Morgunblaðið - 26.07.2001, Side 52
52 FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Í KVÖLD verða haldnir tónleikar
þar sem hin góðkunni Geir Ólafsson
og félagi hans, danski söngvarinn
Tomaz Christensen, syngja saman
við undirleik Furstanna.
„Tilefni tónleikanna er eiginlega
bara að ég er staddur hér á landi,“
segir Tomaz. „Við Geir hittumst
fyrst í Danmörku fyrir tveimur árum
og sungum saman þar og við ákváð-
um að endurtaka leikinn.“
Tomaz segist mest syngja sálar-
tónlist, fönk og R&B-tónlist heima
fyrir.
„Hann er með stórt band úti í
Danmörku, alveg þrælfínt,“ upplýsir
Geir. „Þeir eru að gera mjög góða
hluti og eru að fara gefa út plötu.
Þeir eru á svipuðum slóðum og við
Furstarnir hérna heima.“
Svipaðar raddir
„Við náum svo vel saman í tónlist-
inni af því að við leikum keimlíka
tónlist þótt margt sé frábrugðið,“
heldur Geir áfram. „Svo eru raddir
okkar mjög svipaðar. Það var eig-
inlega þess vegna sem við ákváðum
að syngja aftur saman og að nú væri
kominn tími til að hann kæmi og
syngi með mér hérna heima.“
Aðspurðir segjast þeir félagar
m.a. ætla að syngja saman eða í sitt
hvoru lagi lög eftir Stevie Wonder,
Frank Sinatra og Elvis. „Bara bestu
klassísku lögin,“ eins og Geir orðar
það.
Þeir Geir og Tomaz segjast vera
búnir að æfa daglega fyrir komandi
tónleika, en Tomaz mun dvelja hér í
þrjár vikur.
„Ég á litla fjöl-
skyldu hér sem
ég er að heim-
sækja,“ segir
hann. „Það er
gaman að fá að
koma hingað og
sjá svolítið af fall-
ega landinu ykk-
ar og syngja.“
Miklir vinir
Þeir félagar
segjast staðráðn-
ir í að syngja aft-
ur saman í fram-
tíðinni, hvort sem
það verður á Ís-
landi eða í Dan-
mörku.
„Við erum
miklir vinir og
höfum samband og það er það sem
skiptir máli,“ segir Geir. „Að eiga
vini og virða þá og virkja, því þá eru
manni allir vegir færir. Annars er
mjög kalt á toppnum.“
Geir bætir svo við að lokum, að
hann vilji hvetja alla Dani sem bú-
settir eru á Íslandi til að koma í kvöld
og hlusta á samlanda sinn. Einnig
sagðist hann geta lofað Íslendingum
stemmningu sem væri engri lík. Tón-
leikarnir hefjast klukkan 23.
Geir Ólafsson og Tomaz Christensen á Kaffi Amsterdam
Geir Ólafs og Tomaz Christensen.
„Stemmning sem er engri lík“
Morgunblaðið/Billi
birta@mbl.is
SVOKÖLLUÐ Bravókvöld
hafa blásið lífi í raftónlistar-
senuna hér á landi en þau eru
haldin á Kaffi Thomsen ann-
að hvert fimmtudagskvöld.
Dagskráin í kvöld ætti svo
sannarlega að hrista upp í
áhugamönnum um raftónlist
því auk þess sem íslenska
sveitin Atingere kemur fram
ætlar skoska söngkonan
Nicolette að gera sitt fyrir
gesti en hún er ef til vill
þekktust fyrir söng sinn með
hinni margrómuðu sveit
Massive Attack.
Nicolette er fædd í Skot-
landi, en uppalin í Nígeríu,
Frakklandi og Sviss. Hún
hefur starfað sem söngkona
frá 23 ára aldri og hennar
fyrsta smáskífa, „Wicked
Mathematics“, kom út árið
’92 og fylgdi breiðskífan Now
Is Early í kjölfarið sama ár.
Tónlist Nicolette heillaði liðsmenn
Massive Attack upp úr skónum og
fengu þeir hana til liðs við sig við
gerð plötunnar Protection, sem kom
út árið ’94 en þar syngur hún í tveim-
ur lögum.
Önnur sólóplata Nicolette, Let No
One Live Rent Free in Your Head,
kom svo út tveimur árum síðar.
