Morgunblaðið - 23.11.2001, Qupperneq 24
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
24 FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur veitti í gær Kjöt-
umboðinu hf., sem áður hét Goði hf., heimild til að
leita nauðasamninga við lánardrottna.
Kjötumboðið lagði fram frumvarp að nauða-
samningi með beiðni sinni um heimild til nauða-
samninga. Þar kemur fram að lánardrottnum
verður boðið að velja einn þriggja kosta um
greiðslutilhögun.
Fyrsti valkosturinn hljóðar þannig að lánar-
drottinn fær greidd 61% krafna sinna. Munu
19,5% þeirrar kröfu verða greidd innan þriggja
mánaða frá staðfestingu nauðasamnings, önnur
19,5% innan sex mánaða og 19,5% innan tólf mán-
aða. Þá verði 41,5% greidd með hlutafé í Norð-
lenska matborðinu ehf. á genginu 1,0. Kjötumboð-
ið mun freista þess að ná fram kauptilboði frá
þriðja aðila í hlutaféð þannig að lánardrottnar geti
átt val um hvort þeir vilji selja væntanlega hluti
sína eða eiga þá.
Í annan stað geta þeir lánardrottnar sem eiga
kröfur að fjárhæð 75 þúsund krónur eða lægri
fengið þær greiddar innan þriggja mánaða.
Í þriðja lagi eiga þeir lánardrottnar sem eiga
kröfur sem eru hærri en 75 þúsund krónur þess
kost að fá 75 þúsund krónur greiddar upp í kröfu
sína og telst hún þá að fullu greidd.
Sleginn er sá varnagli við framangreinda val-
kosti að áætlanir Kjötumboðsins standist um inn-
heimtanleika útistandandi krafna félagsins og
áætlað söluverðmæti lausafjár og vörubirgða auk
rekstrarkostnaðar á samningstímanum.
Engar tryggingar verða veittar fyrir greiðslu
samningskrafna.
Samkvæmt frumvarpinu mun Sparisjóður
Mýrasýslu falla frá 40 milljóna króna veðkröfum í
fasteignum Kjötumboðsins í Borgarnesi. Fjárhæð
samningskrafna hækkar því um þá upphæð. Þá
mun Grísabær sf. falla frá bindandi húsaleigu-
samningi við Kjötumboðið til ársins 2009, sem fel-
ur í sér kvöð til greiðslu 60 milljóna króna í húsa-
leigu, gegn því að fá greiddar 5 milljónir króna í
skaðabætur.
Kjötumboðinu veitt
heimild til nauðasamninga
KOSTUN hefur mikið færst í vöxt
meðal fyrirtækja jafnt hér á landi
sem annars staðar. Kostun er hins
vegar margflókið verkefni sem
krefst fagmennsku til að hún skili
tilætluðum árangri. Þetta kom fram
í máli Leópolds Sveinssonar, fram-
kvæmdastjóra markaðssviðs AUK
auglýsingastofu, en hann var fund-
arstjóri á hádegisverðarfundi
ÍMARK sem bar yfirskriftina
„Skila styrkir og kostun árangri?“
Leópold sagði að til að kostun
skili fyrirtækjum tilætluðum ár-
angri væri ekki nóg að styrkja gott
málefni, það þurfi jafnframt að láta
markaðinn vita á óyggjandi hátt að
verið sé að því.
Flutt voru tvö erindi á fundinum.
Hrefna Bachmann, markaðsstjóri
hjá Símanum, sagði í sínu erindi að
árangur fyrirtækisins af kostun
væri ótvíræður. Minni fjármunum
væri varið í kynningar en áður en
árangurinn væri meiri. Þá kom
fram í máli Jóhanns P. Jónssonar,
deildarstjóra markaðs- og kynning-
ardeildar ESSO, að það hafi tví-
mælalaust verið jákvætt fyrir fyr-
irtækið að hrinda af stað
verkefninu ESSO og Bubbi gegn
fíkniefnum. Það verkefni sýndi að
stuðningur við samfélagsverkefni
og ímyndaruppbygging fyrirtækja
geti vel farið saman.
