Morgunblaðið - 19.06.2001, Qupperneq 19
VIÐSKIPTI
20 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Þátttakendur sem ætla sér að vera með á Heimilissýningunni í Laugardalshöll
er bent á að skráning er hafin á www.heimilissyningin.is eða í síma 551-9699.
Þeir sem vilja nánari upplýsingar er bent á vefsíðu Heimilissýningarinnar.
Einnig er hægt að fá sendan ítarlegan kynningarbækling.
Skráning er hafin!
Heimilissýningin 2001
www.heimilissyningin.is
Sýningarstjórn Heimilissýningarinnar
B
AN
KA
SR
Æ
TI
LANDSÍMI Íslands og Tal vísa
því á bug að BTGSM bjóði lægsta
verðið á farsímamarkaði, eins og
fyrirtækið staðhæfir, meðal ann-
ars vegna þess að stór hluti sím-
tala hjá BTGSM gjaldfærist utan
kerfis þess.
Þorsteinn Baldur Friðriksson
hjá BTGSM sagði í samtali við
Morgunblaðið síðastliðinn
fimmtudag að hjá fyrirtækinu
kostaði mínútuverð innan kerfis
8,99 krónur og það væri lægsta al-
menna mínútuverð innan kerfis á
farsímamarkaðnum í dag. Hann
sagði jafnframt að markmiðið
væri að vera ávallt með lægsta
verðið á farsímaþjónustu.
Langdýrasta verðið
hjá BTGSM
Þórólfur Árnason, forstjóri Tals
hf., segir ekki rétt að halda því
fram að BTGSM bjóði lægsta
verðið til neytenda á farsíma-
markaði enda einskorðist þeirra
verð við notendur innan kerfis
BTGSM á höfuðborgarsvæðinu.
Þegar notendur BTGSM séu
komnir út fyrir höfuðborgarsvæð-
ið þurfi þeir að greiða um 22 krón-
ur á mínútu, þar sem BTGSM
keyri á farsímakerfi Íslandssíma,
sem fær aðgang að farsímakerfi
Landssíma Íslands utan borgar-
marka.
„Á sama tíma greiða notendur
innan okkar kerfis 10 krónur fyrir
mínútuna hvar sem er á landinu,
en áskrifendur Tals eru nú um 60
þúsund. Ég hef því hvergi séð
jafndýrar mínútur í fastri GSM-
áskrift og hjá BTGSM. Mínútu-
verð yfir í GSM hjá Landsíma Ís-
lands kostar notendur þeirra
21,99 krónur, en það er langdýr-
asta verðið sem ég hef séð á mark-
aðnum. Sem dæmi um samanburð
kostar um 19 krónur hjá okkar
notendum að hringja til útlanda.
Þá eru reikiverð hjá BTGSM er-
lendis ekki á hreinu,“ sagði Þór-
ólfur en hann sagðist ekki hafa
orðið var við uppsagnir að ráði hjá
Tali vegna tilkomu BTGSM á
markaðnum.
Tal seldi áður farsíma í versl-
unum BT en Þórólfur sagði að fyr-
irtækið hefði ekki verið tilbúið að
gera samskonar þjónustusamning
við BT og Íslandssími gerði.
Spurður hvort Tal hefði selt mikið
af símkortum og símum hjá BT
sagði Þórólfur að það hefði ein-
göngu farið eftir því hversu góð
tilboð Tal var með á hverjum tíma.
Spurður hvort öll sú þjónusta
sem stendur farsímanotendum til
boða geti staðið undir sér sagði
Þórólfur að svokallaðir þjónustu-
samningar, eins og Íslandssími og
BT hafi gert, séu algengir á Norð-
urlöndunum en það hafi sýnt sig
að söluaðilinn í slíku samstarfi
hafi ekki borið mikið úr býtum og
rekstrarafgangur ekki verið mik-
ill.
„Það er nú einu sinni þannig að
sumir eru betur í stakk búnir að
sinna þjónustu og aðrir í sölu á
tækjum. Þá er farsímamarkaður-
inn nokkuð mettur og því er það í
raun farsímaþjónustan sem far-
símanotendur þurfa að nota sem
skiptir máli. BTGSM-þjónustan
er mun dýrari heldur farsíma-
þjónusta annarra fyrirtækja en
það er hins vegar enn ekki komið í
ljós hversu mikið dýrari. Innan-
kerfissímtöl BTGSM vega mjög
lítið í heildarsímreikningi en sím-
töl yfir í önnur kerfi þeim mun
meira.“
70% símtala hjá Símanum
GSM innan kerfis
Heiðrún Jónsdóttir, forstöðu-
maður upplýsinga- og kynningar-
mála hjá Landssíma Íslands, segir
að það hafi sýnt sig þegar litið er
til símakostnaðar á farsímamark-
aði bjóði Síminn bestu verðin og
ódýrustu heildarlausnirnar og það
sé ekki hægt að bera saman ein-
göngu einstök mínútuverð. Hún
bendir jafnframt á að í gjaldskrá
Símans sé mínútuverð allt niður í
fjórar krónur, en það segi lítið að
hennar mati.
