Morgunblaðið - 01.11.2001, Page 26
ERLENT
26 FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Á þriggja ára tímabili áttu bandarískir
embættismenn að minnsta kosti 20 leyni-
lega og opinbera fundi með fulltrúum talib-
ana-stjórnarinnar í því skyni að kanna
hvernig fá mætti hryðjuverkaforingjann
Osama bin Laden framseldan.
Þessum viðræðum var fram haldið allt
þar til fáeinum dögum áður en hryðju-
verkamenn gerðu sjálfsmorðsárásir á
Bandaríkin 11. september, að því er heim-
ildarmenn, sem nærri komu, segja. Fulltrú-
ar talibana gáfu ítrekað í skyn að bin Lad-
en yrði framseldur ef gengið yrði að
tilteknum skilyrðum þeirra.
Embættismenn í bandaríska utanríkis-
ráðuneytinu þvertóku hins vegar jafnan
fyrir að víkja frá þeirri kröfu sinni að rétt-
að yrði yfir bin Laden samkvæmt banda-
rísku dómskerfi. Að auki var óljóst hvort
sendimenn talibana gætu uppfyllt þá samn-
inga, sem hugsanlega yrðu gerðir þar sem
ekki var vitað hvort þeir hefðu umboð til að
tala í nafni allra þeirra hópa, sem að rík-
isstjórn Afganistan standa.
Þessi saga hefur ekki verið sögð nema að
litlu leyti og er til marks um þá tvíþættu
stefnu, sem Bandaríkjamenn mótuðu í
þeim tilgangi að hafa hendur í hári bin
Ladens. Á sama tíma og fundir fóru fram
með fulltrúum talibana fylgdi leyniþjón-
ustan, CIA, leynilegri áætlun, sem gerð var
til að ná hryðjuverkaforingjanum illræmda.
Skorti sveigjanleika?
Bandarískir embættismenn og
heimildarmenn, sem standa nærri
talibana-stjórninni, segja í viðtölum
að velta megi því fyrir sér hvort
ráðamenn í Bandaríkjunum hafi
sýnt nægilegan sveigjanleika í þessu
efni. Fyrr í mánuðinum hafnaði
George W. Bush forseti tilboði talib-
ana þess efnis að til greina kæmi að
framselja bin Landen til ótiltekins
þriðja ríkis. „Við vitum að hann er
sekur. Þið skuluð einfaldlega fram-
selja hann,“ sagði Bandaríkjaforseti.
Nokkrir sérfræðingar um málefni
Afganistan segja að Bandaríkja-
menn hafi ekki gert sér ljóst að tal-
ibanar hafi þurft á „aabroh“ að
halda en á pashtu þýðir það hugtak
„aðferð til að bjarga andlitinu“.
Embættismönnum Bandaríkja-
stjórnar tókst ekki að koma til móts
við ótta talibana um álitshnekki ef
þeir framseldu bin Laden, múslíma,
í hendur „trúvillinga“ á Vesturlönd-
um.
„Við tókum þessu ekki af nægi-
legri alvöru. Og það á ekki aðeins
við þessa ríkisstjórn heldur og þá,
sem á undan fór,“ segir Richard
Hrair Dekmejian, sérfræðingur á
sviði íslamskrar bókstafstrúar, sem
starfar við Southern California-há-
skólann. „Við sýndum ekki nægilegt
hugvit í viðskiptum við þetta fólk.
Tækifæri fóru forgörðum.“
Bandarískir embættismenn áttu
erfitt með að eiga samskipti við ísl-
amska klerka, sem höfðu lítinn
skilning á viðteknum reglum um
samskipti ríkja og vantreystu Vest-
urlöndum í flestu. Að auki tókst
ekki að nýta bresti innan talibana-
stjórnarinnar.
