Morgunblaðið - 06.12.2001, Síða 18
LANDIÐ
18 FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
meistar inn. is
GULL ER GJÖFIN
Fréttir af landsbyggðinni eru
einnig á blaðsíðu 58.
ANNA Lára Guðjónsdóttir hár-
snyrtir, opnaði nýverið hár-
greiðslustofu í verslanamiðstöðinni
á Tálknafirði. Hársnyrtistofa hefur
ekki verið starfrækt hér á staðnum.
Það var unnið fram á síðustu
mínútu við að gera allt tilbúið fyrir
opnunina og þegar fyrstu við-
skiptavinirnir komu inn, fóru síð-
ustu iðnaðarmennirnir út. Eins og
áður sagði, er stofan til húsa í
Mettu-húsinu, innri endanum, við
hliðina á Handverkshúsinu. Er
þetta góð viðbót við þá flóru versl-
unar og þjónustu sem fyrir var.
Anna Lára er Vestmannaeyingur
að uppruna og flytur hingað frá
Reykjavík. Síðastliðið sumar kom
hún í frí á Tálknafjörð og leist svo
vel á staðinn, að hún ákvað að flytja
hingað. Með henni flytur sonur
hennar Sindri Þór, átta ára.
Tveir bílar með búslóð
Annað þessu tengt gerðist á svip-
uðum tíma, að tveir flutningabílar
með búslóðir komu í Tálknafjörð og
staðnæmdust hlið við hlið í Túngöt-
unni. Annar bíllinn kom frá Ak-
ureyri með búslóð og hinn frá
Reykjavík.
Morgunblaðið/Finnur
Anna Lára með einn af fyrstu
viðskiptavinunum.
Fyrsta
hárgreiðslu-
stofan opnuð
Tálknafjörður
HAUKUR Þórðarson, kennari við
Lýsuhólsskóla, er mikill áhugamað-
ur um umhverfismál og vinnur öt-
ullega að þeim. Á nýlegu ferðalagi
hans í London rakst hann á klukku
sem gengur fyrir kaktusum. Já,
fyrir þeirri orku sem kaktusar
framleiða með ljóstillífun.
Annar endinn á orkuleiðara er
tengdur við klukkuna og hinum er
stungið ofan í moldina sem kakt-
usarnir eru í. Haukur segir að
klukkan geti reyndar gengið fyrir
orku frá hvaða jurt sem er, en meg-
intilgangurinn sé að sýna að ekki
þurfi að nota rafhlöður við klukku-
verkið, sem geti haft skaðleg áhrif
á umhverfið þegar hleðslan úr þeim
hefur verið fullnotuð.
Morgunblaðið/Guðrún Bergmann
Klukkan sem gengur
fyrir kaktusum.
Klukka sem
gengur fyrir
kaktus
Hellnar/Snæfellsbær
MIKILL hátíðisdagur var hjá félagi
eldri borgara í Hveragerði 1. desem-
ber, því þá var formlega tekið í notk-
un nýtt og glæsilegt húsnæði sem fé-
lagið hefur nýverið fest kaup á. Um
er að ræða efri hæð í nýbyggingu við
Breiðumörk, en þar eru einnig til
húsa heilsugæsla og Lyf og heilsa.
Aðgengi er gott og lyfta upp og ættu
því allir að geta mætt í félagsstarfið
sem boðið verður upp á.
Auður Guðbrandsdóttir, formaður
félagsins, bauð gesti, sem fylltu
húsakynnin, velkomna. Hún bauð
sérstaklega velkomna brottflutta
Hvergerðinga sem mættu. Þakklæti
var formanninum ofarlega í huga og
sagði hún að ef ekki væri meðbyr þá
áorkaði maður engu. Auður sagði að
félagsmenn hér væru orðnir fremstir
meðal jafningja hvað félagsaðstöðu
varðaði með kaupum á þessu nýja og
glæsilega húsnæði. Núna er yngra
fólkið hér í bænum farið að bíða eftir
því að komast á réttan aldur til að fá
að taka þátt í starfinu í félaginu.
Jón Ragnarsson prestur blessaði
húsið og Ólafur Steinsson rakti sögu
þess að út í þessar framkvæmdir var
farið. Upphafið að þessu öllu saman
er að Þorlákur heitinn á Þurá arf-
leiddi félagið að eigum sínum er
hann lést. Síðan hefur margt gerst
og mikið verið rætt en niðurstaðan
varð sú að þetta húsnæði var keypt
af Byggðaseli. Aldís Hafsteinsdóttir,
forseti bæjarstjórnar, ávarpaði gesti
og flutti árnaðaróskir. Bæjarstjór-
inn, Hálfdán Kristjánsson, óskaði fé-
laginu til hamingju með nýja hús-
næðið og sagði gestum m.a. frá því
að móðir sín hefði sagt sér á yngri
árum að ef hann kæmi í hús þar sem
enginn væri kross, þá skyldi hann
endilega gauka einum að ábúendum.
