Morgunblaðið - 27.10.2001, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 27.10.2001, Qupperneq 37
MESSUR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2001 37 Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 17.30 æfing hjá eldri hóp Lítilla lærisveina með Barnakór Álftanesskóla sem kemur í heimsókn um helgina. Æfingin er í Barna- skólanum. Kvöldvakan er svo í framhaldi af æfingunni fyrir alla Litla lærisveina. Hvammstangakirkja. Barnamessa kl. 11. Safnaðarstarf Á ÞESSU ári eru 350 ár liðin síð- an sr. Hallgrímur Pétursson kom að embætti sóknarprests í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd og verður þess minnst við messu- gjörð sem hefst kl. 14 á sunnu- daginn kemur í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Það var 8. apríl árið 1651 að sr. Hallgrímur fékk veitingu fyrir sóknarprestsembættinu í Saurbæ, þar sem hann átti eftir að þjóna í um 16 ár, eða til ársins 1667. Á þessum árum orti hann Pass- íusálmana, sem er einhver dýr- mætasti bókmenntaarfur sem ís- lenskri kristni hefur hlotnast. Áður hafði hann þjónað um 7 ára skeið sem sóknarprestur á Hvals- nesi. Í messunni á sunnudaginn mun sr. Þorbjörn Hlynur Árnason, prófastur í Borgarfjarð- arprófastsdæmi, prédika, en sr. Kristinn Jens Sigurþórsson, sókn- arprestur í Saurbæ, mun þjóna fyrir altari. Einsöng í messunni flytur Ólöf Sigríður Valsdóttir og kirkjukór Saurbæjarprestakalls mun syngja sálma sr. Hallgríms undir stjórn Zsuzsönnu Budai, organista. Að lokinni messu mun Kven- félagið Lilja standa fyrir kaffi- veitingum á Hlöðum og þar mun einnig fara fram stutt dagskrá þar sem sr. Þórir Stephensen, fyrrverandi Dómkirkjuprestur og staðarhaldari í Viðey, mun flytja erindi um sr. Hallgrím og þá munu nokkrir félagar úr Kvæða- mannafélaginu Iðunni syngja rímur eftir sr. Hallgrím. Allir eru hjartanlega velkomnir og unn- endur sr. Hallgríms og kveð- skapar hans eru hvattir til að láta þetta ekki framhjá sér fara. Fjölmenning- arsamfélag – kristið samfélag Á FRÆÐSLUMORGNI í Hall- grímskirkju nk. sunnudag 28. okt. kl 10 mun Haraldur Ólafsson, fv. prófessor í mannfræði, ræða efnið „Fjölmenningarsamfélag – kristið samfélag“. Orðið „fjölmenningarsam- félag“ heyrist æ oftar í um- ræðunni um samfélagsmál, bæði hér á landi og erlendis og til- raunir eru í gangi með fjölmenn- ingarlega kennslu. Ýmsar spurn- ingar vakna þessu samfara. Hvað er fjölmenning? Er það eitthvað nýtt? Til skamms tíma hefur ver- ið talað um kristin þjóðfélög Evr- ópu. Er það liðin tíð? Er hægt að skilgreina fjölmenningarsam- félög sem kristin samfélög? Að loknu erindi Haraldar verður tækifæri til fyrirspurna og sam- ræðna áður en guðsþjónusta hefst kl. 11, en hún er helguð minningu Hallgríms Péturssonar og 15 ára vígsluafmæli Hall- grímskirkju. Séra Sigurður Páls- son prédikar við guðsþjónustuna. Fimmtán ára vígsluafmæli Hallgrímskirkju SUNNUDAGINN 28. okt. verður hátíð í Hallgrímskirkju, en þá eru liðin 15 ár frá vígslu kirkjunnar. Kl. 11 f.h. verður sungin Hall- grímsmessa, eins og gert hefur verið á ártíð séra Hallgríms Pét- urssonar, 27. október, frá því söfnuðurinn var stofnaður. Þar sem þann dag ber nú upp á laug- ardag