Morgunblaðið - 03.04.2001, Síða 50
UMRÆÐAN
50 ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÉG HEF aldrei orðið hræddari á
ævi minni, en í lítilli flugvél með
flugmanni sem ekki var traustsins
verður. Það er engin leið að komast
út úr flugvél á ferð, líf manns er
gersamlega ofurselt flugstjóranum,
sem í þessu tilfelli var glanni. Hann
lét mig heyra að hann tæki nú ekki
mikið mark á svona kerlingum,
hann hefði séð þær nokkrar hyster-
ískar! Það kom mér ekki á óvart, og
mér var síðar sagt að maðurinn
hefði oftlega sýnt bæði í starfi og
leik að hann var spennufíkill. Ég
bar ekki fram formlega kæru á
hendur honum í símtali mínu við þá-
verandi yfirvöld flugmála að þessu
glæfraflugi loknu – þá var ég ung og
mild og lét nægja að vara við hon-
um. Nokkrum árum síðar brotlenti
þessi sami flugmaður vél sinni við
ótrúlegar aðstæður, en sem betur
fer var hann einn í vélinni og slapp
heill á húfi.
Í dag hefði ég umsvifalaust kært
hann formlega – ekki aðeins vegna
framferðis hans í þessari ferð, held-
ur vegna þess hann hafði ekki rétta
hugarfarið í þetta starf. Hann var
spennufíkill og glanni og hirti ekki
um hvað farþegum
hans leið. Innstilling
hans gerði hann óhæf-
an til að fljúga með
farþega. Ég hét því að
fara aldrei upp í flug-
vél með einkaflug-
manni sem ég þekkti
ekki. Ég ætlaði að vera
viss um að þeir væru
traustsins verðir, ann-
aðhvort af því að ég
þekkti þá sjálf, eða af
því að þetta væru at-
vinnuflugmenn undir
gæðaeftirliti opinberra
yfirvalda.
Ég verð að játa að
það hafa runnið á mig
tvær grímur undanfarið. Við höfum
fylgst með rökstuddum fréttum af
flugrekstri Leiguflugs Ísleifs Otte-
sen, sem í mínum huga bera þess
sterkt vitni, að þetta fyrirtæki er
ekki rekið með réttu hugarfari.
Fjölmörg dæmi hafa verið nefnd um
brot á öryggisreglum fyrirtækisins,
jafnt hvað varðar vinnutíma starfs-
manna, undirbúning flugs, fjölda
farþega og öryggisreglur um aðbún-
að farþega – allt í
tengslum við flug frá
Vestmannaeyjum hinn
7. ágúst. Ef menn
skyldu halda að þetta
hafi verið einangrað
tilfelli á þessum mikla
annadegi, þá minni ég
á, að mitt í þessari um-
ræðu berast okkur
fréttir af flugi til Gjög-
urs á vegum þessa
sama fyrirtækis, þar
sem flugmaður sinnti
ekki varnaðarorðum
farþega um bilun í
hreyfli, heldur sótti
fleiri farþega, sem
voru svo um borð þeg-
ar drapst á bilaða hreyflinum yfir
Borgarfirði á heimleið og þeir máttu
þakka fyrir að komast heilu og
höldnu á leiðarenda, þar sem
slökkvilið og sjúkrabílar biðu í við-
bragðsstöðu.
Er furða að maður spyrji með
hvaða hugarfari Leiguflug Ísleifs
Ottesen sé rekið? Mundir þú, les-
andi góður, senda barn þitt í flugvél
með þessum mönnum? Við, sem eig-
um val um aðra kosti, getum látið
vera að fljúga með Leiguflugi Ísleifs
Ottesen – en það er verra með hina,
sem sitja uppi með þá. Ríkið hefur
gert samning við þetta fyrirtæki um
áætlunarflug á ákveðna áfangastaði,
og í haust var gerður við það samn-
ingur um flug með sjúka og slasaða.
Leiguflug Ísleifs Ottesen er sem
sagt með samning á vegum ríkisins
um flugþjónustu þar sem farþegar
eiga engra kosta völ. Hefur fyrir-
tækið sýnt sig að vera traustsins
vert? Mér finnst það lýsandi um
hugarfarið, þegar Ísleifur Ottesen
velur orðið „fjölmiðlafarsi“ um þá
alvarlegu umræðu sem fram hefur
farið um fyrirtæki hans að undan-
förnu.
Það er skylda flugmálayfirvalda
að gæta öryggis farþeganna. Við
verðum að geta treyst þeim því við
eigum ekki í önnur hús að venda.
Það er rétt, að lög og reglur sníða
flugmálastjórn þröngan stakk um
sviptingu rekstrarleyfis. En sem
skattgreiðandi mótmæli ég því að
almannafé sé varið til að styrkja
Leiguflug Ísleifs Ottesen. Ég fer
fram á, að viðkomandi yfirvöld
tryggi það bæði nú og í framtíðinni,
að íslenskir flugfarþegar þurfi ekki
að leggja líf sitt í hendurnar á
mönnum sem þeir hafa ástæðu til að
vantreysta. Við eigum áreiðanlega
ágæta flugmenn sem geta gert bet-
ur og eru traustsins verðir.
Traustsins verður?