Hún segir að Síminn bjóði við-
skiptavinum sínum fjölbreyttari
og betri þjónustu, til dæmis betra
dreifikerfi, meiri útbreiðslu og
öruggari tækni. „Aðalatriðið fyrir
neytendur er að kynna sér þær
leiðir sem í boði eru og að hver og
einn velji sér þá leið sem hentar
honum og hans notkun. Það sem
er ódýrast fyrir einn þarf ekki að
vera hagkvæmasta lausnin fyrir
annan.“
Heiðrún nefnir einnig að neyt-
endur verði einnig að líta til dreif-
ingar og markaðshlutdeildar.
Síminn hafi 140 þúsund notendur,
Tal í kringum 60 þúsund en
BTGSM hafi náð 500 áskrifendum
á fyrstu dögunum, en ekki sé vitað
hve marga þeir hafi í dag.
„Þegar hringt er á milli sím-
kerfa, þ.e. á milli fyrirtækjanna,
eru símtölin í kringum 22 krónur.
Það þýðir að mikill meirihluti sím-
tala hjá BTGSM hljóti að gjald-
færast á 22 krónur. Tilboð á mín-
útuverði segja því ekki alla söguna
þegar um er að ræða verð innan
kerfis. Um 70% símtala Símans
eru innan kerfis og því greiða við-
skiptavinir 11 krónur fyrir þau
símtöl og það á bæði við um dag,
kvöld- og helgartaxta. Auk þess er
hægt að finna sparnaðarleiðir í
gjaldskrá Símans,“ segir Heiðrún
sem bendir jafnframt á að neyt-
endur þurfi einnig að velta fyrir
sér hvernig tímamæling símtala
fari fram; hvort rukkað sé fyrir
hverja sekúndu eða á hverjar 10
sekúndur sem hringt er í.
Landssíminn og Tal hafna
fullyrðingu BTGSM um
verð á símtölum
SIGURBJÖRG Karlsdóttir ákvað á
síðasta ári að láta gamlan draum ræt-
ast og setjast á skólabekk. Hún hafði
þá starfað á leikskóla í tæpa tvo ára-
tugi og langaði að skipta um starfs-
vettvang. Hún hóf nám við Ferða-
málaskólann í Kópavogi í janúar á
síðasta ári og fékk í kjölfarið starf hjá
Upplýsingamiðstöð Hafnarfjarðar
þar sem hún starfar nú. Samfara
starfinu gengur hún með ferðamönn-
um um álfabyggðir í Hafnarfirði en
gönguferðirnar eru hluti af viðskipta-
áætlun sem Sigurbjörg vann að á
námskeiðinu FrumkvöðlaAUÐUR.
„Hugmyndin að álfagönguferðun-
um kviknaði í fyrrahaust og í kjölfarið
ákvað ég að sækja um hjá Auði í krafti
kvenna. Námskeiðið var mér mikil
hvatning að hrinda áætluninni í fram-
kvæmd.“ Sigurbjörg leiðir ferðamenn
um byggðir álfa og segir sögur sem
þeim tengjast, alla virka daga kl. 15.
„Að auki hef ég verið að kynna mér
sögu Hafnarfjarðar til að geta miðlað
henni til ferðamanna“ segir Sigur-
björg og bætir við að hingað til hafi
einkum erlendir ferðamenn sótt í
gönguferðirnar.
Almenn ánægja með ferðirnar
Álfagönguferðirnar taka um einn
til einn og hálfan klukkutíma og Sig-
urbjörg er með leiðsögn á ensku. Hún
segist ekki vita til þess að álfar hafi
birst göngugörpunum sem leggja í
ferðirnar með henni. Margir hinna er-
lendu ferðamanna hafi þó sagt henni
frá áþekkri þjóðtrú í þeirra landi. Sig-
urbjörg nálgast álfasögurnar sem
gamla þjóðtrú en segist ekki vera sjá-
andi. „Ég reyni að hafa þetta um-
hverfisvænar ferðir og fer þess vegna
ekki með stóra hópa í einu, helst ekki
fleiri en tuttugu í hóp.“ Sigurbjörg
segist hafa fengið góðar viðtökur og
allir sem hún hafi rætt við séu mjög
ánæðir með álfagönguferðirnar. Nú
þegar hefur hún fengið nokkrar pant-
anir fyrir hópa í sumar.
Gönguferðirnar sem Sigurbjörg
skipuleggur eru hluti af viðskipta-
áætlun sem hún vann að á námskeið-
inu FrumkvöðlaAUÐUR sem hún
sótti fyrr á þessu ári. Hún tók sér hlé
á námi í Ferðamálaskólanum til að
geta sótt námskeiðið og segist ánægð
með að hafa komist að hjá Auði í
krafti kvenna, það hafi verið gríðar-
lega mikil hvatning. „Námskeiðið
skipti sköpum fyrir mig. Ég er ekki
viss um að ég hefði farið út í þetta
nema af því að ég fór á þetta nám-
skeið. Það var hverrar mínútu virði.
Það er mikilvægt að afla sér þekk-
ingar á rekstri fyrirtækja áður en far-
ið er út í framkvæmd viðskiptaáætl-
unar.“ Sigurbjörg segir námskeiðið
hafa verið mikils virði því það sé stór
ákvörðun að söðla um og hefja störf á
nýjum atvinnuvettvangi.
Hún hefur nú þegar lagt grunn að
stofnun fyrirtækis í kringum sína við-
skiptahugmynd og kallar það Horft í
hamarinn. Enn er hún ein í rekstr-
inum en leitar að samstarfsaðila.
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Sigurbjörg Karlsdóttir: Námskeiðið hverrar mínútu virði.
Farið með ferðamenn
um álfabyggðir