Morgunblaðið - 26.07.2001, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 26.07.2001, Blaðsíða 16
LANDIÐ 16 FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÞÝSKA skemmtiferðaskipið Hanseatic kom til Húsavíkur fyrir skömmu. Með skipinu voru um 120 farþegar, Bandaríkjamenn og Þjóðverjar. Þegar skipið lagðist að bryggju biðu hópferðabílar farþeg- anna og farið var með þá í skoð- unar-ferðir um svæðið, m.a upp í Mývatnssveit. Það var mikið um að vera við höfnina meðan skipið hafði viðdvöl. Hvalaskoðunarbát- arnir sigldu inn og út með ferða- menn auk þess sem Mærudagarnir stóðu yfir með tilheyrandi bryggju- hátíð. Hanseatic, sem komið hefur áður til Húsavíkur, hélt síðan úr höfn eftir um sjö tíma viðdvöl. Stefán Stefánsson, hafnarvörður á Húsavík, tjáði fréttaritara að þetta væri fyrsta skipið sem kæmi hingað í sumar. Von væri á öðru skipi í september. Það skip, Evr- ópa, væri miklu stærra en Hanse- atic og gæti ekki lagst að bryggju á Húsavík og farþegarnir því ferj- aðir í land. Húsavík skoðuð og Mývatn Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Það var mikið um að vera í höfninni þegar Hanseatic kom til Húsavíkur. Tvö skemmtiferðaskip koma til Húsavíkur í sumar Húsavík ÞAÐ hefur verið mikið að gera í vinnuskólanum í Reykdælahreppi að undaförnu og verður unnið í allt sumar að sögn Kristjáns Guðmunds- sonar verkstjóra sem er mjög ánægður með frammistöðu ungling- anna. Vinnuskóli hefur verið starfrækt- ur í Reykjadal um árabil og hefst yfirleitt fyrri hluta júnímánaðar og lýkur ekki fyrr en um 20. ágúst. Stærsta verkefnið á þessu vori var að planta 15 þúsund trjáplöntum fyr- ir Skógræktarfélag Þingeyinga í landi Hjalla og venja er að sjá um lóðirnar við félagsheimilið Breiðu- mýri, grunnskólann, íþróttahúsið og hreppsskrifstofuna í Kjarna. Auk þess geta einstaklingar fengið slátt og hreinsun lóða gegn greiðslu og er það vel þegið hjá mörgum. Á síðast- liðnu vori fór Kristján í leiðtogaskóla Ungmennafélags Íslands sem hald- inn var í Mývatnssveit og verður framhald á náminu í haust. Námið gekk út á starfsmannastjórnun og hvernig koma megi inn réttu hug- arfari gagnvart því sem verið er að gera. Hann segir mikilvægt að láta krakkana vita þegar vel er gert og efla þannig áhuga þeirra á þeim verkefnum sem til falla. Þá sé mik- ilvægt að læra að vinna sem ein heild þannig að árangur verði sem bestur. Starfsemi vinnuskólans hefur verið, fyrir ungt fólk í hreppnum, kærkom- ið tækifæri til þess að stunda úti- vinnu yfir sumarið og breyta þannig til frá margra mánaða bóknámi yfir veturinn. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Unglingarnir í vinnuskólanum ásamt verkstjóra sínum Kristjáni Guðmundssyni. Vinnuskólinn með margvísleg verkefni Laxamýri HEYSKAPUR er um það bil að verða hálfnaður hjá bændum í Árneshreppi. Bændur byrjuðu slátt yfirleitt um ell- efta til þrettánda þessa mánaðar. Vel hefur viðrað til heyskapar, þurrt og hægviðri en fremur svalt í veðri. Flestallir bændur setja allt í rúllur og þarf því að vera þurrt á í sólarhring áður enn pakkað er í rúllur. Allt bendir til að sláttur hér í sveit verði búin um og uppúr verslunar- mannahelgi, en nokkrir bændur munu slá seinni slátt seint í ágúst ef veður leyfir. Morgunblaðið/Jón G Guðjónsson Verið var að rúlla og pakka heyi í Árneshreppi um helgina. Heyskapur hálfnaður Árneshreppur ÞAÐ eru ekki margir Vestmanna- eyingar sem vita hvar Hafursdalur er á Heimaey. Hann er norðan við svokallaðar Taglir rétt norðan við Breiðabakka. Þar hefur til margra ára verið mikið rofabarð sem í gegnum tíðina hefur stækkað mjög og gengið erf- iðlega að rækta upp. Kristján Bjarnason, garðyrkjustjóri í Vest- mannaeyjum, hefur ráðist til atlögu við rofabarðið ásamt starfsmönnum Vinnuskólans í Eyjum og starfs- mönnum áhaldahúss bæjarins. Til að hefta fokið var barðið all hulið með gamalli loðnunót en áður hafði verið sáð grasfræi og borið í það fiskimél og tilbúinn áburður. Að sögn Kristjáns garðyrkju- stjóra hefur þessi framkvæmd tek- ist mjög vel og þegar er gras farið að spretta upp úr rofabarðinu. Ekki er lengur beit á svæðinu og það af- girt svo vonir standa til að verkefnið takist samkvæmt upphaflegri áætl- un. Unnið á rofabörð- um í Hafursdal Vestmannaeyjar Morgunblaðið/Sigurgeir MIKLAR vegaframkvæmdir standa nú yfir í Fljótsdal vegna fyr- irhugaðra virkjunarframkvæmda. Myndin er tekin við Hengifossá í Fljótsdal þar sem verið er að byggja nýja brú. Jón Egill Sveins- son og Halldór Berg Sigmundsson frá Héraðsverki voru að setja út hæðir fyrir burðarlag á nýja veginn við Hengifossárbrúna. Setja út hæðir Norður-Hérað Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteins BÆJARSTJÓRN Borgarbyggðar hefur samþykkt tillögu bæjarráðs um umhverfisátak frá 20. ágúst til 1. september í Borgarnesi. Markmiðið með átakinu er að stuðla að fallegri ásýnd bæjarins og er því sérstaklega beint til fyrir- tækja og stofnana um að þau fegri og bæti umhverfi sitt. Verður þeim boðið að fá járnagáma og timb- urgáma fyrir það sem á að henda. Tilboða verður leitað í málningu átaksdagana og garðyrkjufræðing- ur leiðbeinir varðandi gróðursetn- ingu. Laugardaginn 25. ágúst æta bæjarfulltrúar að fara í vinnugall- ana og taka til hendinni við að fegra umhverfið. Umsjónarnefnd sem í verða fulltrúar úr frjálsum félagasamtök- um í Borgarbyggð fylgist með framgangi átaksins, leggur til hug- myndir og velur þá sem hljóta skulu viðurkenningar fyrir góða frammistöðu. Ráðgjafi Borgar- byggðar í átakinu er Ragnhildur Sverrisdóttir, verkefnisstjóri ,,Feg- urri sveita“. Umhverfisátak í Borgarnesi Borgarnes
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.