Morgunblaðið - 26.04.2001, Síða 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isPáll telur Hauka sigurstranglega
gegn KA / B4
Mörkin voru hvert öðru
glæsilegra /B1
4 SÍÐUR
Viðskiptablað
Morgunblaðsins
Sérblað um viðskipti/atvinnulíf
16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
MEÐALBIÐTÍMI sjúklinga eftir
að komast í mjaðmarliðskipti hjá
Landspítala – háskólasjúkrahúsi er
327 dagar og 99 sjúklingar eru á
biðlista. Í fyrra voru framkvæmdar
104 aðgerðir af þessu tagi á Land-
spítala – háskólasjúkrahúsi. Árleg-
ur kostnaður sem hlýst af þessum
biðlista, m.a. vegna fjarveru frá
vinnu, lengri endurhæfingar,
greiðslu sjúkradagpeninga, lyfja-
kostnaðar o.fl., er um 81 milljón
króna. Unnt yrði að spara árlega
rúmlega 47 milljónir króna með því
að fjölga aðgerðum á spítalanum.
Þetta eru meginniðurstöður í
verkefni í rekstrarstjórnun sem
hópur nemenda í MBA-námi í Há-
skóla Íslands hefur gert.
Fram kemur í skýrslu hópsins að
sjúklingum á biðlistanum hefur
fjölgað um 0,9 á viku og framboð
aðgerða er minna en eftirspurn á
spítalanum. Til þess að framboð og
eftirspurn séu í jafnvægi þarf að
framkvæma 2,5 aðgerðir á viku en
til að stytta biðtíma í sex vikur,
sem er sá biðtími sem bæklunar-
sérfræðingar telja heppilegastan,
þarf að framkvæma tvær aðgerðir
til viðbótar í hverri viku, eða alls
4,5 aðgerðir. Með þeim afköstum
kæmist á nýtt jafnvægi eftir 42
vikur og fjöldi sjúklinga á biðlista
væri 15. Að þeim tíma liðnum væri
hægt að minnka aðgerðaafköst í
2,5 aðgerðir á viku.
Í greiningu hópsins kemur fram
að ekki eru augljósir flöskuhálsar á
skurðstofum, gjörgæslu og legu-
deildum spítalans. Í niðurstöðu
greiningarinnar kemur fram að
átak við að ná niður biðlistanum
myndi borga sig á rúmum tveimur
árum. Enginn hvati er hins vegar
fyrir sjúkrahúsin að fjölga aðgerð-
um þar sem þeim er skammtað
fjármagn á hverju ári á fjárlögum,
óháð afköstum og að teknu tilliti til
rekstrarniðurstöðu síðasta árs.
Rekstrarleg afkoma sjúkrahúsanna
batnar með færri sjúklingum og
miðað við núverandi aðstæður er
það sjúkrahús best rekið sem
fæsta hefur sjúklingana. Bent er á
að í nágrannalöndunum hafi stjórn-
völd komið á afkastatengdum
greiðslum sem nemi allt að helm-
ingi rekstrarkostnaðar sjúkrahúsa.
Tilraunir séu að hefjast með slíkt
fjármögnunarfyrirkomulag hér-
lendis en langt sé í land með að
sjúkrahús hér verði fjármögnuð á
þann hátt.
Þá sé staða og réttur sjúklings-
ins umhugsunarefni. Sjúklingar
séu háðir pólitískum ákvörðunum
um fjárframlög á fjárlögum hverju
sinni en eigi þess ekki kost að
kaupa sig framhjá kerfinu, óski
þeir þess, nema með því að leita til
nágrannalanda. Íslenska ríkið sé í
senn kaupandi, veitandi og eftir-
litsaðili með heilbrigðisþjónustunni
og sé Ísland eina landið innan
OECD þar sem slíkt fyrirkomulag
er við lýði. Það er mat hópsins að
vandinn sem liggur að baki bið-
listum felist ekki í tæknilegum
flöskuhálsum heldur pólitískum.
„Mat á frammistöðu sjúkrastofn-
ana sem hið opinbera beinir sjón-
um sínum að og leggur til grund-
vallar þegar veitt er fé til rekstrar
þeirra byggist einvörðungu á
rekstrarlegri niðurstöðu en tekur
ekki með í reikninginn þann kostn-
að sem þjóðfélagið – og þar með
eigendur ríkisins og sjúkrastofnana
– verður fyrir þegar stofnunum er
gert að skera niður rekstrarút-
gjöld,“ segir í skýrslunni.
Skýrsla MBA-nemenda við HÍ um biðlista vegna mjaðmarliðskipta
50 milljónir króna sparast
með fjölgun aðgerða
FRAMKVÆMDIR eru hafnar við
Þinganesgarð austan við Ósinn við
Höfn í Hornafirði, en garðinum er
ætlað að verja innsiglinguna fyrir
sandflutningum frá austri að Ósn-
um þar sem sandur hefur tilhneig-
ingu til að safnast fyrir í innsigl-
ingunni. Þinganesgarður er seinni
hluti framkvæmda við innsigl-
inguna í Hornafjarðarhöfn sem
varð fyrir verulegum áföllum frá
náttúrunnar hendi veturinn 1989–
90. Fyrri áfangi fólst í gerð
tveggja varnargarða sitt hvorum
megin við Ósinn, sem bætt hafa
innsiglinguna að verulegu leyti.
