Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 10.06.2001, Side 58

Morgunblaðið - 10.06.2001, Side 58
FÓLK Í FRÉTTUM 58 SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ mojo vegamótastíg 4  101 rvk s: 562 5252 monroe templarasundi 3  101 rvk s: 562 6161 m o j o  m o n r o e m o j o  m o n r o e b j ó ð a m a g n e u o g m a r g r é t i v e l k o m n a r t i l s t a r f a m a g n e a m a r g r é t Umsóknarfrestur er til 20. júní Snyrtiskóli Íslands www.snyrting.is sími 561 8677 hefst 20. ágúst FYRIR rúmum áratug varmikil gerjun í franskri dæg-urtónlist. Tónlist frá ýms-um heimshornum naut tals- verðrar hylli, helst afrískt tæknipopp eða alsírsk raitónlist, og fram komu sveitir sem hrærðu saman áhrifum úr öllum áttum saman við franska kaffihúsatónlist. Hér á landi þekktu margir til Mano Negra og Les Negresses Vertes, en síðarnefnda sveitin hélt eftirminni- lega tónleika hér á landi fyrir ára- tug. Les Negresses Vertes missti flugið þegar höfuðpaur hennar lést úr eiturlyfjaneyslu, en Mano Negra leið undir lok eftir sögufræga tón- leikaferð um Suður-Ameríku. Starfsreglurnar bara tvær Söngvarinn og lagasmiðurinn Manu Chao, sem móðir hans nefndi Oscar Tramor, stofnaði Mano Negra með Tonio bróður sínum og frændanum Santiago Casiriego. Liðsmenn voru reyndar talsvert fleiri og manna- og hljóðfæraskipan nokkuð á reiki, enda sögðu þeir Mano Negra menn eitt sinn að starfsreglur sveitarinnar væru að- eins tvær: 1. Það eru engar reglur og öll tónlist jafnrétthá. 2. Bannað sé að skipa sveitina góðum hljóð- færaleikurum. Nafnið var valið eft- ir leynifélagi stjórnleysingja. Á fyrstu skífu sveitarinnar ægði öllu saman, rokki, jassi, poppi, raitón- list, þjóðlagatónlist, blús, hawaii- tónlist og svo mætti lengi telja. Tónlistina kölluðu þeir bræður Patchanka, en heitið var reyndar sótt í slangurnafn á billegri spænskri balltónlist, en fyrsta skífa Mano Negra, sem kom út 1988, hét einmitt Patchanka. Í upphafi er nefnd söguleg ferð sveitarinnar til Suður-Ameríku, en 1992 hélt Mano Negra í tónleika- ferð um Suður-Ameríku í skipi þar sem búið var að innrétta tónleika- stað í lest þess. Í lestinni spilaði svo sveitin í öllum helstu hafnarborg- um álfunnar í tæpt ár og fékk ekki nóg, því 1993 sneru þeir félagar aft- ur til Suður-Ameríku og héldu nú með lest yfir þvera álfuna og spiluðu ókeypis í öllum krumma- skuðum á leiðinni. Getur nærri að slík ferð var hin mesta mannraun og þegar liðsmenn héldu loks heim tóku menn sér gott frí nema Manu Chao, sem flutti sig um set, settist að á Spáni og stofnaði þar nýja sveit, Radio Bemba Sound System. Það kunnu aðrir Mano Negra- menn lítt að meta og svo fór að báð- ar sveitirnar leystust upp. Í sirkus í Brasilíu Segir fátt af öðrum liðsmönnum Mano Negra upp frá því, en Manu Chao ákvað að breyta til og hætta í tónlist um sinn. Hann segist hafa flust til Rio de Janeiro í Brasilíu og farið að vinna í sirkus til þess að losna úr tónlistinni um stund. „Ég var þá búinn að fást við tónlist í fimmtán ár samfleytt og langaði til að prófa eitthvað annað. Það gekk þó ekki betur en svo að eftir viku- dvöl í Rio var ég kominn í hljóm- sveit; tónlistin lét mig ekki í friði.