Morgunblaðið - 27.10.2001, Page 50

Morgunblaðið - 27.10.2001, Page 50
DAGBÓK 50 LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Fréttablaðið sér um blaðburð ÞEGAR Fréttablaðið hóf göngu sína var gerður samningur við undirverk- taka um dreifingu á blaðinu. Það fyrirtæki lenti í miklum rekstrarerfiðleik- um sem leiddu til þess að það dróst úr hömlu að greiða blaðberum laun. Þetta var óviðunandi fyrir Fréttablaðið. Því hefur samningum við þetta fyrir- tæki verið rift og Frétta- blaðið hefur nú greitt upp vangoldin laun blaðbera og sér sjálft um dreifingu á blaðinu. Blaðberar sem bera út Fréttablaðið eru um 550 talsins og hafa flestir þeirra borið blaðið út frá því það hóf göngu sína fyrir sex mánuðum. Þeir hafa, sam- kvæmt nýrri könnun sem gerð var í september af PricewaterhouseCoopers, borið blaðið út á 95% heim- ila á höfuðborgarsvæðinu. Í einhverjum tilfellum kunna þó upplýsingar um blað- bera að hafa verið ófull- nægjandi í gögnum undir- verktakans. Ef einhverjir fyrrum starfsmenn þess fyrirtækis telja sig eiga inni ógreidd laun vegna útburðar á Fréttablaðinu hvetjum við þá til að hafa samband án tafar í síma 595 6500. Vígdís Jóhannsdóttir, dreifingarstjóri Fréttablaðsins. Launin ekki greidd ÉG vil taka undir það sem Ingibjörg skrifar í Velvak- anda sl. miðvikudag um að blaðburðarfólk Frétta- blaðsins fái ekki greidd launin sín og vil ég vara aðra við því að bera Frétta- blaðið út. María Halldórsdóttir. Dýrahald Berta er týnd ÞESSI fallega kisa heitir Berta. Hún á heima í Lauf- engi 84 í Grafarvoginum og hefur ekki komið heim síð- an föstudaginn 12. október. Hún er ákaflega mannelsk og ljúf og hennar er sárt saknað. Hún er eyrna- merkt í vinstra eyra, R-0217. Þeir sem vita hvar Berta er niðurkomin eða eitthvað um afdrif hennar eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband í síma 567 8697 eða 695 1619. Eig- endur Bertu hafa miklar áhyggjur af henni og yrðu allar upplýsingar vel þegn- ar. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Víkverji skrifar... MATREIÐSLUÞÆTTIR hafalöngum verið eitt eftirlætis- sjónvarpsefni Víkverja. Það er eitt- hvað óskaplega heillandi við það að horfa á meistarakokka leika listir sínar, hvort sem þeir eru að töfra fram rétti í þeim tilgangi að sýna áhorfendum fagmannleg vinnu- brögð, kenna þeim eða einfaldlega að skemmta. Mætti leiða líkur að því að þessi takmarkalausa aðdáun hafi eitthvað með minnimáttar- kennd Víkverja að gera á vígvelli eldhússins. Í gegnum árin hefur verið heldur fátt um fína drætti í íslensku sjón- varpi hvað matreiðsluþætti varðar að undanskildum þáttum Sigga Hall. Eins ágætur og hann er, full- nægðu þættir hans ekki þörfum Víkverja sem hefur því leitað á náð- ir Fjölvarpsins, nánar tiltekið BBC Prime, en sú stöð býður upp á úrval af bestu matreiðsluþáttum sem breska ríkisstöðin framleiðir. x x x UNDANFARIÐ hafa íslenskustöðvarnar loksins verið að átta sig á ágæti þessa sjónvarpsefn- is og tveir prýðisþættir verið í boði, hvor öðrum frumlegri og flottari. Nakti kokkurinn hefur unnið hug og hjörtu fólks með látlausu fasi sínu og jarðbundinni, næsta ruddalegri eldamennsku og Nigella töfrar fram hvern réttinn á fætur öðrum á skot- stundu, eins og ekkert væri auð- veldara. Verst hvað Víkverji getur látið það angra sig hvernig hún sveiflar slegnu hárinu fram og aftur yfir pottunum. Undarlega ólystugt athæfi hjá öðrum eins matgæðingi. x x x Í VIKUNNI hófst síðan enn einnnýi matreiðsluþátturinn og það íslenskur í ofanálag, eða réttara sagt