Morgunblaðið - 05.04.2001, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesend-
um sínum að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælis-
tilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns
og símanúmer. Fólk
getur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2001 65
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
HRÚTUR
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert íhugull og stundum
skemmir það, að þú veltir
hlutunum fyrir þér út
í það óendanlega.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þótt þig langi að hafa hönd í
bagga með öðrum eru þeirra
mál stundum utan og ofan
við þitt færi. Reyndu frekar
að koma eigin málum í lag.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ert sannkallaður gleði-
gjafi. Láttu þér þó ekki koma
á óvart öfund og illkvittni
sumra. Hún á ekki að bíta á
þér en er viðkomandi til
skammar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þótt þú hafir lagt þig allan
fram um að koma máli þínu
til skila er einhver sem vill
ekki hlusta. Hann verður þá
bara að læra erfiðu leiðina.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það eru ýmsar spurningar á
sveimi í kollinum á þér. Sum
svörin liggja í augum uppi,
en önnur þarftu að finna.
Farðu eftir eðlisávísun þinni.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Láttu einskis ófreistað til
þess að komast til botns í því
máli, sem þú hugsar hvað
mest um. En vertu viðbúinn
því sem skoðunin leiðir í ljós.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er sóst eftir vináttu þinni
og það svo að þú átt fullt í
fangi með að stjórna aðsókn-
inni. Farðu þér hægt, val á
vini er mjög vandasamt.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þótt þér sýnist í fljótu bragði
að ákveðin leið skili þér
stundargróða skaltu líka
reyna að sjá langtímaáhrifin
fyrir. Þau gætu breytt mynd-
inni.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Hættu að láta aðra eyða tíma
þínum í tilgangslaust rugl.
Þú átt að vera óhræddur við
að velja og hafna og segja
öðrum, hvað þú vilt.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú skalt búa þig undir ein-
hverjar breytingar á vinnu-
stað þínum. Þær eru þér í
hag svo þú skalt taka þeim
opnum huga og sleppa því
gamla óhræddur.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er svo sem allt í lagi að
endurtaka sig tvisvar, þrisv-
ar sinnum. En það ætti að
vera nóg og þú þarft að hafa
þrek til þess að segja nei.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þótt það freisti að láta berast
með straumnum skaltu íhuga
hvað er í húfi hverju sinni.
Gættu þess vel að mál gangi
ekki þvert á samvisku þína.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þótt enginn sjái framtíðina
fyrir er hægt að búa sig und-
ir hana með margvíslegum
hætti í smáu sem stóru.
Kynntu þér menn og málefni
vandlega.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
ÞÚ EINA HJARTANS
Þú eina hjartans yndið mitt
í örmum villtra stranda,
nú aðeins bjarta brosið þitt
mig ber til draumalanda.
Í þinni finn ég frjálsri brá
svo fagrar innri kenndir,
er seiða til sín traust og þrá
í trú, sem hærra bendir.
Guðm. E. Geirdal
Árnað heilla
Bxh6+! Kxh6 39. Hxe1
Hxe1 40.Hxf7 Hvítur hefur
haft peð upp úr krafsinu og
stendur með pálmann í
höndunum í hróksendatafl-
inu. Framhaldið
varð: 40...b5 41.
Ha7 bxc4 42.
bxc4 Hc1 43.
Hxa6 Hxc4 44.
Hxd6 Hc2 45.
a4 Ha2 46. Ha6
Kg5 47. a5 Kh5
48. Ha8 Kh6 49.
a6 Kg7 50. Kg3
Kh7 51. Kf3
Ha3+ 52. Ke4
Hg3 53. Hb8
Ha3 54. Hb7+
Kh6 55. a7 og
svartur gafst
upp. Keppni í
áskorendaflokki
og opnum flokki á Skákþingi
Íslandi hefst næstkomandi
laugardag. Fyrir þá skák-
menn sem ekki hafa ráðstaf-
að páskafríinu er tilvalið að
taka þátt í þinginu, enda til
mikils að vinna.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
STAÐAN kom upp á Ís-
landsmóti skákfélaga er
lauk fyrir stuttu. Hinn
skeinuhætti Akureyringur
Rúnar Sigurpálsson (2180)
hafði hvítt gegn Arinbirni
Gunnarssyni (2175). 38.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
ÞAÐ eru tvær leiðir til vinn-
ings – önnur einföld, hin
flóknari. Þrjú grönd voru
spiluð á nánast öllum borð-
um í þessu spili Íslands-
mótsins um síðustu helgi og
skiptist nokkuð í tvö horn –
spilið ýmist vannst eða tap-
aðist. Þeir sem unnu spilið
völdu flestir flóknari leiðina.
Norður gefur; NS á
hættu.
