Morgunblaðið - 26.04.2001, Blaðsíða 31
Morgunblaðið/Kristinn
Ásdís Bragadóttir, formaður skólaráðs Tónskóla Sigursveins D. Krist-
inssonar, Ögmundur Helgason, forstöðumaður handritadeildar Lands-
bókasafnsins, og Einar Sigurðsson landsbókavörður.
HANDRITASAFN Sigursveins D.
Kristinssonar tónskálds var afhent
Landsbókasafni Íslands - Háskóla-
bókasafni til varðveislu við athöfn í
bókhlöðunni sl. þriðjudag en þann
dag hefði tónskáldið orðið 90 ára.
Handritaskráin skiptist í nokkra
kafla. Fyrst er að telja tón-
verkaskrá, þá bréf, ýmis gögn um
störf Sigursveins, dagbækur og
heimildir um störf að málefnum
fatlaðra. Það er von skólaráðsins
að safnið verði til þess að auðvelda
tónlistarmönnum og öðru áhuga-
fólki að fræðast um líf og störf Sig-
ursveins sem tónskálds og braut-
ryðjanda á sviði tónlistaruppeldis
og jafnréttismála.
Sigursveinn fæddist árið 1911 og
hneigðist snemma til tónlistar,
stundaði síðar tónlistarnám hér og
erlendis. Að loknu námi starfaði
Sigursveinn að tónsmíðum og
gerðist frumkvöðull á sviði tónlist-
aruppeldis m.a. með þátttöku sinni
í stofnun Tónskóla Siglufjarðar og
síðar Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar á 6. og 7. áratugn-
um.
Eftir andlát Sigursveins árið
1990 var Tónskólanum ánafnaður
höfundarréttur að verkum hans og
jafnframt afhent bóka- og hand-
ritasafn tónskáldsins. Styrkur
fékkst úr Vísindasjóði til að skrá
safnið og önnuðust Svanhildur
Bogadóttir og Ríkharður Helgi
Friðriksson það verk.
Handritasafn til
varðveislu
í Landsbókasafni
Þar munaði mjóu
ÞÓTT ég hafi nokkuð gaman af
sögu verð ég að viðurkenna að ég man
ekki öll smáatriði Kúbudeilunnar. Þar
af leiðandi veit ég ekki hvort mikið
nýtt kemur fram í þessari kvikmynd
en þó grunar mig að bandarískur al-
menningur hafi ekki fengið upplýs-
ingar um hvernig írskættuðu töffar-
arnir í Hvíta húsinu sömdu við
fjendur sína Sovétmennina.
Í þessari kvikmynd fáum við að vita
nákvæmlega hvað gerðist innan
veggja Hvíta hússins, þá þrettán daga
frá því að flaugarnar uppgötvuðust á
Kúbu og þar til samið var um brott-
flutning þeirra. Hversu satt það allt
saman er, veit ég ekki. En víst er að
það munaði ansi mjóu að þriðja
heimsstyrjöldin skylli á. Sýnt er
hversu æst hernaðayfirvöld voru í að
sprengja, bara til að bæta fyrir mis-
tök sín á Svínaflóanum, og hversu
ferskur í hugsun Kennedy var, en
hann vildi ekki hlusta á hvernig hlut-
irnir voru gerði í seinni heimsstyrj-
öldinni, heldur leita nýrra leiða. Að
öðru leyti veit ég ekki hvað þessi
mynd á að sýna fram á. Mér finnst
þetta ekki mikil bíómynd. Þetta er
miklu frekar leikin heimildamynd, og
þá er spurning hver markhópurinn
er. Sagnfræðiáhugamenn um allan
heim og svo auðvitað bandaríska
þjóðin, og kannski sú rússneska.
Í viðleitninni að gera þetta að bíó-
mynd með mannlega drama er lítil-
lega farið út í að gera skil heimilis- og
persónulegu lífi sérstaks ráðgjafa for-
setans, sem hét Kenny O’Donnell og
er leikinn hér af Íslandsvininum Ke-
vin Costner. Það hefði þó verið mun
áhugaverðara ef persónu þessa um-
deilda forseta, John F. Kennedy
hefðu verið gerð einhver skil, og sam-
starfi hans við bróður sinn Robert.
Þeir eru gerðir að frekar litlausum
persónum, sem ég hef enga trú á að
þeir hafi verið, og einhver hvíslaði því
að mér að mér að JFK hafi nú verið
mun herskárri en myndin gefur til
kynna. Það vantar alla vegna ein-
hverja áhugaverða persónu í þessa
kvikmynd, einhvern til að verða sam-
ferða í gegnum þetta ferðalag, og þá
hefði verið upplagt að gera eitthvað
úr þessari goðsögn sem JFK er, og
slá þar tvær flugur í einu höggi.
