Morgunblaðið - 06.12.2001, Qupperneq 24
ERLENT
24 FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BANDARÍSKAR herflugvélar vörp-
uðu í gær sprengjum á meintan felu-
stað Osama bin Ladens í hella-virkinu
Tora Bora sem er í Hvítufjöllum í
Austur-Afganistan. Afganskir her-
menn börðust við skæruliða al-
Qaeda-samtakanna og náðu á sitt vald
hluta dalsins fyrir neðan fjallið sem
virkið er grafið í.
Þykkan reyk lagði upp frá Hvítu-
fjöllum þegar háfleygar B-52 þotur
tæmdu sprengjulestar sínar yfir fjall-
garðinum, sem er suður af borginni
Jalalabad í austurhluta Afganistans.
Virkið Tora Bora er nefnt eftir þorpi
sem er skammt frá fjallinu, og er virk-
ið gert úr hellum og göngum sem
grafin eru um 300 metra inn í fjallið.
Fréttamenn við víglínuna fylgdust
með er hersveitir andstæðinga talib-
ana og al-Qaeda beittu skriðdrekum
og létu skothríðina dynja á virkinu.
Afganski ættbálkshershöfðinginn
Alim Shah sagði að menn sínir sæktu
gegn liði sem í væru aðallega arab-
ískir al-Qaeda-liðar. Þeir væru á und-
anhaldi, verðust með sprengikúlum,
flugskeytum og rifflum og fikruðu sig
ofar í fjallið.
„Við gerum okkar besta til að ná
þeim lifandi. Við höfum umkringt þá,
en þeir gefast ekki upp,“ sagði Shah.
Kvað hann menn sína mæta harðri
andspyrnu. Flóttaleiðir til Pakistans í
austri væru lokaðar vegna snjóa, og
hermenn talibana og al-Qaeda kæm-
ust hvorki lönd né strönd.
Spurnir af bin Laden
Ekkert sást til bin Ladens en haft
var eftir Hazrat Ali, yfirmanni örygg-
issveita Austurstjórnarinnar, sjálf-
skipaðra yfirvalda í Nangarhar, þar
sem Hvítufjöll eru, að bin Laden hefði
sést í fjallavirkinu fyrir fáum dögum.
Haji Mohammed Zaman, yfirmað-
ur herafla Austurstjórnarinnar, sagði
að leyniþjónustumenn sínir hefðu
greint frá því að bandarískar
sprengjuflugvélar hefðu sært og ef til
vill fellt Ayman al-Zawahri, næst-
æðsta yfirmann al-Qaeda og helsta
samverkamann bin Ladens, sl. mánu-
dag. Arabíska sjónvarpsstöðin al-Jaz-
eera greindi frá því að fjölskylda al-
Zawahris hefði farist í loftárásunum,
en hann sjálfur hefði sloppið. Hátt-
settur bandarískur embættismaður,
sem krafðist nafnleyndar, sagði í sam-
tali við AP-fréttastofuna í gær að
Bandaríkjamenn hefðu um það „trú-
verðugar upplýsingar“ að nánustu
fjölskyldumeðlimir al-Zawahri hefðu
fallið í umræddri árás. Hermt var að
þar ræddi um eiginkonu hans og
þrjár dætur.
Austurstjórnin segir að al-Zawahri
sé innikróaður í Tora Bora, en allt að
sautján framámenn í al-Qaeda og tal-
ibanahreyfingunni hafi fallið í loft-
árásunum á mánudaginn. Meðal
þeirra hafi verið Ali Madmud, fjár-
málastjóri bin Ladens.
Fregnir af því hverjir hafi fallið og
hverjir sloppið lifandi úr árásunum
hafa reyndar verið óljósar og misvís-
andi undanfarna daga. Bandarísk
hermálayfirvöld hafa ekki staðfest að
Madmud hafi fallið eða að al-Zawahri
hafi særst. Þriðji yfirmaðurinn í al-
Qaeda-samtökunum, Egyptinn Mu-
hammed Atef, féll fyrir bandarískum
sprengjum fyrir þrem vikum. Hann
stjórnaði hernaði samtakanna.
Einnig hafa fregnir af dvalarstað
bin Ladens verið óljósar og misvís-
andi. Fjöldi heimildarmanna hefur
greint frá því að sést hafi til hans í
Nangarhar-héraði í síðasta mánuði,
og hafa margir sagt að bin Laden
væri reiðubúinn að berjast til þrautar
í Hvítufjöllum.
Zaman sagðist viss um að bin Lad-
en væri enn í felum í fjöllunum, þar
sem hersveitir andstæðinga talibana
hafa hafið umsátur og lent í átökum
við al-Qaeda-liða. „Hann er þarna,“
sagði Zaman, en vildi ekki greina nán-
ar frá því hvaðan hann hefði upplýs-
ingar sínar.
