Morgunblaðið - 10.08.2001, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 10.08.2001, Blaðsíða 29
heimi viðskiptanna. Hann var afar vel greindur og einstaklega heiðar- legur viðskiptamaður og starf sitt vann hann með listrænu yfirbragði. Honum varð auðið að ná fram fag- mannlegri leikni til orðs og æðis í samskiptum við viðskiptavini og starfsfólk sitt þar sem byggt var á heiðarleika og trúverðugleika sem meginstoðum í öllum samskiptum. Get ég með stolti sagt um vin minn Mikael að hérlendis sem erlendis naut hann mikillar virðingar fyrir fagmennsku sína og heiðarleika sem varð honum drjúgt veganesti til vegsauka og velfarnaðar á löngum og farsælum starfsferli hans. Mér fannst Mikael alltaf vera vinsælasti maðurinn í hópnum hvort heldur við vorum erlendis eða staddir hér heima. Mikael víkkaði sjóndeildarhring sinn og víðsýni með því sækja kynn- ingarfundi, ráðstefnur og sýningar hérlendis og erlendis eftir því sem aðstæður leyfðu. Stundum slóst hans glæsilega eiginkona, Hrönn Björns- dóttir, með í för. Það er ekki ofsagt að Hrönn og Mikael voru glæsileg hjón og tignarlegir fulltrúar lands okkar á erlendri grundu. Í útlöndum eignaðist Mikael fjöldan allan af vin- um, sem báru verðskuldaða virðingu fyrir mannkostum þessa reglusama og háttprúða göfugmennis. Sérstök- um kveðjum og þökkum fyrir sam- starfið er komið á framfæri frá Klaus Binkowski, útflutningssölustjóra GROHE, Hendrich Drews, fram- kvæmdastjóra Villeroy&Boch og Alfred Münch framkvæmdastjóra hjá Metabo í Þýskalandi. Þeir sem kynntust Mikael urðu þess fljótt áskynja, að þar fór vand- aður og úrræðagóður maður, sem talaði aldrei illa um nokkurn mann. Hann geislaði af velvild til allra. Honum var gjarnt að tala vel um fólk og málefni. Öfund og hroki voru ekki til í hans viðmóti. Hann var ekki maður sem skaraði eld að sinni köku. Fyrir þá sem áttu hann að vini var hann eins og sólskinsdagur sem stráði birtu allt í kringum sig. Hann kærði sig ekki um vegsemd og virð- ingu, sem fengin væri með öðrum hætti en þeim að orð og verk færu saman. Næstum allan sinn starfsaldur vann Mikael fyrir KEA á Akureyri, lengst af sem deildarstjóri bygginga- vörudeildar. Í starfi sínu naut hann ætíð mikillar virðingar fyrir sam- viskusemi sína, fagmennsku og heið- arleika, en ekki síst fyrir sína hátt- vísu framkomu. Hann var afar farsæll yfirmaður og vinsæll meðal samstarfsmanna og viðskiptavina. Mikael fékk líka að kynnast því að ekkert fljót er án straums eða haf án vatns og að til eru þeir kappar sem í felum með illmælgi og af ágirnd sækjast eftir vegtyllum annarra. Síðustu starfsárin réðst hann til starfa hjá Metró á Akureyri, nú BYKO. Þar eins og í öðrum verkum sínum gerði hann gott fyrirtæki betra með hlutdeild sinni og dró að ný viðskipti og viðskiptavini. Það er ómetanlegt að eiga í huga sér minningarnar sem nú hrannast upp frá samferðinni um áratugina. Það er mér einnig sérstakur gleði- auki að hafa fengið hann að sam- starfsmanni