Morgunblaðið - 26.04.2001, Page 66
FÓLK Í FRÉTTUM
66 FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
UM HELGINA verður opnuð í Gula
húsinu sýningin Fílapensillinn en á
henni sýnir hópur ungmálara verk
sín.
Fílapensillinn varð til þegar þær
Hildur Margrétardóttir, Hulda Vil-
hjálmsdóttir og Lóna Dögg Christ-
ensen ákváðu að sýna saman sem
hópur í andstöðu við sýninguna Gull-
pensilinn sem stóð yfir á Kjarvals-
stöðum fyrstu þrjá mánuði þessa árs.
Þær segjast eiginlega hafa farið í
hálfgerða fýlu vegna þeirrar stað-
reyndar að þær eru ungir og upp-
rennandi myndlistarmenn en með
málverkasýningunni Gullpensillinn
hafi verið tekinn frá þeim titillinn
„Yngri kynslóð málara“ og hann af-
hentur miðaldra málurum. Með sam-
stöðu sinni og komu kits málarans
Odds Nerdrums hingað til lands
ákváðu þær að berjast fyrir tilveru
sinni og gefa öllum langt nef. Þær
voru allar í námi hér á landi á svip-
uðum tíma og eru búnar að vinna að
list sinni núna í rúm tvö ár og haldið
fjölmargar sýningar bæði hérlendis
og erlendis.
„Það má eiginlega segja að við
séum sniðgengnar sem myndlistar-
menn. Þegar er talað um málara af
yngri kynslóðinni er átt við einhverja
gamla karla sem jafnvel voru kenn-
ararnir okkar þegar við gengum í
skóla,“ segir Hildur um ástæðuna
fyrir sýningarhaldinu. „Við fórum útí
að setja saman þessa sýningu sem
andstöðu við málverkasýningu sem
var á Kjarvalsstöðum fyrr á árinu
undir nafninu Gullpenslar og því er-
um við Fílapenslar, sem er tilvísun í
hversu ungar við erum,“ segja þær
glaðbeittar á svip.
Ástríðan og Odd Nerdrum
„Þegar við höfðum samband við
aðstandendur þessa óvenjulega Gula
húss og fenginn var ákveðinn tími til
að sýna, fór boltinn að rúlla. Við
fáum húsið til afnota alveg einsog við
viljum en ein af ástæðunum fyrir því
að við völdum þennan sýningarstað
er að hann er mjög hlutlaus og er
ekkert að troða hugmyndum eða
skoðunum sínum uppá þá sem eru að
sýna. Maður hefur algjörlega fjálsar
hendur til að gera það sem maður vill
sem er frekar óvenjulegt því yfirleitt
þarf að gera einhverjar málamiðlanir
og komast að einhverju samkomu-
lagi við sýningarstjóra eða gallerí-
eigendur,“ segja þær.
Odd Nerdrum norski málarinn
sem nýlega hneykslaði land og þjóð
með kits-myndlist sinni er í upp-
áhaldi hjá Fílapenslunum. Stúlkurn-
ar segja að líkt og þær sé hann að
berjast fyrir tilveru sinni, hafi skoð-
anir og láti málin til sín taka. „Við
hittum hann um daginn þegar hann
var á landinu og tjáði okkur ást sína á
landi og þjóð. Það má eiginlega segja
að við höfum stofnað nokkurskonar
skandinavískt griðabandalag. Hann
lætur ekki stjórnast af einhverjum
stefnum sem listfræðingar og blaða-
menn búa til en þegar unnið er með
málverkið þá er maður með svo
þrúgandi hefð á herðum sér sem ger-
ir málin oft miklu erfiðari viðfangs.“
Málverkið frá öllum hliðum
Á sýningunni verða alls konar
málverk sem hópurinn hefur bæði
unnið saman og sitt í hverju lagi. Öll
verkin eru unnin sérstaklega fyrir
sýninguna og þeim er blandað saman
svo úr verður ein stór samsýning á
þremur hæðum.
