Morgunblaðið - 03.04.2001, Qupperneq 28
ÚR VERINU
28 ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÝR
byltingarkenndur
andlitsfarði
facefinity
Förðunarfræðingur veitir
faglega ráðgjöf.
KYNNINGAR KL. 14-18
3. apríl - þriðjudag
Lyfja Lágmúla
4. apríl - miðvikudag
Lyfja Hamraborg
5. apríl fimmtudag
Lyfja Garðatorgi
6. apríl föstudag
Lyfja Setbergi
Nýja facefinity með Permawear.
„Engin þörf á að lagfæra andlitsfarðann þegar líður á
daginn, facefinity stendur fyrir sínu.“
Louise Constad, verðlaunahafi í kvikmyndaförðun.
Kvikmyndir sem Max Factor hefur séð um förðun eru m.a. Charlie’s Angels, Anna and the King, Notting
Hill, Titanic, The English Patient, Evita, Ever After, Bugsy mMalone, Alien, Interview with a Vampire,
Midnight Express....
Hannað til að
haldast á húðinni,
smitast ekki.
STOFNVÍSITALA þorsks á Íslands-
miðum er töluvert lægri en síðasta ár,
samkvæmt stofnmælingu Hafrann-
sóknastofnunarinnar sem nú er ný-
lokið. Stofnvísitala ýsu er hins vegar
45% hærri en í fyrra.
Stofnmæling botnfiska á Íslands-
miðum, svokallað togararall, fór fram
í 17. sinn dagana 2. til 23. mars sl. Ald-
ursgreining fiska og úrvinnsla gagna
er aðeins skammt á veg komin en í
þeim niðurstöðum sem þegar liggja
fyrir kemur hinsvegar fram að hita-
stig sjávar við botn var hátt fyrir öllu
Norðurlandi og fyrir austan land var
hærri hiti en sést hefur síðan í fyrsta
rallinu árið 1985.
Minna var af þorski en á síðasta ári
og verulega minna en þegar síðasta
hámarki var náð árið 1998. Útbreiðsla
þorsksins er nokkuð önnur en árið
2000 og fékkst mun minna af þorski á
Suðurmiðum og á Vestfjarðamiðum
en meira norðan lands og austan.
Lengdardreifing bendir til að árgang-
ar 1997-2000 séu allir nálægt meðal-
árgangi að stærð en vísbendingar frá
síðasta ári um lakara ástand eldri ár-
ganga virðast ganga eftir.
Þorskur var víða víðast hvar í góð-
um holdum enda loðnugengd verið
mikil víða í kringum landið.
Stofnvísitala ýsu enn mjög lág
Stofnvísitala ýsu hækkaði um 45%
frá árinu 2000 en þá var hún sú lægsta
í sögu rallsins. Hún er enn mjög lág
en árgangar 1999 og 2000 virðast
mjög sterkir. Aukning í ýsu var eink-
um áberandi á Norðurmiðum. Teng-
ist þessi aukning væntanlega hækk-
andi hita á Norðurmiðum.
Stofnvísitala gullkarfa lækkaði frá
fyrra ári og er nú svipuð og á árunum
1996-1998 en mun lægri en árið 1999
er hún fór hæst. Vísitala steinbíts
lækkaði fjórða árið í röð og er nú 75%
af því sem hún var 1998 er hún var
hæst. Af flatfiskum er það að segja að
vísitala skarkola er óbreytt frá fyrra
ári en þá var hún sú lægsta frá upp-
hafi rallsins. Vísitala langlúru og
þykkvalúru hækkar hins vegar frá
undanförnum árum.
Niðurstaða stofnmælingarinnar,
sem hér er kynnt til bráðabirgða, er
einn þáttur árlegrar úttektar Haf-
rannsóknastofnunarinnar á ástandi
nytjastofna við landið. Þessa dagana
er einnig að hefjast stofnmæling
þorsks með netum, svokallað netarall,
þar sem sjónum verður sérstaklega
beint að hrygningarslóð þorsks. Jafn-
framt stendur yfir mikil úrvinnsla
gagna svo sem nánari sundurgreining
á afla í stofnmælingunni, m.a. með til-
liti til aldurs, og nákvæmari greining
afla á vertíðinni sem ekki er síður
mikilvægt til glöggvunar á ástandi
stofnsins.
Lokaúttekt á niðurstöðum og til-
lögur Hafrannsóknastofnunarinnar
um aflamark fyrir næsta fiskveiðiár
verða kynntar í byrjun júní nk.
