Morgunblaðið - 26.04.2001, Qupperneq 72
72 FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÝTT OG BETRA
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. Vit nr. 173.Sýnd kl. 5.30, 8.10 og 10.15. Vit nr. 224.
Sýnd kl. 3.50. Vit nr. 203.
www.sambioin.is
Haley Joel Osmet (Litli strákurinn úr Sixth Sense) fær hugmynd
um hvernig hann getur bætt heiminn og setur hana í framkvæmd.
Frábær mynd með óskarsverðlaunahöfunum Kevin Spacey og He-
len Hunt í aðalhlutverki
Sýnd kl. 3.50.ísl tal
Vit nr. 183.
Forrester fundinn
Allir hafa hæfileika,
þú verður bara að upp-
götva þá.
Frá leikstjóra Good Will Hunting
Sýnd kl. 8 og 10.30.
Vit nr. 217
Sýnd kl. 5.30 og 8.
B.i.16. Vit nr. 201
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8
og 10.15. Vit nr. 207
Sprenghlægileg ævintýramynd
Sýnd kl. 4 og 6.
Ísl. tal. Vit nr 213.
Sýnd kl. 3.50.
Enskt tal. Vit nr 214
Sýnd kl. 5.30 og 10.30.
Vit nr. 225.
Kvikmyndir.com
2 fyrir 1
Kvikmyndir.is
Vinsælasta Stúlkan
Brjáluð
Gamanmynd
Kvikmyndir.comi i
HK DV
Kvikmyndir.is
Hausverk.is
Tvíhöfði
ÓJ Stöð2
Þið munuð aldrei trúa því hversu ná-
lægt heimsendi við vorum
í -
i i
Kevin Costner (Dances with Wolves) í sannsögulegri spennumynd um
Kúbudeiluna 1962 og hversu nálægt glötun heimurinn komst.
HK DV
Vit boðsýning kl.8. vit nr 220. B.i.14.
Hann man aldrei meira en seinustu 5 mín af ævinni sinni og
veit ekki hverjum hann getur treyst. Guy Pearce
(LAConfidential) og Carrie-Anne Moss (Matrix) í frábærri
spennumynd sem Ebert og Roeper líkja við PulpFiction og
Usual Suspects.
Suma
r min
ninga
r eru
best
gleym
dar
-Forsýning
Vit býður þér á forsýningu vit nr. 220.
strik.is
HÁSKÓLABÍÓ
þar sem allir salir eru stórir
Hagatorgi sími 530 1919
Sýnd kl. 10. B. i. 16.
Hausverk.is
SV MBL
Tvíhöfði
ÓJ Stöð2
eftir Þorfinn Guðnason.
Sýnd kl. 6.30 og 8.30
HK DV
Strik.is
Ó.H.T Rás2
SV Mbl
Lalli
Johns
Yfir 5000 áhorfendur
Sýnd kl. 5, 8 og 10.15.
AI Mbl
Tvíhöfði
Kvikmyndir.is GSE DV
HL Mbl
ÓFE Sýn
Sýnd kl. 8. B.i.16 ára. Sýnd kl. 5.45 og 8.
Pungtur, pungtur,
komma, strik
sýnd kl.6.
Englar alheimsins
sýnd kl. 10.30.
Stuttmyndadagar í Reykjavík. Umsóknafrestur rennur út 6. maí
www.this.is/shortcut
HK DV
Kvikmyndir.com
strik.is
Kr ing lunn i
KRINGLU-
FJARKI
26.-29. apríl
Jakkar áður 9.900, nú 5.990
Peysur áður 5.990, nú 2.500
Skyrtur síðar áður 6.990, nú 3.990
Allar buxur áður 7.990, nú 4.990
MEÐ FULLRI reisn eða The Full Monty, bíó-
myndin um atvinnulausu verkamennina sem
sjá sig tilneydda til að brauðfæða fjölskyldur
sínar með því að fækka fötum í erótískum
dansi, er eftirlætismynd Breta ef marka má
nýja netkönnun sem gerð var af Netútgáfu
Empire kvikmyndatímaritsins. Gaman-
myndin sló óvænt í gegn fyrir einum fjórum
árum og malaði aðstandendum hennar gull.
