Morgunblaðið - 05.04.2001, Blaðsíða 19
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2001 21
Bolungarvík - Dansdagur Ung-
mennafélags Bolungarvíkur var
haldinn 1. apríl sl. í íþróttahúsinu
Árbæ.
Laddawan Dagbjartsson
íþróttakennari hefur heldur betur
blásið lífi í dansiðkunina hér í
Bolungarvík í vetur en um fjöru-
tíu einstaklingar hafa verið í
danskennslu hjá henni í vetur, og
má segja að dansdagurinn sé eins
konar uppskeruhátíð vetrarstarfs-
ins þar sem iðkendur kepptu í
samkvæmisdönsum og buðu um
leið upp á frábæra skemmtun sem
hátt í tvö hundruð manns sóttu.
Dagskráin hófst á því að fjögur
pör fullorðinna sýndu slow foxtr-
ott og börn af leikskólanum Glað-
heimum ásamt börnum úr yngstu
bekkjum grunnskólans túlkuðu í
dansi Súpermann.
Í danskeppninni tóku þátt átján
pör í aldursflokkunum 6 til 7 ára,
8 til 9 ára, 10 til 11 ára og 12 til
13 ára og kepptu í cha cha cha,
jive, enskum valsi og quick step.
Þá sýndi danshópurinn „Prím-
usdans“ með frjálsri aðferð og El-
ínbet Rögnvaldsdóttir fékk áhorf-
endur með sér á hreyfingu áður
en dansdeginum var slitið.
Að sögn Ladawan Dagbjartsson
er stefnt að því að fara með nokk-
ur danspör á Íslandsmeistaramót
danssambands Íslands í grunn-
sporum, sem haldið verður í
Reykjavík í maí nk.
Fulltrúar frá Danssambandi Ís-
lands, þar á meðal formaður þess,
ætluðu að vera viðstaddir þessa
danshátíð ungmennafélagsins í
Bolungarvík en sökum veðurs
komust þau ekki vestur.
Dómarar á danskeppninni voru
þau Sveinbjörn Björnsson, Sig-
urrós Eva Friðþjófsdóttir og Kar-
itas Hafliðadóttir. Morgunblaðið/Gunnar HallssonKeppendur í flokki 10 til 11 ára í léttri sveiflu.
Dansinn stiginn
í Bolungarvík
Stykkishólmi - Lokahátíð Stóru
upplestrarkeppninnar á Snæfells-
nesi var haldin í Stykkishólmskirkju
mánudaginn 26. mars. Í keppninni
tóku þátt nemendur í 7. bekk í
grunnskólunum í Stykkishólmi,
Grundarfirði, Ólafsvík og Hellis-
sandi. Til úrslita mættu 15 nemend-
ur frá áðurnefndum skólum. Úrslita-
keppnin var virðuleg og auk
keppenda voru flutt tónlistaratriði
úr Grundarfirði og Stykkishólmi.
Formaður dómnefndar var Bald-
ur Sigurðsson, rektor Kennarahá-
skólans. Hann og Þórður Helgason
eru upphafsmenn þessarar keppni.
Í fyrsta sæti varð Sædís Alda
Karlsdóttir, Grunnskóla Eyrarsveit-
ar, Gígja Jónsdóttir, Grunnskóla
Ólafsvíkur í öðru sæti og Áslaug
Karen Jóhannesdóttir, Grunnskóla
Eyrarsveitar.
Þetta er í þriðja skiptið sem skól-
arnir á Snæfellsnesi taka þá í upp-
lestrarkeppni, en í fyrsta skipti sem
allir skólarnir taka þátt í „Stóru
upplestrarkeppninni“.
Það kom fram hjá Baldri Sigurðs-
syni að keppnin hófst í nóvember á
„degi íslenskrar tungu“. Markmið
keppninnar er að vekja athygli og
áhuga á vönduðum upplestri og
framburði og glæða áhuga fólks á
töluðu máli. Stóra upplestrarkeppn-
in er greinilega jákvætt framlag og
hvati til að efla áhuga nemenda á töl-
uðu máli. Það kom fram að nemend-
ur hafa lagt mikið á sig til að lestur
þeirra væri áheyrilegur og var gam-
an að heyra þessa ungu krakka lesa
upp Lokahátíðin í Stykkishólms-
kirkju var skipulögð af undirbún-
ingsnefnd sem í voru fulltrúar frá
Skólaskrifstofu, Heimili og skóla og
Samtaka móðurmálskennara.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Þessir nemendur unnu til verð-
launa. Gígja Jónsdóttir, Ólafs-
vík, Sædís Alda Karlsdóttir,
Grundarfirði og Áslaug Karen
Jóhannesdóttir, Grundarfirði.
Grundfirð-
ingum gekk
vel í upp-
lestrarkeppni