„Við einfaldlega skildum ekki
hvað þeir voru að reyna að segja,“
segir Milton Bearden, fyrrum stöðv-
arstjóri CIA, sem stjórnaði leyni-
legum aðgerðum í Afganistan á ní-
unda áratugnum. „Við töluðum ekki
sama málið. Við sögðum: „látið okk-
ur fá bin Laden“. Þeir sögðu: „Gerið
eitthvað til að hjálpa okkur að fram-
selja hann“.“
Reynt að þæfa málið
Embættismenn í utanríkisráðu-
neytinu fullyrða hins vegar að ráða-
menn í Afganistan hafi aldrei talið
koma til álita að framselja bin Lad-
en. Mjög hafi reynt á taugar manna hversu
óljós málflutningur fulltrúa talibana var og
það hafi tillögur þeirra einnig verið.
Einn heimildarmaður sagði að Banda-
ríkjamenn hefðu í upphafi sýnt „mjög
mikla þolinmæði“. Hún hafi hins vegar guf-
að upp með öllu þegar fundunum fjölgaði
og talibanar kváðust ætla að hreyfa sig í
málinu en ekkert gerðist.
Fundirnir fóru fram í Tashkent, Kandah-
ar, Islamabad, Bonn, New York og Wash-
ington. Fyrir kom að óvænt símtöl bárust.
Í einu þeirra ræddi ekki mjög háttsettur
bandarískur embættismaður við Mohamm-
ad Omar, leiðtoga talibana-stjórnarinnar, í
40 mínútur. Óvæntur gestur skaut upp
kollinum í Washington og reyndist vera
fulltrúi talibana. Með í för hafði hann bréf
og teppi að gjöf til George W. Bush for-
seta.
Framsal í gegnum Sádi-Arabíu
Hin diplómatíska hlið áætlunarinnar um
að hafa hendi í hári bin Ladens hófst árið
1996 en þá var ákveðið að hafa samband
við stjórnvöld í Súdan eftir leynilegum leið-
um enda er landið eitt þeirra, sem Banda-
ríkjamenn hafa sett á lista sinn yfir hryðju-
verkaríki. Þessi áætlun gerði ráð fyrir því
að bin Laden yrði handtekinn í Khartúm í
Súdan og fluttur til Sádi-Arabíu þaðan sem
hann yrði framseldur til Bandaríkjanna.
Súdanir reyndust hins vegar ekki viljugir
til samstarfs og í stað þess að handtaka bin
Laden var hann hrakinn úr landi til Afgan-
istan í maímánuði 1996. Nokkrum mán-
uðum síðar tóku talibanar Kabúl, höfuð-
borg Afganistan.
Ríkisstjórn Bills Clintons forseta tók
ekki að þrýsta raunverulega á talibana um
að framselja bin Laden fyrr en eftir árás-
irnar á sendiráð Bandaríkjanna í Kenýa og
Tansaníu í ágúst 1998. Í þeim féllu 224
menn, þar af 12 Bandaríkjamenn, og um
4.600 særðust.
Heimildarmaður segir að sprengjutilræð-
in í Austur-Afríku hafi skipt sköpum um
sýn ráðamanna í Washington til talibana-
stjórnarinnar. Bandaríkjamenn sannfærð-
ust um að Mohammad Omar ætlaði sér
ekki aðeins að ráða Afganistan heldur
hygðist hann skjóta skjólshúsi yfir hinn
gamla vin sinn, bin Laden, til að gera hon-
um kleift að fremja hryðjuverk erlendis.
Tvíþætt stefna var því mörkuð. Annars
vegar var talibönum hótað refsingum og
útskúfun á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.
Samhliða voru hafnar viðræður við fulltrúa
talibana.
Nokkrum dögum eftir árásirnar á sendi-
ráðin tók Michael Malinowski, starfsmaður
í utanríkisráðuneytinu, að hringja til Afg-
anistan og leita eftir samtölum við talibana.
Í eitt skiptið ræddi hann við Mohammad
Omar. „Ég sagði: „Látið okkur fá bin Lad-
en“ og þeir sögðu „Nei ... sýnið okkur
sönnunargögnin“,“ segir Malinowski. Talib-
anar héldu því m.a. fram að bin Laden væri
gestur þeirra og gesti sína rækju menn
ekki í burtu. „Það er ekki hægt að sætta
sig við að gesturinn fari upp á húsþakið og
taki að skjóta á nágrannana,“ svaraði Mal-
inowski.
