Morgunblaðið - 05.04.2001, Side 5
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
EINS og fram hefur komið í fjöl-
miðlum hefur samkeppnisráð sekt-
að Sölufélag garðyrkjumanna,
Ágæti og Mata fyrir að hafa með
alvarlegum hætti brotið bann sam-
keppnislaga við verðsamráði og
markaðsskiptingu á grænmetis- og
ávaxtamarkaði. Þeir sem Morgun-
blaðið ræddi við voru langflestir
sammála um að verð á grænmeti
væri of hátt. En hvað finnst fólki
um umræddan úrskurð samkeppn-
isráðs?
Tinna Steindórsdóttir segist hafa
minnkað verulega við sig kaup á
grænmeti og því til staðfestingar
segist hún ekki lengur kaupa fimm
paprikur eins og venjulega í inn-
kaupaferð heldur einungis tvær og
þá frekar ódýrara grænmeti með.
„Ég hef fylgst með úrskurði
samkeppnisráðs. Hér er um sam-
særi að ræða gagnvart neytendum
sem veldur okkur tjóni þar sem við
verðum að greiða hærra verð. Mér
finnst að þessi þrjú fyrirtæki ættu
að vera sektuð, þetta er ólöglegt.
Það verður að gera eitthvað í
þessu, setja fram betri lög til að
forðast þetta. Þá finnst mér of-
urtollar á innflutt grænmeti fyrir
neðan allar hellur og þá þarf að af-
nema,“ segir Tinna.
Brynhildur Kristinsdóttir var að
skoða grænmetisúrval Nýkaups í
Kringlunni og sagði grænmeti vera
allt of dýrt. „Ég hef dregið nokkuð
úr grænmetisneyslu minni og mun
gera meðan verðið er þetta hátt.
Hvað varðar úrskurð samkeppn-
isráðs þá treysti ég mér ekki til að
leggja dóm á hann enn sem komið
er,“ segir Brynhildur.
Kristrún Magnúsdóttir var einn-
ig að versla í Nýkaupi og sagðist
sérstaklega finna fyrir háu verði á
kartöflum. „Ég hef þó ekkert
minnkað kaup á kartöflum enda
nauðsynjavara. Eins og málin
standa nú kýs ég að vera hlutlaus
um úrskurð samkeppnisráðs en
ljóst er að eitthvað þarf að gera,“
segir Kristrún.
Hermann Bragason segir fjöl-
skyldu sína ekki borða mikið græn-
meti dags daglega en hátt verð á
því hafi þó óneitanlega áhrif á þau.
„Það er ljóst að samkeppni á þess-
um markaði hefur verið útrýmt og
hér er um ólögmætt verðsamráð að
ræða. Eitthvað þarf að gera til að
halda verðinu niðri, þetta gengur
ekki svona upp til lengdar. Hvað
best er að gera veit ég ekki,“ segir
Hermann.
Traust sett á land-
búnaðarráðherra
Hjónin Hilmar Pétursson og
Guðrún Kristinsdóttir voru að
versla í Nettó í Mjódd þegar blaða-
mann og ljósmyndara bar að garði.
„Mér finnst ekki nema sjálfsagt að
betur verði farið í saumana á
grænmetis- og ávaxtamarkaðnum.
Ég hef trú á því að allt of mikið
fari til milliliðanna og bændur fái
ekki mikið fyrir sinn snúð þegar
kemur að íslenskri framleiðslu,“
segir Guðrún. „Því til staðfestingar
má geta þess að við hjónin þekkj-
um til á bóndabýli þar sem er
eggjarækt og eigandinn sagði okk-
ur að það væru mikið til söluaðil-
arnir sem hirtu gróðann og sjálfur
hefði hann því ekki mikið upp úr
þessu,“ segir Hilmar.