“ Á næstu fjórum árum flakkaði Manu Chao um Suður-Ameríku með gítar og upptökutæki og tók smám saman upp lagasafn sem varð á endanum að plötunni Clan- destino og kom út 1998. Segir sitt um fjölbreytnina á Clandestino að eitt lag söng hann á ensku, annað á portúgölsku, tvö á frönsku og tólf á spænsku. Sú plata seldist afskap- lega vel, fór meðal annars í milljón eintökum í Frakklandi einu sem Sögumaður af guðs náð þykir mikið afrek, en alls í tæpar þrjár milljónir ein- taka um heim allan. Meðal annars seld- ist platan mjög vel í Suður-Ameríku, en þeir sem þekkja vel til þar í landi segja að dreifing á plöt- unni þar í álfu hafi verið þriðjungi meiri en salan, því ólögleg fjölföldun á snældum er alsiða. Talsmaður almúgans Næstu þrjú ár á eftir Clandestino fóru í tónleikahald og kynningarstarf ýmiskonar, en flesta tónleika hélt Chao í ýmsum löndum Suður-Am- eríku, enda er hann vinsælasti tónlist- armaður álfunnar, og þá aðallega meðal lágt settra sem líta á hann sem frelsishetju og tals- mann almúgans. Hann segist og hafa sótt mikinn innblástur í ferðir sínar um álfuna, sem hafi komið sér vel eftir að hann tók að huga að næstu plötu, Prox- ima Estacion: ESPERANZA, sem kom út fyrir stuttu. Meðal annars nefnir hann að söngstíllinn hjá sér hafi breyst svo við það að dvelja um tíma á hásléttum Bólivíu að hann hafi tekið plötuna upp aftur meira og minna þegar heim var komið. Vinnu- brögð við sjálfa upptökuna voru reyndar öllu hefðbundnari en forð- um, því hann vann plötuna að mestu í hljóðveri, ólíkt Clandestino sem var tekin upp á ferð og flugi eins og áður er getið. Ræður mestu að Chao settist að í Barcelona fyrir tveimur árum og kom sér upp hljóðveri, þar sem hann tók plötuna nýju upp, en að sögn eru lögin sam- sett úr óteljandi hugmyndum og að sögn taka þau oft stakkaskiptum milli daga í meðförum Chaos og Re- naud Letang, sem hefur verið helsti aðstoðarmaður hans í upptökumál- um. Fjölsnærður sem forðum Á Proxima Estacion: ESPER- ANZA er Manu Chao fjölsnærður sem forðum; eitt lag er á frönsku, annað á portúgölsku, eitt á arab- ísku, níu á spænsku, tvö á portú- spænsku, þ.e. blöndu af portú- gölsku og spænsku sem notuð er í héruðunum við landamæri Spánar og Portúgals og loks eitt lag þar sem öllum tungumálunum er hrært saman. Að sögn Chaos gerðu tíðar ferðir til Suður-Ameríku honum einmitt kleift að skapa sér nýjan stíl og jafn fjölskrúðugan og raun ber vitni; að losna við reglur og siði sem honum voru innprentaðir sem tónlistarmaður heima í Frakklandi. „Í Mano Negra treystum við á hljóðkerfi, mixerborð og hátækni til að geta verið tónlistarmenn. Þegar ég kom aftur á móti einn til Suður-Ameríku var ekkert af þessu tiltækt; ég þurfti að byrja upp á nýtt og gleyma því sem ég kunni. Þannig varð Clandestino til, uppúr lögum sem ég ætlaði að vinna með hljómsveit en þurfti að snara í þann búning að ég gæti flutt þau einn í búllu á bökkum Amazon og komist skammlaust frá því; sem spuni á staðnum eftir því sem stemmningin kallaði á. Ég er ekkert sérstakur söngvari, en með því að treysta á sjálfan mig og gítarinn lærði ég að vera sögumaður og það skiptir mestu máli, að geta sagt sögur þeirra sem ekki geta það sjálfir.“ Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson Síðustu ár hafa æ fleiri látið sig litlu varða þá hólfaskiptingu sem tíðkast hefur í tónlist. Þannig hræra menn nú saman tónlistarstefnum frá ólík- um heimshornum, Ameríku, Afríku, Evrópu og Asíu, og til verður alþjóðleg taktsúpa, bragðmikil og sterk. Fransk-spænski tónlistarmaðurinn Manu Chao sendi nýverið frá sér skífu þar sem hann fer á kostum í menningarlegri fjölbragðaglímu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.