Morgunblaðið - 06.12.2001, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.12.2001, Blaðsíða 26
ERLENT 26 FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Bygginga- og tækjasjóður RANNÍS Umsóknarfrestur til 15. janúar 2002 Bygginga- og tækjasjóður RANNÍS hefur það hlutverk að styrkja tækjakaup og uppbyggingu á aðstöðu til rann- sókna í vísindum og tækni. Árlega eru veittir styrkir úr sjóðunum til opinberra vísinda- og rannsóknastofnana. Við mat á umsóknum er tekið mið af stefnu Rannsóknar- ráðs Íslands um eflingu samstarfs milli háskóla, rann- sóknastofnana og atvinnulífs og áherslum ráðsins árið 2001. Helstu kröfur sjóðsins eru ·  Að samstarf verði um nýtingu aðstöðu og/eða tækja milli stofnana og atvinnulífs með fyrirsjáanlegum hætti.  Að fjárfestingin skapi nýja möguleika sem ekki voru áður fyrir hendi.  Að möguleiki sé á samfjármögnun þannig að framlag Bygginga- og tækjasjóðs greiði aðeins hluta kostnaðar við fjárfestinguna.  Að styrkir til tækjakaupa tengist verkefnum sem aðrir sjóðir RANNÍS styrkja. Nánari upplýsingar um Bygginga- og tækjasjóð og eyðu- blöð sjóðsins eru á heimasíðu RANNÍS www.rannis.is. Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2002 HAMID Karzai, einn helsti leiðtogi Pastúna, stærsta þjóðarbrotsins í Afganistan, hefur verið skipaður forsætisráðherra bráðabirgða- stjórnar í Afganistan en sam- komulag náðist um þetta í Bonn í gær. Karzai tekur um þessar mundir þátt í bardögum gegn tal- ibönum við borgina Kandahar í suður- hluta landsins. Karzai er 44 ára fyrrverandi aðstoð- arutanríkisráðherra Afganistans og bandamaður Moham- meds Zahirs Shah, hins útlæga konungs Afganistans. Karzai þykir veraldarvanur, hann stundaði á sín- um tíma nám á er- lendri grundu og tal- ar reiprennandi ensku. Karzai er af einni voldugustu ætt Past- úna í suðurhluta Afganistans, Po- polzai-ættinni. Faðir hans, sem var myrtur í Quetta í Pakistan ár- ið 1999, var höfuð ættarinnar og þjónaði á sínum tíma undir Shah konungi. Karzai dvaldist í Pakistan með- an á hersetu Sovétríkjanna stóð á níunda áratugnum en varð aðstoð- arutanríkisráðherra landsins þeg- ar íslamskir uppreisnarmenn, undir stjórn Burhanuddins Rabb- ani, komust til valda 1992. Stjórn Rabbani skiptist hins vegar í fylkingar og óreiða ein- kenndi stjórnarár hans. Er talið að 50 þúsund manns hafi fallið í þeirri gjörningahríð. Karzai sagði af sér embætti er hann sá hvers kyns var. Studdi talibana í upphafi Karzai studdi upphaflega stofn- un talibanahreyfing- arinnar árið 1994 enda taldi hann það einu leiðina til að út- rýma þeirri lögleysu sem þá einkenndi heimahérað hans, Kandahar, og raunar landið allt. Árið eftir fóru talibanar fram á að hann yrði fasta- fulltrúi þeirra hjá Sameinuðu þjóðunum en hann var þá þegar orðinn ósáttur við stjórnarhætti þeirra. Taldi Karzai að talib- anar hefðu gengið stjórnvöldum í ná- grannaríkinu Pakistan á hönd. Eftir að Bandaríkjamenn hófu hernaðaraðgerðir sínar í Afganist- an 7. október sl. laumaðist Karzai aftur inn í Suður-Afganistan ásamt öðrum þekktum stjórn- arandstæðingi af þjóð Pastúna, Abdul Haq, og var markmið þeirra að hvetja þar til uppreisnar gegn talibönum. Talibanar náðu Haq og tóku hann af lífi en Karzai slapp naumlega með aðstoð Bandaríkja- manna. Ekki leið þó á löngu uns hann sneri aftur, til að taka þátt í baráttunni gegn talibönum. Af einni voldug- ustu ætt Pastúna Hamid Karzai Kabúl. AP. BRÁÐABIRGÐASTJÓRN fyrir Afganistan mun taka við völdum í landinu 22. desember en skrifað var undir sögulegt samkomulag um þetta í Bonn í Þýskalandi í gærmorgun. Hafa þeir fjórir hópar, sem ræðst hafa við í Þýskalandi, fallist á skipan 30 manna ríkisstjórnar. Stjórnin er skipuð til sex mánaða og er vonast til að þessi tíðindi marki skref í átt að pólitískum stöðugleika og varanleg- um friði í landinu. Leiðtogar sendinefndanna fjög- urra ásamt sendifulltrúa Sameinuðu þjóðanna í málefnum Afganistans skrifuðu undir samkomulagið við dynjandi lófaklapp. Samkomulagið náðist eftir níu daga viðræður en leið- togi Pastúna, Hamid Karzai, verður forsætisráðherra bráðabirgðastjórn- arinnar. Fimm varaforsætisráðherrar verða skipaðir og ein kona verður þeirra á meðal, Sima Samar, sem jafnframt verður ráðherra málefna kvenna. Ein kona til viðbótar fær embætti innan ríkisstjórnarinnar, Suhaila Seddiqi, sem verður heil- brigðisráðherra. Stjórnin er skipuð til sex mánaða en að þeim tíma liðnum myndi „þjóð- fundur“ Afgana, hið svokallaða loya jirga, koma saman til að skipa