Morgunblaðið - 03.04.2001, Síða 14
FRÉTTIR
14 ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HARÐAR deilur hafa risið innan
Geðhjálpar um lögmæti aðalfundar
félagsins sem boðað hafði verið til
síðastliðinn laugardag. Formaður
félagsins frestaði fundinum eftir að
deilur komu upp um hvort fundar-
gestir væru félagsmenn eða ekki og
gekk af fundi ásamt þorra stjórnar
en þeir sem eftir sátu héldu fund-
inum áfram og kusu nýjan formann
og stjórn.
Að sögn Eydísar Sveinbjarnar-
dóttur, formanns félagsins, voru
100-150 manns á fundinum sem ekki
voru skráðir félagsmenn í Geðhjálp
og neituðu að gefa upp nafn svo
hægt væri að bera það við félaga-
skrá. Hún segir að aldrei hafi verið
fært að hefja aðalfundarstörf.
„Þarna mætti manni allskyns skít-
kast og dónaskapur áður en hægt
var að byrja þennan fund og það
gekk ekki að kjósa fundarstjóra því
það kom í ljós að fólk var ekki með
kosningarétt þarna inni. Fundinum
var hleypt upp og þarna var fólk
drukkið og með framíköll.“
„Nýtti sér skjólstæðinga sína“
Hún segir að vegna þessa hafi hún
ákveðið að fresta fundinum enda
höfðu reyndir fundar- og félags-
menn tjáð henni að formaður gæti
gert það ef ekki væri fundarhæft
vegna óláta. Lögfræðingar hafi svo
staðfest þetta síðar.
Hún segist búast við að um ein-
hvers konar smölun hafi verið að
ræða hjá Kristófer Þorleifssyni geð-
lækni, sem var kosinn nýr formaður
af þeim sem eftir sátu á fundinum en
auk hans var Sigursteinn Másson
blaðamaður í framboði til formanns.
„Það sem ég er hrædd um en hef
ekki fengið staðfest er að þarna
komi Kristófer inn með sína skjól-
stæðinga og mér finnst mjög ámæl-
isvert ef geðlæknir etur sjúklingum
sínum fram á þennan hátt.“
„Hljópst á brott“
Kristófer Þorleifsson vísar þessu
á bug og segir að um réttmæta kosn-
ingu hafi verið að ræða. Hann segir
fundinn hafa verið löglega boðaðan
og Eydís hafi sjálf sett hann eins og
myndbandsupptökur sýni. Komið
hafi til snarpra orðaskipta þegar
rætt var um hver ætti að vera fund-
arstjóri og í kjölfarið hafi Eydís gert
athugasemd við að ekki væru allir
viðstaddir félagsmenn. „Þá var
henni bent á að það væri ekkert í
lögum félagsins sem segði til um það
hvernig aðild ætti að vera fyrir fund.
Hún bauð þá öllum að skrá sig í
félagið sem ekki væru þegar skráðir
og það var gert fundarhlé.“
Hann segir Eydísi hafa slitið
fundinum og boðað til framhaldsað-
alfundar að loknu þessu hléi og yf-
irgefið fundinn ásamt um 20 manns.
Þessa ákvörðun segir hann hafa ver-
ið ólögmæta. „Það er bara fundurinn
sjálfur sem getur ákveðið það að
fresta þannig að við lítum svo á að
þetta fólk hafi bara hlaupist á brott.
Það var þarna einn stjórnarmaður
eftir sem tók að sér að stjórna fund-
inum og kjósa fundarstjóra og fund-
arritara. Síðan var ný stjórn kosin
og einstökum liðum frestað fram til
aðalfundar sem ný stjórn ákvað að
boða til fyrir 1. maí.“
„Mismunandi
skýringar á frestun“
Hann segir alrangt að fundargest-
ir hafi verið drukknir og með skríls-
læti en segir að snörp orðaskipti hafi
orðið þegar Eydís hafi ætlað sér að
brjóta á þorra fundarmanna. Þá seg-
ir hann skýringar Eydísar á því
hvers vegna fundinum var frestað
vera mismunandi. Annars vegar hafi
hún sagt að fundurinn hafi aldrei
verið settur og hins vegar vegna
þess að fundarmenn hafi verið með
ólæti. Hins vegar sé hið rétta að hún
hafi sagt að fundinum væri frestað
vegna fjölda nýskráðra félaga og þar
sem reikningar félagsins lágu ekki
fyrir. „Og ég verð að segja að það er
algjör dónaskapur við fundarmenn
sem sumir búa úti á landi að boða til
aðalfundar og hafa aldrei ætlað að
halda hann af því að það er ekki búið
að gera reikningana til.“
Ósk um íhlutun hafnað
Kristófer segist hafa farið fram á
það við fráfarandi stjórn að báðir að-
ilar viðurkenndu að það væri búið að
skipta um forystu. Eydís segist hins
vegar ekki líta svo á að hún sé búin
að skila félaginu af sér. „Ég hefði
viljað að það hefði orðið sátt um að
halda nýjan aðalfund þar sem fólk
sýndi lágmarks kurteisi og almenn-
ar hegðunarreglur væru í gildi.“
Hún segist ennfremur óttast um
framtíð félagsins ef ekki verður
komist að samkomulagi í málinu því
fjöldi fólks sem starfar innan þess
treysti sér ekki til að starfa með
Kristófer.