var ákveðið að slá þessum minningarhátíðum saman. Við guðsþjónustuna prédikar séra Sigurður Pálsson, sókn- arprestur og þjónar fyrir altari ásamt formanni Listvinafélags Hallgrímskirkju, séra Kristjáni Val Ingólfssyni. Mótettukór Hall- grímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar og Ásgeir H. Steingrímsson og Einar St. Jóns- son leika á trompeta. Að guðsþjónustu lokinni mun Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri, afhjúpa listaverkið Praesesn historicum eftir Kristin E. Hrafnsson, með rithönd Sig- urbjörns Einarssonar biskups. Verkinu hefur verið komið fyrir í nýgerðum safnaðargarði við suð- urhlið kirkjunnar, sem þá verður opnaður. Að því loknu verður boðið upp á léttar veitingar í safnaðarsal. Að venju er barnastarf í kirkj- unni á sama tíma og guðsþjón- ustan. Kórtónleikar í Hjallakirkju SJÖ kórar frá Kópavogi og Reykjavík, koma fram, ásamt söngstjórum sínum, í Hjallakirkju laugardaginn 27. október kl. 17. Kórarnir sem um ræðir eru kór Árbæjarkirkju, kór Breiðholts- kirkju, kór Digraneskirkju, kór Fella- og Hólakirkju, kór Graf- arvogskirkju, kór Hjallakirkju og kór Seljakirkju. Samstarf kór- anna hefur verið blómlegt und- anfarinn áratug og er þetta í 5. sinn sem þeir standa sameig- inlega að tónleikum. M.a. hafa verið frumflutt tvö stór íslensk tónverk, samin sérstaklega fyrir kórana. Að þessu sinni munu kór- arnir syngja hver í sínu lagi, und- ir stjórn síns söngstjóra og verð- ur efnisskráin því fjölbreytt. Miðaverð er 1.000 kr., en 500 kr. fyrir eldri borgara og börn. Allir eru hjartanlega velkomnir. Sr. Hallgríms minnst ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11:00. Guðsþjónusta kl. 14:00. HRAFNISTA: Guðsþjónusta kl. 15:30. Árni Bergur Sigurbjörnsson. BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl. 11:00. Foreldrar hvattir til þátttöku með börnum sínum. Organisti Pálmi Sigurhjart- arson. Guðsþjónusta kl. 14:00. Pálmi Matthíasson. DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11:00 á Tónlist- ardögum Dómkirkjunnar. Prestur sr. Jakob Ág. Hjálmarsson. Organisti Marteinn H. Friðriksson. Dómkórinn syngur Litla org- elmessa eftir J. Haydn. Útvarpað. Fjöl- skylduguðsþjónusta kl. 13:00 í umsjá Bolla Péturs Bollasonar. Setning Tónlist- ardaga kl. 17:00. Sjá heimasíðu: www. domkirkjan.is GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11:00. Guðsþjónusta kl. 11:00. Kirkjukór Grens- áskirkju syngur. Organisti Árni Arinbjarn- arson. Ólafur Jóhannsson. GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili: Guðsþjónusta kl. 10:15. Organisti Kjartan Ólafsson. Sr. Kjartan Örn Sigurbjörnsson. HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðslumorgunn kl. 10:00. Fjölmenningarsamfélag – kristið samfélag: Haraldur Ólafsson, fv. prófess- or. Siðbótardagurinn. Messa og barna- starf kl. 11:00. Umsjón barnastarfs Magn- ea Sverrisdóttir. Mótettukór Hallgríms- kirkju syngur undir stjórn Harðar Áskels- sonar. Sr. Sigurður Pálsson. HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11:00. Umsjón sr. Helga Soffía Konráðs- dóttir og Guðrún Helga Harðardóttir. Messa kl. 14:00. Organisti Sigrún Magna Þórsteinsdóttir. Sr. Helga Soffía Konráðs- dóttir. LANDSPÍTALI Hringbraut: Guðsþjónusta kl. 10:30. Sr. Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands biskups.Messa og barnastarf kl. 11. Ást- ríður Sigurðardóttir, guðfræðingur, predik- ar. Fermdur verður Pálmi Pétursson, Vest- urbergi 129. Kór Langholtskirkju syngur. Organisti Jón Stefánsson. Barnastarfið hefst í kirkjunni en síðan verður farið í safnaðarheimilið þar sem Gunnar leiðir stundina ásamt Bryndísi. Hressing í safn- aðarheimilinu á eftir. Kl. 16 halda tíu kórar kirkjunnar og sönghópar er tengjast kirkj- unni söngskemmtun í Langholtskirkju og verður dagskráin fjölbreytt og í léttum dúr. Miðaverð er kr. 1.000. LAUGARNESKIRKJA: Messa og sunnu- dagaskóli kl. 11:00. Kór Laugarneskirkju leiðir safnaðarsöng undir stjórn Gunnars Gunnarssonar. Sr. Bjarni Karlsson þjónar fyrir altari og prédikar. Sunnudagaskólinn undir stjórn sr. Jónu Hrannar Bolladóttur og hennar starfsmanna. Fulltrúar lesara- hóps Laugarneskirkju flytja ritningarlestra. Eygló Bjarnadóttir er meðhjálpari. Sigríður Finnbogadóttir annast messukaffið á eftir. NESKIRKJA: Messa kl. 11:00. Prestur sr. Örn Bárður Jónsson. Organisti Reynir Jón- asson. Molasopi eftir messu. Sunnudaga- skólinn kl. 11:00. 8–9 ára starf á sama tíma. SELTJARNARNESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11:00. Sunnudagaskólinn á sama tíma. Bjóðum börnin sérstaklega velkomin til skemmtilegrar samveru. Organisti Viera Manasek. Prestur sr. Birgir Ásgeirsson. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Guðsþjónusta kl. 14:00. Barnastarf á sama tíma. Gídeon- kynning. Bragi Bergsveinsson prédikar. Maul eftir messu. ÍSLENSKA KIRKJAN ERLENDIS: Gauta- borg. Messa í Norsku sjómannakirkjunni sunnudag kl. 14. Prestur sr. Skúli S. Ólafs- son. Kórarnir syngja. Við hljóðfærið Tuula Jóhannesson. Kirkjukaffi. FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Barna- og fjöl- skyldumessa klukkan 11:00. Börn og ung- lingar frá Chapel of light á Keflavíkurvelli koma í heimsókn. Sameiginleg æskulýðs- ferð á skauta eftir messu. Hreiðar Örn Zoega-Stefánsson predikar. Tónlist mess- unnar er í höndum tónlistarstjóranna okk- ar þeirra Carls Möller og Önnu Sigríðar Helgadóttur. Allir velkomnir. Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Þór Hauksson. Organisti Pavel Manések. Kirkjukórinn syngur. Barnaguðs- þjónusta á sama tíma í safnaðarheimilinu. Söngur, sögur og fræðsla. Kaffi, ávaxta- safi og spjall eftir guðsþjónusturnar. Prest- arnir. BREIÐHOLTSKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón- usta kl. 11. Kirkjuprakkarar koma í heim- sókn. Eldri barnakór syngur. Tómasar- messa kl. 20 í samvinnu við félag guðfræðinema og kristilegu skólahreyf- inguna. Fyrirbænir, máltíð Drottins og fjöl- breytt tónlist. Organisti Sigrún Þórsteins- dóttir. Gísli Jónasson. DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11. Prestur sr. Magnús B. Björnsson. Organisti Kjart- an Sigurjónsson. Kór Digraneskirkju A hópur. Sunnudagaskóli á sama tíma í kap- ellu á neðri hæð kirkjunnar. Léttar veit- ingar í safnaðarsal að messu lokinni. Aðal- fundi verður framhaldið kl. 13.30. