurinn var einn í
vélinni og var hann talinn af.
Bandaríska njósnavélin nauðlenti
skömmu síðar á herflugvelli á Hain-
an-eyju og Bandaríkjastjórn krafðist
þess að Kínverjar reyndu ekki að
fara um borð enda bryti það í bága
við alþjóðalög. Vélin er á stærð við
150 sæta farþegaþotu og er hlaðin
ýmiss konar tækjum og njósnabún-
aði, að sögn The Daily Telegraph.
Óttast að málið skaði samskipti
Bandaríkjanna og Kína
Kínverjar og Bandaríkjamenn
kenna hverjir öðrum um árekstur-
inn. Í yfirlýsingu frá kínverska hern-
um segir að nef og vinstri vængur
bandarísku vélarinnar hafi rekist á
þá kínversku og valdið því að hún
hrapaði en að sögn bandaríska
Kyrrahafsheraflans flugu tvær kín-
verskar herflugvélar í veg fyrir EP-3
vélina og áttu því sök á árekstrinum.
Óttast er að málið geti dregið dilk
á eftir sér en samskipti Bandaríkj-
anna og Kína hafa stirðnað nokkuð
eftir að Bush tók við forsetaembætti.
Hugsanleg vopnasala Bandaríkja-
manna til Tævan hefur vakið reiði
Kínverja og þeir hafa sömuleiðis
mótmælt áformum Bandaríkja-
stjórnar um að koma upp eldflauga-
varnakerfi.
Áhöfn bandarískrar njósnaflugvélar í haldi í Kína
Bush krefst þess að
fólkið fái að snúa heim
Lingshui, Sanya, Washington. AFP, AP, Reuters.