„Gula húsið hefur áhrif á það
hvernig við vinnum úr hlutunum. Við
verðum hérna að vinna fram á síð-
ustu stundu og látum tilfinninguna
ráða útkomunni. Hérna verða alls-
kyns málverk, bæði olíumálverk á
striga, „aqvarellur“, sem og ljós-
myndir og myndbandsverk en þetta
flokkum við allt sem málverk. Þetta
er tilvalið tækifæri fyrir fólk að berja
augum verk málara af yngstu kyn-
slóðinni. Það má nefnilega ekki
gleyma þessu fólki sem er þarna úti
að basla við listiðkun sína eitt og
óstutt. Við skorum á það að hafa
samband við okkur, svo það geti orð-
ið virkur hluti af þessari „Yngri kyn-
slóð“ málara sem við erum að ein-
hverju leyti að endurheimta,“ segir
hópurinn að lokum.
Gula Húsið er á horni Frakkastígs
og Lindargötu og er opnunin núna
laugardaginn 28. april klukkan 17:00.
Sýningin er öllum opin föstudaga frá
16:00–18:30 og laugardaga og sunnu-
daga frá 12:00–16:00 og er síðasti
sýningardagur 13. maí.
Þær stöllur Hildur, Hulda og Lóna í ritskoðaðri stellingu vinar síns og
bandamanns, Odds Nerdrums.
Fjörugir Fílapenslar
Terpentínulyktin leikur um Gula húsið
'#0
#%
#
#%
Í HLAÐVARPANUM
Í kvöld kl. 21.00 fim. 26. apríl
Tónleikar: Lög Billy Joels.
Eva — bersögull sjálfsvarnar-
einleikur
24. sýn. fös. 27. apríl kl. 21.00 uppselt
25. sýn. fim. 3. maí kl. 21 örfá sæti laus
26. sýn. þri. 8. maí kl. 21.00
Ath. Síðustu sýningar
!"##$#%%#&& '&&
() Sýnt í Gamla bíói (í húsi Íslensku óperunnar)
Miðasala í síma 511 4200
og á Netinu - www.midavefur.is
Hópar: Hafið samband í síma 511 7060.
Fim. 26. apríl kl. 20:00 - uppselt
Lau. 28. apríl kl. 23:00 - örfá sæti laus
Lau. 5. maí kl. 23:00 - örfá sæti laus
Fös. 11. maí kl. 20:00 - uppselt
Fös. 18. maí kl. 20:00 - uppselt
Lau. 19. maí kl. 22:00 - nokkur sæti laus
Mið. 23. maí kl. 20:00 - nokkur sæti laus
Lau. 26. maí kl. 20:00 - nokkur sæti laus
Leikfélag
Mosfellssveitar
Gamanleikritið
Á svið
Hið fúla fólskumorð
í Bæjarleikhúsinu, Mosfellsbæ
Leikstjóri Ingrid Jónsdóttir
8. sýn. fös. 27. apríl kl. 20.00
Allra síðasta sýning
„Það þarf hugkvæmni, hæfileika og hugrekki til að
skapa svona skemmtilega sýningu....(ÞT. Mbl.)“
Miðaverð aðeins kr. 1500
Miðapantanir í síma 566 7788
Stóra svið
SKÁLDANÓTT e. Hallgrím Helgason
Fös 27. apríl kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Fös 4. maí kl. 20 – NOKKUR SÆTI LAUS
MENNINGARVERÐLAUN DV 2001
BLÚNDUR & BLÁSÝRA e. Joseph
Kesselring
Lau 28. apríl kl. 19
MÓGLÍ e. Rudyard Kipling
Sun 29. apríl kl 14 – NOKKUR SÆTI LAUS
Sun 6. maí kl. 14
Sun 13. maí kl. 14
SÍÐUSTU SÝNINGAR!
ÍD
KRAAK EEN OG KRAAK TWEE
e. Jo Strömgren
POCKET OCEAN e. Rui Horta
Sun 29. apríl kl. 20 – SÍÐASTA SÝNING!
Sun. 6. maí kl. 20
Tónleikar með Þóru Einarsdóttur, sópran
Litla svið – Valsýningar
ÖNDVEGISKONUR e. Werner Schwab
Í KVÖLD: Fim 26. apríl kl. 20
SÍÐASTA SÝNING Í VOR!
