Morgunblaðið - 23.11.2001, Síða 41
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2001 41
O
D
D
IH
F
H
63
81 Nóatúni 4 • 105 Reykjavík
Sími 520 3000
www.sminor.is
Ljós í miklu
úrvali fyrir
heimilið.
Mannréttindavakt í Palestínu
Hjálparstarf kirkjunnar leitar að fólki til þess að taka þátt í norrænni mannréttindavakt í
Palestínu. Hlutverk hennar verður að fylgjast með mannréttindabrotum og taka þátt í
starfi samstarfsaðila á svæðinu.
Leitað er að fólki með menntun/reynslu á sviði heilsugæslu, mannréttinda- og félagsstarfa.
Meðal almennra skilyrða fyrir þátttöku er 24 ára lágmarksaldur, góð heilsa, sjálfstæði í
vinnubrögðum, færni í ensku og ferðareynsla en ýmsir fleiri þættir koma að notum. Fyrir
lækna eða hjúkrunarfólk er reynsla af bráðamóttöku kostur. Dvalartími í Palestínu er 6
mánuðir, annars vegar frá febrúar 2002 og hins vegar frá ágúst 2002. 10 daga
undirbúningsnámskeið er haldið í Danmörku.
Nánari upplýsingar veittar í síma 562 4400. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu
og á help.is. Umsóknarfrestur er til 12. desember og skal umsóknum skilað til
Hjálparstarfs kirkjunnar, Laugavegi 31, 150 Reykjavík.
ÞAU voru brosandi
og sæl, fermingarbörn
næsta vors, þegar þau
komu til baka með
söfnunarbauka Hjálp-
arstarfs kirkjunnar.
Spennt voru þau að
vita hve mikið hefði
safnast og vottuðu að
yfirleitt hefði verið
tekið vel á móti þeim –
þótt í einstaka tilfell-
um hefði fullorðið fólk
hreytt í þau ónotum,
jafnvel vísað þeim á
dyr.
Þetta söfnunarátak
fór nú fram í þriðja
sinn. Fermingarbörn í
33 prestaköllum víða um land gengu
í hús mánudagseftirmiðdaginn 5.
nóv.
Samtals söfnuðust 3 milljónir
króna. Það er umtalsvert meira en
áður í slíkum herferðum, nærri tvö-
földun frá síðustu söfnun. Þá söfn-
uðust 1,6 milljónir í 27 prestaköllum
en í fyrsta skiptið 1,1 milljón í 24
prestaköllum.
Með þessu átaki eru slegnar tvær
flugur í einu höggi. Fermingarbörn-
in leggja sitt af mörkum til að
stuðla að betri heimi
og eru minnt á að
náungi okkar er sér-
hvert mannsbarn, nær
eða fjær, sem við get-
um liðsinnt. Í aðdrag-
anda söfnunarinnar
fengu líka þau sjálf
fræðslu um kjör fólks í
fátækari löndum og
verkefni Hjálparstarfs
kirkjunnar í Mósambík
og Eþíópíu.
Þangað rennur söfn-
unarféð óskert.
Á annað þúsund
unglingar tóku þátt í
þessu söfnunarátaki og
tæpum hálfum mánuði
áður unnu nokkur hundruð eldri
unglingar dagsverk í þágu Hjálp-
arstarfsins.
Af þessu er ljóst að íslensk ung-
menni vilja bæta hag þeirra verr
settu í veröldinni, leggja sitt af
mörkum til að bræður okkar og
systur um víða veröld eignist betri
lífsskilyrði og meiri von um framtíð.
Nú nálgast aðventa og jól, tími
birtu og gleði og friðar. Víða er þó
myrkt í veröldinni þar sem sorg rík-
ir og ófriður æðir. Við biðjum og
vonum að ástandið batni, að kúgun
linni og óréttlætið verði að hörfa
fyrir kærleika, sáttfýsi og skilningi.
Leggjum líka okkar af mörkum
til að svo verði. Margt smátt gerir
eitt stórt.
Hver króna til Hjálparstarfs
kirkjunnar – og annarra félaga sem
stunda kristniboð og hjálparstarf –
er áfangi á leiðinni til betri heims
og auðugra lífs. Hvert framlag er
blessun þeirra sem gefa og þeirra
sem þiggja. Með því að gefa erum
við nefnilega líka að þiggja og við
gefum af því að við höfum sjálf þeg-
ið.