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11:00. Prestur Guðmundur Karl Ágústsson. Organisti Lenka Mátéová. Barnaguðsþjón- usta á sama tíma í umsjón Elínar Elísabet- ar Jóhannsdóttur. GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11:00. Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir prédik- ar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogs- kirkju syngur. Organisti: Bjarni Þór Jónat- ansson. Barnaguðsþjónusta kl. 11:00. Prestur: Sr. Vigfús Þór Árnason. Umsjón: Ása Björk, Jóhanna Ýr, Hlín og Bryndís. Undirleikari: Guðlaugur Viktorsson. Barna- guðsþjónusta kl. 13:00 í Engjaskóla. Prestur: Sr. Vigfús Þór Árnason. Umsjón: Ása Björk, Jóhanna Ýr, Hlín og Bryndís. Undirleikari: Guðlaugur Viktorsson. Prest- arnir. HJALLAKIRKJA: Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson þjónar. Barnakór Hjallaskóla kemur í heim- sókn. Stjórnandi Guðrún Magnúsdóttir. Fé- lagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsöng. Organisti Jón Ólafur Sig- urðsson. Barnaguðsþjónusta í Lindaskóla kl. 11 og í Hjallakirkju kl. 13. Við minnum á bæna- og kyrrðarstundir á þriðjudögum kl. 18. Prestarnir. KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf í safnaðar- heimilinu Borgum kl. 11:00. Messa kl. 11:00. Kór Kópavogskirkju syngur og leið- ir safnaðarsöng undir stjórn Julian Hewlett organista. Kópamessa kl. 20:30 þar verð- ur lögð áhersla á létta tónlist og almenna þátttöku kirkjugesta í söng og öðrum þátt- um helgihaldsins. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirs- son. SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11.00. Fræðsla fyrir börn, mikill söngur og nýr límmiði. Guðsþjónusta kl. 14:00. Fé- lagar í Rangæingafélaginu eru gestir í guðsþjónustunni og hafa samveru í safn- aðarheimilinu að messu lokinni. Bolli Pét- ur Bollason guðfræðingur prédikar. Altaris- ganga. Organisti er Gróa Hreinsdóttir. Guðsþjónusta í Skógarbæ kl. 16.00. Bolli Pétur Bollason prédikar. Organisti er Gróa Hreinsdóttir. Sóknarprestur. ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Morgun- guðsþjónusta kl. 11. Fræðsla fyrir börn og fullorðna. Samkoma kl. 20. Edda Matth- íasdóttir Swan prédikar. Allir velkomnir. FRÍKIRKJAN VEGURINN: Fjölskyldusam- koma kl. 11. Léttur hádegisverður að henni lokinni. Bænastund kl. 19.30. Sam- koma kl. 20. Benedikt Jóhannsson prédik- ar, lofgjörð og fyrirbænir. Allir hjartanlega velkomnir. KLETTURINN: Almenn samkoma sunnu- dag kl. 11 fyrir alla fjölskylduna. Fimmtud: Alfa námskeið kl. 19. Allir velkomnir. FÍLADELFÍA: Almenn samkoma kl. 16:30, lofgjörðarhópur Fíladelfíu leiðir söng. Ræðumaður Hafliði Kristinsson. Miriam Óskarsdóttir syngur einsöng. Allir hjartan- lega velkomnir. HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudag kl. 19.30 bænastund, kl. 20 hjálpræðissam- koma. Ragnheiður Jóna Ármannsdóttir tal- ar. Allir hjartanlega velkomnir. KFUM og KFUK v/Holtaveg: Samkoma í dag kl. 17. „Barátta og andspyrna utan frá“. Upphafsorð: Tómas Torfason. Ræðu- maður sr. Íris Kristjánsdóttir. Barnastarf á sama tíma og matsala að samkomu lok- inni. Vaka kl. 20:30. „Hjarta sem slær í takt.