Ali tjáði fréttamönnum að bin Lad-
en hefði sést á svæðinu fyrir einungis
fjórum dögum. „Við fengum upplýs-
ingar um að hann hefði verið þar fyrir
fjórum, fimm eða sex dögum, en nú
hef ég ekki upplýsingar um hvort
hann er þarna eða ekki.“ Ali sagði
ennfremur að al-Zawahri hefði nýlega
sést á þessum slóðum.
Bæði Zaman og Ali sögðu að þeir
þyrftu ekki að bíða eftir aðstoð
Bandaríkjamanna til að hefja bar-
daga gegn al-Qaeda-hernum, sem
stjórnað væri af þrautþjálfuðum,
áköfum bardagamönnum. „Við þurf-
um ekki á þeim að halda,“ svaraði
Zaman þegar hann var spurður af
hverju árásin yrði gerð án þátttöku
Bandaríkjamanna. „Þetta eru okkar
fjöll, þetta er okkar land.“
ÞESSIR bandarísku hermenn
reyna að halda á sér hita með því að
vefja um sig svefnpoka en mjög kalt
er orðið í Afganistan. Þeir eru hér á
verði í skotgröf við bækistöð, sem
Bandaríkjamenn hafa komið sér
upp fyrir sunnan Kandahar.
Í kuldanum í
Afganistan
Reuters
Sprengjum varpað á meint-
an felustað bin Ladens
Allt að 17 yfirmenn í al-Qaeda sagðir hafa fallið í loftárásum Bandaríkjamanna
Tora Bora, Jalalabad. AP, Washington Post, Newsday.
ÞRÍR bandarískir hermenn
biðu bana og tuttugu særðust í
Afganistan í gær þegar
sprengja frá bandarískri her-
flugvél af gerðinni B-52 missti
marks.
Sprengjan féll norðan við
Kandahar, einu borgina sem er
enn á valdi talibana. Markmiðið
með árásinni var að styrkja víg-
stöðu andstæðinga talibana sem
hafa sótt í átt að Kandahar.
Særðu hermennirnir voru
fluttir í bækistöð 1.300 land-
gönguliða um 110 km suðvestan
við Kandahar. Þaðan verða þeir
fluttir á sjúkrahús í einhverju
öðru landi.
Fjórir Bandaríkjamenn hafa nú
fallið í Afganistan í stríðinu sem
hófst fyrir tveimur mánuðum.
Herþjálfaður útsendari leyniþjón-
ustunnar CIA beið bana í upp-
reisn fanga í virki í norðurhluta
Afganistans 25. nóvember þegar
hann var að yfirheyra talibana
meðal fanganna.
Sprengjurnar geiga
Þetta er í annað sinn sem
bandarísk sprengja geigar í Afg-
anistan og lendir nálægt banda-
rískum hermönnum. Fimm
bandarískir hermenn særðust al-
varlega þegar sprengja missti
marks í árás á virkið þar sem
Bandarísk sprengja missir marks
Þrír Banda-
ríkjamenn falla
og 20 særast
!"!#
$%& & '
'(% )%*
+ + ''
!"
,
$-+./0
##
$
%&" '(%!"
! " "#
! $ "
%
%"
&%
& '
) * "
+ "
,+ - " .
. "/
01.2,31*
''()*+'(
%##
)+
!
"
Washington. AP.
uppreisnin var gerð. Donald H.
Rumsfeld, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, hefur sagt að
hættan á mannfalli meðal banda-
rískra hermanna hafi aukist nú
þegar stríðið er komið á lokastig.
„Aðstæðurnar eru mjög flóknar
og ruglingslegar og verkefni
okkar er því hættulegt og erfitt,“
sagði varnarmálaráðherrann í
fyrradag. „Ástandið í Kandahar
er flókið. Þetta er ekki auðvelt
en eitt er víst: talibanar og liðs-
menn al-Qaeda verða hraktir frá
Kandahar.“
Bandarískar herflugvélar hafa
haldið uppi árásum á Kandahar
og skotmörk í fjöllum sunnan við
borgina Jalalabad þar sem talið
er að Osama bin Laden og helstu
samstarfsmenn hans séu í felum
í hellum og göngum.
Tveir hópar andstæðinga tal-
ibana hafa sótt í átt að Kandahar
og annar þeirra er undir stjórn
Hamids Karzais, sem verður for-
sætisráðherra bráðabirgða-
stjórnarinnar í Afganistan.
Bandarískur hermaður særð-
ist í átökum nálægt Kandahar í
fyrradag en er ekki í lífshættu.
Fjórir bandarískir hermenn,
sem taka þátt í hernaðaraðgerð-
unum, hafa látið lífið í slysum ut-
an Afganistans, tveir þeirra í
þyrluslysi í Pakistan.