Morgunblaðið - 05.04.2001, Síða 24
ERLENT
26 FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
REIÐIR frétta- og dagskrárgerð-
armenn óháðu rússnesku sjón-
varpsstöðvarinnar NTV héldu
áfram mótmælaaðgerðum í gær
gegn yfirtökutilraun Gazprom –
fyrirtækis sem að mestu er í rík-
iseigu og einokar jarðgasmarkaðinn
í Rússlandi og NTV-menn segja að
sé verkfæri Kremlarvaldsins til að
ritskoða fréttaflutning stöðvarinn-
ar. Þá fréttist af því í gær, að Ted
Turner, bandaríski auðkýfingurinn
sem stofnaði alþjóðlegu fréttasjón-
varpsstöðina CNN, væri reiðubúinn
að kaupa mestan hluta þeirra
hlutabréfa sem Vladimír Gúsinskí,
stofnandi NTV, á enn í stöðinni.
Samkvæmt frétt CNN hefðu Turn-
er og Gúsinskí svo gott sem náð
samningum um að sá fyrrnefndi
keypti hlutabréfin. Washington
Post sagðist hafa heimildir fyrir því
að kaupverðið væri 225 milljónir
Bandaríkjadollara, andvirði yfir 20
milljarða króna. Alexander Kazak-
ov, háttsettur talsmaður Gazprom
Media, fjölmiðladótturfyrirtækis
Gazprom, sagði fyrirtækið fagna
því að erlendur fjárfestir væri
tilbúinn að kaupa stóran hlut í
NTV, svo fremi að enginn einn aðili
næði til sín meirihluta hlutabréf-
anna.
Mikhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi
forseti Sovétríkjanna sem er í for-
svari fyrir óháðri gæðaeftirlits-
nefnd NTV, tjáði blaðamönnum að
hann hefði reynt að ná sambandi
við Vladimír Pútín forseta vegna
málsins, en það hefði ekki tekizt.
Örlög NTV eru almennt álitin próf-
steinn á umburðarlyndi Pútíns
gagnvart gagnrýni á eigin stjórn-
arhætti.
Rödd sem sker sig úr
Vægðarlaus fréttaflutningur af
stríðinu í Tsjetsjníu, framsetning
að fyrirmynd vestrænna fjölmiðla
og vinsælir pólitískir háðsádeilu-
þættir (með brúðum í aðalhlutverk-
um) eru meðal þess helzta sem gef-
ið hefur NTV, hinni umsetnu
einkareknu sjónvarpsstöð í Rúss-
landi, rödd sem sker sig úr.
Hinn litríki athafnamaður Vlad-
imír Gúsinskí stofnaði stöðina
snemma á tíunda áratugnum og
setti hún fljótlega ný viðmið í fag-
legri, óháðri fréttamennsku, en það
er einmitt sú arfleifð sem talin er í
mestri hættu með yfirtökutilraun-
um rússneska jarðgasrisans Gazpr-
om.
Frétta- og dagskrárgerðarmenn
á NTV hafa neitað að taka mark á
breytingum sem Gazprom þvingaði
í gegn á yfirstjórn NTV á hluthafa-
fundi á þriðjudag, fundi sem starfs-
menn stöðvarinnar segja hafa verið
ólöglegan. Segja þeir Kremlarvald-
ið standa á bak við allt þetta brölt, í
því skyni að þagga niður í opinberri
gagnrýni NTV á stjórnarhætti Pút-
íns forseta. Talsmenn stjórnarinnar
hafa vísað þessu á bug. NTV er
eina sjónvarpsstöðin, sem sendir út
til alls Rússlands, sem ekki er beint
eða óbeint stýrt af stjórnvöldum.
Afturhvarf til Ríkissjónvarps
Sovétríkjanna?
„Það er erfitt að segja fyrir um
hvað gerðist ef NTV nyti ekki leng-
ur við,“ hefur Reuters eftir Oleg
Panfilov, sem stýrir rannsókna- og
ráðgjafarstofnuninni Centre for
Journalism in Extreme Situations
(„Miðstöð fyrir blaðamennsku í
neyðaraðstæðum“) í Moskvu.
„Í Rússlandi má búast við að það
þýddi afturhvarf til daga Ríkissjón-
varps Sovétríkjanna, sem sýnir
ekkert nema áróður, talar bara um
forsetann og segir að allt sé í stak-
asta lagi,“ segir Panfilov.
Eftir að hafa fengið til liðs við sig
metnaðarfyllstu fréttamennina af
gömlu ríkismiðlunum skapaði NTV
sér fljótt sess sem forystumiðill í
fréttamennsku. Nýtti stöðin óspart
ríkidæmi stofnandans til að brydda
upp á nýjungum, bæði hvað varðar
útsendingatækni og dagskrána
sjálfa.
