Morgunblaðið - 06.12.2001, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 06.12.2001, Blaðsíða 37
Endurmenntun Há- skóla Íslands hefur margþætt tengsl við íslenskt samfélag og teygir anga sína víða. Í nær tvo ára- tugi hefur stofnunin skipulagt sí- menntun fyrir háskólafólk og al- menning í nánu samstarfi við fagfélög, ráðuneyti, fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga. For- stöðumaður Endurmenntunar HÍ er Kristín Jónsdóttir. Sá árangur sem náðst hefur í uppbyggingu stofnunarinnar birt- ist í því að árleg aukning nemenda hefur að jafnaði numið um tíu af hundraði. Árið 2000 voru boðin yf- ir fjögur hundruð lengri og skemmri námskeið sem hátt á þrettánda þúsund nemendur sóttu. Flestir sem sækja námskeið Endurmenntunar sitja starfstengd styttri námskeið eða rösklega tíu þúsund manns á hverju ári. Starfs- tengdu námskeiðin spanna svið eins og heilbrigðis-, félags- og uppeldissvið, endurskoðun, skatta- mál, lögfræði, verk- og tækni- fræði, arkitektúr, stjórnun, hug- búnað og kennslu. Nýjar námsbrautir Hlutur lengra náms sem stund- að er samhliða starfi er vaxandi hjá Endurmenntun og nemur nú um 40% af starfseminni. Þrettán þverfaglegar námsbrautir hafa orðið til síðan Endurmenntun HÍ tók til starfa og alls eru 350 nem- endur í lengra námi á sjö náms- brautum. Í haust hófst kennsla á nýrri námsbraut í Starfs- mannastjórnun þar sem 40 nem- endur stunda námið, í fyrrahaust hófst kennsla í Barnavernd og á næsta ári er ráðgert að hefja kennslu á enn einni námsbraut sem fengið hefur heitið Tengsl- anet í félagsþjónustu. Þorri þeirra sem útskrifast úr lengra námi hefur áður lokið háskóla- prófi og er því að bæta við sig eða jafnvel að söðla alveg um á vinnumarkaði með nýja menntun í farteskinu. Tækni og tölvukostur Ný tækni býður upp á nýja fræðslukosti og sífellt fleiri nám- skeiðum hjá Endurmenntun er miðlað um fjarkennslubúnað til nemenda. Námskeiðum hefur verði varpað frá Evrópu og frá húsakynnum Endurmenntunar til nemenda um allt land. Þetta á líka við um lengra nám, því á liðnu vori útskrifuðust ellefu nemendur á Egilsstöðum úr Rekstrar- og viðskiptanámi sem kennt var í Reykjavík. Þá er ver- ið að kenna Stjórnun og rekstur í heilbrigðisþjónustu um fjar- menntabúnað til Akureyrar. Kennsluefni og upplýsingum er einnig miðlað yfir Netið í lengra námi og vefbundið nám á fleiri sviðum er í burðarliðnum. Sumarið 2000 var tölvuver Endurmenntunar uppfært með nýjum tölvum og hugbúnaði en á Endurmenntun Háskóla Íslands  3/ % / /"% " 5 "  161 789 # ::: % # D   % # -/( ED& EE# EE& %### hugbúnaðarsviði er lögð áhersla á að bjóða upp á fræðslu um stjórn- un og skipulag í hugbúnaðargerð og margmiðlun. Hugvísindi, hálendi og listir Á hverri önn er boðið upp á námskeið í flokkunum Menning, land og saga og Fólk og færni þar sem veisluföngin eru fjölbreytt úr- val námskeiða á sviði hugvísinda og lista. Árið 2000 sóttu þau um fimmtán hundruð manns. Heimspekideild Háskóla Íslands hefur löngum verið bakhjarl End- urmenntunar við að setja á lagg- irnar menningartengd námskeið fyrir almenning og lagt til hug- myndir, kennara og aðra sérþekk- ingu. Meðalaldur þeirra sem sækja menningartengd námskeið er um fimmtugt og konur eru þar í mikl- um meirihluta. Þátttakendur koma úr öllu stéttum og án nokk- urra forkrafna því á námskeiðum Endurmenntunar lærir maður svo lengi sem lifir. Sigrún Björns- dóttir, verkefnis- og kynning- arstjóri, gaf upplýsingar um nokk- ur námskeið. Nokkur námskeiðanna fyrir al- menning eru haldin í samstarfi við menningarstofnanir og hefur skapast hefð fyrir samstarfi við m.a. Þjóðleikhúsið og Íslensku óp- eruna í tengslum við uppfærslur. Þá er farið ofan í leikgerð, höfund, persónusköpun og túlkun í upp- setningu á einu leikverki og að lokum er farið á sýningu og verkið brotið til mergjar. Anna Karenina eftir Tolstoy var eitt viðfangsefnið í haust, en verkið verður sýnt í Þjóðleikhúsinu snemma á næsta ári. Íslenska óperan, Listasafn Ís- lands, Þjóðminjasafn Íslands og Salurinn í Kópavogi eru einnig meðal samstarfsaðila Endur- menntunar og miðla lista- og fræðimenn á vegum þessara stofn- ana lifandi fróðleik og skemmtun til þátttakenda. Í uppsiglingu er námskeið um Hollendinginn fljúg- andi eftir Wagner og tónlistarunn- endur ættu