Morgunblaðið - 01.11.2001, Blaðsíða 50
KIRKJUSTARF
50 FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa
kl. 14–17 í neðri safnaðarsal. Sönghópur
undir stjórn organista. Biblíulestur og
fræðsla í safnaðarheimili Áskirkju kl. 20 í
umsjá sóknarprests. Orð postulans „allt
megna ég fyrir hjálp hans, sem mig styrk-
an gjörir“, höfð að leiðarljósi við íhugun
orða ritningarinnar. Árni Bergur Sigur-
björnsson.
Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10–
12.
Dómkirkjan. Opið hús í safnaðarheim-
ilinu kl. 14–16. Kaffi og með því á vægu
verði. Ýmsar uppákomur.
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.
Léttur málsverður í safnaðarheimili eftir
stundina.
Háteigskirkja. Foreldramorgunn kl. 10.
Stúlknakór kl. 16.30 fyrir stúlkur fæddar
1989 og eldri. Stjórnandi Birna Björns-
dóttir. Íhugun kl. 19. Taizé-messa kl. 20.
Ath. breyttan tíma.
Langholtskirkja. Foreldra- og barnamorg-
unn. Fræðsla: Slysavarnir. Herdís Stor-
gaard, verkefnisstjóri Árvekni, upplestur,
söngstund, kaffispjall.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45–
7.05. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Gunn-
ar Gunnarsson leikur á orgel kirkjunnar
kl. 12–12.10. Léttur málsverður í safn-
aðarheimili að stundinni lokinni. Samvera
eldri borgara kl. 14. Ólafur Mixa læknir
kemur og ræðir um heilbrigði á efri árum.
Þjónustuhópur Laugarneskirkju, kirkju-
vörður og sóknarprestur annast stundina.
(Sjá síðu 650 í textavarpi.)
Neskirkja. Nedó kl. 17. Unglingaklúbbur
fyrir Dómkirkju og Neskirkju fyrir 8. bekk.
Nedó kl. 20 fyrir 9. bekk og eldri. Umsjón
Bolli og Sveinn. Félagsstarf aldraðra laug-
ardaginn 3. nóvember. Óvissuferð. Lagt
verður af stað frá kirkjunni kl. 14. Eftir
ferðina verður borinn fram léttur máls-
verður. Þeir sem ætla að neyta matarins
þurfa að tilkynna þátttöku sína til skrif-
stofu kirkjunnar í síma 511 1560. Allir
velkomnir. Sr. Frank M. Halldórsson.
Reykjavíkurprófastsdæmi og leikmanna-
skóli kirkjunnar. Boðið verður upp á bibl-
íulestra þar sem tekin verða fyrir ákveðin
þemu í Biblíunni og þau sett í samhengi
við prédikunartexta kirkjuársins. Sjö
dagsverk. Fjallað verður um sköpun
heimsins samkvæmt fyrstu Mósebók.
Átta skipti í Breiðholtskirkju kl. 20–22.
Kennari dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson hér-
aðsprestur.
Breiðholtskirkja. Mömmumorgunn föstu-
dag kl. 10–12.
Grafarvogskirkja. Foreldramorgnar kl.
10–12. Fræðandi og skemmtilegar sam-
verustundir og ýmiss konar fyrirlestrar.
Alltaf heitt á könnunni, djús og brauð fyrir
börnin. Kirkjukrakkar í Húsaskóla fyrir
7–9 ára börn kl. 17.30–18.30. Æsku-
lýðsfélag í Grafarvogskirkju fyrir 8.–9.
bekk kl. 20–22.
Digraneskirkja. Leikfimi ÍAK kl. 11.15.
Bænastund kl. 12. Fyrirbænaefnum má
koma til kirkjuvarða. Léttar veitingar eftir
stundina.
Fella- og Hólakirkja. Helgistund og bibl-
íulestur í Gerðubergi kl. 10.30–12 í um-
sjón Lilju djákna. Starf fyrir 9–10 ára
stúlkur kl. 17.
Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar kl. 16.30.
Kópavogskirkja. Starf með eldri borgur-
um í dag kl. 14.30–16.30 í safnaðar-
heimilinu Borgum. Kyrrðar- og bænastund
kl. 17. Fyrirbænaefnum má koma til
sóknarprests eða kirkjuvarðar.
Seljakirkja. KFUM-fundur fyrir stráka á
aldrinum 9–12 ára kl. 16.30.
Vídalínskirkja. Umræðu- og leshópur
starfar í safnaðarheimilinu kl. 20–
21.Biblíu- og trúfræðsla fyrir alla. Kyrrð-
arstund í kirkjunni kl. 21. Ath. breyttan
tíma. Tónlist, ritningarlestur, hugleiðing
og fyrirbænir. Bænarefnum má koma til
presta kirkjunnar og djákna. Hressing í
safnaðarheimili eftir stundina. Allir vel-
komnir.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. TTT-starf fyrir 10–
12 ára kl. 17–18.30.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung
börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safn-
aðarheimili Strandbergs, kl. 10–12. Opið
hús fyrir 8–9 ára börn í safnaðarheimilinu
Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30.
