Morgunblaðið - 26.07.2001, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2001 29
um vegna
áður en
ögu hafði
um mat á
m kveðið
m fram fer
tæði fyrir
allt háðar
m. Lögin
di fyrr en
ar 29. maí
u laga um
g var það
imilt væri
rr en úr-
fisáhrifum
r lýst yfir
unar, að
„klárlega
amkvæmt
ðuneytis
r veitt
esturlands
að auglýsa
rög. Nátt-
kyldan á
semdir við
ágúst tók
vörðun að
rra á því
starfsleyfi
ta mati á
vo starfs-
sins heil-
éf, fyrir
greint var
komist að
kun svína-
nýju lögin
m. Í bréf-
úrskurðar
fyrirtæk-
sótt hafði
víaeldis á
g í máli
n Salar Is-
landica áður en nýju lögin um mat á
umhverfisáhrifum tóku gildi, en
ráðuneytið kvað upp þann úrskurð
að Salar Islandica bæri að tilkynna
fyrirhugaða framkvæmd sína til
Skipulagsstofnunar skv. ákvæðum
nýju laganna um mat á umhverfis-
áhrifum. Að mati ráðuneytisins átti
hið sama álitaefni við í máli
Stjörnugríss.
Þegar þessi afstaða ráðuneytisins
lá fyrir tilkynnti heilbrigðisnefndin
forsvarsmönnum Stjörnugríss að
fyrirtækið þyrfti að tilkynna fyrir-
hugaða framkvæmd til Skipulags-
stofnunar til mats á umhverfisáhrif-
um samkvæmt nýju lögunum og
umsókn fyrirtækisins um starfsleyfi
yrði ekki tekin til efnislegrar af-
greiðslu, fyrr en það hefði verið gert.
Kröfðust að ráðherra og
starfsmenn vikju sæti
Eigendur og lögmaður Stjörnu-
gríss mótmæltu þessum úrskurði og
kærðu ákvörðun heilbrigðisnefndar
til umhverfisráðherra. Kröfðust þeir
þess jafnframt að bæði umhverfis-
ráðherra og starfsfólk ráðuneytisins
vikju sæti vegna vanhæfis. Var kær-
an m.a. studd þeim rökum að um-
hverfisráðherra og starfsmenn hans
hafi haft afskipti af umsókn kæranda
á meðan málið var enn til meðferðar
hjá heilbrigðisnefnd. Hafi ráðuneyt-
ið þegar látið í ljós þá afstöðu að
starfsleyfi til handa Stjörnugrís
verði ekki gefið út nema áður verði
gætt ákvæða nýju laganna um mat á
umhverfisáhrifum. Þá var vakin at-
hygli á að tengdasonur hjónanna að
Melaleiti væri deildarstjóri náttúru-
og auðlindadeildar ráðuneytisins og
dró kærandi einnig óhlutdrægni ráð-
herra og starsfólks hans í efa sökum
forsögu málsins.
Umhverfisráðuneytið komst að
þeirri niðurstöðu að starfsmenn
ráðuneytisins, sem hefðu áður komið
að málinu, og tengdasonur hjónanna
að Melaleiti myndu víkja sæti, en
hafnaði kröfunni um að umhverfis-
ráðherra viki sæti. Kvað ráðherra
svo upp þann úrskurð 5. desember
sl. að sú ákvörðun heilbrigðisnefnd-
ar Vesturlands að framkvæmdirnar
skuli settar í umhverfismat skuli
standa óbreytt.
Stjörnugrís höfðaði þá dómsmál á
hendur umhverfisráðherra til ógild-
ingar úrskurðarins og áskildi sér all-
an rétt til að krefja íslenska ríkið um
skaðabætur vegna þess tjóns sem
fyrirtækið kynni að verða fyrir
vegna málsins.
Hélt lögmaður Stjörnugríss því
m.a. fram fyrir dómi að fara hafi átt
að eldri lögum um mat á umhverf-
isáhrifum við meðferð umsókna fyr-
irtækisins, sem í gildi voru þegar
umsóknin var lögð fram en skv. þeim
var bygging og rekstur svínabúa
ekki háður mati á umhverfisáhrifum,
eins og áður segir.
Lögmaður ríkisins hélt því hins
vegar fram að byggja ætti afgreiðslu
málsins á nýju lögunum því starfs-
leyfisumsóknin hafi ekki verið af-
greidd, þegar þau tóku gildi.