Í gær óskuðu deiluaðilar eftir
fundi með óvilhöllum aðila til að
ræða málin enda sammála um að
óæskilegt sé að málið fari fyrir dóm-
stóla. Málefni frjálsra félagasam-
taka á borð við Geðhjálp heyra undir
dómsmálaráðuneytið og var óskað
eftir íhlutun þess en að sögn Eydísar
var þeirri ósk hafnað.
Fylkingar deila hart um það hvort aðalfundur Geðhjálpar hafi verið lögmætur
Dómsmálaráðuneyt-
ið hafnar íhlutun
GUÐMUNDUR Eyjólfsson, skíða-
göngumaður í leiðangrinum „Frá
strönd til strandar 2001“, neyddist
til að halda kyrru fyrir í tjaldi sínu í
gær norðan Fjórðungsvatns á
Sprengisandi, vegna hvassviðris og
skafrennings. Vindhraðinn nam
10–15m/s og átti að hvessa enn
frekar í gærkvöldi. Á meðan Guð-
mundur beið af sér hvassviðrið
þurfti hann að moka frá tjaldinu af
og til svo það léti ekki undan þunga
skafrunnins snjávar.
Guðmundur ber sig engu að síður
vel samkvæmt nýjustu fregnum og
hefur hann náð góðum dagleiðum
við og við frá því hann lagði af stað
frá Hveravöllum sl. fimmtudag. Á
laugardag gekk hann 30 km en
varð að sætta við sig 16 km dagleið
1. apríl. Hann hefur nú gengið um
340 af 600 km eða sem samsvarar
56% af upphaflega áætlaðri heild-
arvegalengd, sem gæti hugsanlega
styst vegna breytinga á ferða-
áætlun.
Ljósmynd/Guðmundur Eyjólfsson
Hélt kyrru fyrir
vegna hvassviðris
MILLJÓN ferðamenn
– hvernig tökum við á
móti þeim? er yfir-
skrift ráðstefnu sem
haldin verður samfara
aðalfundi Samtaka
ferðaþjónustunnar
(SAF) þ. 4. – 5. apríl
nk. Búist er við um
200 manns úr ferða-
þjónustunni hvaðan-
æva af landinu.
Að sögn Ernu
Hauksdóttur, fram-
kvæmdastjóra SAF,
er þetta í þriðja sinn
sem aðalfundur er
haldinn í samtökunum
en þau voru stofnuð
árið 1998. Hún segir stóra málið á
fundinum vera fjölgun ferðamanna
hingað til lands. „Við stöndum
frammi fyrir því að það er kannski
ekkert svo óskaplega langt þangað
til ferðamenn verða svona margir
og þá þurfum við að taka til hend-
inni,“ segir hún.
Ráðstefnan hefst á því að kynnt
verður spá Þjóðhagsstofnunar um
það hvenær ferðamenn verða
milljón talsins en á síðasta ári voru
þeir rúmlega 300 þúsund eftir að
hafa fjölgað mjög ört síðustu ár.
„Við náðum því á síðasta ári í
fyrsta sinn að ferðamenn voru
fleiri en landsmenn og það var
töluvert skref út af fyrir sig,“ seg-
ir Erna. Í kjölfar umfjöllunar
Þjóðhagsstofnunar verður velt upp
þeirri spurningu hvernig ferða-
maður framtíðarinnar verður og
hvort ferðahegðun hans sé að
breytast.