Með gervihnattatengingum beint
af vettvangi, beinum lýsingum frá
stríðinu í Tsjetjsníu og öðrum stöð-
um þar sem hrikalegir atburðir
hafa átt sér stað í Rússlandi frá því
Sovétríkin liðu undir lok, hefur
NTV sýnt hraða og fagmennsku í
vinnubrögðum, sem keppinautarnir
hafa ekki átt nein svör við.
NTV hefur ennfremur leitast við
að taka sér vestræna fjölmiða til
fyrirmyndar með því að lýsa fleiri
en einni hlið á málum og gefa
stjórnmálamönnum úr röðum
stjórnarandstöðunnar tækifæri til
að koma skoðunum sínum á fram-
færi, sem þeim er iðulega neitað
um í ríkisfjölmiðlunum.
Hinir verðlaunuðu fréttaskýr-
ingaþættir Itogi (samantekt) brutu
blað í rannsóknarblaðamennsku í
Rússlandi og urðu fljótt þyrnir í
augum embættis- og ráðamanna
vegna vægðarlauss fréttaflutnings
af spillingu, vanhæfni, sóun og póli-
tískum klækjaleikjum. Hér má
nefna, að fjölmiðlasamsteypa Gús-
inskís, Media Most, gefur einnig út
fréttavikurit undir sama titli, Itogi.
Gazprom hefur yfirtekið stjórn-
ina þar á bæ og búa blaðamenn
Itogi sig nú undir verkfall í mót-
mælaskyni gegn því að Gazprom-
menn þvingi fram útskiptingu
helztu stjórnenda og ritstjórnar-
stefnu blaðsins, sem dreift hefur
verið ásamt rússneskri útgáfu
bandaríska vikuritsins Newsweek.
Leikbrúðuþættirnir „Kukly“ öfl-
uðu NTV vinsælda með hvössu
háði, stjórnmálamönnunum sem
teknir voru fyrir í þáttunum til ar-
mæðu – þar á meðal, eftir því sem
rússneskir fjölmiðar fullyrða, Pútín
forseta.
Það var þó fréttaflutningur NTV
af stríðinu í Tsjetsjníu 1994–1996
sem framar öðru festi stöðina í
sessi sem trúverðugan fjölmiðil
sem hikaði ekki við að gefa aðra
mynd af atburðum en þá sem
stjórnvöld vildu að birtist almenn-
ingi.
„Óháða sálin seld“
Gagnrýnendur stöðvarinnar
segja annars að hún hafi „selt sína
óháðu sál“ árið 1996 og hafi síðan
þá orðið í æ meiri mæli leiksoppur
hins pólitíska hráskinnaleiks. Þegar
virtist stefna í það að kommúnistar
kæmust aftur til valda gengu Gús-
inskí og fleiri viðskiptajöfrar Rúss-
lands til liðs við Borís Jeltsín, þá-
verandi forseta, og björguðu
honum í kosningum frá því sem á
tímabili virtist vonlaus staða.
NTV var verðlaunuð fyrir stuðn-
inginn með því að fá úthlutað ríku-
legum útsendingarréttindum á öll-
um tímum sólarhrings og
milljónum dollara í lán á þægileg-
um kjörum. Gúsinskí, sem þessa
dagana berst gegn því að vera
framseldur frá Spáni til Rússlands
til að svara til saka fyrir meinta
svikastarfsemi, viðurkennir nú að
þetta tímabundna bræðralag með
Jeltsín og samherjum hans hafi
verið mistök. Þetta hafi sýnt mjög
greinilega hve sjónarpsstöð eins og
NTV væri áhrifamikið tæki við
mótun almenningsálitsins og ýtt
undir áhuga ráðamanna í Kreml á
að ná óskoruðum yfirráðum yfir
henni.
Fjármálakreppan sem reið yfir
rússneskt efnahagslíf haustið 1998
gerði að engu áform Gúsinskís um
að setja hlutabréf í NTV á markað
á Wall Street og nota ágóðann til
að greiða upp lánin. Þetta skildi
stöðina eftir berskjaldaða þegar
hún studdi andstæðinga Kremlar-
valdsins í þingkosningunum 1999.
Þeir töpuðu.
Gúsinskí fullyrðir að Pútín, minn-
ugur þess hvernig fór fyrir Jeltsín í
Tsjetsjníustríðinu 1994–1996,
standi á bak við yfirtöku Gazprom
á NTV í því skyni að binda hana á
klafa Kremlar. Þessu neita tals-
menn forsetans staðfastlega, en
mörgum Rússum sýnist sem hér sé
verið að teyma lamb til slátrunar
sem hafi fengið að valsa frjálst sinn
takmarkaða tíma.
Framsækin
fréttamennska
NTV sögð í hættu
Ted Turner,
stofnandi CNN,
sagður hafa boðið
í stóran eign-
arhlut
AP
Jevgení Kiseljov, sjónvarpsstjóri NTV sem var vikið frá á umdeildum
hluthafafundi á þriðjudag, talar við fulltrúa annarra fréttamiðla, með
frétta- og dagskrárgerðarmenn NTV að baki sér í höfuðstöðvum stöðv-
arinnar í Moskvu í gær. „Það var Pútín forseti sem hóf stríðið gegn NTV
og nú þykist hann ekki hafa neitt með það að gera,“ sagði Kiseljov.
