Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 10.06.2001, Side 54

Morgunblaðið - 10.06.2001, Side 54
FÓLK Í FRÉTTUM 54 SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200 Stóra sviðið kl. 20.00:                       !"     #$% &  &'() %              *+ )$ , -.&/0 12                0 12      ((( *3 %  $ %4 *3 %  5$   1*6.$ ,7 *%) $$ %)) 0 %)  ,  $189 *6:;6<$ ,;*6:8-. HEDWIG KL. 20 Frumsýning fös 29/6 UPPSELT Hádegisleikhús kl. 12 RÚM FYRIR EINN fös 15/6 örfá sæti laus fim 21/6 nokkur sæti laus FEÐGAR Á FERÐ KL. 20 fim 14/6 nokkur sæti laus fös 15/6 nokkur sæti laus mið 20/6 UPPSELT sun 24/6 nokkur sæti laus Allar sýningar hefjast kl. 20. Miðasalan er opin frá kl 10-14 alla virka daga og frá kl 17-20 á sýningarkvöldum. Hópasala er í síma 530 3042 og skrifstofusími er 530 3032 eða 530 3037. midasala@leik.is — www.leik.is Miðasölusími er 530 3030 MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney Fös 15. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI Lau 16. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI Fös 22. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI Lau 23. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI Fim 28. júní kl. 20 - NOKKUR SÆTI Fös 29. júní kl. 20 - NOKKUR SÆTI Lau 30. júní kl. 20- NOKKUR SÆTI PÍKUSÖGUR e. Eve Ensler Í KVÖLD: Sun. 10. júní kl. 19 - ÖRFÁ SÆTI Fim 14. júní kl. 20 - UPPSELT Fös 15. júní kl. 20 - UPPSELT Lau 16. júní kl. 19 - ÖRFÁ SÆTI Lau 16. júní kl. 22 - ÖRFÁ SÆTI Þri 19. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI Sýnt á Stóra sviði í tilefni 19. júní, eftir sýningu flytur Ragnheiður Eiríksdóttir, hjúkrunarfræðingur og kynlífspistlahöfundur, erindi tengt Píkusögum. ATH. ekki er hleypt inn í salinn eftir að sýningin hefst. SÍÐUSTU SÝNINGAR Í SUMAR. Miðasala: 568 8000 Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is Stóra svið 3. hæðin Súrefnisvörur Karin Herzog Silhouette Á DISKINUM eru lög sem hafa heyrst í Fóst- bræðraþátt- unum,“ upplýsir Jón Gnarr. „Þarna eru svona smellir eins og lög Helga, persónulega trúbadúrs- ins, Júlla, Þriðjudags- kvöld, og lag Mogo Jack- et. Mikið af fínum lögum. Hvað eru mörg lög á diskinum? „Það eru alveg ofsalega mörg,“ svarar Sigurjón. Af hverju ákváðuð þið að gefa út disk? „Við ákváðum það ekki, það var útgáfufyr- irtækið,“ svarar Jón. Fyrst Ógleði, svo Nefrennsli „Það var bara kominn tími til,“ segir Sigurjón. „Það var búið að vera mikið af tónlist í fyrri seríunum og virtist vera komið nóg í einn disk. Þetta eru öll lögin sem heyrst hafa í fyrstu fjór- um Fóstbræðraseríun- um.“ Hverjir semja lögin? „Aðallega við Jón. Svo eru nokkur lög sem við semjum fleiri saman,“ svarar Sigurjón að bragði. „Ég á eitthvað í öllum lögunum. Við Jón erum svolítið góðir í að semja lög.“ „Sigurjón er tónlist- armaður. Hann kann á hljóðfæri,“ bætir Jón við. „Hann var einu sinni í mjög vinsælli hljómsveit sem enginn man reyndar eftir í dag. Ég var það líka en það er öllum gleymt.“ „Jón var í hljómsveit- inni Nefrennsli,“ segir Sigurjón. „Já, ég var nú í Ógleði líka áður en ég var í Nef- rennsli,“ segir Jón til að hafa staðreyndir á hreinu. Jón og Sigurjón eru sammála um að diskurinn sé að mörgu leyti end- urkoma þeirra á sviði tónlistarinnar. Í fótspor Davíðs Oddssonar Nú er verið að sýna fimmtu þáttaröðina með Fóstbæðrum, er þetta sú síðasta eða eruð þið rétt að byrja? „Það er alla vega ekki líklegt að þetta verði síð- asta serían,“ svarar Sig- urjón. „Svo ætlum við út í stjórnmál,“ lýsir Jón yfir. „Davíð Oddsson gerði þetta. Hann var fyrst í gríni og fór svo yfir í póli- tík og það svínvirkaði. Mig langar að feta í sömu spor.