KONTRABASSINN e. Patrick Süskind
Lau 28. apríl kl. 19
Sun 29. apríl kl. 20
PÍKUSÖGUR e. Eve Ensler
Sun 29. apríl kl. 20 Frums. - UPPSELT
Fim 3. maí kl. 20 - UPPSELT
Fös 4. maí kl. 20 - UPPSELT
Lau 5. maí kl. 19 - UPPSELT
Fim 10. maí kl. 20 - UPPSELT
Fös 11. maí kl. 20 - UPPSELT
Lau 12. maí kl. 19 - NOKKUR SÆTI
Fim 17. maí kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Fös 18. maí kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Lau 19. maí kl. 19 - NOKKUR SÆTI
Fim 23. maí kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Fös 24. maí kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Lau 25. maí kl. 19 - NOKKUR SÆTI
Anddyri
LEIKRIT ALDARINNAR
Mið 2.maí kl. 20
Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir fjall-
ar um Dag vonar eftir Birgi Sigurðsson.
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
sýnir í Tjarnarbíói
7. sýning föstudaginn 27. apríl
8. sýning laugardaginn 28. apríl
9. sýning fimmtudaginn 3. maí
Sýningar hefjast kl. 20.00.
Miðapantanir allan sólarhringinn
í síma 551 2525.
Miðasala opin alla sýningardaga
frá kl. 19.00.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sviðið kl. 20.00:
$#*+!,%-./#,# 0$,1
C 7' #BD$
203%7
#D17BD1
#7
CD10
4,56#,7!%8!5,!,5*,,! 09
:5
:;
+
07 '#0D$ 037 2D1 03C7 '$D1 03
%7 %D1 037 'D1 03#7 0D1 03 'D1 03
CD1 1%%=(203
CD1 #%%%
03 '#1D1 03:&
&=(203
#BD1 03 2D1 03 'DB 'DB
CDB $DB '1DB
BDB
;$>!?,@--*8!,, 0#
2
$A: $=(20#CD$ $=(203 0
203BD1 $
2032D1 $
20 #%D1 $ #$D1 $0
B"+*$$#C###+586D-! 0 6
3
#D$ 03 #CD$ 03
1D1 B'
#% 03
#D1 032D1=(203
BD1=(20
3#%D1=(203
#2D1=(203 #$D1
20
3
2%D1
203
#DB
Smíðaverkstæðið kl. 20.00:
B"+*$$#C###+586D-! 0 6
6 #BD$1% 7 03
#D1 03 BD1 03
CD1
0
Litla sviðið kl. 20.30:
6>3?#!,56#, 0/0E(
FG?
3
#D$
20)
7
H I
H
0
(
(
<J
A3
<
552 3000
opið 12-18 virka daga
SNIGLAVEISLAN KL. 20
flyst í Loftkastala vegna mikillar aðsóknar
fim 26/4 örfá sæti laus
sun 29/4 örfá sæti laus
fös 4/5 örfá sæti laus
lau 12/5 örfá sæti laus
sun 13/5 nokkur sæti laus
lau 19/5
Sýningargestum er boðið upp á
snigla fyrir sýningu.
ATH aðeins 6 sýningarvikur eftir
Á SAMA TÍMA SÍÐAR KL. 20
lau 28/4 örfá sæti laus
lau 5/5
fös 11/5
fös 18/5
SJEIKSPÍR EING OG
HANN LEGGUR SIG KL. 20
fös 27/4 UPPSELT
SÍÐUSTU SÝNINGAR!
530 3030
Opið 12-18 virka daga
FEÐGAR Á FERÐ KL. 20
Frumsýn. lau 28/4 UPPSELT
sun 29/4 A,B&C kort gilda UPPSELT
sun 6/5 D,E&F kort gilda örfá sæti laus
Á sýningardögum er miðasalan opin fram að
sýningu og um helgar er hún opnuð hún í
viðkomandi leikhúsi kl. 14 ef sýning er um
kvöldið. Hópasala er í síma 530 3042 frá kl.
10-16 virka daga.
midasala@leik.is — www.leik.is
*. ,
*B82 D+
*DD
@E2. +*DD
$.B2. +0$A ?
$0 :2. + * ?
*>2. + * ?