Kostun fylgt
eftir á faglegan hátt
Leópold sagði að um 10 ár væru
liðin frá því fyrst hafi borið á kost-
un hér á landi og að algengustu
kostunarverkefnin væru tengd
íþróttum og öðrum dagskrárliðum
ljósvakamiðla. Menningarmál væru
þó einnig farin að njóta athygli
kostenda. Listasafn Íslands, Ís-
lenski dansflokkurinn og Sinfóníu-
hljómsveitin hafi þannig fengið
verulegan stuðning frá fyrirtækjum
á síðustu misserum. Þá hafi sjúkra-
stofnanir notið góðvildar félagasam-
taka í gegnum tíðina, sem hafi verið
dugleg við að safna peningum hjá
fyrirtækjum og einstaklingum. Er-
lendis byggja sjúkrastofnanir víða
tilveru sína að talsverðu leyti á
kostun. Hann nefndi einnig að
Greenpeace-samtökin byggðu til-
veru sína að meira eða minna leyti
á kostun. Samtökin nái að vera eins
sterk og raun ber vitni á grundvelli
þessa.
Leópold sagði það hafa verið
djarfa ákvörðun hjá ESSO að taka
afstöðu gegn fíkniefnum. Það sé til
vitnis um að eitthvað nýtt sé að
gerast á markaðinum hér á landi.
Kannski muni íslensk fyrirtæki í
auknum mæli taka afstöðu til
ýmssa mála, þegar árangurinn af
átaki ESSO kemur í ljós.
Hann sagði kannanir hafa sýnt
að kostun geti verið árangursríkt
markaðstæki. Þær sýni líka að
kostun skili stundum litlum sem
engum árangri. Kostunarverkefn-
um sem fylgt sé eftir af fullum
krafti á faglegan hátt nái þó oftast
góðum árangri, þ.e. ef fólk þekkir
þær gildrur sem hægt er að falla í
og nær að varast þær.
Leópold sagði skýringarnar á því
að kostun skili ekki tilætluðum ár-
angri geti verið margsnúnar. Al-
gengasta gildran sem fyrirtæki falli
í sé sú að kostendur séu of margir.
Kannanir sýni að ef kostendur eru
orðnir fimm, sex eða fleiri, verði ár-
angurinn fyrir hvert fyrirtæki lítill.
Verkefnin þurfi að vera áhugaverð
og ekki of tengd öðru fyrirtæki. Þá
nefndi hann ónógan sýnileika á
vettvangi, litla eða enga tengingu
við málefnið og of stuttan samn-
ingstíma sem mögulegar ástæður
fyrir því að kostun skili ekki tilætl-
uðum árangri fyrir viðkomandi fyr-
irtæki.
Vel staðið við málefni
lands og þjóðar
Hrefna Bachmann sagði að Sím-
inn hefði sett sér það markmið að
vera þekktur fyrir að veita mark-
vissan stuðning við íþróttir, menn-
ingu og listir, menntun og mann-
úðarmál. Á íþróttasviðinu hafi
fyrirtækið einbeitt sér að stuðningi
við KSÍ og varðandi menningu og
listir að Listasafni Íslands og Leik-
félagi Íslands. Á þessu ári væri
ekki sérstök áhersla lögð á kostun
við menntun, en stefnt væri að því
að gera meira í þeim efnum á
næsta ári. Varðandi mannúðarmálin
hafi markvisst verið unnið að stuðn-
ingi við Krabbameinsfélagið og
Rauða krossinn.
Hún sagði að Síminn hefði kostað
Símadeildina í knattspyrnu síðast-
liðin fjögur ár. Forsendan fyrir því
væru vinsældir knattspyrnunnar
sem fengi mikla umfjöllun í fjöl-
miðlum. Með stuðningi við Lista-
safn Íslands væri verið að nálgast
annan markhóp en í fótboltanum.
Árangurinn hafi skilað sér í 75%
aukinni aðsókn að safninu.
Fram kom í máli Hrefnu að
könnun sem Gallup gerði fyrir Sím-
ann sýndi að um 75% aðspurðra
teldu að fyrirtækið hefði staðið vel
við málefni lands og þjóðar. Þá hafi
jafnframt komið fram að viðhorf al-
mennings til Símans, mælt á
einkunnaskalanum frá 0 til 10, hefði
hækkað úr 6,6 í september á síð-
asta ári í 7,1 í sama mánuði á þessu
ári. Í júní 1997 var samsvarandi
einkunn Símans 7,3, hún var 6,9 í
maí 1998 og 6,9 í ágúst 1999.