“ Fær þjóðin þá að sjá annan hvorn ykkar í for- sætisráðherrastól í fram- tíðinni? „Ef þjóðin kýs það þá stendur ekki á okkur. Við erum alltaf til í að gera eitthvað skemmtilegt,“ segir Jón. Talið berst á ný að geisladiskinum vænt- anlega. „Mér finnst þetta fínn diskur og mjög fín lög. Og nýja Fóstbræðraser- ían finnst mér mjög góð,“ segir Jón. „Já, þær eru bara mjög góðar margar hverjar,“ samsinnir Sigurjón. „Mér finnst þó leið- inlegt hvað ég hef séð litla umfjöllun um ser- íuna, það er að segja góða umfjöllun, mér er nú alveg sama um hitt. Mér finnst leiðinlegt hvað við fáum lítið hrós,“ segir Jón. „Ég sá í Dagblaðinu um daginn að fólk var spurt hvað það horfði á í sjónvarpi og það sagði enginn Fóstbræður. Fólk var að væla eitthvað um Friends.“ Leiðinlegt að eiga ekki eigin skrifstofu Jóni liggur mikið á hjarta og hann heldur áfram: „Svo finnst mér rosalega leiðinlegt að við séum stödd í reyk- herberginu. Að við skul- um ekki eiga okkar eigin skrifstofu þegar blaða- maður frá stærsta dag- blaði landsins kemur og tekur við okkur viðtal. Jón Ólafsson sér ekki sóma sinn í því að sjá til þess að það sé hugsað vel um okkur.“ „Það eru öfl hérna inn- an útvarpsfélagsins sem hafa tekið höndum saman gegn okkur,“ upplýsir Jón einnig. „Þeir eru hræddir við okkur og finnst eitthvað að okkur eins og fólki finnst alltaf um stórmenni. Fólk er til dæmis alltaf að segja að Stalín hafi verið svona og hinsegin.“ Aðspurðir hvort þeir vilji bæta einhverju við yfirlýsingarnar hefur Jón enn orðið fyrir þeim félögum: „Ég veit að framkvæmdastjóri Ís- lenska útvarpsfélagsins væri ekki sáttur með að þurfa taka sín viðtöl inni í reykherbergi og hvað hefur hann gert fyndið um ævina, ég bara spyr?“ Morgunblaðið/Arnaldur Ætli nýja Fóstbræðra-platan verði gullplata? Jón Gnarr og Sigurjón Kjartansson. „Við erum svolítið góðir í að semja lög“ Næstkomandi þriðjudag kemur á markaðinn geisladiskur með lögum hinna sívinsælu Fóstbræðra. Af því til- efni hitti Birta Björnsdóttir þá Sig- urjón Kjartansson og Jón Gnarr í reyk- herbergi Íslenska útvarpsfélagsins. birta@mbl.is HLJÓMDISKUR þessi, sem gefinn er út til styrktar handknattleiksdeild Knattspyrnu- félags Akureyrar, býr yfir nokkurri sérstöðu hvað „íþróttaplötur“ varðar. Afráðið var, að mörgu leyti blessunarlega, að sleppa því að smala „strákunum“ saman og láta þá syngja falskt í kór „áfram KA!, áfram KA! Við vinnum þennan leik!“ eða eitthvað þvíumlíkt. Skemmti- leg tilbreytni því þótt slíkar plötur búi óneit- anlega yfir miklu spauggildi stinga þær jafnan óþægilega í tóneyrun. Hér er því komin tólf laga plata með safni dægurlaga sem tengjast ekki íþróttum, hvað lagasmíðar eður texta varðar. Eina tengingin er áðurnefnd fjársöfnun. Hvað um það. Fengnir voru margir hæfileika- ríkir tónlistarmenn í Eyjafirðinum til að leggja málstaðnum lið og þarna eru mættir menn eins og Pálmi Gunnarsson og Kristján Edelstein. Þess má og geta að útvarpsmaðurinn vinsæli Gestur Einar Jónasson aðstoðaði við lagaval. Platan rennur notalega