Ólafur
Jóhannsson
Söfnunarátak
Íslensk ungmenni
vilja leggja sitt af
mörkum, segir Ólafur
Jóhannsson, til að
bræður okkar og systur
um víða veröld eignist
betri lífsskilyrði og
meiri von um framtíð.
Höfundur er sóknarprestur
í Grensáskirkju.
Er sælla að
gefa en þiggja?
LAUGARDAGINN
24. nóvember næst-
komandi verður
Lagnakerfamiðstöð
Íslands formlega opn-
uð til afnota fyrir þá
sem þangað vilja
sækja fróðleik og lær-
dóm um lagnir og bún-
að.
Það er búið að bíða
lengi eftir þessum
áfanga í möguleikum
lagnasviðsins til að
bæta fagmennsku og
til að geta gert til-
raunir með efni og
fyrirkomulag sem svo
nýtist þegar út í raun-
veruleikann er komið.
Hér er átt við bæði frágang efnis
í byggingum og hönnun lagna til
þess að ná sem bestum árangri fyr-
ir rekstur byggingar.
Það er mikið hægt að læra af
reynslu úti í mörkinni, enda hefur
það verið eini verklegi skólinn sem
fagmenn á lagnasviðum hafa haft
til þessa og það hefur
skilað mörgum góðum
fagmönnum (bæði iðn-
aðarmönnum og hönn-
uðum) út í atvinnulíf-
ið.
En engin aðferð er
einhlít og aðstæður
valda því oft á tíðum
að menn fá ef til vill
ekki þann tíma eða þá
tilsögn sem þeir þurfa.
Oft er það vegna þess
að vinna í verkþáttum
lagnamanna þarf að
fara fram þegar farið
er að nálgast að við-
komandi bygging
verði tekin í notkun,
allir eru óþolinmóðir, það er rekið á
eftir og menn freistast til að hafa
einhvers konar flýtimeðferð á frá-
gangi. Oft og sennilega langoftast
er þetta í lagi, en undantekning-
arnar eru því miður til. Afleiðingar
undantekninganna eru vel þekktar,
það er leki.
Lekar/vatnsskaðar kosta húseig-
endur meira en einn milljarð á ári,
og fer jafnvel hátt í tvo á þessu ári,
eftir því sem kom fram hjá fulltrúa
tryggingafélaga á fjölmennum
fundi sem Lagnafélagið stóð fyrir
sl vor.
Með tilkomu Lagnakerfamið-
stövarinnar er kominn möguleiki til
þess að rannsaka hvað það er sem
einkum er varasamt við frágang
lagna almennt og þar með leið til
þess að fækka undantekningunum.
Það eru miklar vonir bundnar við
tilkomu þessarar stöðvar og trú
mín að þessar vonir rætist, en það
er undir fagmönnunum (iðnaðar-
mönnum, verk- og tæknifræðing-
um) sjálfum komið hvernig til
tekst, möguleikinn er til staðar nú
er um að gera að nýta hann.
Laugardaginn 24.11. nk. kl. 14
verður Lagnakerfamiðstöðin opnuð
almenningi og einnig sunnudaginn
25.11. nk. kl. 13.
Þrjátíu og fimm fyrirtæki og
stofnanir kynna vörur sýnar og
þjónustu á lagnasviði í stöðinni.
Fólk er hvatt til þess að koma á
sýninguna og fá svör sérfræðinga
við spurningum sínum sér að
kostnaðarlausu.
Lagnakerfamiðstöð Íslands
Egill Skúli
Ingibergsson
Lagnir
Það eru miklar vonir
bundnar við tilkomu
þessarar stöðvar, segir
Egill Skúli Ingibergs-
son, og trú mín að
þessar vonir rætist.
Höfundur er formaður Gæðamats-
ráðs, Lagnafélags Íslands.
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Oxygen face
FRÉTTIR
mbl.is
MORTÉL
Eins og notað er í
sjónvarpsþættinum
kokkur án klæða
Verð frá kr. 4.500
Klapparstíg 44
sími: 562 3614