Fjórir togarar voru leigðir til tog-
ararallsins að þessu sinni: Jón Vídalín
ÁR 1, Ljósafell SU 70, Brettingur NS
50 og Breki VE 61. Að auki var rann-
sóknarskipið Árni Friðriksson RE
látið taka norðvestursvæðið til sam-
anburðar við Jón Vídalín. Leiðang-
ursstjórar um borð í rallskipum voru
þeir Einar Jónsson, Jónbjörn Páls-
son, Sólmundur T. Einarsson og Val-
ur Bogason, en um borð í Árna Frið-
rikssyni var Björn Ævarr Steinars-
son leiðangursstjóri.
Stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum
Minna af þorski
en á síðasta ári
VERKFALL sjómanna á fiskiskip-
um, sem hófst á sunnudagskvöld,
mun fyrst í stað hafa hvað mest
áhrif á ferskfiskútflutning frá Ís-
landi, þar sem búast má við að
verulega dragi úr framboði á fiski.
Dragist verkfallið á langinn mun
það einnig hafa áhrif á þorskveiðar
og veiðar á úthafskarfa.
Verkfall hófst hjá sjómönnum á
fiskiskipaflotanum á sunnudags-
kvöld og samkvæmt fregnum þok-
ast lítt í samkomulagsátt í samn-
ingaviðræðum sjómanna og
útvegsmanna. Ómögulegt er að spá
fyrir um hversu lengi verkfallið
mun standa yfir en grundvallar-
ágreiningur er um mikilvæg mál,
s.s. verðmyndun á afla og mönn-
unarmál.
Alls voru 168 íslensk skip á sjó í
gærmorgun, samkvæmt upplýsing-
um frá Tilkynningaskyldunni.
Mest var um trillur og minni báta,
en mörg stærri skipin voru á land-
leið vegna verkfallsins. Þá voru
fjögur skip frá Færeyjum á línu-
veiðum innan íslensku landhelginn-
ar, við suðausturlandið, og tvö
grænlensk skip á loðnuveiðum.
Áhrifa verkfallsins mun fyrst í
stað einkum gæta hjá fyrirtækjum
sem flytja ferskan fisk á markaði
erlendis. Töluverðar verðhækkanir
hafa orðið á flestum sjávarafurðum
erlendis, sérstaklega hefur ferskur
fiskur hækkað í verði. Verkfallið
gerir það að verkum að fyrirtæki
sem flytja út ferskan fisk fá ekki
nægilegt hráefni og geta því ekki
staðið við samninga sem eru jafnan
gerðir fram í tímann. Þannig
minnka tekjur þessara fyrirtækja,
auk þess sem verkfallið kann að
skaða markaðsstöðu þeirra.
Verkfallið kemur í
stað hrygningarstoppsins
Ljóst er að stærsti hluti vertíð-
arbátaflotans hefur stöðvast í
verkfallinu en bátum minni en 12
brúttótonn er þó heimilt að róa,
svo og bátum frá Snæfellsnesi og
sunnanverðum Vestfjörðum, en
þar var ekki boðað verkfall. Árleg
friðun hrygningarþorsks, hið svo-
kallaða hrygningarstopp, átti að
hefjast á sunnudag og standa fram
til 15. apríl nk. en það bannar allar
veiðar innan afmarkaðra svæða
allt frá Horni, austur með strönd-
inni að Stokksnesi. Hinsvegar er
nú útlit fyrir að ekki verði af
hrygningarstoppinu á þessu ári,
enda er litið svo á að í verkfallinu
felist nægileg friðun á hrygning-
arþorski og því sé ekki ástæða til
að banna sókn í hann sérstaklega.
Verkfallið mun því ekki hafa telj-
andi áhrif á þorskveiðar, svo fremi
sem það dragist ekki mjög á lang-
inn.
Loðnuvertíðinni var nánast lokið
um það leyti sem verkfallið hófst á
sunnudag og hefur það því ekki
mikil áhrif á mjölvinnslu. Þó var
a.m.k. eitt skip komið á kolmunna-
veiðar suðaustur af landinu fyrir
helgi. Frá því að verkfalli sjó-
manna var frestað hinn 19. mars
sl. hafa veiðst í kringum 100 þús-
und tonn af loðnu og því varla
meira en 20 til 30 þúsund tonn eft-
ir af kvótanum. Ætla má að út-
flutningsverðmæti um 100 þúsund
tonna af loðnu sé á bilinu 750 til
800 milljónir króna, sé miðað við
að allur aflinn hafi farið til
bræðslu. Samkvæmt upplýsingum
Samtaka fiskvinnslustöðva veidd-
ust um 760 þúsund tonn af loðnu
frá áramótum sem er með betri
vetrarvertíðum frá upphafi.