Átak gegn
fíkniefnum er jákvætt
Jóhann P. Jónsson sagði frá átaki
ESSO og Bubba Morthens gegn
fíkniefnum. Hann sagði að átakið
snerist fyrst og fremst um forvarn-
ir með fræðslu og fjárstuðningi. Þá
styðji viðskiptavinir ESSO átakið
með notkun safnkorts félagsins.
Foreldrahúsið hafi verið fyrst til að
hljóta styrk vegna átaksins en Jafn-
ingjafræðslan hafi einnig notið góðs
af því. Nýir aðilar verði styrktir í
febrúar á næsta ári.
Jóhann sagði erfitt að meta ár-
angurinn af þessu forvarnarstarfi.
Þar til grundvallar hafi huglæg
áhrif verið metin með viðtölum við
grunnskólanema og skólastjórnend-
ur eftir fyrirlestra sem félagið hafi
staðið fyrir.
Þá hafi markaðslegur árangur
verið metinn eftir söluaukningu og
með markaðskönnunum. Hann
sagði að könnun hafi leitt í ljós að
44% aðspurðra hafi lýst því yfir að
þeir væru jákvæðari í garð ESSO
eftir átakið, 53% væru hvorki já-
kvæðari né neikvæðari en einungis
3% væru neikvæðari. Tvímælalaust
væri því jákvætt að styrkja verk-
efni af þessu tagi.
Fundur ÍMARK um árangur af styrkjum og kostun
Kostun færist í vöxt
Morgunblaðið/Þorkell
Leópold Sveinsson sagði að algengasta skýringin á því að kostun skilaði
fyrirtækjum ekki tilætluðum árangri væri að kostendur væru of margir.
HAGNAÐUR Olíuverzlunar Íslands
hf. á fyrstu níu mánuðum ársins nam
fyrir skatta 47 milljónum króna en
allt árið í fyrra nam hagnaður fyrir
skatta 144 milljónum króna. Félagið
færir á tímabilinu til tekna 81 millj-
ónar króna lækkun á tekjuskatts-
skuldbindingu og nemur hagnaður
samstæðunnar á tímabilinu 112 milj-
ónum króna. Allt árið í fyrra var
hagnaður samstæðunnar 102 milljón-
ir króna.
Velta samstæðunnar nam á tíma-
bilinu 9,6 milljörðum króna en var
11,8 milljarðar króna allt síðasta ár.
Rekstrargjöld voru 1,6 milljarðar
samanborið við 2,2 milljarða króna
allt árið áður.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði, EBITDA, nam 1 milljarði
króna eða sem nemur 10,4% af
rekstrartekjum tímabilsins. Allt árið
í fyrra nam EBITDA hagnaður 729
milljónum króna, sem var 6,2% af
rekstrartekjum ársins.
Hrein fjármagnsgjöld námu 767
milljónum króna á tímabilinu saman-
borið við 344 milljónir króna allt árið
2000. Gengistap á tímabilinu 790
milljónum króna.
Arðsemi eigin fjár 2,8%
Eigið fé í lok tímabilsins var 3,3
milljarðar króna og hafði aukist um
262 milljónir frá árslokum eða 9%.
Eiginfjárhlutfall var 31,9% en var í
árslok 34,0%. Arðsemi eigin fjár
reyndist 2,80% en var 8,20% um ára-
mót. Veltufjárhlutfall var 1,7 og jókst
úr 1,3 frá fyrra ári.
Veltufé frá rekstri nam 653 millj-
ónum króna, en allt árið í fyrra nam
það 406 milljónum króna.
Í tilkynningu frá félaginu segir að
veiking íslensku krónunnar hafi
áfram sett verulegt mark sitt á rekst-
ur og afkomu félagsins á þriðja árs-
fjórðungi. Þá hafi miklar sveiflur og
óvissa í gengismálum einkennt mjög
reksturinn fyrstu níu mánuðina auk
hækkandi eldsneytisverðs. „Vegna
breytinga á ytra umhverfi og versn-
andi afkomu hafa stjórnendur félags-
ins gripið til aðhaldsaðgerða, sem
hafa skilað nokkrum árangri. Standa
vonir til að áframhaldandi aðhaldsað-
gerðir muni skila félaginu enn frekari
árangri á næstu misserum.“
Sameinast Ellingsen-Sandfelli
Þá hefur verið tilkynnt um að
stjórnir Olíuverzlunar Íslands og Ell-
ingsen-Sandfells ehf. hafi ákveðið að
sameina félögin frá 1. júlí 2001. „Olís
á allt hlutafé í Ellingsen-Sandfelli
ehf. og renna allar eignir, skuldir og
skuldbindingar Ellingsen-Sandfells
ehf. inn í Olís. Hlutafé í Olís breytist
ekki við samrunann og gilda sam-
þykktir Olís um hið sameinaða félag“,
segir í tilkynningunni.
