Morgunblaðið - 05.04.2001, Qupperneq 45
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2001 49
Stutt og hnitmiðuð 8 tíma
námskeið fyrir byrjendur
og lengra komna
Frábær kennsluaðstaða
Fullkominn tækjabúnaður
Þekking - Bæjarlind 2, Kóp.
w
w
w
.
t
o
l
v
u
s
k
o
l
i
n
n
.
i
s
Windows
Tölvupóstur og internetið
Word stig 1
Word stig 2
Excel stig 1
Excel stig 2
Excel stig 3
K
O
R
T
E
R
LANDVERND og verkefnisstjórn
rammaáætlunar um nýtingu vatns-
afls og jarðvarma boða til málstofu
laugardaginn 7. apríl þar sem kynnt-
ar verða niðurstöður rannsóknar á
viðhorfum innlendra og erlendra
ferðamanna til svæða á hálendinu,
m.a. með tilliti til mannvirkja. Mál-
stofan verður haldin samtímis í
Reykjavík, á Akureyri, Sauðárkróki
og á Egilsstöðum með hjálp fjar-
fundabúnaðar.
Á fundinum mun Rögnvaldur
Guðmundsson ferðamálafræðingur
kynna niðurstöður viðhorfskönnun-
arinnar sem var framkvæmd á fjór-
um stöðum á hálendinu: á Torfajök-
ulssvæði, á Síðuvatnasvæði, á
vatnasvæði Austari- og Vestari-Jök-
ulsár norðan Hofsjökuls og á svæð-
inu norðan Vatnajökuls. Þá mun
Þorleifur Þór Jónsson, hagfræðing-
ur hjá Samtökum ferðaþjónustunn-
ar, segja frá vinnu hóps við að meta
framtíðargildi svæða fyrir ferða-
mennsku, þar sem hann fjallar sér-
staklega um svæðið norðan Vatna-
jökuls, en vinna hópsins er í beinu
framhaldi af rannsókninni um við-
horf ferðamanna á hálendinu. Að síð-
ustu mun fulltrúi frá ferðamálabraut
Hólaskóla ræða um skýrslu Rögn-
valdar og hvaða þýðingu niðurstöð-
urnar hafa fyrir framtíðarstefnu-
mótun ferðaþjónustu á hálendinu.
Í Reykjavík verður málstofan til
húsa í Námunni, Endurmenntunar-
stofnun Háskóla Íslands, á Akureyri
í Salnum í húsnæði Háskólans á Ak-
ureyri við Þingvallastræti 23, á
Sauðárkróki hjá Þróunarsviði
Byggðastofnunar, Skagfirðinga-
braut 21 og á Egilsstöðum verður
hægt að fylgjast með í fjarfundaveri
Menntaskólans á Egilsstöðum.
Málstofan hefst kl. 14 laugardag-
inn 7. apríl. Aðgangur er ókeypis og
öllum heimill.
Málstofa um ferðamenn og virkj-
anir á þremur stöðum samtímis