Meginregla um lagaskil á sviði
stjórnsýsluréttar hafi almennt verið
talin sú, að nýjum lögum verði beitt
frá og með gildistöku þeirra í sér-
hverju stjórnsýslumáli, sem ólokið
er án tillits til þess hvort málsatvik
eigi rót sína að rekja til atburða sem
gerðust fyrir gildistöku laganna. Þá
mótmælti lögmaður ráðuneytisins
því að ráðherra og allir starfsmenn
ráðuneytisins hafi allir sjálfkrafa
orðið vanhæfir og hélt því fram að
þótt starfsmaður hafi tekið þátt í
meðferð máls á lægra stjórnsýslu-
stigi og verði af þeim sökum van-
hæfur til meðferðar kærumáls á
æðra stigi, leiði það ekki sjálfkrafa til
þess að aðrir starfsmenn hins æðra
setta stjórnvalds verði vanhæfir.
Bæði héraðsdómur Reykjavíkur
og Hæstiréttur féllust á kröfur
Stjörnugríss í málinu og komust að
þeirri niðurstöðu, að umhverfisráð-
herra hafi með áliti sínu til heilbrigð-
isnefndar 4. september tekið skýra
afstöðu í máli Stjörnugríss, á meðan
mál þess var enn til meðferðar á
lægra stjórnsýslustigi. Leiði það til
þess, að umhverfisráðherra hafi ver-
ið vanhæfur til meðferðar málsins á
æðra stjórnsýslustigi skv. ákvæðum
stjórnsýslulaga. Var úrskurður ráð-
herra frá 5. desember jafnframt
felldur úr gildi en Hæstiréttur kvað
upp dóm sinn og staðfesti niðurstöðu
héraðsdóms 23. maí síðastliðinn.
,,Er nú mál að linni“
Þegar dómur Hæstaréttar lá fyrir
krafðist Guðjón Ólafur Jónsson, lög-
maður Stjörnugríss, þess fyrir hönd
fyrirtækisins að settur yrði hið
fyrsta annar umhverfisráðherra til
að taka á ný til meðferðar kærumál
Stjörnugríss hf. Í bréfi hans til
Sivjar Friðleifsdóttur umhverfisráð-
herra segir hann m.a.: ,,Þér kusuð að
áfrýja ofangreindum dómi til
Hæstaréttar Íslands sem staðfesti
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur með
dómi sínum, uppkveðnum 23. þessa
mánaðar. Þetta er eins og yður mun
gjörla kunnugt í annað sinn á rúmu
ári sem Hæstiréttur ógildir stjórn-
sýsluathafnir yðar í tengslum við
svínabú umbjóðanda míns á Melum í
Leirár- og Melahreppi. Hlýtur það
að vekja yður og aðra til umhugs-
unar. Er nú mál að linni.“
Páll Pétursson fellir ákvörðun
heilbrigðisnefndar úr gildi
Í lok maí sl. var Páll Pétursson
félagsmálaráðherra, settur um-
hverfisráðherra til að fara með
kærumál Stjörnugríss og úrskurða í
því. Kvað hann upp úrskurð sinn í
seinustu viku þar sem hann féllst á
kröfur Stjörnugríss og felldi ákvörð-
un heilbrigðisnefndar Vesturlands
úr gildi. Lagði ráherra jafnframt
fyrir nefndina að taka umsókn
Stjörnugríss til meðferðar að nýju
og fara eftir þeim réttarreglum sem í
gildi voru þegar umsókn fyrirtæk-
isins um starfsleyfi barst nefndinni,
þ.e.a.s. hinum eldri lögum um mat á
umhverfisáhrifum.
Gengur úrskurður Páls þvert á
fyrri niðurstöður umhverfisráðu-
neytisins og Skipulagstofnunar um
að stækkun svínabúsins félli undir
nýju lögin og einnig gegn þeim úr-
skurði sem ráðuneytið kvað upp í
hliðstæðu máli Salar Islandica í sept-
ember í fyrra.
Stjörnugrís var í gær veitt starfs-
leyfi heilbrigðisnefndar Vesturlands
til stækkunar svínabúsins í sam-
ræmi við upphaflegar áætlanir. Fyr-
irtækið hefur orðið fyrir gríðarlegu
tjóni vegna þeirra rúmlega tveggja
ára tafa sem orðið hafa á að rekstur
gæti hafist, að sögn Geirs Gunnars
Geirssonar, framkvæmdastjóra
Stjörnugríss. Hann sagði ,,hundrað
prósent víst“ að fyrirtækið myndi
reyna að sækja skaðabætur á hend-
ur ríkinu en nú væri verið að reikna
út allt það tjón sem fyrirtækið hefur
orðið fyrir. Sagðist hann telja að
tjónið næmi tugum eða hundruðum
milljóna. ,,En nú erum við komnir
með leyfið í hendur. Réttlætið sigr-
aði að lokum,“ sagði hann.
