Morgunblaðið - 27.10.2001, Síða 24

Morgunblaðið - 27.10.2001, Síða 24
ERLENT 24 LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ENN loga eldar í rústum World Trade Center-skýjakljúfanna í New York en vel gengur að hreinsa til þótt enn séu á staðnum hundruð þús- unda tonna af braki. Enn hafa á hinn bóginn ekki fundist líkamsleifar nema 478 fórnarlamba árásarinnar 11. september. Er búið að bera kennsl á 425 líkanna, oft með því að bera saman erfðaefnissýni. Vitað hefur verið frá upphafi að erfitt myndi reynast að ganga úr skugga um tölu látinna og mjög mis- vísandi tölur eru birtar. Borgaryfir- völd segja að saknað sé alls 4.817 manns og telja þá tölu mjög trausta en viðurkenna að hún geti enn breyst. Dagblaðið The New York Times sagði á hinn bóginn í gær að alls væru 2.950 taldir látnir eða þeirra saknað. Að sögn blaðsins hafa fréttastofa AP og dagblaðið USA Today gefið upp tölur frá 2.600 til 2.950. Bandaríski Rauði krossinn sem veitir aðstandendum fjárhags- lega aðstoð segist reikna með að heyra frá flestum fjölskyldum sem eigi um sárt að binda. Segir stofn- unin að hún hafi fjallað um mál 2.563 fórnarlamba. Fullyrt er í grein blaðamanns The New York Times að tölur um mörg þúsund munaðarleysingja eftir hryðjuverkin í september fái ekki staðist. Fjöldi fólks víða um landið hafi boðist til að taka að sér mun- aðarlaus börn og jafnvel ættleiða þau en ekki hafi enn verið hægt að hafa uppi á neinu dæmi um slíkt barn. Birtir hafa verið leiðarar í helstu blöðum, þar á meðal The New York Times, þar sem nefndar hafa verið tölur um allt að 15.000 munaðarlaus börn. Embættismenn segja að töl- urnar séu úr lausu lofti gripnar en aðrir segja að ef orðið sé skilgreint með þeim hætti að átt sé við barn sem hafi misst annað foreldri sitt sé ekki fjarri lagi að tala um hundruð munaðarlausra barna. Einnig er bent á að í fyrstu hafi verið talið að fórnarlömb árásarinnar hafi verið um 7.000. Tölur eru misvísandi um fjölda látinna í New York AP Beitt er stórum vinnuvélum við að ryðja burt braki í rústum World Trade Center. En jafnframt er reynt að fara nógu varlega til að hægt sé að finna líkamsleifar þeirra sem fórust í árásunum 11. september. Tölur um munaðarlaus börn ýktar New York. AFP. BORGIN Mazar-e Sharif í norður- hluta Afganistans er ekki aðeins hernaðarlega mikilvæg fyrir and- stæðinga talibana heldur einnig mik- ilvæg aðkomuleið fyrir hjálpargögn handa milljónum Afgana sem sjá fram á hungursneyð í vetur. Norðurbandalagið, laustengt bandalag afganskra andstæðinga talibana, hefur reynt að ná Mazar-e Sharif á sitt vald á síðustu vikum og bandarískar herþotur hófu um síð- ustu helgi árásir á varnarstöðvar tal- ibana við borgina til að auðvelda Norðurbandalaginu að hefja stór- sókn. Talibanar sögðu í gær að Norðurbandalagið hefði gert nokkr- ar árásir í dal sunnan við Mazar-e Sharif en að þeim hefði verið hrund- ið. Takist Norðurbandalaginu að hrekja talibana frá Mazar-e Sharif er líklegt að það nái mestum hluta Norður-Afganistans á sitt vald. Starfsmenn hjálparstofnana vona að það verði til þess að stjórn grannrík- isins Úsbekistans fallist á að opna mikilvægan veg frá bænum Termez í suðurhluta landsins til að flytja það- an hjálpargögn til Afganistans. Embættismaður Matvælahjálpar Sameinuðu þjóðanna (WFP) sagði að hægt yrði að senda þúsundir tonna af matvælum á dag frá Termez yrði vegurinn opnaður. Stjórn Úsbekistans hefur neitað að opna veginn nema Norðurbanda- lagið nái mestum hluta Norður-Afg- anistans á sitt vald. Veginum var lok- að árið 1997 þegar talibanar lögðu landamærasvæðið undir sig, en hann var helsta aðkomuleiðin fyrir sov- éskar hersveitir á árunum 1979–89 þegar Sovétmenn hernámu Afgan- istan. Úsbekar vilja ekki opna veg- inn nema talibanar verði hraktir af svæðinu og geti ekki notað hann sem flóttaleið. Mikilvæg að- komuleið fyrir hjálpargögn                 (     Tashkent. AP. Borgin Mazar-e Sharif í Afganistan TALSMAÐUR Atlantshafsbanda- lagsins (NATO) í Bosníu skýrði frá því í á fimmtudag að félagar í al- Qaeda-hryðjuverkasamtökunum hefðu verið handteknir í landinu. Lögreglan í Bosníu handtók fyrir skemmstu sex menn vegna gruns um að þeir tengdust alþjóðlegri hryðju- verkastarfsemi. Naut lögreglan að- stoðar NATO við handtökurnar. Talsmaður bandalagsins, Daryl Morell höfuðsmaður, sagði að komið hefði í ljós að nokkrir sexmenning- anna væru félagar í al-Qaeda- hryðjuverkasamtökunum