Þau hjónin hefðu því ákveðið að
gauka einum slíkum að félaginu.
Séra Tómas Guðmundsson, fyrr-
um prestur Hvergerðinga, ávarpaði
gesti og bað þá að sætta sig við að
þeir væru bara orðnir gamalmenni
og ekkert með það. Tvennt væri gott
við þennan aldur, annars vegar að
heyrnin minnkaði og hins vegar væri
alveg sama hvað hann segði hér því
að því myndu allir gleyma strax. Að
loknu ávarpi Tómasar var gestum
boðið upp á veitingar.
Meðan á því stóð kom Árni Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri Heilsu-
stofnunar, og afhenti félaginu að gjöf
100 þúsund krónur. Hann notaði
einnig tækifærið og sagði frá því að
ákveðið hefði verið að byggja þjón-
ustuíbúðir fyrir aldraða í landi
Heilsustofnunar á næstunni. Síðan
óskaði hann félaginu hjartanlega til
hamingju með nýja og glæsilega
húsnæðið. Síðast flutti Bryndís Sig-
urðardóttir hamingjuóskir og óskaði
félaginu velfarnaðar í framtíðinni.
Eldri borgarar,
heldri borgarar
Hveragerði
Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir
Bæjarstjórinn Hálfdán Krist-
jánsson og kona hans Helga
Guðjónsdóttir með krossinn sem
þau færðu félaginu í nýja húsið.
OPIÐ hús verður föstudaginn 7. des-
ember frá klukkan 14 til 19 með fjöl-
breyttri dagskrá í Ráðhúsi Árborg-
ar, Austurvegi 2 á Selfossi.
Þá munu stofnanir opna dyr sínar
og kynna starfsemi sína fyrir íbúum
Sveitarfélagsins Árborgar og öðrum
áhugasömum. Tilefnið er að nú er að
ljúka umfangsmiklum endurbótum á
húsinu sem staðið hafa allt frá árinu
1997. Í húsinu eru nú Ráðhús Ár-
borgar, Bæjar- og héraðsbókasafnið
á Selfossi og Héraðsskjalasafn Ár-
nesinga.
Einnig verður opið hús á sama
tíma á Austurvegi 2 a-b, sem nefnt
var Pakkhúsið á árum áður. Þar eru
nú til húsa Rannsóknarmiðstöð Há-
skóla Íslands í jarðskjálftaverkfræði
og veitingahúsið Pakkhúsið.
Ljósmyndasýning í Ráðhúsinu
Í fundarsal á þriðju hæð hússins
verður ljósmyndasýning þar sem
sýndar verða um 60 gamlar myndir
frá sögu hússins, sem var byggt árið
1946. Í húsinu voru m.a. höfuðstöðv-
ar Kaupfélags Árnesinga, deilda-
skipt verslun, kjörbúð, ýmsar þjón-
ustustofnanir, líkamsræktarstöð og
skemmtistaðurinn Gjáin. Einnig
verða þar sýnd myndbönd með við-
tölum við gamla Selfossbúa, sem
Marteinn Sigurgeirsson tók. Ljós-
myndasýningin verður einnig opin
laugardaginn 8. desember frá 11 til
14.
Klukkan 17 verður afhjúpað í
fundarsalnum málverk, sem bæjar-
stjórn hefur látið mála af Sigurði
Inga Sigurðssyni, oddvita Selfoss-
hrepps á árunum 1958–1970. Einnig
verður flutt tónlist á vegum Tónlist-
arskóla Árnesinga við sama tæki-
færi. Í Ráðhúsinu verður starfsemin
kynnt með leiðsögn um skrifstofur
sveitarfélagsins klukkan 15, 16 og
18. Í bókasafninu verður opnuð sýn-
ingin „Jólasveinar í Ráðhúsinu“, og
Héraðsskjalasafnið kynnir einnig
starfsemi sína.
Í Rannsóknarmiðstöð Háskóla Ís-
lands í jarðskjálftaverkfræði gefst
fólki kostur á að skoða miðstöðina
með leiðsögn. Klukkan 16, 17 og 18
verða erindi í fundarsal rannsóknar-
miðstöðvarinnar, og er efni þeirra
„jarðskjálftar með tilliti til jarð-
skjálfta á Suðurlandi“. Eins geta
gestir kynnst og skoðað „jarð-
skjálfta“ sem þeir sjálfir geta fram-
kallað við hlið jarðskjálftamælis með
skjá.
Loks geta gestir á opnu húsi kom-
ið við í veitingahúsinu Pakkhúsinu
og fengið sér óáfengt jólaglögg á sér-
stöku tilboði auk þess að skoða
myndir á veggjum frá Selfossi fyrri
tíma.
Breytingum á ráðhúsinu lokið
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Mynd Jóhanns Þ. Sigurbergssonar; Austurvegur 2 um jólaleytið á öndverðum 6. áratugnum.
Selfoss