Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 10.06.2001, Síða 55

Morgunblaðið - 10.06.2001, Síða 55
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 2001 55 Þrjár vikur á toppnum í USA. NÝTT Í BÍÓ Frábær ævintýra og spennumynd fyrir alla fjölskylduna. Sannkallað spæjaratilboð hjá AMERICAN STYLE Gegn framvísun bíómiða færð þú: Ostborgara, franskar, sósu og kók á 495 kr.- Tveimur fremstu njósnurum heims hefur verið rænt og aðeins börnin þeirra geta bjargað þeim! „Bond mynd fyrir fjölskylduna“    H.K DV A.I. MBL Ó.H.T. RÁS 2 Af gefnu tilefni skal það leiðrétt að "Perluhöfn" er ekki fyrsta myndin sem er frumsýnd í öllum landshlutum. Barna og fjölskyldumyndin Anastasia var frumsýnd í öllum landshlutum í apríl 1998. Anastasia er því fyrsta myndin sem er frumsýnd um land allt. Auglýsing Kvikmyndahús Leiðrétting Hlutirnir gerast að nóttu til (History Is Made At Night) G a m a n s p e n n a Leikstjórn Ikka Järvi-laturi. Aðal- hlutverk Bill Pullman, Irena Jacob. (95 mín.) Finnland 1999. Skífan. Bönnuð innan 12 ára. HÉR ER ein fyrir þá sem sækjast eftir einhverju allt öðru en þeir eiga að venjast. Finnsk mynd, leikstjór- inn finnskur, sögu- sviðið Helsinki en leikaraliðið alþjóð- legt. Sá frægasti, Pullman, leikur njósnara CIA í dul- argervi djass- klúbbseiganda. Hann á í eldheitu ástarsambandi við rússneskan njósn- ara (Jacob). Bæði eru þau orðin hundleið á þessu eilífa pukri og þrá ekkert heitara en að lifa eðlilegu lífi. En babb kemur í bátinn þegar Hels- inki verður allt í einu miðpunktur í að virðist nýju köldu stríði milli aust- urs og vesturs. Nú er barist um völd- in yfir „augum himnanna“, gervi- tunglunum, og turtildúfurnar átta sig fyrst á að þær þjóna andstæðum öflum. Það verður ekki annað sagt en að hér er á ferð alveg stórundarleg mynd. Söguþráðurinn er afar flókinn og langsóttur en skemmtilegur leik- ur og einstaka hnyttin skot á kald- astríðsbröltið heldur manni við efnið. Fyrir djassáhugamenn skal að lokum bent á að Courtney Pine á tónlistina í myndinni og er hún fyrsta flokks. Skarphéðinn Guðmundsson MYNDBÖND Laumuspil í Helsinki ROKKGREIFARNIR í Metallica hafa ætíð borið hag hinna fjöl- mörgu aðdáenda sinna fyrir brjósti. En nú má segja að þeir fari hamförum í alúðinni. Eins og fylgjendur Napster- óvina númer eitt vita þá yfirgaf bassaleikarinn Jason Newsted sveitina fyrir nokkru og hún því bassaleikaralaus þessa dagana. En þremenningarnir sem eftir eru hafa séð sér þann leik á borð að nota tækifærið til þess að uppfylla draum æði margra. Þeir ætla nefnilega að bjóða einhverjum aðdáanda sínum að vera bassaleik- ari sveitarinnar á einum tónleik- um! Um er að ræða einungis eina tónleika, eða réttara sagt teiti, sem haldið verður á heimaslóðum sveitarmanna í San Francisco-borg 29. júlí næstkomandi. Tilefnið er að fagna nýjum og betrumbættum vef sem Metallica heldur sjálf úti. Þeir unnendur sem skrá sig á póstlista síðunnar fara í pottinn sem síðan verður dregið úr við há- tíðlega athöfn. Það verður síð- an undir áhorfendum komið hvort hinn heppni bassaleikari fái að halda áfram að spila eftir fyrsta lagið. Ef hann þykir ekki nógu góður þá er annar aðdáandi dreginn út og svo koll af kolli þar til nægi- lega góður bassaleikari er fundinn til að klára tónleika- dagskrána. Sá sem fyrstur er dreginn úr pottinum fær þar að auki leiðsögn frá sveitarmönnum um San Francisco og kvöld- verð í þeirra félagsskap. Ef þú telur þig slagfæran bassaleikara og kannt að meta Metallica þá væri ekki svo vit- laust að demba sér inn á www.metallica.com og kanna málið nánar. Kanntu á bassa? Gætirðu hugsað þér að slappa af í sófanum með þeim þessum’ Metallica býður aðdáendum sínum einstakt tækifæri

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.