stjórn til tveggja ára. Á þeim tíma yrði unnið að því að semja stjórnarskrá fyrir Afganistan, sem byggð yrði á stjórn- arskrá landsins frá 1964, og undirbúa kosningar. Allt að fimmtán hundruð manns myndu sækja þjóðfundinn og er gert ráð fyrir að Mohamed Zahir Shah, fyrrum konungur Afganistans, yrði þar í forsæti. Vonast er til að hann geti orðið að eins konar samein- ingartákni fyrir þjóðabrotin í Afgan- istan. Loks gera samningarnir ráð fyrir því að fjölþjóðlegt friðargæslulið verði til staðar í Kabúl en ekki er kveðið á um stærð þess liðs, hlutverk eða hversu lengi því væri ætlað að dvelja í Afganistan. Ætlast er til þess að bráðabirgða- stjórnin vinni að því að bæta stöðu kvenna en í tíð talibana gátu konur ekki farið úr húsi nema í fylgd með karlkyns ættmennum sínum, hvað þá að þær gætu unnið eða stundað nám. Henni er jafnframt falið að setja á stofn hæstarétt í landinu. Mestu skiptir þó að samninga- mönnum hafi tekist að tryggja valda- jafnvægi milli þjóðarbrotanna í Afg- anistan með samkomulagi því sem gert var í gær. Innbyrðis illdeilur hafa lengi sett mark sitt á landið og hætta er á að allt fari í sama farið á nýjan leik. Mikilvægt þykir að Pastúni hafi verið skipaður í embætti forsætisráð- herra því þó að talibanar hafi komið úr röðum Pastúna er það staðreynd, sem ekki verður framhjá litið, að um 40% Afgana eru Pastúnar. En auk Karzais er gert ráð fyrir að ellefu Pastúnar til viðbótar eigi sæti í bráða- birgðastjórninni. Fá Pastúnar, hlið- hollir konungnum fyrrverandi, t.a.m. embætti fjármálaráðherra og menntamála. Norðurbandalagið, sem saman- stendur af Tajíkum, Úzbekum og Hazörum, fær í staðinn ýmis mikil- væg ráðuneyti, líklega 17 af 30 ráð- herraembættum. Styrkur þess felst fyrst og fremst í hernaðarmætti þess, en Norðurbandalagið ræður nú stærstum hluta landsins, þ.m.t. höf- uðborginni Kabúl. Grunnt hefur verið á því góða milli Norðurbandalagsins og Pastúnanna en vonast er til að Karzai reynist sá mannasættir sem þörf er á. Norðurbandalagsmenn hafa hins vegar einnig tekist á innbyrðis enda í raun aðeins lauslegt bandalag þriggja þjóða gegn talibönum. Veldur það m.a. erfiðleikum að þrír helstu leið- togar þess, Abdullah Abdullah, Yon- us Qanooni og Mohammed Fahim, eru allir Tajíkar og frá sama héraði, Panjshir-dal, þar sem þeir voru sam- starfsmenn herforingjans Ahmad Shah Masood sem myrtur var í sept- ember. Ráð er fyrir gert að þrímenning- arnir haldi núverandi embættum í bráðabirgðastjórninni, þ.e. að Abdul- lah verði utanríkisráðherra, Qanooni ráðherra innanríkismála og Fahim varnarmálaráðherra en ljóst er að með einhverjum hætti hefur þurft að koma til móts við fulltrúa Úzbeka og Hazara eigi Norðurbandalagið ekki að liðast í sundur og þjóðflokkaerjur að hefjast að nýju. Rabbani ýtt til hliðar? Það vekur athygli að ekki er gert ráð fyrir að Burhanuddin Rabbani, fyrrverandi forseti Afganistans, eigi aðild að bráðabirgðastjórninni en hann hefur að nafninu til verið leið- togi Norðurbandalagsins og sneri aft- ur úr útlegð við mikinn fögnuð þegar Kabúl féll í síðasta mánuði. Frétta- skýrendur sögðu þetta skýrast af því að Rabbani nyti í raun ekki lengur trausts undirmanna sinna í Norður- bandalaginu og áhrif hans væru þverrandi – þó að stjórn hans í Afgan- istan sé enn sú sem viðurkennd er af SÞ. Rabbani mun hafa verið tregur til að gefa völd sín eftir og þurftu fulltrú- ar vesturveldanna og SÞ margoft að ýta við honum á síðustu metrunum til að fá hann til að sýna sáttfýsi. Fær Rabbani sérstakar þakkir í endanleg- um samningum fyrir að hafa reynst viljugur til að gefa yngri mönnum tækifæri til að stjórna Afganistan. Haft var eftir einum aðstoðar- manna Rabbanis í gær að hann myndi í staðinn takast það á hendur að stýra flokki sínum, Jamiat-i-Islami, með það í huga að bjóða sig fram til forseta í þeim kosningum sem líklegt er að verði boðað til fyrr en síðar. AP Francesc Vendrell, aðstoðarsáttasemjari SÞ, Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, Lakhdar Brahimi, sátta- semjari SÞ, og Joschka Fischer, utanríkisráðherra Þýskalands, fylgjast með fulltrúum Afgana skrifa undir samkomulagið. Neðri röð frá vinstri: Houmayoun Jareer, Abdul Sirat, Yunus Qanooni og Sayed Hamed Gailani. Skrifað undir samkomulag um framtíð Afganistans Bráðabirgðastjórn skipuð til sex mánaða Koenigswinter í Þýskalandi, Kabúl. The Washington Post, AFP, AP. ’ Vonast er til aðKarzai reynist sá mannasættir sem þörf er á. ‘
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.