Víðistaðakirkja. Barnastarf fyrir 10–12
ára börn (TTT) í dag kl 17. Foreldramorg-
unn kl. 10–12.
Lágafellskirkja. Kirkjukrakkafundur í Var-
márskóla á fimmtudögum frá kl. 13.15–
14.30.
Landakirkja. Kl. 9 fermingarmót í Landa-
kirkju allan daginn. Mótinu lýkur með
kvöldvöku kl. 20 og helgistund sem ætl-
uð er fermingarbörnum og foreldrum
þeirra. Mömmumorgunn fellur niður á
fimmtudag en æfing hátíðarkórs Vest-
mannaeyja verður í sal Tónlistarskólans á
venjulegum tíma.
Keflavíkurkirkja. Fermingarundirbúningur
í Kirkjulundi kl. 14.30–15.10, 8. MK í
Heiðarskóla. Kl. 15.15–15.55 8. SV í
Heiðarskóla. Fundur fyrir þá sem misst
hafa ástvini sína í sjálfsvígum verður
haldinn í Kirkjulundi kl. 20.
AD KFUM, Holtavegi 28. Fundur í kvöld
kl. 20. Sumarbúðirnar í Knattholmen og
fréttir af starfi Skógarmanna. Ársæll Að-
albergsson, Sigurður Pétursson og Ingi
Erlingsson sjá um efni fundarins. Hugleið-
ing: Ólafur Sverrisson.
Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir vel-
komnir.
Safnaðarstarf
Á ALLRA heilagra messu
fimmtudagskvöldið 1. nóv. kl.
20.30 verður kvöldsamkoma í
Skálholtsdómkirkju á vegum
Skálholtssóknar og Skálholts-
staðar.
Dr. Pétur Pétursson flytur er-
indi sem hann nefnir „María
Guðsmóðir í máli og mynd“. Auk
þess mun Sigrún Reynisdóttir
tala um sögu altaristöflunnar í
Skálholtsdómkirkju. Fjölbreytt
tónlistardagskrá verður á sam-
verunni og munu m.a. Hilmar
Örn Agnarsson, Jóhann Stef-
ánsson, sr. Gunnar Björnsson,
Kammerkór Biskupstungna og
Sigríður Guðnadóttir flytja tón-
list.
Sunnudaginn 4. nóvember kl.
14 verður messa í Skálholts-
dómkirkju og verður þá látinna
sérstaklega minnst í tilefni af
allra heilagra messu. Sr. Egill
Hallgrímsson sóknarprestur mun
prédika og þjóna fyrir altari en
ungt fólk mun aðstoða við helgi-
haldið. Skálholtskórinn og Barna-
kór Biskupstungna munu syngja
undir stjórn organistans Hilmars
Arnar Agnarssonar. Auk þess
mun kvennakórinn Vox Femine
syngja. Hinn þekkti organisti Er-
ich Piasetzki mun leika á orgel
kirkjunnar ásamt organistanum.
Frá Skálholtsdómkirkju.
Gospel á Ömmukaffi
UNGT fólk og lúxus eru fimmtu-
dagskvöldin nefnd á Ömmukaffi,
Austurstræti 20, Reykjavík.
Í kvöld verður það hljómsveitin
Trompet sem leikur gospel fyrir
gesti og gangandi í miðborginni.
Öllum 18 ára og eldri er velkom-
ið að koma við og hlusta á frá-
bæra tónlist á vinalegu kaffihúsi
þar sem fæst heimsins besta kaffi
og kakó. Húsið verður opnað kl.
20 og því er lokað kl. 23.
Ömmukaffi og
miðborgarstarf KFUM/K.
Málþroski barna
í Háteigskirkju
Á FORELDRAMORGNI fimmtu-
daginn 1. nóv. heldur Sigrún
Gröndal, talmeinafræðingur og
leikskólakennari, erindi um mál-
þroska barna. Húsið er opnað
klukkan tíu og hefst fræðslan
klukkan hálfellefu.
Foreldramorgnar í safnaðar-
heimili Háteigskirkju eru öllum
opnir. Opið hús er alla fimmtu-
daga frá 10 til 11.30 en fyrsta
fimmtudag í mánuði er fræðsla.
Fjölmennum og tökum þátt í
áhugaverðri dagskrá. Nánari
upplýsingar um foreldramorgna í
Háteigskirkju gefur Pétur Björg-
vin Þorsteinsson, fræðslufulltrúi
Háteigskirkju, í síma 551 2407.
Nóvemberdagar
í Skálholts-
dómkirkju
SkálholtskirkjaNORÐMENN og Bandaríkja-
menn spila til úrslita í opnum flokki á
heimsmeistaramótinu í brids, en und-
anúrslitunum lauk í gær. Í kvenna-
flokki keppa Frakkar og Þjóðverjar
til úrslita.
