Morgunblaðið - 26.07.2001, Síða 20
FERÐALÖG
20 FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
!
"
# "
$%&' ( )(*+,& -
,.' )/ 01234(&(
*45 (6. 6 )/ 7(&25.(
+(6,.5 *45&
65./ 01234(&
65./ 7 ,6*.'&
6./(&(
8((. *.65&(&(
5&( .
)(*+,269:&,,
;65& 199 .
"
"
ÞAU ráðast ekki á garðinn þar sem
hann er lægstur, hjónin Grétar Þór
Sigurðsson og Signý Sigurhansdóttir
frá Keflavík sem nýlega fluttu á
Blönduós til þess að taka m.a. við
rekstri sjö orlofshúsa, spánnýs gisti-
heimilis, upplýsingamiðstöðvar og
tjaldstæðis. Hjónin segja ekki hafa
verið ætlunina í upphafi að opna gisti-
heimili. „Við keyptum gamla pósthús-
ið til einkanota, bæði sem heimili og
aðstöðu fyrir vini og ættingja en kom-
umst svo brátt að raun um að ekkert
hótel eða gistiheimili var að finna í
bænum.“
Hendur voru því látnar standa
fram úr ermum við að breyta og bæta
og nú er Gistiheimilið Glaðheimar
nánast tilbúið. Unnt er að hýsa þar
um 20 gesti í níu tveggja manna her-
bergjum en snyrtingu, salerni og
sturtu er að finna á göngum og eld-
húsaðstaða er á hvorri hæð.
Alls kyns afþreying
og skemmtan
Signý og Grétar hafa sinnt alls
kyns atvinnurekstri suður með sjó en
ekki fyrr á lífsleiðinni starfað í ferða-
þjónustu. Þau láta þó vel af nýja starf-
inu. „Hér býr gott fólk og segja má að
Blönduós sé óplægður akur í ferða-
þjónustu. Ekki er á allra vitorði að
hér býðst alls kyns afþreying og
skemmtan fyrir ferðamenn.“
Gistiheimilið Glaðheimar stendur
við Blöndubyggð 10, skammt frá elsta
húsinu á Blönduósi, Hillebrandtshús-
inu. Gestir Gistiheimilisins Glaðheima
dvelja því í gömlu og virðulegu húsi,
sem reist var árið 1930 og var lengi
vel pósthús en síðustu árin íbúðarhús.
Glaðheimar kallast einnig norsku
orlofshúsin sem staðsett eru í Braut-
arhvamminum neðan við Þjóðveg 1,
rétt við bakka Blöndu. Fánar ýmissa
ríkja blakta við hún þegar komið er
þar að enda er á sama stað prýðis
tjaldstæði og upplýsingamiðstöð.
Grétar segir að til standi að reisa nýja
þjónustumiðstöð fyrir tjaldbúa þar
skammt frá.
Húsin eru sjö og taka samtals um
50 manns. Þau eru alla jafna þéttsetin
á sumrin, ekki síst af stangveiðimönn-
um sem fiska lax úr ánni. Grétar og
Signý leigja út veiðileyfi í Blöndu og í
Laxárvatni auk Friðmundarvatna en
hafa aðgang að fleiri vötnum.
„Blanda hefur átt stöðugt meira
fylgi að fagna meðal stangveiðimanna
hin síðari ár og margir hafa gist í
þessum húsum. Þetta eru heilsárshús
byggð árið 1993 og við flest þeirra eru
heitir pottar og sauna. Á haustin og
veturna höfum við í hyggju að höfða
einnig til fuglaveiðimanna, gæsa- og
rjúpnaskyttna því í næsta nágrenni
eru fjöldi veiðilanda, þau bestu á land-
inu.“
Að endingu benda hjónin á Hrútey
sem stendur í Blöndufljóti miðju rétt
við orlofshúsin sjö. „Eyjan er friðlýst-
ur fólkvangur og annáluð fyrir nátt-
úrufegurð og mikið fuglalíf. Segja má
því að orlofshúsin séu í útjaðri mið-
stöðvar verslunar og þjónustu í
Húnavatnssýslum en jafnframt stein-
snar frá ýmsum náttúruperlum. “
Nýtt gistiheimili
og orlofshús
fyrir veiðimenn
Morgunblaðið/HM
Glaðheimar á Blönduósi
TENGLAR
.....................................................
