Morgunblaðið - 06.12.2001, Blaðsíða 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2001 31
13
90
.3
1
Prentari fyrir PC og MAC
hugbúnaður fylgir
Öflug merkivél fyrir
mikla notkun
Merkivél fyrir heimili
og fyrirtæki
Nýbýlavegi 14, Kópavogi. Sími 554 4443. www.if.is/rafport
MERKIVÉLARMERKIVÉLAR
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
•
3
8
8
6
/
s
ia
.i
s
SÝKNT og heilagt hellast yfir
mann grínmyndirnar frá Hollywood,
meira og minna ómetnaðarfullar og
þar af leiðandi ófyndnar, og flestar
steyptar í sama form. Inn á milli
koma þó gullmolarnir sem taka eitt
skref fram á við, en það er í mesta
lagi ein á ári.
Jói Skítur er ekki sérlega fyndin
mynd. Því miður, þrátt fyrir það að
David Spade hafi búið til þennan líka
fína og fyndna alameríska furðufugl.
Sá aumingja maður var skilinn eft-
ir af foreldrum sínum við Miklagljúf-
ur á ferðalagi í æsku. Eftir það þvæl-
ist hann þvert og endilangt eftir
Bandaríkjunum. Eitt sinn eignast
hann vin, hina fallegu Brandy, og
endar að lokum sem gólfþvottamað-
ur á útvarpsstöð í Los Angeles.
Myndin er auðvitað full af brönd-
urum, enda er það eini tilgangur
hennar. Flestir þeirra eru frekar
þunnir, en kannski fimm sinnum
tókst mér að hlæja. Í þremur af þeim
tilfellum var það einfaldlega líkam-
leg tilþrif David Spade. Hann sjálfur
er svo fyndinn. Jói Skítur er ótrúlega
hallærislegur og aulalegur og hefur
heldur afkáranlegt göngulag en
bráðfyndið. En þetta er alls ekki not-
að nóg í myndinni, sem er synd.
Spade sjálfur er annar handritshöf-
undanna og virðist ekki hafa haft vit
á því að skrifa hlutverkið sitt betur.
Sum atriði eru heldur langdregin,
einsog atriðið með indíánanum og
sprengjunni... þótt það endi
skemmtilega. Endirinn er auðvitað
algerlega fyrirsjáanlegur en það er
bara hluti af stemmningunni.
Margir skemmtilegir leikarar
koma við sögu. Christopher Walken
leikur húsvörð í skóla og Rosanne
Arquette leikur eiganda krókódíla-
garðs, þar sem Jói fær vinnu um
tíma.
Boðskapur myndarinnar er væm-
inn og sætur og hljóðar upp á að
maður eigi alltaf að vera bjartsýnn í
lífinu, annað sé ekki til neins. Ég
væri til í að sjá aðra mynd um Jóa
Skít, ef hún yrði fyndnari. Jói Skítur
er góð týpa en gæti orðið miklu betri,
ég fer ekki ofan af því.
Amerískur furðufugl
KVIKMYNDIR
Laugarásbíó og Stjörnubíó
Leikstjóri: Dennie Gordon. Handrit: David
Spade og Fred Wolf. Kvikmyndataka:
John R. Leonetti. Aðalhlutverk: David
Spade, Brittany Daniels, Dennis Miller,
Christopher Walken og Kid Rock. 91
mín. Bandaríkin 2001. Columbia Pict-
ures.
JÓI SKÍTUR
(JOE DIRT)
Hildur Loftsdóttir
Listasafn Kópavogs,
Gerðarsafn
Þrjár sýningar í Gerðarsafni eru
framlengdar til og með 20. desem-
ber.
Í austursal er það sýningin Sjón-
arhorn með þrívíddarverkum eftir
hjónin Margréti Jóelsdóttur og
Stephen Fairbairn. Í vestursal er
málverkasýning Aðalheiðar Val-
geirsdóttur sem hún kallar Lífs-
mynstur. Á neðri hæð er sýning
Hrafnhildar Sigurðardóttur á lág-
myndum unnum með blandaðri
tækni sem ber yfirskriftina Skoðun.
Listasafn Kópavogs er opið alla daga
nema mánudaga frá 11–17.
Sýningar
framlengdar