Morgunblaðið - 27.10.2001, Síða 28
LISTIR
28 LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SÝNING Bjargar Örvar er hvorki
stór né átakamikil en ber vott um að
listakonan, sem fyrst kvaddi sér
hljóðs á níunda áratugnum, er enn í
örri mótun. Rúmur tugur verka lýsir
gagnsæju, rauðleitu flæði sem minnir
einna helst á stækkaðar myndir af
blóðkornum, eða einhverju öðru flæði
undir húðinni, eins og við þekkjum
það af heimildarmyndum um innvort-
is gangverk mannslíkamans.
Málverkin eru fremur lítil og hvert
öðru líkt. Með dauft blönduðum lit í
vænum skammti af léttglansandi
bindiefni lætur Björg tvö álíka stór
mengi skarast. Með fljótandi blöndu
af ljósrauðum, í átt að appelsínugul-
um, leggur hún áherslur hér og hvar,
eða leyfir grönnu vessaflæði að leka
yfir flötinn og greinast í margar rásir
eins og á sem greinist í ótal lænur á
sandeyrum.
Listakonan hefur rambað á sann-
færandi tjáningarmáta með myndefni
sem býður upp á ótal möguleika til
frekari úrvinnslu. Það er þó langt í frá
að Björg nýti sér alla þá miklu mögu-
leika sem felast í myndmálinu, efni-
viðnum og miðlinum. Raunar bregður
hún hvergi út af endurteknum lausn-
um, hvorki í lit, formi né áferð. Það er
synd því að fyrir vikið skortir nokkuð
á fyllingu verkanna og fjölbreytni.
Það er vonandi að Björg skilji ekki
við þetta viðfangsefni sitt áður en hún
hefur náð út úr því öllum möguleik-
unum sem í því býr. Augljósast er að
benda á nauðsyn lengri dvalar við
hverja mynd, sem mundi hleypa auk-
inni margbreytni í útkomuna og rífa
verkin upp úr einsleitri áferð og ein-
hæfu litavali. Svo virðist sem Björg
Örvar sé að byrja á nýjum ferli í list
sinni og eigi langa vegferð framund-
an. Það er spurning hvort hún hefði
ekki átt að bíða eilítið lengur með sýn-
ingu þar til þessi annars prýðilega lof-
andi verk væru búin að safna í sig
kjarnmeiri forða.
Morgunblaðið/Þorkell
Frá sýningu Bjargar Örvar í sýningarsal Álafossverslunarinnar.
Fegurð vessanna
MYNDLIST
Á l a f o s s v e r s l u n ,
Á l a f o s s v e g i
Til 27. október. Opið virka daga
frá kl. 9–18, og laugardaga
frá kl. 9–16.
MÁLVERK
BJÖRG ÖRVAR
Halldór Björn Runólfsson
ÞORFINNI Sigurgeirssyni er þó-
nokkuð mikið niðri fyrir á sýningu
sinni í Galleríi Fold. Í aðalsalnum eru
22 meðalstór olíumálverk og á vegg
áður en gengið er inn í aðalsalinn eru
nokkur minni verk sem ekki eru mál-
uð eftir sömu forskrift. Titill sýning-
arinnar er Mynd í mynd og vísar það í
aðferð Þorfinns í verkunum að mála
málverk af málverkum og ljósmynd-
um auk þess sem hann leyfir öðrum
og að því er virðist óskyldum hlutum
einnig að fljóta með. Þannig er á
hverri mynd einskonar samtíningur,
líkt og hann hafi tæmt skúffur og
dótakassa, raðað saman og málað. Á
málverkunum eru myndir af lands-
lagsmálverkum, eggjum og steinum,
ljósmyndir, blaðaúrklippur, andlits-
myndir af þekktum mönnum og
barnsandlit. Þetta er einskonar
klippimyndastíll sem maður kannast
við úr skólaverkefnum grunnskóla-
krakka þegar þau klippa búta úr
tímaritum og raða saman. Þessi að-
ferð var einnig notuð mikið í popp-
listinni og frægar eru klippimyndir
Errós sem hann notaði sem fyrir-
myndir fyrir málverk sín.