sem Osama bin Laden starfrækir í fjöl- mörgum ríkjum víða um heim. Mor- eel bætti við að ekki væri unnt að fullyrða að tekist hefði að uppræta starfsemi al-Qaeda í Bosníu en hún hefði að minnsta kosti verið trufluð. Lögreglan í Bosníu hefur hand- tekið fjölda manna frá því að fjölda- morðin voru framin í Bandaríkjun- um 11. fyrra mánaðar. Flestum hefur verið sleppt en mennirnir sex sem nú eru í haldi eru allir frá Alsír. Einn þeirra er grunaður um að hafa hringt í náinn aðstoðarmann bin Ladens og á heimili hans fundust óútfyllt vegabréf frá fjölmörgum ríkjum. Al-Qaeda- liðar hand- teknir í Bosníu Sarajevo. AP. ENN berast fregnir af nýjum tilfellum milt- isbrands í Bandaríkjunum, meðal annars í skrif- stofum leyniþjónustunnar, CIA, og póststofu ut- anríkisráðuneytisins í Washington. Að sögn The Washington Post eru embættismenn og vís- indamenn enn ráðvilltir og hafa ekki getað út- skýrt hvernig sýkillinn breiðist út. Verið er að kanna hvort hann geti hafa borist úr sendibréf- um á önnur bréf í flokkunarvélum sem oft með- höndla bréfin ómjúklega. Svo virðist sem þannig geti nægilega mörg gró komist út um örlítil göt á lokuðum umslögum, mengað önnur bréf og sýkt nærstatt fólk. Bréfin geti ekki aðeins valdið miltisbrandi í húð heldur einnig í lungum en þá er sjúkdómurinn banvænn sé brugðist of seint við. Áður höfðu tilraunir á öpum gefið til kynna að sýking yrði ekki nema nokkur þúsund gró að minnsta kosti bærust í lungun. Kannað er hvort bréf með miltisbrandi, sem sent var Tom Daschle, talsmanni meirihlutans í öldungadeild þingsins, hafi þannig mengað önn- ur bréf. Deborah Willhite, aðstoðarforstjóri bandaríska póstfyrirtækisins, var spurð hvort líklegt væri að hryðjuverkamenn hefðu sent fleiri en eitt bréf. „Ég hef ekki hugmynd um það,“ svaraði hún. Það sem veldur mestum vanda í sambandi við tilfellið í utanríkisráðu- neytinu er að umræddur starfsmaður hafði aldr- ei komið í Brentwood Road-póststofuna sem vit- að var að hafði mengast af sýklum. Tommy Thompson heilbrigðismálaráðherra sagði að þetta sýndi vel hve hættulegt afbrigði sýkilsins væri á ferðinni, „hve hreint það er og hve auð- velt er að dreifa því“. Mörg bréf en magnið örlítið? Ein skýringin sem varpað hefur verið fram á útbreiðslunni er að send hafi verið fjölmörg bréf með örlitlu magni af miltisbrandsgróum, ef til vill af gerð sem getur verið banvæn fólki. Bréfin valdi þá sjúkdómnum án þess að grunsemdir vakni þegar það er opnað og erfiðara að rekja upprunann, andstætt því sem gerist þegar magn- ið er mikið. Pósthús sem þjónar heilu hverfi getur þá verið mengað. Sé svo gæti þurft að líta svo á að allir íbúarnir séu í sýkingarhættu og þurfi því að meðhöndla þá með kröftugum lyfjum. Hægt er að ganga enn lengra og velta fyrir sér hvort all- ar bandarískar póstsendingar yrðu einhvern tíma taldar lífshættulegar. „Ég hef ekki hugmynd um það“ Útbreiðsla miltis- brands í Bandaríkj- unum enn ráðgáta SVEIN Ludvigsen, sjávarút- vegsmálaráðherra Noregs, hef- ur tilkynnt að hann muni segja sig úr frímúrarareglunni, að því er Aftenposten greinir frá. Kveðst ráðherrann hafa ákveð- ið þetta vegna þeirrar miklu at- hygli sem aðild sín að reglunni hafi vakið. Ludvigsen hafði verið gagn- rýndur harðlega fyrir að vera frímúrari, og töldu margir gagnrýnendur að hann myndi af þeim sökum ekki geta gætt fyllsta hlutleysis. Ludvigsen kvaðst ekki hafa nein tengsl við reglubræður sem störfuðu í sjávarútvegi og því hefði hann ekki talið ástæðu til að segja sig úr reglunni. Bondevik hrósar Ludvig- sen fyrir úrsögnina En þessi rök Ludvigsens voru ekki nóg fyrir Ågot Valle, þingmann Sósíalíska vinstri- flokksins, sem á sæti í eftirlits- og stjórnarskrárnefnd þings- ins. Fór Valle fram á það við Kjell Magne Bondevik for- sætisráðherra að „fundin yrði lausn“ á málinu eftir að í ljós kom, fyrr í vikunni, að ýmsir framámenn í fiskeldisiðnaðin- um í Noregi hefðu verið í sömu frímúraradeild og ráðherrann. Jafnaðarmannaflokkurinn hvatti Ludvigsen ennfremur til að segja sig úr reglunni, en stjórnarflokkarnir þrír lýstu stuðningi við ráðherrann. Í gær hrósaði Bondevik Ludvigsen fyrir þá ákvörðun að segja sig úr reglunni, og bætti við að ráð- herrann hefði sjálfur tekið þá ákvörðun. Hefði aldrei komið til álita að reka hann úr ríkis- stjórninni. Hættir í frímúr- araregl- unni Norski sjávarút- vegsráðherrann

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.