Morgunblaðið - 23.11.2001, Side 18
AKUREYRI
18 FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Kossinn
vinargjöf
sími 462 2900
Blómin
í bænum
TÍMAMÓT urðu í
rekstri harðfiskverk-
unarinnar Darra ehf.
á Grenivík á dögun-
um. Fimm ár eru liðin
frá því fyrst var fram-
leiddur harðfiskur
undir heitinu Eyjabiti
á Grenivík.
Frá því að Darri
tók til starfa í nóv-
ember 1996 hefur
starfsemin aukist og
framleiðslan m.a. tvö-
faldast á síðustu
tveimur árum.
Í dag starfa 7
manns við harðfisk-
vinslunna á Grenivík.
Um 70% af framleiðslu Darra hafa
farið á innanlandsmarkað, mest á
suðvesturhorn landsins en 30%
framleiðslunnar fara til Færeyja
og Noregs.
Hráefnis til vinnslunnar aflar
Darri einungis af fiskmörkuðum.
Að sögn Heimis Ásgeirssonar
framkvæmdastjóra Darra er sífellt
erfiðara að verða sér út um hrá-
efni til vinnslunnar en mun minna
framboð hefur verið af smærri
fiski undanfarið en hann hentar
best til vinnslunnar. Í tilefni tíma-
mótanna var boðið til samkvæmis í
húsakynnum fyrirtækisins.
Tímamót í rekstri harðfisk-
verkunarinnar Darra á Grenivík
Grýtubakkahreppur
Starfsfólki og eigendum Darra voru færðar
gjafir í tilefni tímamótanna.
Framleiðslan tvöfald-
ast á tveimur árum
Morgunblaðið/Jónas Baldursson
GUNNAR Gunnarsson organisti
og Sigurður Flosason saxófón-
leikari halda tvenna útgáfu-
tónleika í tilefni af útkomu
geislaplötu sinnar „Sálmar
jólanna“. Tónleikarnir verða á
sunnudag, 25. nóvember, og
verða þeir fyrri í Akureyr-
arkirkju kl. 17 en þeir síðari í
Dalvíkurkirkju kl. 20.30.
Á tónleikunum leika Gunnar og
Sigurður lög sem tengjast að-
ventu, jólum og áramótum. Lögin
eru frá ýmsum tímum, þau elstu
frá miðöldum, en hið yngsta var
samið árið 1995 af Atla Heimi
Sveinssyni við nýfundið ljóð Hall-
dórs Laxness. Marga af þekkt-
ustu jólasálmum heimsbyggð-
arinnar er að finna á
efnisskránni, svo sem „Það aldin
út er sprungið“ og „Heims um
ból“, en einnig verða flutt gömul
íslensk jólalög, misvel þekkt með-
al þjóðarinnar. Gunnar og Sig-
urður leika lögin í eigin útsetn-
ingum en í þeim er áhersla
annars vegar á spuna, en hins
vegar fjölbreytilega nálgun við
viðfangsefnin. Forsíðu disksins
prýðir einelsta kirkjuklukka sem
varðveist hefur hér á landi, en
hún er frá Hálsi í Fnjóskadal og
er talin vera frá miðri 12. öld.
Ómi, tónlistarútgáfa Eddu – miðl-
unar og útgáfu gefur, diskinn út.
Útgáfutónleikar Sálma jólanna
í Reykjavík fóru fram fyrir fullri
Hallgrímskirkju síðastliðinn laug-
ardag. Fleiri tónleikar eru ráð-
gerðir víða um land eftir tón-
leikana á Akureyri og Dalvík.
Sigurður Flosason og Gunnar
Gunnarsson hafa áður sent frá
sér geisladiskinn „Sálma lífsins“
árið 2000. Sá diskur hlaut góðar
viðtökur og jákvæða dóma.
Útgáfutónleikar vegna
„Sálma jólanna“
Gunnar Gunnarsson og
Sigurður Flosason.
Akureyrarkirkja og Dalvíkurkirkja
Í TILEFNI af útkomu bókarinnar
Álftagerðisbræður – skagfirskir
söngvasveinar eftir Björn Jóhann
Björnsson munu Álftagerðisbræður
halda upp á atburðinn í verslun Bók-
vals á Akureyri klukkan 17 í dag,
föstudaginn 23. nóvember.
Þar bregða þeir á leik, syngja og
skemmta, árita bækur og spjalla við
fólk.
Álftagerðis-
bræður
skemmta
AKUREYRINGAR eru að komast í
jólaskap og þá ekki síst kaupmenn
bæjarins sem eru búnir að setja
upp jólaskraut af myndarskap í
verslunum sínum á síðustu dögum.