Söngkonan er annars stödd hér á
landi í þeim erindagjörðum að vinna
með Barða Jóhannssyni úr Bang
Gang.
Eins og áður sagði leikur íslenska
sveitin Atingere einnig á tónleikun-
um, en hún hyggst frumflytja nýtt
efni. Biogen ætlar að flytja mynd-
bandsverk sitt og plötusnúðurinn DJ
Árni þeytir skífur. Sem fyrr er að-
gangseyrir 500 kr.
Bravókvöld á Kaffi Thomsen
Nicolette tekur lagið á Kaffi
Thomsen í kvöld.
Nicolette heillar
KRYDDSTÚLKUNNI og
fyrrum tengdadóttur Ís-
lands, Mel B, hefur verið
sagt upp samningi við Virg-
in-útgáfufyrirtækið. Ástæð-
an er sú að Virgin telur feril
hennar hafa beðið skipbrot.
„Það borgaði sig einfald-
lega ekki að halda þessu
áfram,“ er haft eftir tals-
manni Virgin. „Hún einbeitir
sér nú að sjónvarpsstörfum
og við óskum henni góðs
gengis.“
Hættulega kryddið, eins og Mel B
var gjarnan kölluð er ferill Spice
Girls var í fluggír, leitar nú fyrir sér
annars staðar með útgáfu á tónlist
sinni. Hún er þó enn samningsbund-
in Virgin sem Kryddstúlka en ef tek-
ið er mið af gengi síðustu plötu, For-
ever, sem var æði hrapalegt, a.m.k.
sölulega, er talið ólíklegt að Krydd-
stúlkurnar hljóðriti nýja plötu. Ekki
er þó loku skotið fyrir safnplötu að
sögn innanbúðarmanna hjá Virgin.
Einherjaferill Mel B byrjaði engu
að síður vel er lagið „I Want You
Back“, sem er dúett með R og B/
rapplistakonunni Missy Elliot, fór
rakleitt á toppinn í Bretlandi. Seinni
smáskífur hennar hafa aftur á móti
valdið sölulegum vonbrigðum. Breið-
skífan Hot komst svo ekki hærra en í
28. sæti sem þykir víst harla dapurt í
þessum bransa.
Mel B samningslaus
„Hætta“ kryddið?
Mel B gengur nú um samningslaus.
NÝTT OG BETRA
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
www.sambioin.is
Sýnd kl. 8.10 og
10.10. Vit nr. 250
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit 243.
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. Vit 255. Sýnd kl.8.Vit 235. B.i. 12.
strik.is
Íslenskt tal. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit nr. 245
Enskt tal. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit nr. 244
Ævintýrið góða sem aldrei var sagt frá …fyrr en nú.
Crocodile Dundee
Sýnd kl. 4 og 6.
Vit 249
The Mummy
returns
Sýnd kl. 3.50 og 6.
Vit 234
Nýji stíllinn
keisarans
Sýnd kl. 3.45. Vit 345
Kvikmyndir.com
Ó.H.T.Rás2
strik.is
Kvikmyndir.com DV
Hugleikur
Heilsuviðvörun: Ef þú tekur upp lífshætti
Bridget Jones þá gæti það skaðað heilsu þína.
DV
HÁSKÓLABÍÓ
þar sem allir salir eru stórir
Hagatorgi sími 530 1919
Hluti myndarinnar var tekinn upp á Íslandi
Frábær hasarmynd sem fór
beint á toppinn í Bandaríkjunum
Stærsta ævintýri sumarsins er hafið
TILLSAMMANS
Sýnd kl. 4, 6, 8, 10.15. B.i. 12.Sýnd kl. 4, 6, 8, 10.15. B.i. 12.
1/2 Kvikmyndir.com
H.L. Mbl.
H.K. DV
Strik.is
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
DV
strik.is strik.is
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.15. Kl. 4, 6 og 8 með ísl. tal. Kl. 4, 6, 8 og 10 enskt tal
Ævintýrið góða sem aldrei var sagt frá …fyrr en nú.
Kvikmyndir.com Ó.H.T.Rás2
Sýnd kl. 10.30. B. i. 16.
betra er að
borða graut-
inn saman en
steikina einn
Hugleikur DV