Morgunblaðið - 27.10.2001, Síða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
TVÆR konur á þrítugsaldri létust og
tveir til viðbótar eru alvarlega slas-
aðir eftir harðan árekstur fólksbíls og
jeppa á Nesjavallavegi í gær.
Að sögn vakthafandi læknis á
slysadeild Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss í Fossvogi var talið líklegt
að konurnar tvær, sem voru farþegar
í aftursæti fólksbílsins, hafi látist
samstundis. Ökumaður og farþegi í
framsæti voru fluttir alvarlega slas-
aðir á slysadeild og þaðan á gjör-
gæsludeild. Þeir voru þó ekki taldir í
lífshættu.
Ökumaður jeppans hlaut sár í and-
liti og kvartaði undan eymslum í baki
og brjósti. Hann var lagður inn til
frekara eftirlits.
Bílarnir rákust saman á Nesja-
vallavegi, skammt frá vegamótum
Hafravatnsvegar og Nesjavallavegar.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Reykjavík virðist sem slys-
ið hafi orðið með þeim hætti að öku-
maður fólksbílsins hafi misst stjórn á
bílnum. Bíllinn hafi snúist á veginum
og í veg fyrir jeppann sem ekið var í
átt til Reykjavíkur. Báðir bílarnir
höfnuðu utan vegar.
Tilkynning um slysið barst
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
klukkan 12.38.
Tækjabíll slökkviliðsins var sendur
á staðinn auk neyðarbíls með lækni
og fjögurra annarra sjúkrabíla.
Morgunblaðið/Júlíus
Áreksturinn var gríðarlega harður og bera bifreiðarnar þess merki, þar sem þær liggja utan vegar við Nesjavallaveg.
Tvær ungar konur létust í
árekstri á Nesjavallavegi
;+ E
<?:>66@,
' * !
) ( E
SJÚKRALIÐAR hafa samþykkt
að boða til frekari verkfallsað-
gerða og mun verkfallið nú taka til
allra sjúkraliða í Sjúkraliðafélagi
Íslands, um 1.200 talsins. Um er
að ræða þrjú þriggja daga verk-
föll, með tveggja vikna millibili.
Hið fyrsta hefst 12. nóvember og
það síðasta 10. desember.
Sjúkraliðar minntu á kjarabar-
áttu sína í gær, fjölmenntu í fjár-
málaráðuneytið og afhentu Ragn-
heiði Árnadóttur, aðstoðarkonu
ráðherra, niðurstöðu atkvæða-
greiðslunnar, en 94% starfsmanna
ríkisins sem greiddu atkvæði sam-
þykktu verkfallsboðun.
Þá var haldið áfram í Ráðhús
Reykjavíkur þar sem Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri tók
á móti niðurstöðu atkvæðagreiðsl-
unnar meðal starfsmanna borgar-
innar, þar sem 87% samþykktu
verkfallsboðun.
Kristín Á. Guðmundsdóttir, for-
maður Sjúkraliðafélags Íslands,
léði borgarstjóra bak sitt svo hún
gæti kvittað fyrir móttöku skjals-
ins og minnti hún þá á að sjúkra-
liðar hefðu breitt bak. Bæði við
fjármálaráðuneytið og ráðhúsið
sagði Kristín að samningar sjúkra-
liða hefðu verið lausir í eitt ár og
að Sjúkraliðafélagið ætti tíu ára
afmæli í næsta mánuði. Kristín
sagði að félagið hefði vænst þess
að fá eitthvað annað en mínus í af-
mælisgjöf.
Sjúkraliðar sem starfa hjá rík-
inu hafa lagt niður störf þrjá daga
í senn með tveggja vikna millibili
frá 1. október. Þriðja verkfallið
sem áður hafði verið boðað til á
ríkisstofnunum hefst á miðnætti
annað kvöld. Verkfallið er farið að
hafa víðtæk áhrif á sjúkrahúsun-
um þar sem langan tíma tekur að
undirbúa hvert verkfall og svo aft-
ur að koma starfseminni í gang
eftir verkfall. Aðgerðum hefur
verið fækkað um tvo þriðju og eru
einungis bráðaaðgerðir gerðar.
Hætt er við að valaðgerðir breyt-
ist í bráðaaðgerðir þurfi ákveðnir
sjúklingar að bíða lengi eftir að-
gerð.
Morgunblaðið/Kristinn
„Sjúkraliðar hafa breitt bak,“ sagði Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, þegar Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri fékk að nota bak Kristínar til að undirrita móttöku skjals um aðgerðir.
Sjúkraliðar boða frek-
ari verkfallsaðgerðir
Boða allsherjarverkfall/30
Alvarlegt ástand/30
SJÖ óbindandi verðtilboð
bárust frá þeim sem lýst
höfðu yfir áhuga á að gerast
kjölfestufjárfestar í Lands-
síma Íslands hf. með því að
kaupa 25% hlutafjár í honum.
Í fréttatilkynningu frá einka-
væðingarnefnd segir að á
meðal bjóðenda séu sum af
öflugustu síma- og fjarskipta-
fyrirtækjum Evrópu.
Gert er ráð fyrir að ljúka
sölu til kjölfestufjárfestis fyr-
ir árslok, en leggja þarf fram
lokatilboð fyrir lok nóvember.
Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra segir að sú
niðurstaða sem orðið hafi úr
þessum hluta sé nokkurn veg-
inn í takt við það sem búist
hafi verið við. Hann sé því
mjög sáttur og áhuginn sem
fyrirtækin sýni á Landssím-
anum sé ánægjulegur.
Sjö verð-
tilboð
bárust
2–4 af 7/22
Kjölfestuhluti
Landssímans
ÖKUMAÐUR slasaðist er bifreið fór
útaf veginum skammt frá Laugar-
vatni og valt ofan í skurð í gær. Að
sögn lögreglunnar á Selfossi barst
tilkynning til hennar um óhappið um
tíuleytið í gærmorgun.
Óljóst hefði hins vegar verið hve-
nær óhappið átti sér stað og var allt
eins talið að það hefði átt sér stað um
nóttina.
Ökumaðurinn var fluttur undir
læknishendur á Heilbrigðisstofn-
unina á Selfossi. Bifreiðin er mikið
skemmd eftir veltuna.
Valt við Laugarvatn