Fluttu bin Laden en kváðust
ekki vita um dvalarstaðinn
Í febrúar 1999 var talibönum gerð grein
fyrir því að framvegis myndu Bandaríkja-
menn líta svo á að þeir bæru jafnframt
ábyrgð á öllum þeim hryðjuverkum, sem
bin Laden kynni að fremja. Bin
Laden hafði er þarna var komið
sögu verið ákærður fyrir sendiráðs-
árásirnar. Bandaríkjamenn buðust
til að leggja fram frekari sönnunar-
gögn ef talibanar sendu fulltrúa
sína til New York. Engin slík nefnd
fór til Bandaríkjanna.
Strax eftir að viðvöruninni varð-
andi sameiginlega ábyrgð á hermd-
arverkum bin Ladens hafði verið
komið á framfæri við talibana
brugðust þeir við með því að flytja
bin Laden frá borginni Kandahar
þar sem hann hafði haft höfuðstöðv-
ar sínar. Jafnframt tóku þeir fjar-
skiptabúnað hans og bönnuðu hon-
um að hafa samskipti við fjölmiðla.
Opinberlega tóku talibanar að
halda því fram að þeir vissu ekki
hvar bin Laden væri niður kominn.
Bandaríkjamenn líta svo á að þetta
hafi þeir gert til að geta betur var-
ist framsalskröfum.
„Þeir vildu
losna við hann“
Ekki eru þó allir sammála þessari
túlkun. Milton Bearden telur t.d. að
talibanar hafi oftar en einu sinni
gefið Bandaríkjamönnum til kynna
að þeir gætu náð bin Laden. Það
hafi þeir gert með því að segja að
hann væri „týndur“. „Í hvert skipti,
sem Afganarnir segja: „Hann er aft-
ur týndur“ eru þeir að koma skila-
boðum á framfæri. Þeir eru að
segja: „Við verndum hann ekki
lengur“,“ segir Bearden. „Þeir töldu
sig vera að gefa okkur leynileg
merki og við skildum þau ekki,“
segir hann.
Í október 1999 lögðu talibanar til
að bin Laden yrði dreginn fyrir rétt
annaðhvort í Afganistan eða í öðru
íslömsku ríki. Ein tillaga þeirra
kvað á um að nefnd þriggja ísl-
amskra lögfræðinga yrði falið að
leiða mál hans til lykta og myndu
Afganar, Sádi-Arabar og Banda-
ríkjamenn tilnefna fulltrúa í nefnd-
ina.
Samhliða þessu kröfðust talibanar
frekari sönnunargagna fyrir ábyrgð
bin Ladens, sem Bandaríkjamenn
litu á sem aðferð til að fresta fram-
gangi málsins.
Samskipti bandarískra embættis-
manna og talibana rofnuðu ekki al-
gjörlega eftir fjöldamorðin 11. sept-
ember. Þannig ræddi Milton
Bearden við háttsettan fulltrúa talibana
snemma í október og sá taldi góðar líkur á
því að bæði sádi-arabískir klerkar og ráð-
stefna samtaka Íslamskra ríkja myndi
leggja blessun sína yfir að orðið yrði við
kröfu Bush forseta um framsal bin Ladens.
Með milligöngu Sádi-Araba væru á að
giska helmingslíkur á að málið hlyti farsæl-
an endi.
Fimm dögum síðar var bin Laden enn í
Afganistan og bandamenn hófu loftárásir.
„Ég er ekki í nokkrum vafa um að þeir
vildu losna við hann. Það kom sér mjög illa
fyrir þá að vernda hann,“ segir Bearden.
„En þetta gekk aldrei saman hjá okkur,“
bætir hann við.
Misskildar
merkja-
sendingar?
Washington. The Washington Post.
Bandarískir embættismenn áttu minnst 20 fundi með
fulltrúum talibana þar sem rætt var hugsanlegt fram-
sal Osama bin Ladens. Sumir sérfræðingar telja að
talibanar hafi viljað losna við hryðjuverkaforingjann
en Bandaríkjamenn hafi ekki skilið
„merkjasendingar“ þeirra.
Íslömsk stúlka heldur á lofti mynd til stuðnings Osama bin Laden í Rawalpindi í gær.
Reuters