Morgunblaðið - 10.08.2001, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 10.08.2001, Blaðsíða 20
LISTIR 20 FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ NORÐURÓP er félag sem hefur það að markmiði að kynna óperur fyrir almenningi og setja upp sýningar þar sem ungu og efnilegu hæfileikafólki er gefið tækifæri á að spreyta sig í samkeppnisharðri listgrein og öðlast dýrmæta reynslu. Jóhann Smári Sævarsson er forsprakki Norðuróps og stofnandi en hann hefur áratugs- reynslu af óperusöng heima og við óperuhús erlendis. Fyrsta uppfærsla Norðuróps var á Akureyri í fyrra, þegar félagið setti upp barnaóperuna Sæma sirkus- slöngu. Nú er Reykjanesbær vett- vangur sýninga Norðuróps, en félag- ið stendur fyrir hvorki meira né minna en tveimur nýjum óperuupp- færslum á næstu dögum, auk þess sem flutt verður Requiem eftir Sig- urð Sævarsson. Dráttarbraut í nýju hlutverki Vettvangur þessara viðburða er nokkuð sérstakur því að sýnt verður í gömlu dráttarbrautinni í Keflavík, sem um skeið hefur verið notuð sem rútubílaþvottastöð. Í kvöld verður frumsýning á gamanóperu Puccinis um Gianni Schicci. Þessi ópera er mikill gleðileikur og farsi þar sem ættingjar látins gamalmennis safnast saman til að syrgja og ná örugglega sínum hluta arfsins. Öllum að óvörum kemur á daginn að gamli maðurinn hefur arfleitt kirkjuna að öllu sínu góssi. Þá eru góð ráð dýr, og ættingj- arnir bregða á það ráð að ráða til sín æringjann Gianni Schicci til að bjarga málunum. Í þessari óperu er ein vinsælasta sópranaría óperubók- menntanna, „O, mio babbino caro“, þar sem dóttir Schiccis biður elsku pápa sinn um að leyfa sér að giftast manninum sem hún elskar. Jóhann Smári Sævarsson hefur þýtt og stað- fært óperuna, en hún gerist í nútíma- num norður á Akureyri. Leikstjóri sýningarinnar er Jón Páll Eyjólfsson og hljómsveitarstjóri er Garðar Cort- es. Jóhann Smári syngur sjálfur tit- ilhlutverkið en aðrir einsöngvarar eru Garðar Thor Cortes, Elín Hall- dórsdóttir, Sigríður Aðalsteinsdóttir, Davíð Ólafssson, Dagný Jónsdóttir, Hjördís Einarsdóttir, Manfred Lemke, Smári Vífilsson, Steinn Erl- ingsson og Ólafur Sveinsson. Ný sálumessa frumflutt Eftir hlé verður flutt nýtt verk, Re- quiem eftir Sigurð Sævarsson, en verkið var lokaverkefni hans í tón- smíðum við Tónlistarháskólann í Boston. Verkið hefur ekki heyrst hér á landi áður en það er samið fyrir hljómsveit, þrjátíu manna kór og tvo einsöngvara. Í einsöngshlutverkum verða Jóhann Smári og Jóhanna Linnet. Stjórnandi í báðum verkun- um verður Garðar Cortes. „Þetta er stórkostlegt ævintýri,“ segir Jóhann Smári Sævarsson um óperuveisluna í Reykjanesbæ, „við erum búin að breyta dráttarbrautinni í óperuhús og það voru ansi mörg handtök sem fóru í þetta. Við erum líka að brjóta óperuhefðina hérna því að í stað hljómsveitar ætlum við að nota sex hljómborð og slagverk í stað hljómsveitar. Þetta virðist ætla að ganga mjög vel upp, og ég held að við séum að skrifa nýja síðu í óperusög- unni með þessu.“ Engin helgispjöll Að sögn Jóhanns Smára vann Sig- urður hljómsveitarparta verksins inn á hljómborð; tréblásturshljóðfærin eru í einu hljómborði, strengirnir í tveimur hljómborðum, harpa og flauta eru saman í einu, málmblást- urhljóðfærin í einu en slagverkið er allt lifandi. „Þetta virðist ætla að virka mjög vel, og við erum að vinna í því núna að ná fram meiri dýpt í dýnamíkinni og það er allt að koma.