“ Ragnhildur Ásgeirsdóttir talar. Mikil lofgjörð og fyrirbæn. Allir velkomnir. KRISTNIBOÐSSAMBANDIÐ. Samkoma verður í Stykkishólmskirkju á morgun sunnudag kl. 20:30. Ragnar Gunnarsson kristniboði, sem er nýkominn frá Afríku, segir frá starfinu í Kenýu og sýnir litmyndir. Benedikt Arnkelsson flytur hugleiðingu. Allir velkomnir. Ragnar mun einnig prédika í guðsþjónustunni kl. 14. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Reykjavík - Kristskirkja í Landakoti: Sunnudaga: Hámessa kl. 10.30: Messa á ensku kl. 18.00. Laugardaga kl. 14.00: Barnamessa. Alla virka daga: Messa kl. 18.00. Einnig messa kl. 8.00 suma virka daga (sjá nánar á tilkynningablaði á sunnudögum). 1. nóv.: Allraheilagra- messa: Biskupsmessa kl. 18.00. Að henni lokinni er skv. gömlum hefðum blessun kirkjugarðsins (ef veður leyfir). 2. nóv. Allrasálnamessa. Minning allra fram- liðinna. Messur þann dag kl. 7, 7.30, 8 og 18. Að kvöldmessu lokinni er tilbeiðslu- stund til kl. 19.15. Reykjavík - Maríukirkja við Raufarsel: Sunnudaga messa kl. 11. Laugardaga messa á ensku kl. 18.30. Virka daga messa kl. 18.30. 1. nóv. Allraheilaga- messa: messa kl. 18.30. 2. nóv. Allra- sálnamessa: messa kl. 18.30. Riftún í Ölfusi: Sunnudaga messa kl. 17. Miðvikud: Messa kl. 20. Hafnarfjörður - Jósefskirkja: Sun. 28. okt. Biskupsmessa kl. 10.30. Miðvikudaga skriftir kl. 17.30. Messa kl. 18.30. 1. nóv: Allraheilagamessa: Helgistund kl. 17.30, messa kl. 18.30. 2. nóv: Allrasálna- messa: messa kl. 18.30. Karmelklaustur: Sunnudaga messa kl. 8.30. Virka daga messa kl. 8. 1. nóv: Allra- heilagamessa: Messa kl. 8.30. . 2. nóv: Allrasálnamessa: Messur kl. 8, 8.30 og 17. Minning allra framliðinna. Keflavík - Barbörukapella, Skólavegi 38: Sunnud. 28. okt. Biskupsmessa kl. 14. Fimmtudaga skriftir kl. 19.30. Bænastund kl. 20. 1. nóv. allra heilagramessa, stórhá- tíð. Messa kl. 20. 2. nóv: Allrasálna- messa. Messa kl. 20. Stykkishólmur, Austurgötu 7: Sunnudaga messa kl. 10. 1. nóv: Allraheilagamessa: Messa kl. 18.30. 2. nóv. Allrasálna- messa: messa kl. 7. Suðureyri: Messa sunnudaga kl. 18. 2. nóv: Allrasálnamessa: Messa kl. 18. Bolungarvík: Messa sunnudaga kl. 16. 2. nóv: Allrasálnamessa kl. 20. Flateyri: Messa laugardaga kl. 18. Fimmtud. 1. nóv: Allraheilagamessa: Messa kl. 20. Ísafjörður: Messa sunnudaga kl. 11. 1. nóv: Allraheilagamessa: Messa kl. 18.30. Akureyri: Laugardaga messa kl. 18. Sunnudaga messa kl. 11. 1. nóv: Allraheil- agramessa: Messa kl. 18. FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ: Sam- koma á morgun kl. 16. REYNIVALLAKIRKJA í Kjós: Guðsþjónusta kl. 14. Gunnar Kristjánsson, sóknarprest- ur. BRAUTARHOLTSKIRKJA á Kjalarnesi: Barnaguðsþjónusta kl. 11 f.h. Gunnar Kristjánsson, sóknarprestur. LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kl. 11:00. Barna- og fjölskylduguðsþjónusta. Litlir lærisveinar og gestir okkar, Barnakór Álftanesskóla, syngja mikið og vel og leiða stundina með stjórnendum sínum, Helgu Loftsdóttur og Guðrúnu Helgu Bjarnadótt- ur. Biblíufræðsla og brúðuleikrit. Allir vel- komnir, líka þeir sem ekki geta komið í fylgd með börnum eða barnabörnum. Kaffisopi á eftir í Safnaðarheimilinu. Kl. 14:00. Guðsþjónusta á Hraunbúðum. Allir velkomnir. Kór Landakirkju. Guðmundur organisti og sr. Baldur Gautur Baldursson. Kl. 18:00. Fermingarbörn safnaðarins mæta á fund með góðum gesti frá Konsó í Eþíópíu. Kl. 20:30. Kaffihúsamessa með sama sniði og í fyrravetur. Tónsmíðafélag Vestmannaeyja flytur vandaða tónlistar- dagskrá. Sr. Kristján Björnsson, æsku- lýðsleiðtogar og ýmsir aðrir flytja Guðs orð og leiða bænir. Húsið opnað kl. 20:00 til að fólk geti fengið sér kaffi áður en sest er að borðum. Notaleg stund við kertaljós og ljúfa tóna. Enginn aðgangseyrir. Kaffi, te og djús í boði sóknarnefndar. MOSFELLSKIRKJA: Messa kl. 11. Prestur sr. Guðný Hallgrímsdóttir. Kirkjukór Lága- fellssóknar. Organisti Jónas Þórir. Barna- guðsþjónusta í Lágafellskirkju kl. 13 í umsjá Þórdísar Ásgeirsdóttur, djákna, Sylvíu Magnúsdóttur guðfræðinema og Jens Guðjónssonar, menntaskólanema. Jón Þorsteinsson. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Messa kl. 11. heimsókn frá Eyrarbakka og Stokkseyri. Sr. Úlfur Guðmundsson, prófastur prédik- ar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Gunnþóri Þ. Ingasyni sóknarpresti. Kirkjukórar það- an leiða söng ásamt Kór Hafnarfjarðar- kirkju undir stjórn organista sinna. Sunnu- dagaskólar á sama tíma í safnaðar- heimilinu Strandbergi og Hvaleyrarskóla. Síðdegis- og tónlistarmessa kl. 17. Prest- ur sr. Kristín Þ. Tómasdóttir, héraðsprest- ur. Organisti Natalía Chow. Kór: Félagar úr Kór Hafnarfjarðarkirkju. FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barnasam- koma kl. 11:00 – Umsjón Sigríður Kristín, Hera, Edda og Örn Arnarson gítarleikari. Mikill söngur, fræðsla, leikir og brúður koma í heimsókn. Starf fyrir alla fjölskyld- una. Kvöldvaka kl. 20:00 – Þema kvöld- vökunnar er trú – hverju eigum við að trúa? – hver er tilgangurinn? Dagskrá í tali og tónum. Örn Arnarson og hljómsveit flytja söngdagskrá og leiða almennan söng ásamt félögum úr kór kirkjunnar. Kaffihús í safnaðarheimilinu að lokinni kvöldvöku. Einar Eyjólfsson. VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11:00. Skemmtilegar stundir fyrir börn á öllum aldri. Guðsþjónusta kl. 14:00. Prestur: sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Kirkjukór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Úlriks Ólasonar. VÍDALÍNSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Kirkjukórinn leiðir sönginn undir stjórn Jó- hanns Baldvinssonar, organista. Ferming- arbörn lesa ritningartextana. Sr. Friðrik J. Hjartar og Nanna Guðrún Zoëga, djákni, þjóna. Sunnudagaskólinn er á sama tíma. Boðið verður upp á léttan málsverð í safn- aðarheimilinu að lokinni messu. Rútuferð frá Hleinum kl. 10.40. Allir velkomnir. Prestarnir. BESSASTAÐAKIRKJA: Bæna- og kyrrðar- stund í kirkjuni kl. 20.30. Bænarefnum má koma til prestanna. Allir velkomnir. Sunnudagaskólinn er í Álftanesskóla kl. 13.00. Rúta ekur hringinn á undan og eft- ir. Minnt er á að á miðvikudaginn kl. 13.00 hefst starf fyrir aldraða á vegum safnaðar- ins í Haukshúsum. Prestarnir. KÁLFATJARNARSÓKN: Kirkjuskólinn í dag, laugardag, kl. 11.00 í Stóru-Voga- skóla. Styðjið börnin til þátttöku í fjörugu og fræðandi starfi. Prestarnir. GRINDAVÍKURKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11. Fjölbreytt og skemmtilegt barna- efni. Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr. Hjörtur Hjartarson. Organisti Örn Falkner. Kirkjukór Grindavíkurkirkju leiðir safnaðar- söng. Væntanleg fermingarbörn lesa upp. Foreldrar eru hvattir til að mæta með ferm- ingarbörnunum í guðsþjónustuna. Sóknar- nefndin. ÚTSKÁLAKIRKJA: Laugardagur: Kirkju- skólinn kl. 14 í Samkomusalnum á Garð- vangi. Heimsókn Kirkjuskólans í Garði á Garðvang. HVALSNESSÓKN: Laugardagur: Kirkju- skólinn kl. 11 í Safnaðarheimilinu í Sand- gerði. YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Guðsþjón- usta sunnudag kl. 14. Sunnudagaskóli kl. 11. Foreldrar hvattir til að mæta með börn- unum. Sóknarprestur. NJARÐVÍKURKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11. Foreldrar hvattir til að mæta með börn- unum. Sóknarprestur. KEFLAVÍKURKIRKJA: Aldursskiptur sunnudagaskóli kl. 11 árd. Undirleikari í sunnudagaskóla: Helgi Már Hannesson. Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr. Ólafur Oddur Jónsson. Kór Keflavíkurkirkju syng- ur. Organisti Hákon Leifsson. Meðhjálpari Hrafnhildur Atladóttir. Samvera með ferm- ingarbörnum og foreldrum þeirra kl. 20. Systkinin Sigurður Bjarni Gíslason og Þóra Gísladóttir aðstoða. Stutt kynning á ferm- ingarstörfum fyrir foreldra fermingarbarna. SELFOSSKIRKJA: Messa og sunnudaga- skóli kl. 11. Súpa og brauð eftir messu. Morguntíð sungin þriðjudaga til fösudaga kl. 10. Kaffi og brauð að henni lokinni. Krakkaklúbbur 1.–3. bekkur kl. 16.10–17 þriðjudaga. Foreldrasamvera miðvikudaga kl. 11. Krakkaklúbbur 4. bekkur og eldri kl. 16.10 miðvikudaga. Sóknarprestur. KOTSTRANDARKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11. Rútuferð frá Hveragerðiskirkju kl. 10.45. Jón Ragnarsson. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa sunnu- dag kl. 11. Sóknarprestur. TORFASTAÐAKIRKJA: Barnaguðsþjón- usta sunnudag kl. 14. Allir velkomnir jafnt ungir sem aldnir. Sóknarprestur. HALLGRÍMSKIRKJA í Saurbæ: Messa sunnudaginn 28. okt. kl. 14.00. Sr. Þor- björn Hlynur Árnason. prófastur, prédikar. Ólöf Sigríður Valsdóttir syngur einsöng. Kaffiveitingar á Hlöðum að lokinni messu og þar mun sr. Þórir Stephensen flytja er- indi um sr. Hallgrím og félagar úr Kvæða- mannafélaginu Iðunni fara með rímur. Allir velkomnir. Sóknarprestur. ÓLAFSVÍKURKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11 með Sólveigu, Karli, Halla hanska og öllum hinum. Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Prédikunarstóll, ný altarisklæði og hökull tekin í notkun. Prófasturinn sr. Ingiberg J. Hannesson, prédikar. Messukaffi á eftir. Allir velkomnir. Sóknarprestur. MÖÐRUVALLAKIRKJA: Messa verður fyrir allt prestakallið sunnudag kl. 14. Sr. Gylfi Jónsson prédikar. Sóknarprestur þjónar fyrir altari. Messukaffi á prestssetrinu eft- ir messu. Verum öll velkomin. Sóknar- prestur. EGILSSTAÐAKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11. Messa kl. 14. 29. okt. mánud.: Kyrrð- arstund kl. 18 og opinn 12 spora fundur. Sóknarprestur. Guðspjall dagsins: Brúðkaupsklæðin. ( Matt. 22).

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.