Upplýsingar í símum 452 4520 og
8981832 og á Netinu:
www.gladheimar.is
Eitt sinn pósthús en nú Gistiheim-
ilið Glaðheimar þar sem rými er
fyrir um 20 manns. Í orlofshúsunum
geta fuglaveiðimenn hreiðrað um
sig yfir haust- og vetrartímann.
SÆFERÐIR ehf. í Stykkis-
hólmi bjóða upp á fjölbreyttar
siglingar um Breiðafjörðinn
eins og undangengin ár. Auk
ferjunnar Baldurs er fyrir-
tækið með tvo af stærstu far-
þegabátum landsins í ferðum.
Annar þeirra fer í siglingar
frá Stykkishólmi, þar sem
meginviðfangsefnið er fugla-
og náttúruskoðun og einnig
eru farnar veisluferðir um
helgar, en hinn fer í stór-
hvalaskoðun frá Ólafsvík. Að
sögn forráðamanna fyrirtæk-
isins er mikil fjölgun farþega í
allar ferðir. Sæferðir tóku um
sl. áramót við rekstri Breiða-
fjarðarferjunnar Baldurs og í
sumar hefur verið mikil fjölg-
un farþega. Í júní voru farþegar 1000
fleiri en á sama tíma í fyrra. Bílapláss
skipsins er mikið nýtt en ferðamanna-
straumur yfir til Vestfjarða virðist
vera mun meiri en oft áður.
Vinsælar stórhvalaferðir
Stórhvalaferðirnar frá Ólafsvík
hafa gengið vel. Út af Snæfellsnesi er
eitt af öruggustu svæðum í heimi til
þess að finna stórhveli ákveðinn tíma
sumarsins en fjölgun í þessar ferðir
er gríðarleg. Tímabilið er stutt í stór-
hvalnum, frá fyrri hluta júní fram
undir miðjan ágúst. Utan þess tíma er
hægt að fara í hefðbundnar hvala-
skoðunarferðir og sjá strandhvali
eins og hrefnur, höfrunga og oft og
tíðum háhyrninga.
Ferðir um Breiðafjarðareyjar hafa
fyrir löngu áunnið sér miklar vinsæld-
ir. Aðsókn hefur alltaf verið ágæt og
ferðalangar undantekningarlaust
komið ánægðir að landi. Þar sem veð-
ursæld er mikil inn á milli eyjanna-
þarf mikið að ganga á til þess að veðr-
ið spilli ferðalaginu. Auk þess
að skoða fuglalíf og fleira er
veiddur skelfiskur í hverri
ferð, þar sem farþegarnir
geta smakkað á aflanum.
Ferðir fyrir fjölskylduna
Í vor var ákveðið að gera
fjölskyldufólki auðveldara að
fara í eyjasiglingar, þannig að
að öll börn 11 ára og yngri eru
á fríu fari í fjölskylduhóp og
unglingar 15 ára og yngri á
hálfu gjaldi. Barnafólk hefur
notað þetta fyrirkomulag í
auknum mæli enda eru skoð-
unarferðirnar ekki síður fyrir
börnin, sér í lagi nýtur skel-
veiðin mikilla vinsælda. Um
verslunarmannahelgina
verða settar upp tvær sérstakar fjöl-
skylduferðir. Þar verða öll börn í fjöl-
skyldum innan 16 ára aldurs á fríu
fargjaldi. Í ferðunum er boðið upp á
að farþegar geti grillað veiðina á
staðnum eða fengið keypt um borð
hamborgara eða pylsur til að setja á
grillið.
Mikil aukning í sigl-
ingum um Breiðafjörð
Stykkishólmi. Morgunblaðið.
Um verslunarmannahelgina fá börnin frítt
í eyjasiglingar með foreldrum sínum.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
TENGLAR
.....................................................
Sími: 438-1450
www.islandia.is/eyjaferdir og
www.saeferdir.is