síðustu starfsárin hans, eftir að hann hætti sem deildarstjóri hjá KEA, og að hafa haft tækifæri til að kynnast hans framúrskarandi börnum og starfa með þeim Sigrúnu og Sigurði um tíma, en þau hafa bæði hafa fengið ríkulega af háttprýði og dugnaði foreldra sinna. Eiginkona Mikaels og hans mesti gleðigjafi, Hrönn Björnsdóttir, veit að gleði og himnaríki eru náskyld. Drottinn hefur valið að kalla Mikael heim á ný. Ég vil því þakka Guði mínum fyrir að gefa mér að eignast hann að vini, samferðamanni og sam- starfsmanni. Ég legg fjölskyldu hans í Guðs hendur, eiginkonuna, börnin, tengdabörnin og barnabörnin eitt og sérhvert. Ég bið hann að blessa þau og varðveita. Ég þakka fyrir það líf sem hann hefur fyrirbúið Mikael í Jesú nafni. Seinna þar sem enginn telur árin munum við Mikael hittast aftur og taka upp þráðinn þar sem frá var horfið. Ómar Kristjánsson. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2001 29 ✝ Friðrik Adolfs-son útvarpsvirki fæddist í Aðalstræti 20 á Akureyri 23. nóvember 1924. Hann lést á Sjúkra- húsi Akraness 5. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru Anna Friðrika Frið- riksdóttir frá Há- nefsstöðum í Svarf- aðardal, f. 4. október 1882, d. 5. desember 1980, og Adolf Krist- jánsson skipstjóri frá Akureyri, f. 25. sept- ember 1888, d. 8. mars 1944. Systur Friðriks eru: 1) Marselía, f. 19.8. 1913, d. 12.10. 1999, eftirlif- andi eiginmaður hennar er Har- aldur Þorvarðarson, fv. umsjónar- maður Bréfaskóla SÍS, þau eign- uðust þrjár dætur. 2) Guðrún Frið- rika, húsmóðir á Akranesi, f. 14.3. 1919, ekkja Ásgríms G. Stefáns- sonar, verksmiðjustjóra á Akur- eyri, þau eignuðust þrjú börn. 3) María Jónína, húsmóðir á Akur- eyri, f. 14.8. 1921, ekkja Stefáns Stefánssonar verslunarstjóra, þau eignuðust tvo syni. Hinn 31. maí 1953 kvæntist Frið- rik Jenny Lind Valdemarsdóttur, f. 9.8. 1932. Þau bjuggu fyrst hjá móður hans í Hafnarstræti 13, hófu síðan búskap á Þingvallar- eru Heiða, f. 28.6. 1998, og Ísar, f. 6.3. 2000. Friðrik hóf ungur nám við út- varpsvirkjun hjá Grími Sigurðs- syni á Akureyri og fyrir hans til- stilli fór hann í bóklegt nám í Iðnskólann í Reykjavík árið 1941, þá 17 ára gamall. Hann útskrifað- ist sem útvarpsvirki og starfaði í nokkur ár hjá Viðgerðarstofu Rík- isútvarpsins undir verkstjórn Jóns Alexanderssonar. Hann starfaði vítt og breitt um landið og var m.a. sumarlangt á endurvarpsstöðinni að Eiðum á Héraði. Eftir að rík- issjónvarpið tók til starfa bætti hann við sig námi í sjónvarpsvirkj- un. Um 1950 réð hann sig til Prjónastofu Ásgríms Stefánssonar sem samnefndur mágur hans kom á laggirnar árið 1943. Hann ferð- aðist til Englands og Þýskalands til að læra á prjónavélar. Haustið 1963 fluttist fjölskyldan til Akra- ness þar sem hann setti upp út- varps- og sjónvarpsviðgerðar- stofu. Jafnframt réð hann sig til Prjónastofunnar Evu. Síðar keyptu þau hjónin sokkavél og stofnuðu fyrirtækið FADO. Árið 1968 stofnaði hann ásamt fimm öðrum Akurnesingum