Morgunblaðið - 03.04.2001, Síða 47
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 2001 47
Hollt og huggulegt í hádeginu!
Súpa og salat
Hádegishlaðborð
+ súpa og salatbar
alla virka daga
Fjölbreyttur matseði l l a l la daga!
Simi: 553 9700
FÉLAGAR í Starfs-
mannafélagi ríkisstofn-
ana eru um þessar
mundir að ganga til at-
kvæðagreiðslu um ný-
gerða kjarasamninga.
Þótt við höfum ekki
fengið öllum kröfum
okkar framgengt er
hér um að ræða mik-
ilvæga áfanga í launa-
baráttu okkar og
margvíslegir félagsleg-
ir ávinningar eru fólgn-
ir í samkomulaginu við
viðsemjendur okkar.
Löng samningalota
er að baki og vil ég
þakka samstarfsfólki
mínu, í Launamálaráði SFR, stjórn
og samninganefnd, árvekni og dugn-
að í samningaviðræðum. Í þessari
grein ætla ég að freista þess að
kynna nokkur atriði í þessum samn-
ingi. Rýmisins vegna get ég þó ein-
ungis tæpt á mörgum málum sem ít-
arlegar er um fjallað í sjálfum
samningnum.
Heildarkjarasamningurinn er á
heimasíðu félagsins www.sfr.bsrb.is
Launaliðurinn
Gildistími samningsins er frá 1.
mars 2001 til 30. nóvember 2004.
Hækkun launa er 6,9% frá 1. mars á
þessu ári, 3% 1. jan nk. og síðan 3%
hækkun um áramótin 2003 og 2004.
Einnig fá allir starfsmenn. miðað
við fullt starf tvær eingreiðslur
10.000 kr. 1. maí og 1. júní í ár.
Eins og kunnugt er eru lægstu
laun nú um 80 þúsund krónur, en á
samningstímanum mun það tak-
mark nást sem við settum að mark-
miði í upphafi samningsviðræðna að
lægstu laun verði 112 þúsund krón-
ur.
Sérstakar greiðslur
Desemberuppbætur verða á
samningstímabilinu þannig að fólk í
fullu starfi fær 35 þúsund kr. á þessu
ári, 36 þúsund á næsta ári, 37 þús-
und árið 2003 og 38 þúsund árið
2004. Sérstök orlofsuppbót, að upp-
hæð kr. 9.600 verður greidd 1. júní á
þessu ári þeim sem hefur verið í
starfi samfellt í eitt ár eða lengur, og
í kringum 10 þúsund krónur 1. júní
næstu þrjú árin.
Þá tókst að ná fram hækkun sem
nemur 10% á vaktarálagi um nætur
og helgar. Hækkunin
er úr 45% í 55%.
Greiðslur helgarálags
lengjast og hefjast kl.
17.00 á föstudegi og
nær til mánudags-
morguns.
Bætt kjör
Eins og áður sagði er
ætlunin að ná lægstu
laununum verulega
upp á samningstíman-
um eða upp í 112 þús-
und krónur á mánuði.
Samningsaðilar eru
auk þess sammála um
að grípa til sérstakra
rástafana svo bæta
megi kjör þeirra sem lakast eru sett-
ir . Sérstök nefnd skipuð þremur
fulltrúum frá báðum samningsaðil-
um hefur allt að 300 milljónir króna.
Sérstaklega verði skoðað hvort
launakerfið skili eðlilegri framþróun
launa. Skulu viðsemjendur leggja
sameiginlegt mat á þróunina og gera
tillögur um viðbrögð.
Stöðugleiki í verðlagsþróun
Auðvitað er gert ráð fyrir ákveðn-
um stöðugleika á vinnumarkaði og
það þarf ákveðnar forsendur þar að
lútandi til að samningurinn haldi.
