Morgunblaðið - 05.04.2001, Blaðsíða 39
UMRÆÐAN
ÓHÆTT er að segja
að kosningarnar í Há-
skóla Íslands hafi verið
spennandi, enda skildu
aðeins 57 atkvæði
Vöku og Röskvu að.
Röskva, samtök félags-
hyggjufólks, vann
nauman sigur og óska
ég þeim til hamingju
með sigurinn.
Við í Vöku erum þó
ánægð með kosning-
arnar, enda standa
fylkingarnar hnífjafnar
að þeim loknum. Rúm-
lega 3.000 stúdentar
kusu sem er talsvert
betri kjörsókn en
venjulega. Má meðal annars þakka
góða kjörsókn því að Vaka lagði
fram tillögu þess efnis að kjördagar
yrðu tveir í stað eins. Var það gert
með það að leiðarljósi að sem flestir
stúdentar hefðu tækifæri til að
kjósa.
Við í Vöku viljum þakka stúdent-
um traustið og við ætlum sannar-
lega ekki að láta okkar eftir liggja.
Við munum reyna eftir fremsta
megni að ná okkur stefnumálum
fram og sýna þannig þakklæti til
þeirra 1.500 stúdenta sem kusu
Vöku. Þá þakkar Vaka öllum þeim
sem lögðu hönd á plóg í kosninga-
baráttunni.
Því fólki verður seint
fullþakkað fyrir sitt
starf.
Ólýðræðisleg vinnu-
brögð Röskvu
Eftir málefnalega
kosningabaráttu kom
það okkur í Vöku veru-
lega á óvart hvernig
Röskva kaus að haga
málum á fyrsta fundi
Stúdentráðs. Þar var
kosið í stjórn Stúd-
entaráðs og hafði
Röskva þann háttinn á
að samþykkja aðeins
að Vaka fengi tvo full-
trúa en Röskva fimm
af sjö manna stjórn. Þetta getur
varla talist eðlilegt, ekki síst í ljósi
þess að aðeins 57 atkvæði skildu
fylkingarnar að. Sigur Röskvu var
mjög naumur, svo naumur að 1,8%
munur er á fylkingunum auk þess
sem Röskva hlaut innan við helming
greiddra atkvæða.
Það er mjög óeðlilegt að Röskva
skuli ekki reyna að endurspegla
vilja stúdenta við skipan í nefndir og
ráð á vegum Stúdentaráðs. Erfitt er
að rökstyðja það að þessi skipan sé í
samræmi við úrslit kosninganna eða
að þetta endurspegli vilja kjósenda.
Þá fer Röskva með formennsku
allra nefnda á vegum Stúdentaráðs,
en eðlilegt hefði verið að Vaka hefði
farið með formennsku í einhverri af
þeim sex nefndum sem starfa á veg-
um Stúdentaráðs.
Eins og staða mála er mætti halda
að Röskva hefði hlotið rússneska
kosningu. Sannleikurinn er hins
vegar sá að munurinn á fylkingun-
um hefur sjaldan verið minni,
Röskva er í meirihluta í skjóli 57 at-
kvæða og staða Röskvu getur því
seint talist sterk.
Nýtt starfsár framundan
Ég vil þakka þeim stúdentaráðs-
liðum Vöku sem nú hafa lokið setu
sinni í Stúdentaráði fyrir vel unnin
störf undanfarin tvö ár. Nýtt starfs-
ár Vöku hefst innan tíðar en aðal-
fundur Vöku verður haldinn í byrjun
apríl þar sem ný stjórn Vöku er kos-
in. Rétt er að hvetja þá sem hafa
áhuga á því að starfa með Vöku að
hafa samband við formann Vöku,
Soffíu K. Þórðardóttur.
Vaka fagnar nýju fólki, enda
fylgja nýju fólki jafnan ferskir
straumar auk þess sem Vaka hefur
alltaf leitast við að endurspegla há-
skólasamfélagið sem best. Til þess
þarf fólk úr sem flestum deildum.
Vaka vinnur fyrir stúdenta
Á næstu dögum heldur Stúdenta-
ráð, að frumkvæði Vöku, fund um
kjaradeilu kennara og þýðingu verk-
falls fyrir stúdenta. Fundurinn verð-
ur haldinn hinn 5. apríl næstkom-
andi í Háskólabíói. Með því að halda
fund sem þennan er ætlunin að opna
umræðuna um hugsanlegt verkfall.
Mikil óvissa er ríkjandi um stöðu
stúdenta ef verkfall verður og því er
mikilvægt að halda fund um málið, í
því skyni að fræða nemendur um
verkfallið og áhrif þess á stúdenta.