Guðrún
Pétursdóttir
Flugfélög
Leiguflug Ísleifs
Ottesen er með samning
á vegum ríkisins um
flugþjónustu, segir
Guðrún Pétursdóttir,
þar sem farþegar eiga
engra kosta völ.
Höfundur er lífeðlisfræðingur.
Dragtir
Neðst á Skólavörðustíg
Símar 557 2000 og 557 7100
Skemmuvegi 36 Bleik gata
Kópavogi
Þakrennur
og rör
úr Plastisol-
vörðu stáli.
Heildarlausn á
þakrennuvörnum
í mörgum litum.
Sterk gó l fe fn i
Ármúla 23, sími 533 5060
Auglýsing
um deiliskipulag í Eyjafjarðarsveit
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar auglýsir hér
með tillögu að deiliskipulagi fyrir byggingarreit
í landi Eyrarlands. Skipulagssvæðið er nefnt
Ósland og er neðan Eyrarlandsbrún austan
Eyjafjarðarbrautar eystri nr. 829 og nær að
landamerkjum Syðri-Varðgjár í norðri og að
Veigastaðavegi nr. 828 í austri og suðri.
Svæðið er ca 1,7 ha og þar verður heimilt að
byggja 5 einnar hæðar einbýlishús.
Tillagan er auglýst með vísan til 25. gr. skipu-
lags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og verður
hún til sýnis á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar að
Syðra-Laugalandi frá og með 4. apríl til og með
2. maí 2001. Þeir sem vilja gera athugasemdir
við tillöguna skula gera það með skriflegum
hætti fyrir kl. 16 miðvikudaginn 16. maí 2001.
Hver sá sem ekki gerir athugasemd við tillög-
una fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni.
Sveitarstjóri.
Mat á umhverfisáhrifum
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um
matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að
stækkun Vesturbakka í Fiskihöfn, Akur-
eyri, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum,
samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á um-
hverfisáhrifum.
Ákvarðanirnar liggja frammi hjá Skipulags-
stofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þær
er einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofn-
unar: http://www.skipulag.is .
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til um-
hverfisráðherra og er kærufrestur til
2. maí 2001.
Skipulagsstofnun.
TILBOÐ / ÚTBOÐ
Akureyrarbær
Útboð
Eignarhaldsfélagið Rangárvellir ehf. óskar eftir
tilboðum í að byggja tvö 811 fm iðnaðar- og
geymsluhús á Rangárvöllum, Akureyri. Einnig
er óskað eftir tilboðum í að innrétta starfs-
mannaaðstöðu og lager í 540 fm húsnæði.
Útboðsgögn verða afhent á Arkitekta- og
verkfræðistofu Hauks ehf., Kaupangi við
Mýrarveg gegn 20.000 króna skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á Rangárvöllum mánu-
daginn 23. apríl 2001 kl. 11:00.
Eignarhaldsfélagið Rangárvellir ehf.
Rif á byggingum
Fyrir hönd Eimskips er hér með óskað
eftir áhugasömum aðilum til að taka
að sér rif á hluta af einni vörugeymslu
félagsins í Sundahöfn í Reykjavík.
Byggingin er með staðsteyptum útveggjum
og súlum. Þak er úr forsteyptum einingum,
rifjaplötur á strengjasteypubitum, klætt að ofan
með báruáli. Grunnflatarmál þess, sem rifið
er, er um 3.500 m². Verkið skal unnið í maí nk.
Áhugasamir aðilar leggi inn nafn og helstu
upplýsingar, sem að gagni kunna að koma,
til VSÓ Ráðgjafar, Borgartúni 20, 105 Reykjavík,
netfang : vso@vso.is, fyrir kl. 16.00 10. apríl
nk. Gögn skulu merkt: EIMSKIP - rif á bygging-
um. Áformað er að velja 3 - 4 úr hópi áhuga-
samra aðila til að gera tilboð í verkið.
TILKYNNINGAR STYRKIR
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
Íbúðalánasjóður
auglýsir hér með til umsóknar
lán og styrki
til tækninýjunga og annarra
umbóta í byggingariðnaði
skv. heimild í lögum nr. 44/1998.
Umsækjendur geta verið einstaklingar, fyrirtæki
og stofnanir.
Við mat á verkefnum sem berast verður haft að
leiðarljósi að þau stuðli að:
● Framþóun í byggingariðnaði og/eða tengd-
um atvinnugreinum.
● Aukinni framleiðni í byggingarstarfsemi.
● Lækkandi byggingarkostnaði.
● Betri húsakosti.
● Aukinni þekkingu á húsnæðis- og byggingar-
málum.
● Tryggari og betri veðum fyrir fasteignaveð-
lán.
● Almennum framförum við íbúðarbyggingar,
bæði í hönnun, framkvæmdum og rekstri.
● Umhverfisvænu húsnæði og skipulagi.
● Endurbótum á eldra húsnæði.
Athugið:
Ekki verða veitt lán eða styrkir til verkefna, sem
miða að innflutningi eða sölu á erlendum bygg-
ingarvörum, né heldur sölu á byggingarvarn-
ingi hérlendis.
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu Íbúða-
lánasjóðs og jafnframt á heimasíðu sjóðsins
www.ils.is. Frekari upplýsingar eru veittar hjá
Helgu á Þjónustusviði Íbúðalánasjóðs, Borgar-
túni 21, í síma 569 6986.
Umsóknarfrestur er til 14. maí 2001.