Vonar að starfsemin valdi ekki
skaða á umhverfinu
Magnús Jóhannesson, ráðuneytis-
stjóri í umhverfisráðuneytinu, sagði
í gær að álitamál hefðu verið í þessu
máli líkt og í öðrum flóknum lög-
fræðilegum málum en niðurstaða
lægi nú fyrir og málið væri komið
heim í hérað. ,,Frá hendi ráðuneyt-
isins er málið afgreitt,“ sagði hann.
Aðspurður hvort niðurstöður þessa
máls væru áfall fyrir ráðuneytið
sagði Magnús ætla að vona að ekki
verði skaði á umhverfinu vegna
þessarar starfsemi. „Þótt málið fari
ekki í sérstaka athugun vegna um-
hverfismats og ljóst er að hér er um
mjög stórt fyrirtæki að ræða þá
vænti ég þess að tekið verði þannig á
málum í starfsleyfinu að umhverfið
beri ekki skaða af,“ sagði hann.
Magnús sagðist ekki geta metið
hvort Stjörnugríss ætti einhverjar
réttmætar kröfur um bætur á hend-
ur ríkisvaldinu.
rfisráðuneytis í máli Stjörnugríss hf. á Melum
og und-
r á ríkið
þar um
omfr@mbl.is
í gær
mum
gði
setts
ngur
áðu-
ndur
fur á
kur
gríss
SLÁTURFÉLAG Suðurlands(SS) ætlar að hækka vegiðmeðalverð sem greitt varfyrir dilkakjöt á innanlands-
markaði síðasta haust um 7%. Hækk-
unin er mismikil eftir flokkum eða frá
rúmum 2% í 9,2%. Goði hf. býður á
hinn bóginn lækkun upp á 8% og ekki
verður greitt fyrir kjötið fyrr en á
næsta ári.
Í gær var jafnframt starfsfólki
Goða á Hellu, Höfn í Hornafirði og á
Egilsstöðum tilkynnt að því yrði sagt
upp að lokinni slátrun í haust. Á
þriðjudag var starfsfólki fyrirtækis-
ins í sláturhúsinu á Hvammstanga og
í Búðardal einnig tilkynnt um upp-
sagnir.
Steinþór Skúlason, forstjóri Slát-
urfélags Suðurlands (SS), segir að
þeir búist við 30–50% aukningu í
sauðfjárslátrun þetta árið en í fyrra
var um 100 þúsund dilkum slátrað
hjá fyrirtækinu.
„Miðað við þær fréttir sem hafa
verið í fjölmiðlum þess efnis að Goði
ætli að lækka verð frá því í fyrra um
7% á meðan við erum að hækka það
þá held ég það sé ljóst að við munum
fá það innlegg sem við ráðum við. Það
er bara spurning hversu fljótir
bændur eru að bregðast við. Við
munum þó ekki fjölga sláturhúsum
þar sem hagkvæmast er að slátra
meira í sömu húsum.“
Goði 15–25% undir
meðalverði bænda
Kristinn Geirsson, framkvæmda-
stjóri Goða, segir að verðið lækki
mismunandi mikið en verð fyrirtæk-
isins verði á bilinu 15–25% undir
meðalverði Landsambands sauðfjár-
bænda (LS).
Hann segir enn fremur að Goði
muni í haust slátra á Höfn í Horna-
firði, Fossvöllum í Jökuldal og á
Hvammstanga.
„Við ætluðum að halda fjórum hús-
um opnum til langs tíma en við mun-
um ekki hafa sláturmagn fyrir
Borgarnes. Þá munum við loka hin-
um húsunum eftir sláturtíð þar sem
við munum ekki hafa þar opið allt
árið. Þess vegna erum við að segja
upp starfsfólki. Við teljum að það sé
ekki rekstrargrundvöllur til þess að
vera með húsin í rekstri allt árið.“
Kristinn segir að ekki sé ljóst
hversu miklu þeir eigi eftir að slátra
í haust.
„Við teljum að við fáum það lág-
marksmagn sem ekki kemst annað
þar sem við munum ekki bjóða eins
vel og aðrir. Það verða eflaust um
120 þúsund dilkar en það er helm-
ingurinn af því sem við vorum með í
fyrra. Þetta ræðst bara af því
hvernig innleggið skilar sér enda
eru menn ekkert æstir yfir því að
koma til okkar.“
Alls 74 starfsmönnum
tilkynnt um uppsagnir
Kristinn segir að Goði muni
greiða fyrstu greiðslur til bænda í
febrúar á næsta ári og síðan annan
hvern mánuð ákveðnar greiðslur út
árið.