í gegn, útsetningar flauelsmjúkar. Flutningur er í flestum tilfellum ágætur, á stundum mjög góður en oft ekkert sérstakur. Heildaráferðin er mjög jöfn og æði ljúf, kannski helst að hún sé aðeins of ljúf og missi þar af leiðandi marks – hljómurinn hálf líf- vana er verst lætur. En hljóðfæraleikurinn sem slíkur er til fyrirmyndar og gítarleikur t.a.m. í góðu lagi og vel það. Kannske heldur of mikið af hljóðgervlum þó. Lítum á einstök lög. Upphafslagið og um leið titillagið er eftir þann ágæta höfund Magnús Eiríksson. Lagið er nú fjarri að vera með hans bestu lagasmíðum en annað lag hans hér, „Við arineld“, bætir þann skaða að mestu. Pálmi Gunnarsson er með okkar bestu og um leið sérstæðustu söngvurum. Alltaf gaman að heyra hann syngja en verst með lögin sem hon- um er úthlutað. Hann ljær titillaginu barka sinn og svo laginu „Það vex eitt blóm fyrir vestan“, sem best væri að lýsa sem leiðinlegu. Perlan „Til eru fræ“ er svo ágæta vel sungið af Michael Jón Clarke en allur umbúnaður um það er ekki sér- lega eftirminnilegur eða áhrifamikill. Söngvarar plötunnar eru annars sigurvegararnir hér og vil ég sérstaklega nefna þá Friðrik Ómar, Ingu Ey- dal og Pétur Hallgrímson. Og svo auðvitað Pálma. Það sem stendur þó áberandi upp úr á plöt- unni er framúrskarandi flutningur hinnar korn- ungu Audrey Clarke á laginu „Óskaströnd“. Kröftugt og blítt í senn – einstaklega fallegt og eftirminnilegt. Af lágpunktum liggur „Bréfið hennar Stínu“ lægst. Vel flutt af Herdísi Ármannsdóttur og ekki við hana að sakast. En mikið er þetta ljóð væmið og drellið. Hrútleiðinlegt og mér er alveg sama þó það sé eftir Davíð Stefánsson! Lokalagið er skemmtilegur stílbrjótur. Írsk- skotið stuðlag sem lyftir brúnum farsællega, svona undir endann. Plötuna hefði síður en svo sakað ef fleiri lög af þessu tagi hefðu fengið að fljóta með. Umslagshönnunin er harla klén og beinlínis fælandi. Þó þetta sé styrktardiskur og líklega keyptur af Akureyringum; KA mönnum þá að mestu leyti,líklega, hefði mátt vanda betur til verka í þeim málunum. Kostur þessa disks er að hann er dægiljúfur og líður þægilega í gegn. Vankostir að áreitið er oft það lítið að diskurinn rennur næstum fram hjá manni án þess að maður taki eftir honum. Hér er engin stórslys að finna, né einhverja stórsnilld. Alveg ágætt bara. TÓNLIST G e i s l a d i s k u r Skref fyrir skref, safnskífa gefin út til styrkt- ar handknattleiksdeild KA. Flytjendur eru Audrey Clarke, Friðrik Ómar, Herdís Ár- mannsdóttir, Inga Eydal, Jón Björnsson, Michael Jón Clarke, Óskar Pétursson, Pálmi Gunnarsson, PKK og Sigrún Arna Arngríms- dóttir. Hljóðfæraleikur var í höndum Krist- jáns Edelstein (gítar, hljómborð), Pálma Gunnarssonar (bassi), Hauks Pálmasonar (slagverk), Kjartans Valdemarssonar (píanó) og Benedikts Brynleifssonar (trommur og slagverk). Lög eiga t.d. Magnús Eiríksson, Pálmi Gunnarsson og Guðmundur Árnason en texta eiga m.a. Kristján frá Djúpalæk, Steinn Steinarr og Davíð Stefánsson. Upp- taka og hljóðblöndun var í höndum Kristjáns Edelstein. Honum til aðstoðar voru Haukur Pálmason og Pálmi Gunnarsson. 43,48 mín. Handknattleiksdeild KA gefur út. SKREF FYRIR SKREF Öruggt og léttfætt Morgunblaðið/Kristján Pálmi Gunn- arsson syngur tvö lög á plötunni. Arnar Eggert Thoroddsen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.