Fatagerð- ina h.f. sem framleiddi ýmiss konar fatnað. Árið 1973 drógu þau hjónin sig út úr þeim rekstri og stofnuðu sokkaverksmiðjuna Jenny Lind. Síðustu starfsárin starfaði hann hjá Álafossi í Mosfellsbæ. Frá árinu 1996 bjó Friðrik á dvalar- heimilinu Höfða á Akranesi. Útför Friðriks fer fram frá Akraneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. stræti 22 en fluttu á Akranes 1963. Þau skildu 1987. Friðrik og Jenny eignuðust fimm börn: 1) Friðrik rafvirki, f. 26.12. 1952, kvæntur Halldóru Hafdísi Arn- ardóttur hjúkrunar- fræðingi, f. 19.5. 1962. Dætur þeirra eru Heiðrún Arna, f. 23.7. 1987, og Svana María, f. 18.4. 1990. 2) Elsa verslunarmaður, f. 4. janúar 1957, gift Tryggva Gunnarssyni rafvirkja, f. 9.3. 1956. Börn þeirra eru Jenny Lind viðskiptafræðing- ur, f. 9.1. 1979, Gunnar Aðils, f. 8.10. 1984, og Friðrik Árni, f. 10.6. 1992. 3) Jórunn læknaritari, f. 27.12. 1958, gift Ómari Sigurðs- syni verkstjóra, f. 11.2. 1960. Synir þeirra eru Sigurður Ari rafvirki, f. 20.2. 1979, og Jón Valur, f. 9.4. 1987. 4) Valdimar Leó, fram- kvæmdastjóri og stuðningsfulltrúi, f. 20.7. 1960. Börn hans eru Ása Björk, f. 25.2. 1988, móðir hennar er Dagrún St. Ólafsdóttir, f. 12.7. 1959, og Róbert Leó, f. 14.4. 1999, móðir hans er Elísabet Frímanns- dóttir, f. 2.11. 1958. 5) Adolf forn- leifafræðingur, f. 30.10. 1963, kvæntur Séverine Daucourt ljóð- skáldi, f. 11.3. 1970. Börn þeirra Faðir okkar, Friðrik Adolfsson, er látinn 76 ára að aldri. Hann fékk heilablæðingu aðfaranótt 4. ágúst og lést rúmum sólarhring síðar. Um árabil var hann með of háan blóð- þrýsting og hafði fengið heilablæð- ingu áður og því var við þessu að bú- ast. Þrátt fyrir það er maður aldrei undir það búinn að missa föður sinn en ég verð þó að fagna því að hann átti snöggan dauðadag en ekki lang- varandi veikindi eins og hann kveið svo fyrir. Pabbi átti marga góða vini er hann ólst upp í „innbænum“ á Akureyri. Má þar nefna frænda hans, Jóhann Franklín, og Eggert Steinsen. Þeir Eggert brölluðu margt saman og gerðu m.a. tilraun til að smíða við- tæki (útvarp). Það virkaði ekki sem slíkt en reyndist síðar vel sem vörtu- eyðir. Við feðgar áttum sameiginlegan áhuga á félagsmálum, ræðumennsku og leiklist. Við lékum saman í tveim- ur uppfærslum hjá Skagaleikflokkn- um á Akranesi og hann í fjórum öðr- um að auki. Það leiddi síðan til þátttöku í kvikmyndinni „Óðal feðr- anna“ þar sem hann lék málglaða þingmanninn. Hann starfaði mikið í félagsmálum og var virkur í Rotary. Hann lét plata sig í jólasveinabúning af og til, bæði innan veggja heimilis- ins og á opinberum vettvangi. Og þar sem hann fór oft á námskeið erlendis bar hann með sér ýmsa þekkingu sem okkur var áður hulin. Eitt af áhugamálunum var sjón- hverfingar. Það leiddi til vinsælda á mannamótum eins og t.d. barnaaf- mælum og fáir veittu því eftirtekt þótt hann laumaðist út bakdyrameg- in og út í sjoppu rétt áður en kara- mellum rigndi upp úr tómum galdra- kössum. Pabbi