Eftir sláturtíð Goða í haust munu
níu manns á Hellu missa vinnuna,
11 á Höfn , 19 á Egilsstöðum og 21 á
Hvammstanga. Þá hafði fyrirtækið
tilkynnt í síðasta mánuði um lokun
sláturhússins í Búðardal og var 14
starfsmönnum þess tilkynnt um
uppsagnir vegna þess á þriðjudag-
inn.
Kristinn segir að verið sé að
segja upp nánast öllum starfsmönn-
um fyrirtækisins. Reksturinn verði
nánast einungis í sauðfjársláturtíð
en þá verði einhver rekstur í kring-
um sölu á kjötafurðum auk af-
greiðslu úr frystigeymslum.
Eins og fram hefur komið í fjöl-
miðlum hefur fyrirtækið óskað eftir
greiðslustöðvun.
Segir Kristinn að Goði hafi óskað
eftir styrk frá ríkisvaldinu til að
loka sláturhúsum vegna hagræð-
ingar en þeir hafi fengið litla samúð.
Goði hefur nú þegar selt Norð-
lenska tvær eignir en á móti varð
Goði stór hluthafi í Norðlenska.
Spurður segir Kristinn að hann úti-
loki ekki að Norðlenska kaupi fleiri
eignir af Goða. Það verði hins vegar
að koma í ljós.
Goði hafnar öllum viðræðum
Varðandi eignir Goða þá segir
Haraldur L. Haraldsson, sveitar-
stjóri í Dalabyggð, að þeir hafi talað
við Sláturfélag Suðurlands og fleiri
sláturleyfishafa um að taka við
rekstri sláturhúss Goða í Búðardal.
Hann segir að forráðamenn Goða
hafni hins vegar öllum viðræðum
við sveitarstjórnina.
„Það virðist ekki standa á slát-
urleyfishöfum, nema þá hjá Goða,
að koma hingað og vinna þetta verk
á þeim kjörum sem almennt er á
markaðnum í dag fyrir slátrun.“
Segist hann vera bjartsýnn á að
slátrun geti haldið áfram í Búðardal
ef þeir komist yfir sláturhúsið.
„Eins og staðan er í dag hefur
Goði yfirráð yfir þessu húsi og ef
þeir fara ekki í gjaldþrot eða halda
sig við þau sjónarmið sem fram hafa
komið þá komumst við ekki inn.
Þetta stendur því og fellur með
Goða.“
Hann segir jafnframt að það sé
alvarlegt að Goði sé að fara í
greiðslustöðvun.
„Í skjóli hennar ætla þeir svo að
neyða bændur til að koma með
sauðfé til slátrunar hjá þeim á af-
arkostum. Þeir tala um að þetta sé
verð sem byggist á endurskipulagn-
ingu á rekstri en þegar þetta er
skoðað betur á þessi lækkun á verði
að hluta til að bera uppi kostnað
vegna skulda Goða en ekki vegna
slátrunar í haust.“
Möguleiki á að stofna
eignarhaldsfélag
Spurður hvort sveitarfélagið
væri tilbúið til að kaupa sláturhús
Goða í Búðardal sagði hann;
„Við reynum að halda eins mörg-
um möguleikum uppi og við getum.
Einn af þeim möguleikum er að
stofna eignarhaldsfélag utan um
sláturhúsið og gera síðan samning
við ákveðinn aðila um rekstur þess
og þá helst líka kjötvinnsluna. Það
eru fleiri en SS sem eru í þeirri
mynd.“
Er Steinþór Skúlason, forstjóri
SS, var spurður út í viðræður við
sveitarstjórn Dalabyggðar um að
taka við rekstri sláturhúss Goða þar
sagði hann:
„Við höfum ekki verið í formleg-
um viðræðum við sveitarstjórnina.
Það hefur þó komið til tals ef
ákveðnar forsendur eru hugsanlega
fyrir hendi. Það er ekkert upp á
borði hér, enda á Goði þessi hús og
það tekur þau enginn af þeim.“
Hafa fleiri sveitarstjórnir haft
samband við ykkur vegna óska um
að taka við rekstri sauðfjárslátur-
húsa?
„Fjöldi manns hefur hringt í okk-
ur víða af landinu en það er ekkert
sem hægt er að segja frá.“
Goði tilkynnir frekari uppsagnir á starfsfólki
Ljóst þykir að margir bændur koma til með að færa viðskipti sín frá Goða til annarra sláturleyfishafa í haust.
SS hækkar verð til
bænda vegna slátrun-
ar en Goði lækkar
Á sama tíma og Goði kynnir bændum
lækkun á greiðslum fyrir dilkakjöt til-
kynnir SS um hækkun á greiðslum til
bænda. Í gær upplýsti Goði um uppsagnir
starfsfólks. Halldór Jón Garðarsson
kynnti sér stöðu mála.
halldor@mbl.is