Moskvu. Reuters, AP, AFP.
NÆR öruggt má nú telja að George
Bush hefði sigrað Al Gore í forseta-
kosningunum í fyrra jafnvel þótt end-
urtalning, sem hæstiréttur Banda-
ríkjanna stöðvaði í miðjum klíðum,
hefði farið fram. Blaðið The Miami
Herald lét í samvinnu við USA Today
endurtelja öll umdeild atkvæði í öll-
um 67 sýslum Flórída og voru þau
64.248. Jókst meirihluti Bush þá úr
537 atkvæðum í 1.665.
Endurtalningin á vegum blaðanna
var framkvæmd af endurskoðunar-
fyrirtækinu BDO Seidman. Þegar
úrskurðað var hvort atkvæði væru
gild voru reglur sem Gore hafði mælt
með notaðar en ýmsar aðferðir komu
til greina við að meta vafaatkvæði.
The Miami Herald, sem studdi Gore,
segir að nú sé því búið að svara
spurningunni sem klauf þjóðina:
Næstum því allar aðferðir færi Bush
sigurinn.
Ein af þeim sem hefði fellt Bush er
aðferð sem sumir repúblikanar
mæltu með. Blaðið segir að enn megi
deila um viðmiðanir sem notaðar
voru í handtalningu í sýslunum
Broward og Palm Beach. Þar voru
hundruð atkvæðaseðla dæmdir ógild-
ir vegna þess að óljóst þótti hvort
kjósendurnir hefðu raunverulega
sett merki sitt við einn reitanna. The
Miami Herald segir að ef þeir hefðu
verið taldir með hefði Gore sigrað.
Einn af talsmönnum repúblikana,
Marc Racicot, sem áður var ríkis-
stjóri í Montana, vísaði í gær á bug að
úrskurða hefði mátt fleiri atkvæði
gild. Hann sagði að vandinn væri að
svo margir einstaklingar á ýmsum
stöðum hefðu oftar en einu sinni
reynt að meta hvað umræddir kjós-
endur hefðu ætlað sér að gera við
kjörseðilinn.
„Bandaríska þjóðin veit að litlu
munaði í kosningunum. Hún viður-
kenndi að ef beitt væri eðlilegum að-
ferðum við talninguna myndi Bush
sigra,“ sagði Racicot.
Bush sigraði
í Flórídaríki
FAGNEFND Evrópuráðsins, sem
hefur það hlutverk að fylgjast með
kynþáttamisrétti í aðildarríkjum
ráðsins og koma með tillögur að að-
gerðum til að vinna gegn því, gagn-
rýnir ýmis Evrópuríki fyrir margs
konar mismunun fólks í viðamikilli
skýrslu sem gefin var út í Strass-
borg á þriðjudag.
Dönsk stjórnvöld eru til dæmis
gagnrýnd fyrir að beita múslima í
Danmörku misrétti og kvartað er
yfir meðhöndlun Dana á innflytjend-
um, flóttamönnum og hælisleitend-
um.
Þá lýsir nefndin áhyggjum yfir
því hve mikið sé um að kynþátta-
hyggju og útlendingaandúð sé beitt í
pólitískum áróðri í Austurríki.
Kvartað er yfir því að gildandi lög-
gjöf í Austurríki taki með ófullnægj-
andi hætti á útlendingahatri og mis-
munun fólks eftir uppruna og
trúarskoðunum.
Fullyrt er í skýrslunni, að kyn-
þáttahyggja sé „sérstaklega skæð“ í
Bretlandi gagnvart hælisleitendum
og flóttamönnum.
Nefndin lýsir í skýrslunni einnig
áhyggjum af haturstengdu hátterni
í samskiptum við minnihlutahópa og
flóttamenn í Albaníu, Makedóníu og
nokkrum öðrum hins 41 aðildarríkis
stofnunarinnar.
Danir vísa gagnrýni á bug
Talsmenn Danmerkurstjórnar og
danskra stjórnmálaflokka vísuðu
gagnrýninni á ástandið í þessum
málum þarlendis á bug. „Sem betur
fer er þessi skýrsla úrelt. Fyrir ári
hefði hún endurpeglað ástandið bet-
ur. Síðan þá hefur margt breytzt til
betri vegar,“ sagði utanríkisráð-
herrann Mogens Lykketoft. „Meðal
almennings gætir almennt jákvæð-
ara viðhorfs til innflytjenda; þeir
eru nú frekar álitnir ávinningur
[fyrir danskt þjóðfélag] en vanda-
mál,“ sagði hann.
Margs kyns misrétti
sagt viðgangast
Strassborg. AP, AFP.
Skýrsla Evrópuráðs um kynþáttamisrétti