var einn af frumkvöðlum í prjónaiðnaðinum á Íslandi en til að ná endum saman starfaði hann við sjónvarps- og útvarpsviðgerðir á kvöldin og um helgar. Það var nán- ast sama hvenær kallið kom, hann var ávallt tilbúinn að fara í heimahús til að líta á „sjúklingana“ sína. Þó kom fyrir að við gátum sparað hon- um ferðir með því að spyrja þann sem pantaði viðgerð hvort sjónvarp- ið væri örugglega í sambandi. Umræður um pólitík voru oft fjör- ugar á heimilinu og sitt sýndist hverjum um hvernig ætti að bjarga þjóðarskútunni. Hann þreyttist seint á þessari umræðu og þeirri skoðun sinni að ríkinu bæri að gera iðnaðin- um hærra undir höfði. Trúlega hafa samferðamenn hans á Höfða líka fengið sinn skammt af skoðunum hans. Á síðustu árum var hann þekktur fyrir að sinna Lottó-áhugamálinu sínu. Þannig skemmti hann sjálfum sér auk þess að leggja íþróttahreyf- ingunni lið. Gárungarnir höfðu á orði að hægt væri að stilla klukkuna eftir honum. Á hverjum laugardegi kl. 13.00 mátti sjá hann rölta sem leið lá frá Höfða niður í Skaganesti til að „lotta“. Einhverra hluta vegna brá hann út af vananum í síðustu viku og flýtti ferðinni um einn dag... Pabba leið vel á dvalarheimilinu Höfða og færi ég starfsfólkinu bestu þakkir frá fjölskyldunni. Elsku pabbi, þegar maður tekur sér penna í hönd og rifjar upp lífs- hlaup þitt skjóta margar góðar minn- ingar upp kollinum. Fyrir þær stund- ir þökkum við þér og vonum að þér líði vel í rökræðum við þann sem öllu ræður. Hvíl í friði. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna. Valdimar Leó Friðriksson. Elsku afi okkar, passaðu þig á líf- inu, varstu vanur að segja, það er fullt af freistingum. Maður verður að vita hvenær á að segja nei og hvenær já. En nú er þitt líf á enda og okkar rétt að byrja. Við þökkum þér sam- veruna og biðjum þess að þér líði nú betur. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta, þá sælt er að vita af því. Þú laus er úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Guð geymi þig, Jenny Lind, Gunnar Aðils og Friðrik Árni. FRIÐRIK ADOLFSSON                                                       ! "        # $%%   &      # #     '#        !     "#$$  %& '  $( !  $ )  "#$$  *# + ,  !  - " "#$$  ./$ 01'  $( !  +   "#$$  %&    !      !   2 + 3# "#$$    !  3#2  + $  "#$$  4 4& ! 4 4 4& 1 (      % *56 -  '-7 8'- 5     )   *      +  !  !,  -.    -/ /0 1          !     %  1  + -2      /$ 17 " "#$$   7 )  *! " !       7  13!4"#$$       7     4& "#$$ 1 3  4          3      (+ $2 9 +*)4 +:: 7)  ) +    "           + "#$$  7 7   !  +9 "  + !  7 "#$$  7 9 +# !   + 7 "#$$  '  $( 7 !  $  ;#  '  $( "#$$  * ( 7 !   2 + 2 + "#$$  &) 7 "#$$  " / '  $( !  7 7 !  &) '  "#$$       4 4& ! 4 4 4& 1 3  4             %  ,1 % 5 $2 9 (7( $ 4 $<=    ! 4   5 6 '         7 ) +# "#$$  ,     + !     ) + "#$$  +4&    + "#$$  )  8 4& !  '  $    + "#$$  %     + !  -, "#$$    4  +  !  + >    4 "#$$    % ! 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.