Úthafskarfavertíðin
senn að hefjast
Úthafskarfavertíðin á Reykja-
neshrygg hefst að venju um miðj-
an apríl. Íslendingum er heimilt að
veiða 45 þúsund tonn af úthafs-
karfa á þessu ári og því skipta
veiðarnar þjóðarbúið verulegu máli
en ætla má að útflutningsverðmæti
úthafskarfans sé nálægt 5 millj-
örðum króna á ári. Mestu upp-
gripin í úthafskarfanum eru eink-
um í maí og því er ljóst að
verkfallið þarf að dragast verulega
á langinn til þess að hafa mikil
áhrif á úthafskarfaveiðarnar. Í
versta falli gætu íslenskar útgerðir
misst af mestu uppgripunum og
náð kvótanum með minni framlegð.
En þrátt fyrir það hefur karfaverð
í Evrópu hækkað um 15% og ætti
það að gefa til kynna að mjög góð
afkoma gæti orðið í útgerðinni.
Síldveiðar úr norsk-íslenska síld-
arstofninum hefjast alla jafna í
maímánuði. Ljóst er að langt verk-
fall getur haft veruleg áhrif á síld-
arvertíðina þar sem síldin hefur
einkum veiðst í maí og júníbyrjun
en verið erfiðari viðureignar eftir
þann tíma. Útflutningsverðmæti
afurða úr norsk-íslensku síldinni
hefur verið um milljarður króna á
ári hverju, en síldin fer að lang-
mestu leyti í bræðslu.
Langt sjómannaverkfall mun hafa víðtæk áhrif
Áhrifa gætir fyrst í
ferskfiskútflutningi
RÉTTINDI til veiða úr norsk-ís-
lenska síldarstofninum fylgja
með sölu á nótaskipinu Guðrúnu
Þorkelsdóttur SU en þau eru ekki
verðlögð sérstaklega, að sögn
Elfars Aðalsteinssonar, forstjóra
Hraðfrystihúss Eskifjarðar.
Réttindunum er skipt þannig
að þau skip sem stunduðu veiðar
úr stofninum 1995 til 1997 fá rétt-
indin. 60% heimildanna er skipt
jafnt á milli skipanna burtséð frá
afla á fyrrgreindu tímabili en 40%
eftir burðargetu skipanna. Ekki
er búið að úthluta kvóta fyrir yf-
irstandandi ár, en Hraðfrystihús
Eskifjarðar hafði samtals yfir að
ráða 7,44% af heildarúthlutun eða
14.598 tonnum af 194.000 tonn-
um, sem skipt var á 61 skip. Þar
af voru 3.347 tonn skráð á Guð-
rúnu Þorkelsdóttur, en ekki ligg-
ur fyrir hvað miklar heimildir
fylgja með skipinu í sölunni.
Réttindin ekki verðlögð
JÓN Egill Egilsson, sendiherra Ís-
lands í Moskvu, átti tvo fundi í gær
með rússneskum ráðamönnum vegna
innflutningsbanns Rússlands á mat-
væli frá Evrópu en engin niðurstaða
fékkst varðandi hugsanlega undan-
þágu Íslands til að flytja inn sjávaraf-
urðir til Rússlands.
Bannið var sett á fyrir viku vegna
gin- og klaufaveiki í Evrópu en með
aðgerðunum vilja Rússar koma í veg
fyrir að veikin berist til Rússlands.
Jón Egill og norski sendiherrann áttu
fund með aðstoðaryfirdýralækni
Rússlands í gær þar sem afstaða
Rússa var skýrð og gerð grein fyrir
sjónarmiðum Íslands og Noregs. Í
máli heimamanna kom fram að málið í
heild sinni væri í skoðun en niðurstöð-
ur lægju ekki fyrir.
Að loknum þessum fundi átti Jón
Egill annan fund í efnahags- og við-
skiptaráðuneyti Rússlands til að
fylgja málinu eftir en fyrir skömmu
áttu sér stað viðræður við starfsmenn
ráðuneytisins um viðskipti landanna.
Hann gerði grein fyrir stöðunni og
áhyggjum Íslands varðandi viðskipti
þjóðanna vegna fyrrnefnds banns.
Málið enn í
vinnslu
♦ ♦ ♦