Morgunblaðið - 26.04.2001, Side 29
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2001 29
SUÐUR-afríski viðskiptajöfurinn
Cyril Ramaphosa og tveir aðrir
áhrifamiklir menn í Afríska þjóð-
arráðinu (ANC) sæta nú rannsókn
vegna meints samsæris um að
steypa Thabo Mbeki, forseta Suður-
Afríku, af stóli.
Suður-afrískir fjölmiðlar höfðu
eftir öryggismálaráðherra landsins,
Steve Tshwete, að lögreglan væri
að rannsaka meint samsæri
Ramaphosa, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra ANC, og tveggja
annarra fyrrverandi forystumanna í
stjórnarflokknum, Tokyo Sexwale
og Mathews Phosa. Þeir hafa allir
snúið sér að viðskiptum og komist í
álnir en njóta enn mikils stuðnings í
ANC.
Sagðir hafa bendlað
forsetann við morð
Ráðherrann sagði að meðal ann-
ars væri verið að rannsaka hvort
þremenningarnir hefðu staðið fyrir
ófrægingarherferð á hendur forset-
anum sem hefði m.a. verið sakaður
um að hafa látið myrða Chris Hani,
fyrrverandi leiðtoga Kommúnista-
flokks Suður-Afríku, árið 1993.
Tveir hægrimenn voru dæmdir sek-
ir um morðið.
„Þessi orðrómur getur sett for-
setann í hættu þar sem fólkið hafði
mikið dálæti á Hani,“ sagði Tshwete
og gaf í skyn að andstæðingar for-
setans kynnu að reyna að myrða
hann í hefndarskyni.
Mbeki fullyrti í
fyrradag að keppinaut-
ar hans innan ANC
hefðu lagt á ráðin um
að steypa honum af
stóli, en nefndi þá ekki
á nafn.
Talsmaður öryggis-
málaráðherrans sagði
að rannsóknin hefði
verið hafin vegna ásak-
ana James Nkambule,
fyrrverandi banda-
manns Mathews
Phosa. Nkambule af-
henti lögreglunni eið-
svarna yfirlýsingu þar
sem hann getur um
ófrægingarherferð og kveðst hafa
setið fundi þar sem atkvæðamiklir
menn í ANC hafi lagt á ráðin um að
grafa undan Mbeki.
Stjórnin sökuð um að
misnota lögregluna
Douglas Gibson, þingmaður
stærsta stjórnarandstöðuflokksins,
Lýðræðisbandalagsins, sakaði
stjórnina um að „misnota völd sín
til að grafa undan pólitískum and-
stæðingum“ með því að láta lögregl-
una rannsaka þremenningana. „Ef
líf Mbekis er í hættu ber lögregl-
unni skylda til að vernda hann,“
sagði Gibson. „En öðru máli gegnir
um pólitíska hættu af mönnum sem
ásælast ef til vill for-
setaembættið. Það er
rangt að nota stofnanir
ríkisins til að rannsaka
hvort hátt settir félag-
ar í ANC vilji losna við
Mbeki.“
Gibson kvaðst ekki
telja að líf forsetans
væri í hættu. „En sú
staðreynd að stjórnin
skuli skýra frá þessum
ásökunum bendir til
þess að ANC eigi við
alvarlegri vandamál að
stríða en nokkurn hef-
ur órað fyrir.“
Kiru Naidoo, óháður
stjórnmálaskýrandi,
kvaðst efins um að þremenningarn-
ir hefðu staðið fyrir meintri ófræg-
ingarherferð. „Þessir þrír menn
hafa allir dregið sig út úr stjórnmál-
unum. Ef rétt er að þeir vilji kom-
ast til valda tel ég að þetta sé varla
leiðin til að koma óorði á forset-
ann.“
Skýrt var frá því í fyrra að leyni-
þjónusta landsins væri að rannsaka
meint samsæri hátt settra ANC-
manna um að láta Mbeki víkja fyrir
Ramaphosa sem var um tíma talinn
líklegur arftaki Nelsons Mandela,
fyrsta forseta Suður-Afríku eftir af-
nám kynþáttaaðskilnaðarins. Mbeki
tók við forsetaembættinu af Nelson
Mandela í júní 1999.
Þrír atkvæðamiklir ANC-menn sæta rannsókn lögreglu
Sakaðir um samsæri
gegn forseta S-Afríku
Jóhannesarborg. AFP.
Thabo
Mbeki
GAGNASAFN
MORGUNBLAÐSINS
mbl.is
GALE Norton, innanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hefur ákveðið að
falla frá umdeildum áformum Clint-
on-stjórnarinnar um að sleppa 25
grábjörnum lausum í fjalllendi á
mörkum Idaho og Montana.
Norton varð þannig við háværum
kröfum yfirvalda og íbúa á svæð-
inu, sem leist ekki á blikuna, enda
eru grábirnir stærstu rándýrin í
Ameríku og eiga það til að ráðast á
menn.
Grábjörnum hefur fækkað mjög í
Bandaríkjunum á undanförnum
áratugum og aðeins er talið að um
1100 dýr lifi á afmörkuðum svæð-
um í Idaho, Montana, Wyoming og
Washington-ríki. Náttúruvernd-
arsinnar hafa barist fyrir því að
gripið verði til aðgerða til að fjölga
í stofninum og áætlun Clinton-
stjórnarinnar gerði ráð fyrir að
birnir yrðu í því skyni fluttir frá
Kanada, þar sem þeir þrífast vel.
Náttúruverndarsinnar hafa lýst yf-
ir óánægju með ákvörðun Norton
en hún heitir því hins vegar að efla
grábjarnarstofnana í þjóðgörð-
unum Yellowstone og Glacier.
Hætt við að sleppa
grábjörnum lausum
Washington. AP.
Reuters
Grábirnir að leik. Þeir eru stærstu villtu rándýrin í Ameríku.