“ Hreintrúuðum óperuunnendum kann að þykja það helgispjöll að flytja óp- eru án ekta hljómsveitar en Jóhann Smári er síður en svo smeykur við það. „Við erum ekkert hrædd við þetta. Við erum að setja verkin upp í skipasmíðastöð, og okkur finnst þetta ganga vel upp svona. Gianni Schicci er svo skemmtilegt verk og músíkin svo miklar stemmningar að þetta virkar vel með þessum hljóðfærum. Auðvitað er þetta ekki eins og hljóm- sveit en nálægt því. Þetta sparar okk- ur líka 50 manna hljómsveit; í staðinn erum við með sex hljóðfæri, og það er töluverður munur fjárhagslega. Þetta er öðruvísi, en virkar mjög vel. Við hefðum getað valið þann kost að vera með mjög litla hljómsveit, en hún hefði bara aldrei náð að fylla í þetta rými eins og hljómborðin geta, það er sautján metra lofthæð hérna! Við vorum að hlæja að því um daginn Morgunblaðið/Billi Gianni Schicci (Jóhann Smári Sævarsson) útskýrir fyrir áhyggjufullum ættingjum hvernig hann ætlar að redda þeim arfi. Morgunblaðið/Billi Sigurður Sævarsson tónskáld og Jóhann Smári Sævarsson óperusöngv- ari fyrir framan dráttarbrautina í Keflavík. Óperuverk- takar í framtíðinni Norðuróp frumsýnir tvær óperur í drátt- arbrautinni í Reykjanesbæ um helgina, önnur er íslensk og að auki verður frum- flutt sálumessa. Bergþóra Jónsdóttir ræddi við forsprakkana. hvað umræðan um óperuflutning í Morgunblaðinu kom á réttum tíma fyrir okkur.“ Þrjár sýningar verða á Gianni Schicci og Requiemi Sigurðar Sævarssonar; í kvöld, annað kvöld og á sunnudagskvöldið. Z ástarsaga í óperubúningi 1. og 2. september verða svo sýn- ingar á óperunni Z ástarsögu sem Sigurður Sævarsson samdi eftir sam- nefndri bók Vigdísar Grímsdóttur. Þar er lýst samskiptum þriggja kvenna, elskendanna Önnu og Zetu, og Arnþrúðar systur Önnu. Með hlut- verk Önnu og Zetu fara Jóhanna Linnet og Ingveldur Ýr Jónsdóttir en Bryndís Jónsdóttir er í hlutverki Arnþrúðar. „Þetta er ekki grande opéra í tón- listarsögulegum skilningi heldur ætl- ast Sigurður til að nálægðin sé meira eins og á ljóðakvöldi,“ segir Jóhann Smári. Sagan gerist mikið til í hug- arheimi þessara kvenna, og þarna viljum við að hrátt umhverfi drátt- arbrautarinnar fái að njóta sín vel.“ Jóhann Smári segir að samið hafi verið við sérleyfishafann í Keflavík um að rúturnar yrðu þvegnar úti meðan á óperusýningum stæði. „Þeg- ar við sjáum hvað þetta kemur vel út langar okkur auðvitað að eiga húsið. Það verður sennilega þyngra að fá það gefins en lánað. Annars hefur Norðurópi verið boðið húsnæði úti á landi til afnota næsta sumar. Ætli við endum ekki bara með að verða hálf- gerðir óperuverktakar og búum til svona ævintýri víðs vegar um landið.“ BERGLIND María Tómasdóttir lauk prófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1998 og lauk fram- haldsnámi við Konunglega tónlist- arskólann í Kaupmannahöfn sl. vor, með smá viðdvöl í Tónlist- arháskólanum í París. Berglind María er félagi í íslenska tónlist- arhópnum Atonal Future, sem staðið hefur fyrir athyglisverðum sumartónleikum í nokkur ár og vakið athygli fyrir skemmtilega uppfærslu nútímatónlistar. Það sama var upp á teningnum á tón- leikum Berglindar Maríu Tómas- dóttur og Arne Jørgen Fæø í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar, sl þriðjudag, því þar gat að heyra skemmtilegan og lifandi flutning gamallar nútímatónlistar, tónverka frá nýliðinni öld, með smá innskoti rafrænnar framtíðar. Fyrsta viðfangsefnið var Le merle noir, svartþrastartónverk, eftir Oliver Messiaen, en hann kannaði söng fugla og notaði tón- ferli fuglasöngsins í tónverk sín, þótt tónverkin að öðru leyti lytu lögmálum tónsmíðinnar, hvað varðar formskipan og möguleika hjóðfæranna. Þetta skemmtilega og líflega verk var mjög vel flutt af Berglindi Maríu og samleikara hennar, píanóleikaranum Arne Jørgen Fæø. Þrjár músikmínutur fyrir sóló flautu eftir Alta Heimi Sveinsson voru næst á efnis- skránni og þar eftir skemmtilega „virtúósiskt“ verk, Columbine, eft- ir Þorkel Sigurbjörnsson, þar sem vitnað er til þekktra stefja, er tengjast fyrirbærinu Columbine og vini hennar Harlekins. Verkið er í þremur þáttum, sá fyrsti leik- tæknilega mjög erfiður, og sérlega vel saminn, annar, eins konar kan- sóna með arpeggio undirleik píanósins og lokaþátturinn fjörug- ur „Saltarello“. Þarna sýndi Berg- lind María að hún er orðin leikinn flautuleikari. „Tónsmíð fyrir