Morgunblaðið - 01.11.2001, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 1. NÓVEMBER 2001
BANDARÍSKAR herþotur gerðu
harðar árásir á skotmörk í Afgan-
istan í allan gærdag.
Miklar skemmdir urðu á sjúkra-
húsi í Kandahar, höfuðvígi talib-
anastjórnarinnar, og sprengjum
rigndi yfir stöðvar talibana við víg-
línuna í norðurhluta landsins, þar
sem hersveitir Norðurbandalags-
ins, laustengds bandalags stjórn-
arandstæðinga, sækja að þeim.
Á myndinni sjást stríðsfangar úr
liði talibana í fangabúðum Norður-
bandalagsins í bænum Khoja
Bahawuddin í norðurhluta Afgan-
istans í gær.
Reuters
Harðar loftárásir
Islamabad, Kandahar. AFP, AP.
TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, og
Bashar Assad, forseta Sýrlands, greindi mjög á
um skilgreiningu hryðjuverka og stríðið gegn
Afganistan í sögulegri heimsókn Blairs til Sýr-
lands í fyrradag og gærmorgun.
Assad sagði að þeir hefðu verið sammála um
nokkur atriði varðandi hryðjuverkastarfsemi, en
enginn bilbugur var á honum varðandi stuðning
Sýrlendinga við herskáa hópa sem berjast gegn
Ísraelum. Hafa Sýrlendingar löngum haldið því
fram að Palestínumenn eigi rétt á að beita valdi í
andspyrnu sinni gegn ísraelskri hersetu.
„Andspyrna gegn hersetu er alþjóðlegur rétt-
ur,“ sagði Assad á fundi hans og Blairs með
fréttamönnum eftir að þeir höfðu ræðst við í for-
setahöllinni í Damaskus, höfuðborg Sýrlands.
„Andspyrnuaðgerðir eru ekki það sama og
hryðjuverk,“ sagði Assad.
Hann sagði Sýrlendinga sjá málið „frá báðum
hliðum“. Annars vegar væri alþjóðleg hryðju-
verkastarfsemi, en hins vegar „hryðjuverk Ísr-
aela“ gegn Palestínumönnum.
Assad gagnrýndi ennfremur frumkvæði
Bandaríkjastjórnar í herförinni í Afganistan.
„Stríðið gegn hryðjuverkastarfsemi krefst alþjóð-
legra aðgerða,“ sagði Assad og ítrekaði fordæm-
ingu Sýrlendinga á hryðjuverkunum í Bandaríkj-
unum 11. september. „Það heyrir ekki undir
neinn einn aðila að hafa forystu í þeim aðgerð-
um.“
Blair lét á sér skiljast að dyrnar hefðu verið
opnaðar fyrir samræður við Sýrlendinga, en
sagði að viðræður sínar við Assad hefðu verið
„hreinskilnar“, sem oft er notað sem diplómatískt
merkjamál fyrir djúpan ágreining. Kvaðst Blair
telja mikilvægt að send væru skýr skilaboð um að
alþjóðabandalagið gegn hryðjuverkastarfsemi
væri sterkt og að Sýrland og önnur ríki í Mið-
Austurlöndum væru með í því.
Blair sagði að eina leiðin til langtímalausnar á
deilu Ísraela og Palestínumanna væri að þeir „búi
hlið við hlið“. Engu skipti hvað bæri í milli, eina
leiðin til að hefja friðarumleitanir væri að sest
yrði niður við samningaborðið.
„Ofbeldi er fráleitt til bóta, og það sem þarf er
tími og tækifæri til að fá fólk til að hefja samræð-
ur á ný,“ sagði Blair.
Sýrland gegnir lykilhlutverki í Mið-Austur-
löndum og hefur síðasta orðið varðandi stefnuna í
nágrannaríkinu Líbanon, en þar hafa Hezbollah-
skæruliðar, sem Sýrlendingar veita stuðning,
gert árásir á Ísrael eftir að Ísraelar hurfu á brott
með herlið sitt frá suðurhluta Líbanons í fyrra.
Frá Sýrlandi hélt Blair til Sádi-Arabíu og hitti
þar Fahd konung. Sagði Blair samræður sínar
við konunginn hafa verið „mjög athyglisverðar“. Í
gærkvöldi átti Blair síðan að eiga fund með Abd-
ullah bin Abdul Aziz krónprinsi, sem í raun fer
með völdin í landinu. Blair mun á næstu dögum
einnig halda til Ísraels og heimastjórnarsvæða
Palestínumanna.
Fyrsta heimsókn forsætisráðherra Bretlands til Sýrlands
Djúpstæður ágrein-
ingur um hryðjuverk
Damaskus, Riyadh. AFP, AP.
AP
Bashar Assad og Tony Blair við Omayyad-
moskuna í Damaskus í gær.
ELDFLAUG frá ísraelskri her-
þyrlu varð háttsettum meðlimi
samtakanna Hamas að bana í gær
þar sem hann var í felum í hlöðu
og ísraelskir hermenn skutu til
bana fimm aðra herskáa Palest-
ínumenn, þ. á m. tvo sem voru að
leggja á ráðin um tilræði við land-
nema. Palestínumenn hétu hefnd-
um.