Þá eru bæjarbúar einnig farnir að
huga að því að skreyta híbýli sín.
Formleg opnunarhátíð jólabæj-
arins Akureyri fer fram við tröpp-
ur Akureyrarkirkju á morgun
laugardag kl. 17.00. Þar verður
kveikt á jólaljósum, jólasveinar
verða á kreiki og söngfólk
skemmtir. Þá munu jólasveinar
verða á ferðinni allar helgar fram
að jólum og skjóta upp kollinum í
verslunum bæjarins.
Laugardaginn 1. desember verð-
ur svo kveikt á jólatrénu á Ráð-
hústorgi kl. 15.30 en þar verður
einnig fjölbreytt skemmtidagskrá.
Akureyringar í jólaskap
Morgunblaðið/Kristján
Sædís skoðar jólasvein á hreindýrasleða í verslunarglugga í Hafnarstræti.
ÓLAFUR Sveinsson myndlistamað-
ur opnar málverkasýningu á Frið-
rik V, Brasserie, Strandgötu 7 á
Akureyri í dag, föstudaginn 23.
nóvember.
Á sýningunni eru olíu- og akrýl-
málverk unnin á hör og striga og
eru þau öll gerð á þessu ári. Mynd-
efnið er allt sótt í leikföng barna
listamannsins sem og þau leikföng
sem hann lék sér sjálfur að sem
barn.
Myndefnið er þannig tilkall til
barnsins í brjóstum manna og
fylgir sú ósk að allir rækti og haldi
lífi í sínu innra barni alla tíð.
Sýningin er opin á afgreiðslutíma
veitingastaðarins, frá kl. 18 á
þriðjudögum til sunnudagskvölds.
Gömul
og ný
leikföng
Ólafur sýnir á Friðrik V
BÆJARRÁÐ Akureyrar samþykkti
á fundi sínum í gær að fela umhverf-
isráði að leggja fram tillögur um á
hvern hátt hægt sé að takmarka eða
banna starfsemi næturklúbba í
framtíðinni en slíkt er á stefnuskrá
bæjarstjórnar.
Bæjarráð fjallaði um tvö erindi frá
sýslumanninum þar sem leitað var
umsagnar um leyfi til reksturs
tveggja næturklúbba í bænum, ann-
ars vegar í verslunarmiðstöðinni
Sunnuhlíð og hins vegar að Ráðhús-
torgi 7. Um er að ræða endurnýjun
leyfa en á báðum stöðum hefur verið
boðið upp á nektarsýningar. Bæjar-
ráð lagðist ekki gegn framkomnum
erindum en vekur athygli umsækj-
enda og sýslumanns á áðurnefndri
stefnumörkun.
Vill takmarka eða banna
starfsemi næturklúbba
Bæjarráð Akureyrar
LAUFÁSPRESTAKALL: Kirkjuskóli í Sval-
barðskirkju kl. 11 á morgun, laugardag.
Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 21 á sunnu-
dagskvöld. Kirkjuskóli í Grenivíkurkirkju kl.
13.30 á laugardag. Guðsþjónusta í Grenil-
undi kl. 16 á sunnudag, 25. nóvember.
Kirkjustarf
SÝNINGIN Vetrarsport 2002 verð-
ur haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri
um helgina, dagana 24. og 25. nóv-
ember.
Eyfirskir sleðamenn hafa nú í vel
á annan áratug staðið fyrir sýningu á
vélsleðum og ýmsum búnaði sem
þeim tengist og hafa þær með ár-
unum sífellt orðið fjölbeyttari.
Að jafnaði hafa um 30 sýnendur
tekið þátt í Vetrarsporti, en Halldór
Arinbjarnarson, framkvæmdastjóri
sýningarinnar, segir að nú sé útlit
fyrir að þeir verði enn fleiri. Á sýn-
ingunni mun sem fyrr margt bera
fyrir augu.
Má þar nefna gljábónaða vélsleða
og hrikalega fjallajeppa, útivistar-
fatnað og öryggis- og fjarskiptabún-
að. Akureyrarbær kynnir þá góðu
aðstöðu sem býðst til iðkunar vetr-
aríþrótta í bænum, m.a. hina nýju
stólalyftu sem senn verður tekin í
notkun í Hlíðarfjalli. Vélsleðakeppn-
ir vetrarins verða kynntar og þannig
má áfram telja. Vonast er til að um
3.000 gestir komi í heimsókn þá tvo
daga sem sýningin stendur. Góð
færð og gott veður skiptir verulegu
máli þar sem mikill fjöldi utanbæj-
arfólks kemur jafnan á sýninguna.
Sýningin Vetrar-
sport í Íþróttahöll-
inni um helgina
Geisladiskahulstur
aðeins 500 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is