Þær forsendur eru í sérstakri bókun
sem kveður á um það að losni kjara-
samningar á almennum vinnumark-
aði vegna verðlagsþróunar árunum
2002 eða 2003 er aðilum samnings
þessa heimilt að segja launalið hans
upp með þriggja mánaða fyrirvara.
Verði hins vegar gripið til annarra
úrræða en uppsagna vegna verð-
lagsþróunar á tímabilinu skulu
BSRB annars vegar og samninga-
nefnd ríkisins hins vegar leggja mat
á þau úrræði og gera tillögur um við-
brögð.
Fræðslusetur
Margvíslegir ávinningar eru í
fræðslumálum samkvæmt þessum
kjarasamningi.
Aðilar eru sammála um að efla sí-
menntun starfsmanna. Meðal ann-
ars verður sett á laggirnar á tíma-
bilinu sérstakt fræðslusetur í
samvinnu við önnur stéttarfélög.
Hlutverk þess er að vera hugmynda-
banki og framkvæmandi og meta
þörf fyrir fræðslu hjá stofnununum
og hafa frumkvæði að því að búa til
námskeið til að svara þeirri þörf.
Gert er ráð fyrir framlagi að upphæð
15 milljónum króna til Fræðsluset-
ursins.
Starfsmaður sem sækir fræðslu-
námskeið í samræmi við endur-
menntunar- og starfsþróunaráætlun
viðkomandi stofnunar skal halda
reglubundnum launum á meðan.
Jákvætt samstarf
Ávinningar af jákvæðu samstarfi
innan BSRB hefur komið vel í ljós á
undanförnum árum. Má þar nefna
samkomulag sem tekur til endur-
skoðunar á veikindarétti opinberra
starfsmanna, stofnun sérstaks Fjöl-
skyldu- og styrktarsjóðs og sam-
komulag um greiðslur atvinnurek-
enda til viðbótar sparnar starfs-
manna eftir sérstökum reglum.
Í þessari samningalotu féllust við-
semjendur okkar á að hækka fram-
lag í Orlofssjóð og í Þróunar- og sí-
menntunarsjóð. Þá munu þeir og
greiða, eins og ofan greinir, í fjöl-
skyldu og styrktarsjóðinn 0,11%, og
0,3% í Styrktar- og sjúkrasjóð SFR.
Velferð og samfélagsþjónusta
Sú jákvæða breyting hefur orðið í
þjóðfélagi okkar á undanförnum
misserum að það ríkir vaxandi skiln-
ingur á nauðsyn samfélagsþjónust-
unnar. Fólk vill að stjórnmálaflokk-
ar og hagsmunasamatök standi vörð
um velferðarsamfélagið. Í framhaldi
af því hljótum við að gera kröfu til
vitundarvakningar um nauðsyn þess
að starfsfólk í samfélagsþjónustu búi
við mannsæmandi lífskjör. Þótt við
höfum ekki náð eins langt og ítrustu
óskir okkar standa til, þá höfum við
samt orðið vör við vaxandi velvilja og
skilning hjá viðsemjendum okkar
um nauðsyn þess að gera betur. Fyr-
ir það skal þakkað um leið og við
höldum áfram að berjast fyrir bætt-
um kjörum okkar fólks.
Eins og hér hefur verið rakið í
stuttu máli eru margs konar ávinn-
ingar í þeim samningum sem náðst
hafa milli SFR og viðsemjanda okk-
ar. Því mæli ég með því að félags-
menn okkar taki þátt í ákvörðunum
um bætt lífskjör og greiði atkvæði
með félagslegum ávinningum.
Margir ávinningar
í samningum
Jens
Andrésson
Höfundur er formaður SFR,
Starfsmannafélags ríkisstofnana.
Samningar
Margs konar
ávinningar, segir
Jens Andrésson, eru
í samningum sem náðst
hafa milli SFR og
viðsemjanda.
Til að auglýsa á þessari síðu hafðu
samband við okkur í
síma 569 1111 eða sendu okkur
tölvupóst á augl@mbl.is