Í gærkvöldi voru tveir palest-
ínskir lögreglumenn felldir í átök-
um við ísraelska hermenn í Qalq-
ilya, einum af fjórum bæjum sem
Ísraelar hafa á valdi sínu innan
heimastjórnarsvæða Palestínu-
manna. Ahmed Abdel Rahman,
ráðherra í palestínsku heima-
stjórninni, brást ókvæða við fregn-
um af mannfallinu og sagði: „Það
verður aldrei vopnahlé á meðan
Sharon er með fingurinn á gikkn-
um,“ og skírskotaði þar til Ariels
Sharons, forsætisráðherra Ísraels.
Þrátt fyrir átök og mannfall
benti ýmislegt til þess í gær að
báðir aðilar væru að leita leiða til
að losna úr þeirri pólitísku patt-
stöðu sem deila þeirra er í. Yasser
Arafat, forseti heimastjórnar Pal-
estínumanna, sagði í gær að hann
myndi eiga fund með Shimon Per-
es, utanríkisráðherra Ísraels, á
Spáni um helgina, þar sem þeir
munu báðir sitja efnahagsmálaráð-
stefnu.
Peres greindi frá því fyrr í vik-
unni að hann væri að eigin frum-
kvæði að undirbúa friðartillögur
þar sem gert mun vera ráð fyrir
því, m.a., að allar gyðingabyggðir
á Gazasvæðinu verði rifnar niður.
Peres lagði áherslu á að fundur
sinn með Arafat á Spáni yrði
óformlegur og þar yrðu engar
samningaviðræður á dagskrá.
Sharon hefur gefið lítið fyrir
frumkvæði Peres í friðarumleitun-
um. Í gær kvaðst Sharon reiðubú-
inn til viðræðna um frið. „Við er-
um reiðubúnir til samninga-
viðræðna. Ég mun sjálfur stjórna
þeim viðræðum. Ég hef mikla trú
á þessu,“ sagði hann á þingi
heimssambands gyðinga í Jerúsal-
em. Sharon hefur hingað til krafist
þess að öllum átökum linni áður en
sest verði að samningaborðinu, en
í gær nefndi hann ekki það skil-
yrði.
Palestínumenn kváðust fyrir sitt
leyti tilbúnir til viðræðna, en
gerðu lítið úr orðum Sharons.
„Þessi maður hefur ekki sýnt nein
merki um friðarvilja. Hann hefur
einungis sýnt vilja sinn til að
drepa, eyða og gera árás,“ sagði
palestínskur ráðherra í gær.
Sharon segist
reiðubúinn til
viðræðna
Jerúsalem. AP.
Átta Palestínumenn láta lífið í átök-
um við ísraelska hermenn
KONA sem starfaði á sjúkrahúsi í
New York lést í gær af völdum milt-
isbrandssmits í lungum. Er þetta
fjórða dauðsfallið í Bandaríkjunum af
völdum miltisbrands á tæpum mán-
uði.
Konan hét Kathy T. Nguyen og var
61 árs að aldri. Hún vann í birgðastöð
sjúkrahúss á Manhattan og er fyrsta
fórnarlamb miltisbrandsárásanna í
Bandaríkjunum sem hvorki vann á
fjölmiðli né pósthúsi. Ekki er vitað
hvernig Nguyen komst í snertingu við
bakteríuna, en fyrstu niðurstöður
rannsókna á heimili hennar og vinnu-
stað bentu ekki til þess að þar væri að
finna miltisbrandsgró.
Alls hafa sautján Bandaríkjamenn
greinst með miltisbrandssmit frá því í
fyrstu viku október. Tíu fórnarlamb-
anna fengu smit í lungu eftir innönd-
un miltisbrandsgróa og hafa fjögur
þeirra látið lífið. Sjö til viðbótar hafa
greinst með miltisbrandssmit á húð,
sem er ekki eins alvarlegt.
Fjórða
dauðsfallið
í Banda-
ríkjunum
New York. AP.
Miltisbrandur
VERG landsframleiðsla í Bandaríkj-
unum dróst saman um 0,4% á þriðja
ársfjórðungi, samkvæmt bráða-
birgðaskýrslu bandaríska viðskipta-
ráðuneytisins sem birt var í gær, en
það er mesti samdráttur á einum
ársfjórðungi síðan 1991. Telja sér-
fræðingar þetta benda til að lengsta
samfellda hagvaxtarskeiði í sögu
Bandaríkjanna sé að ljúka.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti sagði í gær að samdráttinn
mætti rekja til minni tiltrúar neyt-
enda á gang efnahagslífsins eftir
hryðjuverkaárásirnar 11. septem-
ber. Margir efnahagssérfræðingar
telja þó að tekið hafi verið að syrta í
álinn nokkru fyrir árásirnar.
Þótt landsframleiðslan hafi sem
fyrr segir dregist saman um 0,4% á
þriðja ársfjórðungi var samdráttur-
inn minni en fjármálasérfræðingar
höfðu spáð, en óttast er að samdrátt-
urinn verði meiri á fjórða ársfjórð-
ungi, allt að 1%. Venja er að tala um
að samdráttarskeið sé hafið ef dreg-
ið hefur úr vergri landsframleiðslu
tvo ársfjórðunga í röð.
Einkaneysla jókst einungis um
1,2% á þriðja ársfjórðungi, eftir 2,5%
hækkun á öðrum fjórðungi ársins, og
hefur aukningin ekki verið minni í
átta ár. Þá hafa fyrirtæki haldið að
sér höndum í fjárfestingum, en þær
drógust saman um 11,9% á þriðja
ársfjórðungi.
Bandaríkin
Landsfram-
leiðsla dregst
saman
Washington. AFP, AP.
♦ ♦ ♦
250. TBL. 89. ÁRG. FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS