Morgunblaðið - 03.04.2001, Blaðsíða 84
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
Borgar túni 37
Sími 569 7700
Reiknaðu
með
Fjármögnun
STOFNMÆLING botnfiska á Ís-
landsmiðum, svokallað togararall,
fór fram í 17. sinn fyrir skömmu.
Aldursgreining fiska og úrvinnsla
gagna er skammt á veg komin en þó
liggur fyrir að minna er af þorski en í
fyrra. Hina vegar er holdafar
þorsksins almennt ágætt enda virð-
ist hann hafa nóg af æti.
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunar, segir að þó
heildarvísitala þorsks sé enn lág séu
þrír til fjórir árgangar í farvatninu
sem séu væntanlega meðalárgangar
að stærð og það sé jákvætt. Fyrir
tæpu ári voru vísbendingar um að
stóri fiskurinn skilaði sér lakar en
gert hafði verið ráð fyrir og nú hefði
fengist staðfesting á því. Hins vegar
ætti eftir að huga að ýmsu áður en
dæmið yrði gert upp og ráðgjöfin
gefin út í júní.
Að sögn Jóhanns benda niðurstöð-
urnar til að menn hafi síst verið of
bjartsýnir í fyrra. Samt sem áður
væri ástæða til að benda á að mjög
sérstök hitaskilyrði væru við landið
og hlýi sjórinn næði óvenjulangt
austur og suður fyrir land, en þessi
hlýju skilyrði hefðu örugglega áhrif
á útbreiðsluna. Eins virtist holdafar
þorsksins vera gott víðast hvar og
uppvaxandi árgangar, sem eru með-
alstórir, ættu því að hafa alla mögu-
leika til að vaxa og dafna með því að
halda veiðunum í skefjum.
Minna finnst af þorski í togararalli en í fyrra
Holdafar þorsks-
ins almennt ágætt
Minna af þorski/28
Morgunblaðið/Ásdís
ÞJÓÐMINJASAFN Íslands mun í
sumar einungis standa að einni
stórri fornleifarannsókn í stað
tveggja til fjögurra, vegna anna
við úrvinnslu gagna úr öðrum
rannsóknum á vegum safnsins. Að
sögn Guðmundar Ólafssonar,
deildarstjóra fornleifadeildar, er
því ætlunin að verja kröftum í að
vinna úr gögnum sem beðið hafa
úrvinnslu undanfarin ár.
Rannsóknin sem um ræðir í
sumar er framhald rannsóknar
sem fram hefur farið í Reykholti í
Borgarfirði undanfarin ár undir
stjórn Guðrúnar Sveinbjarnardótt-
ur fornleifafræðings. Búið er að
grafa upp jarðgöngin frá Snorra-
laug og bæjarhólinn þangað sem
göngin lágu, og í sumar verður
haldið áfram rannsóknum á bæj-
arhólnum.
Meðal annarra verkefna á veg-
um Þjóðminjasafns í sumar má
nefna merkingar á friðlýstum
minjum víðs vegar um landið. Alls
er um að ræða um 700 staði sem á
að merkja á næstu árum og gert
er ráð fyrir að merkja allt að
þriðjung staðanna á ári. Þetta
verkefni er unnið með styrk frá
Landsvirkjun og er eitt margra
verkefna sem 50 milljóna króna
samstarfssamningur milli Þjóð-
minjasafnsins og Landsvirkjunar
felur í sér.
Þjóðminjasafnið
Aðeins ein
fornleifa-
rannsókn
í sumar
ÁHRIFA sjómannaverkfallsins, sem
hófst á sunnudagskvöld, mun fyrst
gæta hjá fyrirtækjum í ferskfiskút-
flutningi enda viðbúið að verulega
dragi úr framboði á fiski. Auk þess
er hætta á að markaðsstaða þessara
fyrirtækja kunni að skaðast. Dragist
verkfallið á langinn mun það einnig
hafa áhrif á þorskveiðar en stærsti
hluti vertíðarbátaflotans hefur
stöðvast í verkfallinu. Árleg friðun
hrygningarþorsks, hið svokallaða
hrygningarstopp, átti að hefjast á
sunnudag og standa fram til 15. apríl
nk. en nú er útlit fyrir að ekki verði
af hrygningarstoppinu á þessu ári
enda er litið svo á að í verkfallinu fel-
ist nægileg friðun.Verkfallið mun því
ekki hafa teljandi áhrif á þorskveiðar
svo fremi sem það dragist ekki mjög
á langinn. Þá hefjast úthafskarfa-
veiðar á Reykjaneshrygg jafnan upp
úr miðjum aprílmánuði og því getur
langt verkfall haft nokkur áhrif á
veiðarnar. Ennfremur gæti langt
verkfall sett strik í veiðar á norsk-
íslensku síldinni en hún veiðist eink-
um í maí og fram í júní.
Verkfall sjómanna á fiskiskipum hafið á ný
Áhrif verða ekki
mikil fyrst í stað
Áhrifa/28
BÍLL lenti út af við Sauðárkrók
laust fyrir klukkan hálfsjö í gær-
kvöld. Slysið var við bæjarmörkin,
á Strandvegi, skammt austan við
Hegrabraut. Að sögn lögreglunnar
á Sauðárkróki missti ökumaður
vald á bílnum í lausamöl með þeim
afleiðingum að bíllinn lenti út af.
Fimm manns voru í bílnum, allt
piltar fæddir árið 1984.
Piltarnir voru allir fluttir á
sjúkrahús á Sauðárkróki til að-
hlynningar en ekki fengust upplýs-
ingar um meiðsl þeirra. Að sögn
lögreglu þurfti aðstoð tækjabíls
slökkviliðsins við að ná einum úr
bílnum.
Verið er að rannsaka tildrög
slyssins en að sögn lögreglu er talið
líklegt að bílnum hafi verið ekið yfir
hraðamörkum sem þarna eru 50
km/klst. Bíllinn er ónýtur.
Fimm á sjúkrahús
eftir útafakstur
ÞAÐ getur stundum verið glatt á
hjalla á Alþingi, rétt eins og hvar
annars staðar. Hér virðist hafa
myndast þverpólitísk samstaða um
málflutning einhvers þingmannsins
milli þeirra Steingríms J. Sigfús-
sonar, Einars K. Guðfinnssonar,
Drífu Hjartardóttur, Karls V.
Matthíassonar og Davíðs Odds-
sonar og sýnilega er öllum skemmt.
Annir verða hjá þingmönnum í vik-
unni en síðan fara þeir í páskafrí.
Glatt á hjalla í þinginu
Þingsíða/10
SÆTTIR tókust í gærkvöld í deil-
um sem upp komu í kjölfar aðal-
fundar Geðhjálpar sem fram fór á
laugardaginn.
Eydís Sveinbjarnardóttir for-
maður félagsins og Kristófer Þor-
leifsson, sem kjörinn var formaður
af hluta fundarmanna eftir að
fundinum hafði verið frestað, hafa
komist að samkomulagi um að
aðalfundinum verði fram haldið 28.
apríl nk. og á honum fari fram
kjör stjórnar.
Jafnframt varð að samkomulagi
að þeir sem eru skráðir félags-
menn fram til 24. apríl hafi rétt til
þátttöku í aðalfundarstörfum.
Dómsmálaráðuneytið/14
Sættir tókust í Geðhjálp