Vaka hvetur alla stúdenta til að
koma á fundinn og taka þátt í mál-
efnalegri umræðu um hugsanlegt
verkfall háskólakennara.
Vaka þakkar
stúdentum traustið
Guðfinnur
Sigurvinsson
Höfundur skipaði 1. sæti á lista
Vöku til Stúdentaráðs í nýafstöðnum
kosningum.
Stúdentar
Það er mjög óeðlilegt,
segir Guðfinnur
Sigurvinsson, að
Röskva skuli ekki reyna
að endurspegla vilja
stúdenta við skipan í
nefndir og ráð á vegum
Stúdentaráðs.
Gól fe fn i á v innustað inn
Ármúla 23, sími 533 5060
AT V I N N U A U G LÝ S I N G A R
Atvinna — mötuneyti
Fyrirtæki í Hálsahverfi óskar eftir að ráða starfs-
mann í mötuneyti fyrirtækisins (brauð, súpa
o.þ.h.). Starfsmenn eru um 45 talsins.
Áætlaður vinnutími er u.þ.b. 5 tímar á dag.
Góð laun í boði. Þarf að geta byrjað fljótlega.
Umsóknir, með upplýsingum um aldur og fyrri
störf, sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir miðviku-
daginn 11. apríl nk., merktar: „3006“.
Mötuneyti
Starfsfólk óskast í mötuneyti Reykjalundar.
Bæði er um að ræða sumarafleysingar og störf
til lengri tíma. Möguleiki er á húsnæði á staðn-
um fyrir einstakling.
Upplýsingar gefur Geir Þorsteinsson í síma
566 6200.
Bóksala stúdenta
er eina bóka-
verslun sinnar
tegundar á landinu.
Meginmarkmið
hennar er að
útvega háskóla-
stúdentum náms-
efni og önnur
aðföng til náms.
Auk þess býður
hún háskólasam-
félaginu, sérfræði-
bókasöfnum,
framhaldsskólum
og öðrum skólum á
háskólastigi marg-
þætta þjónustu.
Bóksalan er ein af
rekstrareiningum
Félagsstofnunar
stúdenta sem er
sjálfseignastofnun
með sjálfstæða
fjárhagsábyrgð.
Að henni standa
stúdentar innan
Háskóla Íslands, HÍ
og menntamála-
ráðuneytið.
Í starfinu felst m.a. afgreiðsla og
ráðgjöf til viðskiptavina.
Krafist er almennrar menntunar,
þekkingar og áhuga á bókum auk
góðrar tungumálakunnáttu.
Starfskrafturinn þarf að vera
dugmikill, fróðleiksfús, reiðubúinn að
kynna sér háskólasamfélagið og
þarfir þess og viljugur að leggja sig
fram við að þjóna kröfuhörðum
viðskiptavinum.
Upplýsingar eru veittar
hjá Atvinnumiðstöðinni
í síma 5 700 888.
Vinsamlegast sendið skriflega umsókn til Atvinnumið-
stöðvarinnar, Stúdentaheimilinu v/Hringbraut, 101 R.,
eða tölvupóst til atvinna@fs.is, fyrir 9. apríl n.k.
Bóksala stúdenta
óskar eftir starfskrafti
í verslunina
atvinna@fs.is
ATVINNUAUGLÝSINGAR
sendist á augl@mbl.is
2001
Heimsferðir selja nú síðustu sætin til
Prag í vor, í einstaka vorferð, þar sem
þú getur kynnst þessari stórkostlegu
borg á fegursta tíma ársins, þar sem allur gróður er að springa út og
ótrúlegt andrúmsloft er að finna í borginni. Beint flug, góð 3 og 4
stjörnu hótel og spennandi kynnisferðir um kastalann og gamla
bæinn með íslenskum fararstjórum Heimsferða, þar sem þú kynnist
alveg ótrúlega heillandi mannlífi þessarar borgar sem á engan sinn
líka í Evrópu.
Kr. 29.320
Flugsæti til Prag, p. mann, m.v.
hjón með 2 börn.
Skattar innifaldir.
Kr. 32.245
Flugsæti til Prag fyrir fullorðinn.
Skattar innifaldir.
Kr. 56.100
M.v. 2 í herbergi, Hótel Quality.
Flug, gisting, morgunverður og
skattar.
Vorið í
Prag
23. apríl
frá 29.320 kr.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Aðeins 16 sæti
síðustu sætin í vor
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2001 43