Aðspurð hvort grænmetisneysla
þeirra hjóna hefði eitthvað minnk-
að vegna verðsins sögðu þau svo
vera og sögðust vera viss um að ef
það væri ódýrara myndu þau neyta
fjölbreyttara grænmetisfæðis. „Það
er fyrir neðan allar hellur að kíló-
verð á papriku skuli vera í kring-
um 700 krónur. Best er örugglega
að láta Guðna Ágústsson landbún-
aðarráðherra um þetta en það er
greinilegur vilji hans að grípa til
aðgerða og lækka verð,“ segir Guð-
rún.
Jón Ásmundsson var einnig að
versla í Nettó í Mjódd og sagðist
varla kaupa grænmeti lengur nema
þegar einhver tilboð væru í gangi.
„Það er útilokað að ég kaupi papr-
iku í dag. Ef þetta sem samkeppn-
isráð segir er satt þá er ljóst að
það þarf að taka á því. Ef það er
rétt að þetta sé samsæri til að
halda verðinu uppi þá er þetta ekki
góð aðferð.“
Bryndís Halldórsdóttir, sem var
að versla í Hagkaupi í Skeifunni,
sagði að til þess að Íslendingar
myndu borða meira grænmeti yrði
að lækka verðið. „Sjálf hef ég þó
ekki minnkað neyslu á því og kaupi
það því dýrum dómi en ég er viss
um það að ég myndi borða enn
meira ef það væri ódýrara.“ Bryn-
dís hafði ekki kynnt sér úrskurð
samkeppnisráðs en sagði að ef
hann væri á rökum reistur væri
auðsjáanlega um samsæri að ræða
gagnvart neytendum.
Hallveig Sigurbjörnsdóttir hafði
ekki fylgst með úrskurðinum en
hafði þó ákveðnar skoðanir á græn-
metisverði og sagði það allt of hátt.
„Ég hef þó ekki minnkað neyslu
þess enda mikilvægur hluti í fæð-
unni.“
Áshildur Linnet var að skoða
grænmetisúrvalið í Fjarðarkaupum
í Hafnarfirði og sagðist einfaldlega
sleppa að kaupa papriku um þessar
mundir enda hún bæði dýr og lé-
leg. „Grænmeti er hollt og þess
vegna kaupi ég það. Ég vel þó
ódýrara grænmeti eins og tómata.
Mér finnst úrskuður samkeppnis-
ráðs jákvæður, það er ljóst að það
gengur ekki að hafa verðsamráð.
Þá vil ég líka fara að sjá erlenda
samkeppni á þessum markaði.“
Ólafur Gíslason sagðist kaupa
lítið grænmeti einfaldlega vegna
verðsins. Ólafur sagðist ekki hafa
kynnt sér þetta mál en úrskurð-
urinn væri örugglega réttur, þ.e.
að einokunarhringur hefði myndast
á markaðnum. „Ég hef búið erlend-
is í fjögur ár og finn greinilega fyr-
ir því að grænmeti sem og öll mat-
vara er mun dýrari hér á landi.“
Ásrún Þórhallsdóttir segist
kaupa mikið grænmeti og ávexti
eins og agúrkur, kál, perur og epli
þrátt fyrir að verðið væri hátt enda
væri það hollt. Hún hafði aðeins
kynnt sér úrskuðrinn en vildi ekki
láta hafa neitt eftir sér að svo
stöddu.