Mikil spenna var í undanúrslitaleik
Norðmanna og Ítala í gær. Eftir fjór-
ar lotur af sex höfðu Norðmenn náð
rúmlega 40 stiga forskoti en Ítalir
klóruðu í bakkann í fimmtu lotunni
og munaði 24 stigum fyrir síðustu lot-
una. Ítalirnir söxuðu síðan jafnt og
þétt á forskot Norðmanna en spilin
voru ekki nægilega mörg, lokastaðan
var 194:189.
Norska liðið er skipað kunnum
spilurum: Geir Helgemo, Tor Hel-
ness, Erik Sælensminde, Boye
Brogeland, Glen Grötheim og Terje
Å. Þeir hafa verið í góðu formi í París
og því kæmi ekkert á óvart þótt þeir
hömpuðu Bermúdaskálinni í mótslok.
Í hinum undanúrslitaleiknum unnu
Bandaríkjamenn Pólverja örugglega,
169:133. Í bandaríska liðinu spila Al-
an Sontag, Peter Weichsel, Chip
Martel, Lew Stansby, Kyle Larsen
og Rose Meltzer.
Í kvennaflokki unnu Frakkar
Bandaríkjamenn, 261:148. Þá unnu
Þjóðverjar Austurríki, 240:207. Eins
og Norðmenn hafa frönsku konurnar
verið í góðu formi það sem af er
mótinu og munu líklega hampa Fen-
eyjabikarnum í leikslok.
Létt og leikandi
Norðmennirnir spila léttan og leik-
andi brids. Hér er slemma sem þeir
græddu á í leiknum gegn Ítölum.
Vestur gefur, enginn á hættu:
Norður
♠ 43
♥ K974
♦ 86
♣ÁKG102
Vestur Austur
♠ 87 ♠ KG109
♥ D1086 ♥ G53
♦ ÁG973 ♦ KD1042
♣D5 ♣3
Suður
♠ ÁD652
♥ Á2
♦ 5
♣98764
Við annað borðið sátu Helgemo og
Helness AV og Alfredo Versace og
Lorenzo Lauria NS en við hitt borðið
sátu Sælensminde og Brogeland AV
og Norberto Bocchi og Giorgio Dub-
oin AV:
Vestur Norður Austur Suður
Helgemo Versace Helness Lauria
Pass 1 lauf 1 tígull 1 hjarta
2 spaðar pass 3 tíglar 4 lauf
4 tíglar pass pass 5 lauf//
Vestur Norður Austur Suður
Duboin Boye Bocchi Erik
Pass 1 lauf 1 tígull 1 spaði
dobl 2 lauf 2 tíglar 4 tíglar
5 tíglar 6 lauf//
Þegar spaðasvíningin gekk feng-
ust 12 slagir og Norðmenn græddu
11 stig.
Spil ársins
Tilkynnt var í París í vikunni hvaða
spil og spilarar þættu hafa skarað
fram úr á síðasta ári. Spil ársins 2000
var valið þetta hér en það spiluðu
Bandaríkjamennirnir Larry Cohen
og David Berkowitz í móti í Banda-
ríkjunum:
Norður
♠ –
♥ K74
♦ ÁK862
♣KDG53
Vestur Austur
♠ 7 ♠ DG1065432
♥ D109852 ♥ G
♦ 54 ♦ DG107
♣9742 ♣--
Suður
♠ ÁK98
♥ Á63
♦ 93
♣Á1086
Vestur Norður Austur Suður
Cohen Berkow.
1 grand
pass 2 spaðar* 4 spaðar 5 lauf
pass 5 tíglar pass 5 hjörtu
pass 7 lauf//
2 spaðar voru yfirfærsla í lauf og
síðan runnu þeir félagar í al-
slemmuna þrátt fyrir hindrun aust-
urs. Út kom spaðasjöan og Berkowitz
henti hjarta í borði og tók heima með
kóng. Hann spilaði næst laufi á kóng;
hann mátti ekki byrja á laufásnum
heima því þá hefði spilið tapast. Þeg-
ar legan kom í ljós tók sagnhafi ÁK í
tígli og trompaði tígul með tíunni,
vestur henti hjarta.
Næst spilaði Berkowitz spaðaás en
vestur féll ekki í þá freistni að trompa
heldur henti hjarta. Sagnhafi henti
þá tígli í borði og trompaði því næst
spaða í borði og enn henti vestur
hjarta. Sagnhafi tók nú hjartakóng í
borði og trompaði síðasta tígulinn
heim með ás og vestur henti fjórða
hjartanu.
Nú kom laufáttan. Vestur varð að
leggja níuna á og Berkowitz drap í
borði, fór heim á hjartaás og í tveggja
spila endastöðu spilaði hann hjarta.
Vestur átti eftir 74 í trompi og blind-
ur G5 og því fengust tveir síðustu
slagirnir á trompbragði.
Norðmenn og
Bandaríkjamenn
spila til úrslita um
Bermúdaskálina
BRIDS
Heimsmeistarakeppnin í brids er
haldin í París dagana 21. október til
4. nóvember. Hægt er að fylgjast
með mótinu á Netinu og er slóðin
www.bridge.gr
Guðm. Sv. Hermannsson