íslensk framleiðsla. Þetta er Einn, tveir og elda sem Stöð 2 sýnir. Fyrirmyndin er einhver allra vin- sælasti matreiðsluþáttur í heimin- um, breski þátturinn Ready, Steady, Cook. Vel heppnaður þáttur þar sem tekist hefur að sameina tvennt sem sjónvarpsáhorfendur eru sólgnir í, hagsýna og óheflaða matargerð og skemmtilegan leik. Þátturinn gengur út á að tveir færir matreiðslumenn keppa sín á milli um hvor stendur sig betur í að mat- reiða á tuttugu mínútum. Hráefnið kemur úr pokum tveggja útvalinna þátttakenda sem fá ákveðna upp- hæð til innkaupanna. Allt leggst á eitt um að þátturinn reynist hin besta afþreying. Léttur og hlédræg- ur stjórnandi, framúrskarandi kokkar, hressir og skemmtilegir, sem leika sér að því að matreiða kóngafæðu úr hræbillegu hráefni á skottíma, einungis með því að nota hugmyndaflugið og góða skapið. Auðvitað er það sjónvarpskokkur númer eitt, Siggi Hall, sem stjórnar íslensku útgáfunni. Fyrsti þátturinn var á miðvikudaginn og fyrir mann sem vanist hefur ensku fyrirmynd- inni var ekki hægt annað en að finn- ast íslenska eftirlíkingin svolítið hallærisleg. Svona a.m.k. fyrst um sinn. Allir að rembast of mikið við að vera hressir og hver brandarinn af öðrum missti marks og vel það. Þátturinn á þó eflaust eftir að braggast og njóta vinsælda. Að lokum er eitt atriði í íslensku útgáfunni sem slær mann en það tengist upphæðinni sem þátttak- endur fá til innkaupanna. Í Eng- landi er miðað við 5 pund eða 750 krónur en hér má kaupa inn fyrir allt að tvö þúsund krónur. Svipað magn virðist þó koma upp úr pok- unum hér og í Englandi. Athyglis- vert, ekki satt? 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 LÁRÉTT: 1 sköpulag, 8 biskups- húfa, 9 blunda, 10 magur, 11 safna saman, 13 fram á leið, 15 næðis, 18 óbreyttur, 21 frístund, 22 skil eftir, 23 styrkjum, 24 svalur. LÓÐRÉTT: 2 þráttar, 3 hressa við, 4 örskotsstund, 5 kvendýr, 6 skömm, 7 ræfil, 12 hóp- ur, 14 rotskemmdar, 15 menn, 16 duglegur, 17 blaðlegg, 18 hvell, 19 moluðu, 20 vítt. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 ópera, 4 sægur, 7 ólgan, 8 kurfs, 9 auk, 11 iðan, 13 barð, 14 eitla, 15 fans, 17 krás, 20 enn, 22 nálin, 23 æf- ing, 24 Ingvi, 25 totta. Lóðrétt: 1 ósómi, 2 ergja, 3 arna, 4 sekk, 5 garfa, 6 ræs- ið, 10 urtin, 12 nes, 13 bak, 15 fangi, 16 nálæg, 18 reist, 19 sigla, 20 enni, 21 næmt. K r o s s g á t a UNDIRRITAÐUR þekkir mann í Stykkishólmi sem undanfarin ár hefir róið á lítilli trillu í sóknar- dagakerfinu. Þetta er lítil trilla sem aðeins er róið á í bestu veðrum og hann er einn um borð með hand- snúna rúllu. Á þessari bátskel hefir hann verið að fiska um 20 tonn á ári sem er varla meira en þarf til lágmarks framfærslu heimilis. Nú bregður svo við að við kvótasetningu krókabáta eru honum úthlutuð fjögur tonn af þorski og þau síðan skert um 15% þannig að á þessu fiskveiðiári má þessi maður aðeins fiska 3,4 tonn af þorski. Þetta er um 85% skerðing og getur hver litið í eigin barm sem þarf að taka á sig þannig nið- urskurð á tekjum sínum. Kannski er það skoðun þeirra sem stjórna fisk- veiðimálum þjóðarinnar að þessir einyrkjar séu að rústa fiskistofnunum, en eitthvað heyrðist í LÍÚ ef stóru útgerðirnar væru skertar um 85% í aflamarki. Hver er hagur þjóð- arinnar af þessu verklagi? Og hvert er réttlætið gagn- vart þeim mönnum sem eru að reyna að framfleyta sér og sínum á þennan hátt? Kannski lætur fólk þetta yf- ir sig ganga en mikið má þanþol fólks vera ef eitt- hvað brestur ekki og hrein- lega verður uppreisn meðal þessa fólks þar sem örugg- lega er um mörg álíka dæmi að ræða. Og þetta er enn verra fyrir það að í þessum tilfellum er um menn að ræða sem eru komnir á þann aldur að þeir eiga mjög erfitt með að fá aðra vinnu. Í þessu tilfelli um hálfsjötugan mann að ræða. Ein spurning að lokum: Koma þessir menn og fjöl- skyldur þeirra til með að kjósa þá sem standa að þessum ólögum í næstu kosningum? Þórir Guðmundsson. Lítil saga úr kvótakerfinu Skipin Reykjavíkurhöfn: Haukur fer í dag. Fréttir Stuðningsfundir fyrr- verandi reykingafólks. Fólk sem sótt hefur námskeið gegn reyk- ingum í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, fundur í Gerðubergi á þriðjud. kl. 17.30. Mannamót Bólstaðarhlíð 43. Fimmtudaginn 1. nóv. kl. 19–21 leiðbeinir Ragnar Aðalsteinsson um vísnagerð, dansað á eftir. Allir velkomnir. Vetrarfagnaður verður fimmtudaginn 8. nóv- ember. Hlaðborð, sal- urinn opnaður kl. 16.30, dagskráin hefst með borðhaldi kl. 17. Kvöld- vökukórinn syngur und- ir stjórn Jónu Kristínar Bjarnadóttur, happ- drætti, Húnar (Ragnar Leví) leika fyrir dansi. Skráning fyrir miðviku- daginn 7. nóvember s. 568-5052. Allir velkomn- ir. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið Hlaðhömrum er á þriðjudögum og fimmtu- dögum kl. 13–16.30, spil og föndur. Jóga á föstu- dögum kl. 13.30. Kóræf- ingar hjá Vorboðum, kór eldri borgara í Mos- fellsbæ á Hlaðhömrum fimmtudaga kl. 17–19. Uppl. hjá Svanhildi í s. 5868014 kl. 13–16. Uppl. um fót-, hand- og and- litssnyrtingu, hár- greiðslu og fótanudd, s. 566-8060 kl. 8–16. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Ganga kl. 10, rúta frá Miðbæ kl. 9:50. Á mánu- dag verður púttað í Bæj- arútgerðinni kl. 10 og fé- lagsvist kl. 13:30. Á þriðjudag tréút- skurður í Lækjarskóla kl. 13. Saumar og bridge kl. 13:30. Félagsstarf aldraðra Lönguhlíð 3. Haustbas- arinn verður laugardag- inn 3. og sunnudaginn 4. nóvember. Tekið á bas- armunum frá mánudeg- inum 29. október til vikuloka. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan opin virka daga frá kl. 1013. Kaffi – blöðin og matur í hádegi. Sunnu- dagur: Félagsvist kl. 13.30 4ra daga keppni annan hvern sunnudag. Dansleikur kl. 20. Caprí- tríó leikur. Mánudagur: Brids kl. 13. Dans- kennsla, framhald kl. 19 og byrjendur kl. 20.30. Þriðjudagur: Skák kl. 13 og alkort kl. 13.30. Miðvikudagur: Göngu- Hrólfar fara í göngu frá Ásgarði, Glæsibæ, kl. 10. Landssamband eldri borgara og Skálholts- skóli bjóða til fræðslu- daga í Skálholti 29.–31. október. Fyrirlestrar, almennar umræður, kvöldvökur, gönguferð- ir, staðarskoðun og boð- ið til tíðasöngs, umsjón Sr. Bernharður Guð- mundsson rektor. Skoð- unarferð um Krýsuvík 2. nóvember nk. – nýir hverir og gömul gíga- svæði við Grænavatn. Kaffi og meðlæti hjá Ís-hestum. Leið- sögumaður: Sigurður Kristinsson. Brottför frá Ásgarði Glæsibæ kl. 13.30. Heilsa og hamingja laugardaginn 10. nóv- ember nk. í Ásgarði, Glæsibæ, hefst kl. 13.30, Laufey Steingríms- dóttir næringarfræð- ingur ræðir um hollt mataræði. Ásgeir Theó- dórs læknir, sérfræð- ingur í melting- arsjúkdómum, ræðir um krabbamein í ristli og væntanlega hóprann- sókn í leit að krabba- meini. Umræður á eftir. Upplýsingar og skrán- ing á ofangreint á skrif- stofu félagsins kl. 10–16 s. 588-2111. Silfurlínan opin á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 10–12 f.h. Skrifstofa fé- lagsins er flutt að Faxa- feni 12, sama síma- númer og áður. Félagsstarfið er áfram í Ásgarði, Glæsibæ. Gerðuberg. Sund og leikfimiæfingar