Anna Margrét Tómasdóttir var
stödd í Krónunni í Skeifunni þegar
blaðamaður náði tali af henni. Hún
kom þó af fjöllum varðandi úrskurð
samkeppnisráðs. Blaðamaður sagði
henni þá í örfáum orðum frá nið-
urstöðu hans. „Ef úrskurðurinn er
réttur þá finnst mér réttlátt að
sekta fyrirtækin. Verð á grænmeti
á að vera lágt, það er engin spurn-
ing. Ég hef búið í Danmörku í
mörg ár og kaupi ekki næstum því
eins mikið grænmeti hér eins og
þar enda mikill verðmunur þar á.“
Mætti einnig fara ofan í saum-
ana hjá olíufélögunum
Jón Sigurðsson sagði Sölufélag
garðyrkjumanna, Ágæti og Mata
eiga þetta skilið, þau hefðu verið
allt of gróf við neytendur. „Ég ætl-
ast til að þeir borgi mér sem neyt-
anda eitthvað til baka. Verð á
grænmeti er allt of hátt. Hér er ég
með einn banana í körfunni og það
segir meira en mörg orð,“ segir
Jón og bætir við að hann vonist til
þess að Guðni Ágústsson landbún-
aðarráðherra láti nú til skarar
skríða.
Anna Bragadóttir, sem var að
versla í Bónusi í Skeifunni, sagðist
láta hátt verð ganga yfir sig. „Ég
hef þó minnkað að kaupa hinar
margumtöluðu paprikur. Ég hef
kynnt mér úrskurðinn og þetta er
greinilega mikil samtrygging hjá
fyrirtækjunum ef þetta er satt.
Sumt í þessu er samt svolítið farsa-
kennt. Það að menn skuli hittast í
Öskjuhlíðinni og mega ekki segja
fjölskyldu sinni frá hinu og þessu
er ótrúlegt. Þetta er eins og léleg
bíómynd. Ég vil mest lítið tjá mig
um úrskurðinn að svo stöddu en í
því samhengi finnst mér að það
mætti einnig skoða starfshætti ol-
íufélaganna. Er ekki svipað í gangi
hjá þeim?“
Einar Jóhann Jóhannsson var
ekki að kaupa grænmeti heldur var
með annars konar matvæli í körf-
unni hjá sér enda sagðist hann
kaupa mjög lítið af grænmeti. „Ég
velti mér lítið upp úr grænmet-
isverði og finnst það ekkert of
hátt.“ Að sögn hans hafði hann
ekki kynnt sér úrskurð samkeppn-
isráðs.
Elín Magnúsdóttir sagðist ekki
hafa minnkað grænmetisneyslu
sína en hefði þó breytt um teg-
undir og veldi ódýrara grænmeti
framyfir það dýra. Úrskurðinn
hafði hún ekki kynnt sér en ætlaði
að skoða betur.
Helga Jóhannsdóttir sagðist
kaupa töluvert af grænmeti en
verðið væri þó allt of hátt. Hún
hafði heldur ekki kynnt sér úr-
skurð samkeppnisráðs en sagði
mikilvægt að samkeppni væri
ríkjandi á markaðnum til að halda
verði niðri.
Almenningur gagnrýnir verðsamráð og styður ákvörðun samkeppnisráðs
Fæstir hafa kynnt
sér úrskurðinn
Langflestir neytendur eru sammála um að
verð á grænmeti sé of hátt. Sumir hafa
minnkað neyslu á grænmeti og ávöxtum
vegna verðsins en aðrir láta það yfir sig
ganga í fullvissu þess að það sé hollt og þar
með nauðsynlegur þáttur í fæðinu. Hrönn
Indriðadóttir blaðamaður og Þorkell Þor-
kelsson ljósmyndari tóku vegfarendur tali í
helstu stórmörkuðum í gær.
Morgunblaðið/Þorkell
Elín
Magnúsdóttir
Anna
Bragadóttir
Einar Jóhann
Jóhannsson
Anna Margrét
Tómasdóttir
Jón
Sigurðsson
Helga
Jóhannsdóttir
Kristrún
Magnúsdóttir
Ásrún Þór-
hallsdóttir
Hermann
Bragason
Áshildur
Linnet
Bryndís
Halldórsdóttir
Jón
Ásmundsson
Hilmar Pétursson og Guðrún Krist-
insdóttir.
Ólafur
Gíslason
Brynhildur
Kristinsdóttir
Tinna
Steindórsdóttir
Hallveig
Sigurbjörnsdóttir