Norður
♠ Á102
♥ K7
♦ G8654
♣ D87
Vestur Austur
♠ D975 ♠ G4
♥ 10542 ♥ D86
♦ – ♦ D10972
♣ ÁK1065 ♣ 943
Suður
♠ K863
♥ ÁG93
♦ ÁK3
♣ G2
Venjulega vakti suður á
15–17 punkta grandi og
norður lauk sögnum með
stökki í þrjú grönd. Og vest-
ur kom út með smátt lauf.
Sagnhafi fékk sinn fyrsta
slag á laufgosa og lagði nið-
ur tíglulás. Átta slagir eru
fyrir hendi með svíningu í
hjarta, en hin slæma tígul-
lega útilokar að hægt sé að
ná í viðbótarslag þar.
Nú skiptir miklu máli að
vestur hendi spaða, en ekki
hjarta. Hann gefur samn-
inginn strax með hjartaaf-
kasti, því sagnhafi fær þá
fjóra hjartaslagi. Víða þar
sem vestur henti spaða rifj-
aðist upp fyrir viðkomandi
sagnhöfum þekkt stef úr
bridsbókum sem gengur út
á það að senda annan mót-
herjann inn á litinn sinn og
láta hann þjarma að makker
sínum. Margir spiluðu sem
sagt laufi í þriðja slag. Vest-
ur tók fjóra slagi á lauf og
spilaði hjarta. Heima átti
sagnhafi Kx í spaða, ÁG9x í
hjarta og einn hátígul. Í
blindum var Á10x í spaða,
Kx í hjarta og Gx í tígli.
Austur var ekki í neinum til-
takanlegum afkastsvand-
ræðum – hann hékk á Gx í
spaða, þremur hjörtum og
tveimur tíglum.
Eigi að síður vannst spilið
þegar sagnhafi tók á hjarta-
kóng og svínaði gosanum.
Spilaði svo tígulkóng og
þvingaði vestur í hálitunum.
Þetta var flókna leiðin.
Hin einfaldari felst í að taka
báða tígulhámennina í upp-
hafi. Vestur þvingast þá í
þremur litum – ekki má
hann henda hjarta eða spaða
og ef hann fækkar við sig
laufum getur sagnhafi spilað
þrisvar spaða og búið þar til
níunda slaginn.
70 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 5. apr-
íl, verður sjötugur Haukur
Guðlaugsson, söngmála-
stjóri þjóðkirkjunnar, Lauf-
ásvegi 47, Reykjavík. Hann
dvelur á afmælisdaginn
ásamt eiginkonu sinni,
Grímhildi Bragadóttur, í
frumskógum Afríku.
70 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 5. apr-
íl, verður sjötugur Marinó
Finnbogason frá Hóli í
Bakkadal, Arnarfirði. Eig-
inkona hans er Jóna Guð-
mundsdóttir. Tvíburasystir
Marinós, Sigríður Finn-
bogadóttir, lést 1996. Eftir-
lifandi eiginmaður hennar
er Stefán Vilhelmsson flug-
virki.
50 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 5. apr-
íl, verður fimmtugur Bergur
Jónsson Hjaltalín húsa-
smiður, Tangagötu 9,
Stykkishólmi. Eiginkona
hans er Ásdís Herrý Ás-
mundsdóttir. Þau verða á
ferðalagi í Borgarfirði á af-
mælisdaginn.
Svo þú segir að ég sé
ímyndunarveikur. Ég
skal segja þér eitt, á
legsteininum mínum
mun standa: „Hvað
sagði ég ekki.“
Ný
sending af
drögtum
frá
tískuverslun
v/Nesveg,
Seltjarnarnesi,
sími 561 1680.
LAUGAVEGI 36
Opnaðu
augun
30% verðlækkun
á öllum
gleraugnaumgjörðum
& glerjum.
Útgáfusjóður
Hauks Guðlaugssonar
Í tilefni 70 ára afmælis Hauks Guðlaugssonar, söngmála-
stjóra þjóðkirkjunnar, þann 5. apríl 2001 hafa nokkrir vinir
hans og velunnarar stofnað útgáfusjóð til að gefa út á geisla-
diskum hljóðritanir á orgelverkum sem hann hefur leikið og á
kórverkum sem hann hefur stjórnað. Þeim, sem vilja styrkja
útgáfuna og senda Hauki heillaóskir í tilefni dagsins, er gef-
inn kostur á að skrá sig á lista, „tabula gratulatoria“, sem
birtur verður með útgáfunni.
Hægt er að skrá sig á listann í símum
568 8611 (Guðleif), 552 3011 (Magni) og
898 9618 (Smári) eða á netfangi smariola@ismennt.is
F.h. sjóðsins, Ingveldur Guðlaugsdóttir, Gunnar Kvaran, Smári Ólason.
Lyf & heilsa
Melhaga
föstudaginn 6. apríl k. 14-18
Lyf & heilsa
Fjarðarkaup
Nýr útsölustaður
fimmtudaginn 5. apríl kl. 12-18
og föstudag 6. apríl kl. 12-18
Snyrtivöru-
kynning
Förðunarfræðingur
veitir ráðleggingar
www.noname.is