vinstra heila- hvel“ nefnist nýtt verk eftir Kol- bein Einarsson, ungan tónsmið í framhaldsnámi erlendis, sem því miður er að engu getið í tónleika- skrá. Verkið er fyrir flautu og tölvu og er tölvan að mestu notuð til undirleiks við flautuna, þó fyrir bregði skemmtilegum samleik í allt of stuttu tónverki, svo stuttu að vart væri nóg sem stutt „int- ermezzo“ í stærra tónverki. Það verður fróðlegt að fylgjast með Kolbeini og hversu honum mun vegna í gerð rafverka, því þetta allt of stutta verk lofar góðu um gott framhald. Tónleikunum lauk með sónötu fyrir flautu og píanó, eftir franska tónskáldið Henri Dutilleux (1916). þetta er ekta franskt og leikandi létt verk, sem var einstaklega vel flutt. Í heild voru þetta sérlega skemmtilegir tónleikar og hefur Berglind María Tómasdóttir sann- að sig að vera frábær flautuleikari, sem hvað best kom fram í afburða góðum flutningi á verki Þorkels, sem og í frönsku verkunum eftir Messiaens og Dutilleux. Arne Jør- gen Fæø er góður píanóleikari og sýndi töluverð tilþrif í sónötunni eftir Dutilleux, en að öðru leyti átti hann svo sannarlega hlut í að skapa þessum skemmtilegu tón- leikum sannfærandi umgjörð, með samstilltum leik sínum. Jón Ásgeirsson TÓNLIST L i s t a s a f n S i g u r j ó n s Ó l a f s s o n a r Berglind María Tómasdóttir og Arne Jørgen Fæø fluttu tónlist eftir Messiaens, Atla Heimi Sveinsson, Þorkel Sigurbjörnsson, Kolbein Einarsson og Henri Dutilleux. Þriðjudagurinn 7. ágúst , 2001. Samstilltur og lifandi leikur Í ANDDYRI Norræna hússins verð- ur í dag, föstudag, opnuð sýning á 18 ljósmyndum sem eistneski ljós- myndarinn Hendrik Relve hefur tekið. Sýningin nefnist Forn tré í Eistlandi, en sérkenni Eistlands, í samanburði við önnur Evrópulönd, eru hin nánu tengsl við tré. Menn bera virðingu fyrir trjánum, gefa þeim nöfn og hafa í heiðri gamlar sagnir um einstök tré. Hendrik Relve fæddist í Tallinn 18. júlí 1948. Hann hefur skrifað á annað hundrað greinar um skóg- rækt, náttúru- og umhverfisvernd. Þá hefur hann tekið þátt í mörgum ljósmyndasýningum með náttúru- lífsmyndum frá Eistlandi og gefið út átta ljósmyndabækur. Hann hefur hlotið verðlaun sem ýmis dagblöð og tímarit veita árlega fyrir greinar um náttúruskoðun og ljósmyndir. Sam- band finnskra líffræði- og landa- fræðikennara veittu honum silfur- verðlaun fyrir fræðsluefni um náttúrufræði 1999 og árið 2001 var hann heiðraður með Hvíta krossin- um, heiðursverðlaunum Eistneska lýðveldisins. Sýningin er sett upp í tengslum við Menningarhátíð Eystrasaltsríkj- anna á Norðurlöndum sem stendur yfir frá 1. september til 1. nóvember í ár. Sýningin í Norræna húsinu, sem stendur til 23. september, verður op- in daglega kl. 9–17, nema á sunnu- dögum frá kl. 12–17. Aðgangur er ókeypis. Hin fornu tré Eistlands RAGNAR Leósson og Gabríel Filippusson opna ljósmynda- sýningu í Gallerý Man á Skóla- vörðustíg 14 í kvöld, föstudags- kvöld, kl. 20. Ragnar sýnir 14 s/h portrett-myndir teknar á Íslandi í lok síðasta veturs, í stærðunum 30 x 40cm og 40x50cm og Gabríel sýnir 12 s/h af afrískum kynjaplöntum, í stærðinni 30 x 40cm. Sýningin er opin á virkum dögum frá 10–18, laugardaga 10–17 og sunnudaga 13–17 og stendur til 21. ágúst. Ljósmynd- ir í Man SIGURÐUR Flosason saxófónleik- ari og Gunnar Gunnarsson orgelleik- ari halda tónleika í Ísafjarðarkirkju á morgun, laugardag, kl. 17. Þeir munu annarsvegar leika sálma af geisladiski sínum Sálmar lífsins og hins vegar sálma af nýuppteknum geisladiski sem koma mun út fyrir jól, en sá diskur er helgaður að- ventu- og jólasálmum frá ýmsum tímum. Í sömu ferð munu þeir koma fram í helgihaldi í þremur kirkjum í Ísa- fjarðarprófastsdæmi. Laugardaginn 11. ágúst í Mýrakirkju kl. 20.30, sunnudaginn 12. ágúst í Hnífsdal kl. 11 og í Súðavíkurkirkju sunnudaginn 12. ágúst kl. 14. Sálmar lífsins á Vestfjörðum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.