Morgunblaðið - 26.07.2001, Qupperneq 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2001 13
Drífðu þig af stað
Síðustu dagarnir. Allt á að klárast!
,
áður en það verður of seint!
Úlpa
Ótrúleg
i
í Fálka
húsinu
, Suður
landsb
raut 8
Strigas
kór
500 kr.fráf
ÚTIVISTA
RMARKA
ÐURINN
ENN MEI
RI AFSLÁ
TTUR!
Full bú
ð af
spenna
ndi
útivista
rvörum
!
1000kr.
JAM
skór
moonb
oots
áður 8
900 kr1000k
r.
Opið frá kl.
12:00 -18:00
30-90%
Stórt 3
manna
kúlutja
ld
með fo
rtjaldi
áður 1
3.900 k
r8995 kr.
FULLTRÚAR Neslistans, minni-
hlutans í bæjarstjórn Seltjarnarnes-
bæjar, leggja til að hjúkrunarheimili
fyrir aldraða fyrir Seltjarnarnes og
vesturbæ Reykjavíkur verði fundinn
staður á landfyllingu, sem nær út frá
Eiðsgranda út í Eiðisvík og leggja
jafnframt til að þar verði mennta-
skóla og hæfilega þéttri íbúðabyggð
fundinn staður.
Á fundi bæjarstjórnar Seltjarnar-
nesbæjar í síðustu viku lögðu fulltrú-
ar Neslistans fram fjórar tillögur
vegna hjúkrunarheimilisins, vegna
framkominna hugmynda bæjar-
stjóra og formanns skipulagsnefnd-
ar um staðsetningu heimilisins í
Norðurtúni.
Í tillögum fulltrúa Neslistans var
vísað var til hugmynda Borgarskipu-
lags Reykjavíkur um landfyllingu út
frá Eiðsgranda út í Eiðisvík. Leggur
Neslistinn í fyrsta lagi til að sá geiri
uppfyllinganna sem nær yfir á land
Seltjarnarness verði stækkaður til
norðurs og vesturs (þó ekki að íbúða-
byggð í Strandahverfi) til samræm-
ingar landfyllingu Reykjavíkurmeg-
in bæjarmarka. Þó er skilyrt að
niðurstöður umhverfisathugana
mæli ekki gegn þessu.
Í öðru lagi er m.a. lagt til að hefja
framkvæmdir við þennan þátt land-
fyllinganna sem fyrst, verði niður-
stöður umhverfisathugana jákvæð-
ar.
Í þriðja lagi er lagt til að hjúkr-
unarheimili fyrir Seltjarnarnes og
vesturbæ Reykjavíkur verði fundinn
staður á þessari landfyllingu, eins og
áður gat, ásamt menntaskóla og
hæfilega þéttri íbúðabyggð.
!
"
#
$
%
&
Vilja hjúkrunarheim-
ili á landfyllingu
Seltjarnarnes
TILLAGA um að búið verði til
nýtt svið, umhverfis- og tæknisvið,
í stað borgarverkfræðings og und-
ir þetta svið muni heyra ný stofn-
un á sviði umhverfis- og heilbrigð-
ismála sem kallist Umhverfis- og
heilbrigðisstofa var lögð fram til
kynningar á fundi borgarráðs á
þriðjudag. Að sögn Hrannars B.
Arnarssonar, formanns umhverfis-
og heilbrigðisnefndar, er hér um
að ræða nýja og sjálfstæða stofnun
sem sameinar það starf á sviði um-
hverfis- og heilbrigðismála sem
hingað til hefur verið sinnt á ýms-
um stöðum í borgarkerfinu. „Ef af
verður má gera ráð fyrir að þetta
verði sterk og sjálfstæð stofnun
með á annan milljarð króna í veltu.
Hún mun taka yfir starf heilbrigð-
iseftirlitsins, starf garðyrkjustjóra
innan embættis borgarverkfræð-
ings og eins hreinsunardeildina,“
segir Hrannar.
Ekki er enn búið að samþykkja
tillöguna en að sögn Hrannars er
líklegt að hún verði afgreidd end-
anlega í byrjun ágúst. „Þetta eru
mikil tíðindi í umhverfismálum og
eðlilegt framhald af vexti umhverf-
ismála innan borgarinnar, “ segir
Hrannar.
Umhverfis- og heil-
brigðisstofa í bígerð
Reykjavík