Í öðru sæti lenti öllu eldri og minna þekkt-
ari mynd – krimminn sígildi The Italian Job
með Michael Caine og Benny Hill í helstu
hlutverkum. Þar næst kemur annar krimmi
og nýrri, Lock, Stock and Two Smoking
Barrels eftir Guy Ritchie, karlinn hennar
Madonnu.
Rónamyndin Withnail & I hefur löngum átt
sér eitilharða stuðningsmenn sem skilar
henni fjórða sætinu og í því fimmta má sjá
elstu myndina á topp tíu, The Third Man eftir
Carol Reed frá árinu 1949 með Orson Welles í
aðalhlutverki. Fáklæddir dansandi karlmenn hafa ætíð notið ríkrar lýðhylli.
Englendingar velja eftirlætis heimalöguðu bíómyndirnar sínar
Ólmir í fulla reisn
ROBERT Downey Jr. var handtek-
inn enn eina ferðina á þriðjudag
vegna gruns um að vera undir áhrif-
um ólöglegra örvandi efna.
Útlitið er því síður en svo bjart
fyrir hinn 36 ára gamla leikara í Ally
McBeal sem þegar hefur afplánað
eins árs fangelsisvist. Fyrir þessi
síðustu afskipti laganna varða af eit-
urlyfjanotkun hans beið hann nefni-
lega réttarhalda sem stendur til að
halda yfir honum í Palm Springs
vegna ákæru sem lögð var fram
gegn honum á síðasta ári eftir að
hann hafði rofið skilorð. Handtakan
á þriðjudag er talin auka verulega
líkurnar á því að Downey verði
sviptur frelsi enn á ný og það til allt
að fimm ára. Þó er enn einhver
möguleiki á því að hann verði send-
ur nauðugur í enn eina afeitrunar-
meðferðina, sem hingað til hafa bor-
ið lítinn sem engan árangur.
Tildrög handtökunnar voru þau
að lögreglumaður sá til manns ráfa
um í húsasundi nokkru milli gisti-
húss og áfengisverslunar. Eitthvað
þótti lögreglumanni hegðunin und-
arleg og gaf sig á tal við manninn.
Við þessa óformlegu yfirheyrslu tók
lögreglumaður eftir því að maðurinn
var greinilega undir áhrifum örv-
andi lyfja og handtók hann. Það var
ekki fyrr en þá að lögreglumaðurinn
komst að því hver umræddur skjól-
stæðingur væri, nefnilega Holly-
wood-stjarnan Downey Jr. Engin
ólögleg efni fundust á honum við
leit.
Síðustu fréttir af Downey Jr. eru
þær að hann hefur nú skellt sér í
meðferð „af fúsum og frjálsum vilja“
eins og segir í fréttatilkynningu.
Enn syrtir í álinn hjá Robert Downey Jr.
Handtekinn
í húsasundi
Þær eru
orðnar all-
margar
lög-
reglu-
myndirnar
sem til eru
af Downey
Jr. Þessi
nýjasta var
tekin á
þriðjudag.
ÓLÁTABELGURINN Eminem hefur sam-
þykkt að láta taka myndir af sér á Adams-
klæðunum fyrir bresku útgáfu tímaritsins
Cosmopolitan.
Kappinn, sem hefur þrálátlega verið
sakaður um andúð á samkynhneigðum,
verður í hópi sextán frægra karlmanna úr
skemmtanaheiminum, tónlistarmanna,
kvikmyndastjarna og sápuóperuleikara.
Talsmaður Cosmopolitian hefur gefið
upp að vélsögin fræga, sem Eminem hefur
mundað á tónleikum sínum mörgum til
mikillar mæðu, verður víðs fjarri. Þess í
stað mun hann halda á lítilli dínamít-
sprengju sem hylja á hans allra heilagasta.
Blaðið kemur á markað um miðjan maí
og mun rjúka út eins og heitar lummur ef
að líkum lætur.
Nakinn
Eminem
Ímyndið ykkur: Engin
gríma, engin vélsög og eng-
ar buxur.