Þinganesgarður er svokallaður
leiðigarður sem hannaður er af
Siglingastofnun en Suðurverk hf.
sér um framkvæmdir við bygg-
ingu garðsins. Leiðigarðurinn
verður fullbyggður um 25.000
rúmmetrar að stærð og í heildina
300 metra langur. Hann nær út í
Þinganessker frá Austurfjörum og
er rúma 100 metra austan við inn-
siglinguna við Ósinn. Ingimundur
Jósepsson, verkstjóri hjá Suð-
urverki, segir framkvæmdir
ganga vel og er áætlað að þeim
ljúki í lok júní í sumar en um níu
manns vinna að staðaldri við
verkið.
Morgunblaðið/RAX
Ingimundur Jósepsson og Jón Þór Árnason á Þinganesgarði, sem nú er farinn að teygja sig af fjörunni út í sjó.
Framkvæmdir hafnar
við Þinganesgarð
LÖGREGLAN í Reykjavík verst
allra fregna af rannsókn á sjálfsvígi
manns sem grunaður var um fíkni-
efnabrot og af rannsókn á meintu
afbroti hans.
Maðurinn svipti sig lífi á mánu-
dagskvöld þegar lögreglumenn
gerðu húsleit á heimili hans en
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins lék grunur á að þar væri
framleitt amfetamín.
Tengist ekki öðrum
fíkniefnamálum
Lögreglan mun hafa fundið efni
og tæki til framleiðslu fíkniefnisins
á heimili mannsins.
Húsleitin var hluti af rannsókn á
nýju fíkniefnamáli og hafði staðið
yfir undanfarnar vikur en málið
mun ekki tengjast öðrum fíkniefna-
málum sem þegar hefur verið
greint frá.
Maðurinn var viðstaddur upphaf
leitarinnar, en lögreglumönnum
tókst ekki að koma í veg fyrir að
hann gripi hlaðið skotvopn og svipti
sig lífi. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins var leitin vart haf-
in þegar þetta gerðist.
Amfetamín er efnasamband líkt
og LSD og e-töflur en ekki nátt-
úrulegt efni. Því er hægt að fram-
leiða það hafi menn yfir að ráða
réttu efnunum og kunnáttu.
Lögregla
verst
allra
fregna
Rannsókn sjálfsvígs
og fíkniefnabrota
Tveir
sækja um
stöðu
rektors
í MR
TVEIR umsækjendur eru um
stöðu rektors Menntaskólans í
Reykjavík. Núverandi rektor,
Ragnheiður Torfadóttir, lætur
af störfum að eigin ósk í lok
skólaársins.
Umsóknarfrestur um stöð-
una rann út síðastliðinn mánu-
dag. Þeir sem sóttu um eru Pét-
ur Rasmussen, konrektor í MS,
og Yngvi Pétursson, konrektor
í MR. Lögum samkvæmt hafa
umsóknirnar verið sendar
skólanefnd MR til umsagnar og
tillögugerðar. Eftir að tillögur
hafa borist frá skólanefnd, sem
þarf að gerast fyrir 10. maí,
tekur menntamálaráðherra
ákvörðun um skipun í stöðuna.
Miðað er við að skipað verði í
stöðuna frá 1. ágúst nk.
Reykjarlykt
fannst í
stjórnklefa
breiðþotu
BREIÐÞOTA frá bandaríska flug-
félaginu Delta lenti á Keflavíkur-
flugvelli nokkru eftir hádegi í gær
en flugmenn vélarinnar óskuðu eftir
lendingarleyfi þar sem reykjarlykt
hafði borist í stjórnklefa vélarinnar.
Slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli
var sett í viðbragðsstöðu en lend-
ingin gekk að óskum.
Vélin, sem er af gerðinni Boeing
767, var á leið frá Evrópu til
Bandaríkjanna með 141 farþega
innanborðs. Farþegum og áhöfn
vélarinnar var í gær ekið á hótel í
Keflavík á meðan flugvirkjar yf-
irfóru vélina.
RÍKISSAKSÓKNARI hefur ákveð-
ið að áfrýja ekki sýknudómi Héraðs-
dóms Reykjavíkur í kynferðisbrota-
máli sem höfðað var gegn manni
fyrir brot gegn stjúpdóttur sinni.
Hin meintu brot voru framin í fyrra
en telpan var þá á sjöunda aldursári.
Foreldrar telpunnar og réttar-
gæslumaður hennar fóru fram á að
skýrslutaka af henni færi fram í
Barnahúsi en á það féllst Héraðs-
dómur Reykjavíkur ekki.
Samkvæmt upplýsingum frá
embætti ríkissaksóknara voru ekki
taldar líkur til þess að Hæstiréttur
hnekkti niðurstöðu dómsins.
♦ ♦ ♦
Sýknudómi
ekki áfrýjað