í Breið- holtslaug á vegum ÍTR á mánudögum og fimmtudögum kl. 19.30, umsjón Edda Bald- ursdóttir íþróttakenn- ari. Boccia á þriðjudög- um kl. 13 og föstudögum kl. 9.30, umsjón Óla Kristín Freysteins- dóttir. Myndlistarsýn- ing Valgarðs Jörgensen opin í dag og á morgun frá kl. 13–16, listamað- urinn á staðnum. Veit- ingar í veitingabúð Gerðubergs. Fimmtu- daginn 1. nóvember kl. 13.15 félagsvist í sam- starfi við Fellaskóla, stjórnandi Eiríkur Sig- fússon. Allir velkomnir. Upplýsingar um starf- semina á staðnum og í síma 575-7720. Vesturgata 7. Flóa- markaður verður hald- inn fimmtudaginn 8. nóvember og föstudag- inn 9. nóvember frá kl. 13–16. Gott með kaffinu, allir velkomnir. Helgi- stund verður fimmtu- daginn 1. nóvember kl. 10:30, í umsjón séra Jakobs Ágústs Hjálm- arssonar dóm- kirkjuprests. Tómstundastarf eldri borgara í Reykjanesbæ boðið verður upp á spönskunámskeið, skráning í s. 861-2085. Kennari Guðrún Sveins- dóttir, námskeiðið byrj- ar þriðjudaginn 6. nóv. ef næg þátttaka fæst. Kirkjustarf aldraðra Digraneskirkju. Opið hús á þriðjudag kl. 11. Leikfimi, matur, helgi- stund og fleira. Sjálfsbjörg, félagsheim- ilið Hátúni 12. Kl. 14 op- ið hús. Gigtarfélagið. Leikfimi alla daga vikunnar. Létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Nánari uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. Húnvetningafélagið í Reykjavík. Vetrarfagn- aðurinn sem halda átti í Húnabúð laugardags- kvöldið 27. okt. fellur niður af óviðráðanlegum ástæðum. Félag Snæfellinga og Hnappdæla í Reykjavík árshátíð, laugardaginn 3. nóvember, í Breiðfirð- ingabúð, Faxafeni 14. Von er á gestum af Nes- inu. Heiðursgestir verða hjónin Stefán Jóhann Sigurðsson og Guðrún Alexandersdóttir frá Ólafsvík. Sex í sveit, frá Grundarfirði, skemmta á meðan gestir snæða há- tíðarkvöldverð. Að lok- um verður stiginn dans. Veislustjóri Jóhann Jón Ísleifsson frá Stykk- ishólmi. Snæfellingar og velunnarar þeirra vel- komnir á meðan húsrúm leyfir. Upplýsingar gefa: Ásthildur, s. 586-8311, Guðbjörg, s. 587-7092, Guðný, s. 567-9232, Hrafnhildur, s. 554-5354. Kristniboðssambandið þiggur með þökkum alls konar notuð frímerki, innlend og útlend, ný og gömul, klippt af með spássíu í kring eða um- slagið í heilu lagi (best þannig). Útlend smá- mynt kemur einnig að notum. Móttaka í húsi KFUM&K, Holtavegi 28, Rvík og hjá Jóni Oddgeiri Guðmunds- syni, Glerárgötu 1, Ak- ureyri. Breiðfirðingafélag- iðVetrarfagnaður verð- ur í Breiðfirðingabúð í kvöld og hefst kl. 22, Breiðbandið leikur gömludansana. Félagar mætið og takið með ykk- ur gesti. Vina- og líknarfélagið Bergmál. Opið hús verð- ur laugardaginn 3. nóv- ember kl. 16 í húsi Blindrafélagsins, Hamrahlíð 17, 2. hæð. Matur, kaffi, fjölda- söngur, tónlist leyni- gestir, Fjölmennum. Þátttaka tilkynnist í síma 552-1567, 864-4070 eða 891-9017. Kvenfélag Hreyfils. Vetrarstarfið hafið. Fyrsti fundur verður miðvikudaginn 31. okt. kl. 20. ath. breyttan fundardag. Minningarkort Minningarspjöld Kristniboðssambands- ins frást á skrifstofunni, Holtavegi 28 (hús KFUM og K gegnt Langholtsskóla) sími 588-8899. Minningarkort Stóra- Laugardalssóknar, Tálknafirði til styrktar kirkjubyggingarsjóði nýrrar kirkju í Tálkna- firði eru afgreidd í síma 456-2700. Í dag er laugardagur 27. október, 300. dagur ársins 2001. Fyrsti vetr- ardagur. Orð dagsins: Sumir miðla öðrum mildilega, og eignast æ meira, aðrir halda í meira en rétt er, og verða þó fátækari. (Orðskv. 11, 24.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.