Morgunblaðið - 26.07.2001, Síða 19
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2001 19
Spurt og svarað um neytendamál
Notuð leikföng
Er einhvers staðar tekið á móti
notuðum, vel með förnum leik-
föngum?
„Við hjá Rauða krossinum höf-
um tekið við vel með förnum leik-
föngum í húsnæði okkar á Gylfa-
flöt 24 í Grafarvogi þar sem við
tökum einnig við notuðum fötum. Í
haust mun þó sú móttaka flytja í
nýtt húsnæði í Garðabæ,“ segir
Anna B. Hendriksdóttir hjá Rauða
krossi Íslands.
Hjá mæðrastyrksnefnd er einn-
ig tekið við vel með förnum leik-
föngum, að sögn Ásgerðar Jónu
Flosadóttur, formanns nefndarinn-
ar. „Núna stendur hins vegar yfir
sumarlokun hjá okkur í júlí og
ágúst en frá og með 1. september
verður tekið við leikföngum í hús-
næði okkar á Sólvallagötu 48. Við
höfum einnig séð um að miðla leik-
föngunum sem við höfum fengið
áfram á fleiri staði.“
Ostahúsið í Hafnarfirði hefur ný-
lega sett á markað nýja ostadeserta
og tiramisu. Ostadesertarnir eru fá-
anlegir með vanillu og súkkulaði eða
kirsuberjum.
Nýtt
Tiramisu og
ostadesertar
Gasbrennarar
brenna illgresi
Ný tegund illgresisbrennara er kom-
in á markað hérlendis. Brennararnir
eru ekki með opnum loga eins og hef-
ur tíðkast heldur keramikplötu yfir
brennaranum sem svíður illgresið
með innrauðum geisla við 1000°C.
„UMRÆÐAN um útihátíðir hefur
snúist afskaplega mikið um allt hið
neikvæða sem fylgir þeim en hið já-
kvæða og skemmtilega sem flestir
upplifa vill gleymast,“ segir Vigdís
Jónsdóttir, eigandi verslunarinnar
Fantasíu í Kringlunni, en þar verður
seldur svokallaður viðlegubúnaður
eða „survival kit“, fyrir verslunar-
mannahelgina, sem er lítill pakki
með smokkum, tannbursta, lítilli
tannkremstúpu, timburmannatöflu,
þrúgusykurspakka, sjampóbréfi og
buxnainnleggi. „Þetta eru hlutir sem
vilja gleymast en hugmyndin hjá
okkur þróaðist út frá umræðunni um
kynsjúkdóma og ótímabærar þung-
anir þannig að smokkurinn er aðal-
atriðið í pakkanum. Hitt eru hlutir
sem við töldum líka nauðsynlegt að
hafa með á útihátíðir en þeir bættust
síðan smám saman við.“
Selja viðlegu-
búnað fyrir
útihátíðir
Morgunblaðið/Arnaldur
♦ ♦ ♦
Grænmetisætur og járn
Úr hvaða fæðutegundum er
best fyrir grænmetisætur að fá
járn?
Björn Sigurður Gunnarsson,
næringarfræðingur, segir ýmsar
tegundir fæðu járnríkar. „Þurrk-
aðir ávextir eru járnríkastir, rús-
ínur, döðlur, sveskjur og þurrk-
aðar apríkósur svo eitthvað sé
nefnt. Ýmsar baunategundir má
einnig nefna eins og grænar nið-
ursoðnar og rauðar nýrnabaunir.“
Annað grænmeti sem Björn bendir
á er kál, grænkál, hvítkál, sperg-
ilkál, spínat, steinselja og jafnvel
afurðir úr tómötum.
Einnig mætti nefna gróft brauð,
heilhveitibrauð, maltbrauð og rúg-
brauð. Járnbætt morgunkorn inni-
heldur mikið járn og auðvelt að sjá
járninnihald á umbúðunum.
Björn bætir við að ýmsir þættir
úr umhverfinu hafi áhrif á upptöku
járns í líkamann. „C-vítamín er
talið örva upptöku járns í melting-
arvegi, en C-vítamín er í miklu
magni í ávöxtum og einnig töluvert
í mörgu grænmeti. Hins vegar
geta fýtöt og oxalöt, efnasambönd
sem finnast í ýmsu grænmeti og
kornvörum, hamið upptöku járns
eitthvað (þessi áhrif eru minni í
hefuðum brauðum), og það sama á
við um kalk úr mjólkurvörum. Þó
ætti alls ekki að hætta neyslu
mjólkurvara af þessum sökum, en
ef mjólkurneysla er mikil mætti
takmarka hana eitthvað, t.d. með
því að drekka ekki mjólk með aðal-
máltíð dagsins. Te og kaffi geta
einnig dregið úr járnupptöku.“