Miklar fjárfestingar
framundan
Að þessum spám loknum verður
sérstaklega fjallað um tvo þætti
þessu viðkomandi, annars vegar
samgöngur á Íslandi og hins vegar
fjárfestingu í grunnþáttum ferða-
þjónustu. „Það er alveg ljóst að
það þarf að fjárfesta mjög mikið til
að geta tekið á móti milljón ferða-
mönnum, ekki bara í vegum og
öðru skipulagi sem stjórnvöld
koma að, heldur þarf
að vera hægt að þjóna
þessum ferðamönn-
um,“ segir Erna. Hún
segir þó fleira koma
til. „Það er alveg ljóst
að ef heldur fram sem
horfir þurfa bæði
greinin sem slík og
stjórnvöld að undir-
búa sig því aukningin
hefur verið gríðar-
leg.“
Tveggja tíma mark-
aðstorg verður svo að
loknum þessum um-
ræðum. „Innan SAF
eru bæði kaupendur
og seljendur því allar
ferðaskrifstofurnar eru hérna inni
auk þeirra sem eru að selja ferða-
skrifstofunum, t.d. hótel, veitinga-
hús, afþreyingarfyrirtæki, sam-
göngufyrirtæki o.s.frv. Á mark-
aðstorginu eru þessir aðilar að
kynna vörur sínar og þjónustu og
starfsfólk ferðaskrifstofanna kem-
ur inn á torgið og kynnir sér nýj-
ungar.“
Í hádeginu á fimmtudeginum
verður ríkisskattstjóri, Indriði H.
Þorláksson, með erindi þar sem
hann mun fjalla um hvað sé hægt
að taka til bragðs varðandi svarta
atvinnustarfsemi. Erna segir þetta
nokkuð víðtækt vandamál innan
ferðageirans: „Svört atvinnustarf-
semi er svartur blettur á ferða-
þjónustunni og gríðarlega mikið
mál að hægt sé að taka á því. Ekki
bara vegna samkeppninnar heldur
líka vegna allra öryggismála því
svört atvinnustarfsemi tengist oft
á tíðum leyfisleysi og öðru sem við
viljum ekki í þessum geira.“
Erna segir þetta form aðalfund-
ar hafa verið afskaplega árangurs-
ríkt því þarna hittist gríðarlegur
fjöldi fólks sem er að starfa í
ferðaþjónustunni og eiga margt
sameiginlegt. „Það má segja að
það sé gríðarlega stórt verkefni
fram undan að horfa fram á hvað
það er margt sem við þurfum að
gera ef ferðamönnum heldur
áfram að fjölga með sama hætti.“
Aðalfundur Samtaka ferða-
þjónustunnar hefst á morgun
Ör fjölgun ferða-
manna rædd
á ráðstefnu
Erna
Hauksdóttir
ÁLIT umboðsmanns Alþingis, þar
sem komist var að þeirri niðurstöðu
m.a. að viðbrögð lögreglunnar í
Reykjavík hefðu ekki verið í sam-
ræmi við lögboðnar skyldur og hlut-
verk hennar þegar ítrekað var kvart-
að undan hávaða frá atvinnu-
húsnæði, er nú til skoðunar jafnt hjá
Ríkislögreglustjóraembættinu og
embætti Lögreglustjórans í Reykja-
vík.
Böðvar Bragason lögreglustjóri
sagði að málið væri til umfjöllunar
og skoðunar hjá embættinu. Engin
viðbrögð yrðu því frá embættinu
fyrr en að þeirri skoðun lokinni.
Haraldur Johannessen ríkislög-
reglustjóri segir að álitið sé til skoð-
unar. Lögfræðingar embættisins
hafa fundað með umboðsmanni Al-
þingis vegna álitsins. „Við erum að
kanna það hvernig við bregðumst við
og erum í viðræðum m.a. við lög-
reglustjórann í Reykjavík um málið.
Það skýrist líklega á næstu vikum
hver viðbrögðin verða,“ segir Har-
aldur.
Hann segir að nefnt sé í álitinu að
setja þurfi verklagsreglur um þessi
efni og m.a. sé verið að skoða það.
Málið skoð-
að hjá emb-
ættunum
Umboðsmaður
Alþingis um við-
brögð lögreglunnar
MÁL kennara í Húsaskóla, sem
leystur hefur verið frá störfum
tímabundið vegna atviks þar sem
nemandi fingurbrotnaði, er í rétt-
um farvegi hjá fræðsluyfirvöldum
og lögreglu að sögn Valgerðar
Selmu Guðnadóttur, skólastjóra í
Húsaskóla.
Nemandinn fingurbrotnaði í
stympingum sem urðu þegar
kennarinn vísaði honum úr
kennslustund og hafa foreldrar
drengsins kært atburðinn.
Að sögn Valgerðar er frávikn-
ing kennarans tímabundin á með-
an málið er í rannsókn en hún veit
ekki hvenær niðurstöðu rann-
sóknarinnar er að vænta. Að öðru
leyti vill hún ekki tjá sig um mál-
ið.
Kennari leystur frá störfum
„Málið í rétt-
um farvegi“