Óneitanlega kom upp í kollinn á
mér kvikmynd Olivers Stone: JFK.
Þar leikur einmitt Kevin Costner lög-
fræðing sem fer að grafast fyrir um
morðið á Kennedy. Þar komu fram
fullt af nýjum kenningum og myndin
var áhugaverð, vel leikin, spennandi
og hreinlega skemmtileg. Það er nú
líka meira á huldu við það mál en
þetta.
Því verður ekki neitað að það mun-
aði mjóu þarna í Kúbudeilunni, há-
punkti kalda stríðsins, að ansi illa færi
fyrir jarðarbúum. Það er því ekki
slæm hugmynd að endurvekja þetta
þrettán daga ferli á áhrifaríkan og
áhugaverðan hátt. Það tekst ekki
nógu vel hér í þessari leiknu heim-
ildamynd. Þótt ég hafi fræðst um ým-
islegt, þá get ég ekki mælt með þess-
ari mynd, því mér hreinlega leiddist
hún.
KVIKMYNDIR
H á s k ó l a b í ó , K r i n g l u -
b í ó o g B í ó h ö l l i n
Leikstjórn: Roger Donaldson.
Handrit: David Self eftir bók Philip
D. Zelikov og Ernest R. May. Aðal-
hlutverk: Kevin Costner, Bruce
Greenwood, Steven Culp, Dylan
Baker og Len Cariou. 145 mín.
Beacon Communications 2000.
THIRTEEN DAYS Hildur Loftsdótt ir
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2001 31
REQUIEM og Post Mortem nefnist
geislaplata sem gefin er út á 50 ára af-
mæli Krabbameinsfélags Íslands.
Tónlistin er eftir Szymon Kuran fiðlu-
leikara og tónskáld.
Tónverkið Requiem, sem er fyrsta
sálumessan í fullri lengd sem samin
er á Íslandi, er samið í minningu vinar
sem lést úr krabbameini og er verkið
tileinkað baráttunni við sjúkdóminn.
Post Mortem er samið í skugga póli-
tískra átaka í heimalandi tónskálds-
ins, Póllandi, árið 1981. Flytjendur
eru meðal annarra Kammersveit
Reykjavíkur, Karlakór Reykjavíkur,
Kvennakór Reykjavíkur og Drengja-
kór Laugarneskirkju.
Útgáfutónleikar verða haldnir í
Dómkirkju Krists konungs í Landa-
koti á laugardag og þriðjudag kl. 20.
Allur ágóði af sölu plötunnar renn-
ur til Krabbameinsfélags Íslands og
verður nýttur til verkefna sem tengj-
ast stuðningshópum sjúklinga.
„Verkið vekur með okkur sam-
kennd með öllum þeim sem þessi
sjúkdómur vitjar og með ættingjum
og vinum sem standa nærri. Gildi tón-
listar er ótvírætt í öllu andstreyminu.
Hún gefur okkur styrk til að trúa á
sigur lífsins,“ segir Vigdís Finnboga-
dóttir fyrrverandi forseti Íslands og
verndari Krabbameinsfélagsins.
Sigurður Björnsson læknir, for-
maður Krabbameinsfélags Íslands,
tekur í sama streng: „Verkið er
magnað og innblásið af trú og ein-
lægni. Það er í senn hefðbundin sálu-
messa og nútímalegt, margslungið
listaverk, sem unun er á að hlýða í
flutningi frábærra listamanna. Yfir
verkinu ríkir friður og hátíðleiki.“
Szymon Kuran hefur leikið með
Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníu-
hljómsveit Norðurlands, Kammer-
sveit Reykjavíkur, Kuran Swing,
Kurankompaníi auk fjölda annarra
hljómsveita.
Geislaplatan er gefin út af Óma á
vegum Eddu – miðlunar og útgáfu.
Leiðbeinandi útsöluverð er 2.199 kr.
Morgunblaðið/Ásdís
Skúli Helgason hjá Eddu – miðlun og útgáfu, Szymon Kuran tónskáld, Vigdís Finnbogadóttir, verndari Krabba-
meinsfélags Íslands, og Sigurður Björnsson, formaður félagsins, kynntu plötuna á blaðamannafundi í gær.
Geislaplata til styrktar
Krabbameinsfélaginu