Endurtekin þemu í myndum Þor-
finns og það sem kemst næst því að
binda sýninguna saman í eina heild
eru steinar og egg sem koma fyrir í
mörgum myndum og barnsandlit sem
birtist aftur og aftur í sömu stellingu
og með sama svip.
Ég skynjaði einhvern einmanaleika
og trega í myndunum á sýningunni
þrátt fyrir áberandi litagleði og fjöl-
breytt myndefni.
Það er ekkert nýtt við málverk
Þorfinns. Samklippsaðferðin er gam-
alkunn úr listasögunni og það að mála
málverk af listaverki kom t.d. fyrir í
verkum súrrealista eins og Magritte
t.d. og íslenski málarinn Húbert Nói
hefur gert nokkuð af því með mun
stílhreinni hætti en Þorfinnur gerir
hér.
Miðað við eldri verk Þorfinns er
eins og hann hafi vikið út af hófstilltri
braut og sé á leiðinni inn á nýja, tákn-
rænni og tjáningarríkari braut. Hann
þarf þó að vanda sig á þeirri leið og
velta alvarlega fyrir sér hvað hann
hefur að segja við sýningargesti.
Morgunblaðið/Þorkell
Klippt og skorið eftir Þorfinn Sigurgeirsson.
Samtíningur
MYNDLIST
G a l l e r í F o l d
Opið daglega frá kl. 10–18, laug-
ardaga frá kl. 10–17 og sunnudaga
frá kl. 14–17. Til 28. október.
MÁLVERK
ÞORFINNUR SIGUR-
GEIRSSON
Þóroddur Bjarnason
„GLÓÐARAUGA“ eftir Harald
Jónsson verður afhjúpað á horni
Suðurgötu og Hringbrautar í dag kl.
15. Glóðarauga er unnið í nánu sam-
starfi við vegfarendur, gatna-
málastjóra og lögregluna í Reykja-
vík. Verkið er aðeins sýnilegt
tímabundið á þessum stað en á eftir
að birtast í öðrum myndum víðs veg-
ar um höfuðborgina í framtíðinni.
„Glóðarauga“ er hluti í sýn-
ingaröðinni Listamaðurinn á horn-
inu en aðstandendur hennar eru
myndlistarmennirnir Gabríela Frið-
riksdóttir og Ásmundur Ásmunds-
son.
Listamaðurinn vinnur út frá
ákveðnum stað í borginni og býr til
tímabundin verk sem breytt geta
sýn staðarins án þess að byggja sjálf-
um sér minnisvarða. Þannig geta
listamennirnir ögrað viðteknum
hugmyndum um almenningsverk.
„Glóðar-
auga“ á
götuhorni
Verk Haraldar Jónssonar, „Glóðarauga“.
ÁSGEIR Lárusson opnar sýn-
ingu á verkum sínum í Næsta
galleríi, Ingólfsstræti 1A í dag,
laugardag, kl. 17. Sýningu sína
nefnir listamaðurinn Yfirgefn-
ar borgir og stendur hún fram
til 24. nóvember.
Ásgeir hefur haldið á þriðja
tug einkasýninga og tekið þátt í
fjölmörgum samsýningum.
Málverkasýn-
ing Ásgeirs
Lárussonar
„VESTFIRSK áhrif “ er yfir-
skrift sýningar Dýrfinnu Torfa-
dóttur, gullsmiðs í Listasetrinu
Kirkjuhvoli, Akranesi, sem
opnuð verður í dag kl. 15. Þar
sýnir hún skartgripi, lágmynd-
ir og skúlptúra.
Sýningunni lýkur 11. nóvem-
ber. Listasetrið er opið alla
daga, nema mánudaga, frá kl.
15–18.
Skartgripir
og skúlptúrar
Gallerí Skuggi
Sýningunni Hver með sínu
nefi lýkur á morgun. Sýningin
er opin um helgina frá kl. 13–17.
Sýningu lýkur