Morgunblaðið - 17.07.2001, Síða 1
160. TBL. 89. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 17. JÚLÍ 2001
FORSETAR Rússlands og Kína,
þeir Vladimír Pútín og Jiang Zemin,
undirrituðu í gær fyrsta vináttu-
samning þjóðanna frá því árið 1950.
Í sameiginlegri yfirlýsingu leiðtog-
anna kom fram að þeir vonuðust til
að samningurinn myndi leiða til þess
að „ný réttlát og raunsæ skipan
heimsmála líti dagsins ljós“. Sögðust
leiðtogarnir vilja að Sameinuðu
þjóðirnar tækju að sér leiðtogahlut-
verk í heiminum í stað Bandaríkj-
anna.
Ari Fleischer, talsmaður George
W. Bush Bandaríkjaforseta, sagði í
gærkvöldi að samningurinn virtist
ekki vera nein ógnun og hann gæti
jafnvel komið sér vel fyrir Banda-
ríkjamenn. Niðurstaðan gæti orðið
aukinn stöðugleiki í samskiptum
Rússa og Kínverja sem væri hag-
stætt öllum þjóðum heims.
Samningur Rússa og Kínverja er
eingöngu stjórnmálalegs eðlis, ekki
er um hernaðarbandalag að ræða,
segir í yfirlýsingu forsetanna
tveggja. „Hernaðarleg og tæknileg
samvinna milli þjóðanna tveggja ...
beinist ekki gegn öðrum þjóðum,“
segir í henni.
Nýlegar tilraunir Bandaríkja-
manna með varnarkerfi, sem ætlað
er að granda langdrægum kjarn-
orkueldflaugum, settu sinn svip á
fund þjóðhöfðingjanna. Slík tilraun
var framkvæmd síðastliðinn laugar-
dag yfir Kyrrahafi og þótti takast
vel. Pútín sagði að héldu Bandaríkja-
menn tilraununum til streitu væri
hugsanlegt að Rússar vígbyggjust
að nýju. „Við getum sett kjarnaodda
á allar okkar eldflaugar,“ sagði Pút-
ín. Hann sagði jafnframt að vörpuðu
Bandaríkjamenn samningnum um
bann við eldflaugavarnarkerfum
(ABM) frá 1972 fyrir róða myndu
Rússar líta svo á að aðrir afvopn-
unarsamningar væru úr gildi fallnir.
Nýr vináttusamningur Kína og Rússlands undirritaður í Moskvu
Boða nýja
og réttláta
heimsskipan
Peking, Moskvu. AP, AFP.
AP
Jiang Zemin, forseti Kína, og Vladimír Pútín, forseti Rússland, faðmast
á fundi sínum í Moskvu.
FUNDI forseta Pakistans, Pervez
Musharrafs, og Atal Behari Vajpa-
yee, forsætisráðherra Indlands,
lauk í gær án þess að samkomulag
næðist um lokayfirlýsingu og er
ljóst að deilan um yfirráð í Kasmír
var helsti ásteytingarsteinninn.
Mikil átök brutust út á milli ind-
verskra hermanna og íslamskra
uppreisnarmanna í indverska hluta
hins umdeilda héraðs þegar á laug-
ardag, átökin héldu áfram alla
helgina og í gær var tala þeirra
sem létu lífið í uppþotunum komin
í 82. Fjöldi skæruliðahópa mót-
mælti viðræðunum og hótuðu þeir
að herða árásir sínar í héraðinu
meðan á fundinum stæði.
„Kasmírdeiluna er ekki hægt að
leysa með viðræðum. Aðeins jihad
[heilagt stríð] getur leyst hana og
við munum sýna fram á það,“ sagði
Mohammed Hamza, leiðtogi eins
hópsins í gær.
Musharraf sagðist á fundi sínum
með fjölmiðlum harma átökin og
syrgja þá indversku hermenn sem
hefðu fallið. Pakistansforseti hélt
heim á leið í gær en hann lagði í
viðræðunum fram þriggja þrepa
viðræðuáætlun um það hvernig
ríkin gætu komist að samkomulagi
um Kasmírhérað.
Viðræðufundur leiðtoganna, sem
haldinn var í borginni Agra á Ind-
landi, var sá fyrsti í meira en tvö
ár. Fundarlok drógust um níu
klukkustundir meðan reynt var að
komast að niðurstöðu. Margar til-
lögur að yfirlýsingu gengu á milli
leiðtoganna áður en yfir lauk.