Hagnaður
Olís fyrir
skatta 47
milljónir
REKSTUR Tryggingamiðstöðvar-
innar hf., TM, skilaði 334 milljóna
króna hagnaði á fyrstu níu mánuðum
ársins, en á sama tímabili í fyrra nam
hagnaðurinn 150 milljónum króna.
Aukningin nemur 122% á milli ára
eða ríflega tvöföldun.
Eigin iðgjöld TM námu 3,4 millj-
örðum króna á tímabilinu og jukust
um 31% frá sama tímabili í fyrra.
Fjárfestingatekjur af vátrygginga-
rekstri nam rúmum 1 milljarði króna,
sem er 82,5% aukning frá fyrra ári.
Aukningin er sögð skýrast af mikilli
verðbólgu á fyrri hluta ársins og
háum vöxtum.
Eigin tjón námu 3,2 milljörðum
króna og er það 26% aukning frá
sama tímabili árið 2000. Hreinn
rekstrarkostnaður nam 626 milljón-
um króna, sem er 23% aukning frá
fyrra ári en alls nam hagnaður af vá-
tryggingarekstri 606 milljónum
króna og er það nær sexföldun frá
fyrra ári.
Tap af fjármálarekstri nam 101
milljón króna samanborið við 229
milljóna króna hagnað árið áður, en
það skýrist af því að mun hærri fjár-
hæð var nú yfirfærð á fjárfestinga-
tekjur af vátryggingarekstri en áður.
Veltufé frá rekstri var rúmir 2
milljarðar króna, en var ríflega 1,1
milljarður á sama tímabili í fyrra.
Í tilkynningu frá TM segir að félag-
ið telji afkomu tímabilsins viðunandi.
Verulegt tap hafi verið á eignatrygg-
ingum sem fyrr, m.a. vegna þriggja
stórra brunatjóna. Þá segir að veru-
legur bati hafi orðið á afkomu öku-
tækjatrygginga og sé meginástæðan
sú að iðgjaldahækkanir síðasta árs
séu nú farnar að skila sér auk þess
sem fyrstu fjórir mánuðir ársins hafi
verið óvenju tjónaléttir.
Gert er ráð fyrir að hagnaður á
árinu verði nálægt 400 milljónum.
Hagnaður
TM ríflega
tvöfaldast
SPARISJÓÐUR Hafnarfjarðar
hefur sent frá sér eftirfarandi
tilkynningu:
„Í gær, mið-
vikudaginn 21.
nóvember,
sagði Jónas
Reynisson,
sparisjóðs-
stjóri, upp
starfi sínu hjá
Sparisjóði
Hafnarfjarðar
frá 30. nóvem-
ber 2001 af
persónulegum ástæðum. Sam-
komulag varð um að starfslok
hans yrðu frá og með deginum í
dag, 22. nóvember 2001. Stjórn
Sparisjóðs Hafnarfjarðar sam-
þykkti afsögn Jónasar.“
Hættur
hjá SPH
Jónas
Reynisson
MIKIL viðskipti voru áfram með
hlutabréf í Bakkavör hf. í gær í kjöl-
far tilkynningar á þriðjudag um
kaup félagsins á bresku matvæla-
framleiðslufyrirtæki.
Viðskipti gærdagsins námu 79,4
milljónum króna en á miðvikudag
námu viðskiptin 89,7 milljónum
króna. Til samanburðar má geta
þess að á föstudag, þegar síðast var
verslað með bréf í félaginu áður en
kaupin voru tilkynnt, námu viðskipti
dagsins 2,3 milljónum króna.
Lokagengi bréfanna hækkaði lít-
illega frá miðvikudegi, fór úr 5,9 í 6,0.
Lokagengi sl. föstudags var hins
vegar 4,54 og nam verðhækkun
hlutabréfanna á miðvikudag 30%.
Skráð hlutafé Bakkavarar er tæp-
ar 700 milljónir króna að nafnvirði.
Miðað við lokagengi gærdagsins er
markaðsvirði félagsins því 4,2 millj-
arðar króna.
Enn mikil við-
skipti með bréf
í Bakkavör
♦ ♦ ♦