Deilan milli Indlands og Pakist-
ans um Kasmírhérað, sem liggur
við rætur Himalajafjalla, hefur
staðið í 53 ár, en héraðinu var
skipt milli ríkjanna tveggja eftir að
Bretland veitti þjóðum Indlands-
skaga sjálfstæði 1947. Á þessu
tímabili hefur tvisvar brotist út
stríð vegna deilunnar. Bæði Ind-
land og Pakistan eiga kjarnavopn
og jafnframt eldflaugar til að flytja
þau.
Leiðtogum Pakistans og Indlands tókst ekki að semja um Kasmír
Skæruliðar
múslíma hóta
styrjöld
Srinagar, Agra, Islamabad. AFP. AP.
ÞEIR sem ekki fá nógu mikið af
C-vítamíni úr matnum sem þeir
borða geta innan skamms fengið
það sem á vantar úr C-vítam-
ínbættri skyrtu, að því er jap-
anskur fataframleiðandi greindi
frá í gær.
Fyrirtækið Fuji Spinning hefur
þróað sérstakan vefnað sem í er
efni sem breytist í C-vítamín þeg-
ar það kemst í snertingu við efni
í húðinni, sagði talsmaður fyr-
irtækisins, Makoto Suzuki.
Á skyrtan að halda víta-
míninnihaldi sínu jafnvel þótt hún
sé þvegin 30 sinnum, að sögn Su-
zukis. Ennfremur hefur fyr-
irtækið uppi áform um að fram-
leiða vítamínbættan undirfatnað
fyrir konur.
Vítamínmagnið í skyrtunni er á
við það sem er í tveim sítrónum.
Hún kemur væntanlega á markað
á næsta ári. Engin lykt er af
henni og hún er eins viðkomu og
venjuleg bómull. Fyrirtækið hef-
ur sótt um einkaleyfi á vefn-
aðinum og að fá að selja skyrtuna
sem lyf.
Víta-
mínbætt
skyrta
Tókýó. AFP.
PALESTÍNUMAÐUR sprengdi
sjálfan sig og olli dauða tveggja her-
manna, karls og konu, við biðstöð ná-
lægt járnbrautarstöð í borginni Bin-
yamina í Ísrael í gær og sjást
lögreglumenn hér að störfum á
staðnum. Samtökin Islamska Jihad
sögðu að sprengjumaðurinn hefði
heitið Nidal Shadouf, 21 árs gamall
og frá þorpi nálægt Jenin á Vest-
urbakkanum. Ísraelar svöruðu í gær
með sprengjuárás á Jenin, einnig
urðu átök í Hebron og Tulkarem.
Aðfaranótt mánudags fórust tveir
Palestínumenn er þeir voru að hand-
fjatla sprengju. Var talið að þeir
hefðu ef til vill ætlað að koma henni
fyrir við íþróttaleikvang í Jerúsalem
þar sem svonefndir Makkabea-leik-
ar, er þúsundir gyðinga frá mörgum
löndum taka þátt í, hófust í gær.
Sjálfs-
morðs-
árás
í Ísrael
Reuters
SPRENGING varð að minnsta
kosti 41 manni að bana og tug-
ir slösuðust í þorpinu Mafang í
Hengshan-sýslu í norðvestur-
hluta Kína gær. Lögregla hóf
þegar leit að manni sem sagð-
ur er hafa flutt sprengiefni til
geymslu í húsinu, sem var í
eigu bróður hans. Ólöglegri
sprengiefnaverksmiðju hins
fyrrnefnda var lokað í apríl.
Auk hinna látnu var óttast
um líf tuga manna sem voru
enn grafnir undir húsarústum
í gær.
Mikið um ólöglegt
sprengiefni
Í frétt Xhinhua-fréttastof-
unnar var ekki útskýrt hvers
vegna svo margir hefðu farist
en giskað er á að mörg hús
hafi verið á tiltölulega litlu
svæði.
Mikið er um að sprengiefni
sé framleitt með ólöglegum
hætti í Kína en efnið er meðal
annars notað til að fjarlægja
stóra steina af ökrum og
stunda kolanám án leyfis.
Sprenging í kín-
versku þorpi
Yfir 40
manns
létu lífið
Peking. AP.