að fara auðugri af fundi Jónasar Ingimundarsonar píanóleikara eftir námskeiðið Hvað ert þú tónlist? sem verður aftur á dagskrá á vorönn kom- anda. Jón Böðvarsson er meðal fræði- manna sem kenna á kvöld- námskeiðum Endurmenntunar, og bryddar hann upp á nýjum við- fangsefnum úr Íslendingasög- unum. Á haustmánuðum sóttu hátt á fjórða hundrað manns nám- skeiðin Eyfirðingasögur, Fjórar ýkjusögur og Sturlungu. Í vor fer Jón ofan í saumana á Laxdælu og heldur áfram að fræða fólk um Sturlungu. Á bókmenntasviði er jafnan boð- ið upp á spennandi viðfangsefni hjá Endurmenntun. Í tilefni af ald- arafmæli Halldórs Laxness árið 2002 verður á vorönn efnt til miss- erislangs námskeiðs um höfund- arverk hans og einnig verður á dagskrá námskeið um æv- intýrabókmenntir sem Anna Heiða Pálsdóttir bókmenntafræðingur mun kenna. Ísland fyrir íslenska ferðamenn, siðfræði og film noir kvikmyndir verða einnig viðfangs- efni á kvöldnámskeiðum í vor og dr. Magnús Þorkell Bernharðsson sagnfræðingur ætlar að fræða fólk um íslam og nútímann sem ætti að varpa betra ljósi á átökin í Afgan- istan. Þá eru ótalin námskeið í rímnakveðskap, listasögu og um íslenska miðaldalistamenn, og t.d. að Karl Ágúst Úlfsson leikari ætl- ar að kenna á námskeiðinu Hag- nýtur húmor – um hvernig beita á skopskyninu á uppbyggilegan hátt í daglega lífinu. (http://www.end- urmenntun.hi.is/) MENNTUN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2001 37 Kyn: Kona. Aldur: 15 ára. Spurning: Hvað tekur mörg ár að læra rafmagnsverkfræði á tölvu- og fjarskiptasviði? Svar: Að jafnaði tekur það 5 ár að ljúka verkfræðinámi við Háskóla Íslands og útskrifast með MS próf. Hægt er að velja um mismun- andi svið og má þá nefna: Byggingarverkfræði, Umhverf- isverkfræði, Vélaverkfræði, Iðnaðarverkfræði, Efnaverk- fræði, Hugbúnaðarverkfræði , Tölvunarfræði og Rafmagns- og tölvuverkfræði. Þú nefnir tölvu- og fjarskiptasvið. Um slíkt svið er ekki að ræða í náminu við HÍ. Í kennsluskrá Háskóla Íslands færðu frekari upplýsingar um uppbyggingu námsins en það má nefna að á þriðja ári í raf- magns- og tölvuverkfæði þarf að velja á milli þessara tveggja leiða og hefst þá ákveðin sérhæfing í náminu. Á fimmta ári í rafmagns- og verkfræði er hægt að velja námskeið sem tengjast fjar- skiptafræði/merkjafræði. Dæmi um slík námskeið eru t.d. Örbylgjutækni og Hljóð- tækni (sjá nánar í Kennslu- skrá HÍ, bls. 260). Sá sem velur sér þessi nám- skeið hefur væntanlega áhuga á því að starfa við fjar- skipti, t.d. hjá símafyr- irtækjum eða hjá sjónvarpi eða útvarpi. Rafmagnsverkfræðingar starfa víða í þjóðfélaginu. Þeir starfa til dæmishjá orkufyr- irtækjum, fjarskiptafyr- irtækjum og opinberum stofn- unum og fyrirtækjum. Nám og störf TENGLAR ............................................. Svarið er unnið á vefnum www.idan.is í samvinnu við Nám í námsráðgjöf HÍ. GEYSILEGT úrval af nám-skeiðum fyrir almenningog fagfólk verður á nýjuári 2002. Háskólar og ýmsar aðrar menntastofnanir gefa út námskrá fyrir næstu önn. Símenntunarstöðvar vítt og breitt um landið eru með nám- skeið, framhaldsskólar, einkaskól- ar og menntastofnanir fagfélaga leggja mikinn metnað í símenntun. Endurmenntun Háskóla Íslands flokkast nú sem viðmikil mennta- stofnun í landinu og nemendum fjölgar eins og sjá má á korti. Símenntun hjá Rannsóknar- stofnun Háskólans á Akureyri er einnig öflug og er hér sagt frá nokkrum námskeiðum þar. Hér er aðeins sagt frá nokkrum brotum af framboði næsta árs. Lesendur geta kynnt sér þetta nánar með notkun leitarvéla á Net- inu. Endurmenntun/ Hvað ætlar vinnandi fólk að læra á vorönn 2002? Menntastofnanir, t.d. símenntunarstöðvar, í hverjum fjórð- ungi eru með góðar námskrár. Gunnar Hersveinn tekur hér dæmi úr tveimur háskólum um endurmenntun árið 2002. Endurmennt- un á næsta ári  Á vorönn verður efnt til námskeiðs um höfundarverk Halldórs Laxness.  Rósa Eggertsdóttir verður með tvö námskeið um lesblindu. Morgunblaðið/Kristinn Námskeið draga til sín nemendur sem vilja menntast til að geta notið til- verunnar enn betur eða fengið nýja vinnu. Rannsóknastofnun Háskólans á Ak- ureyri (RHA) hefur umsjón með sí- menntun og endurmenntun og falla námskeiðin oft undir einhverja af fjórum deildum háskólans; kennaradeild, hjúkr- unarfræðideild, rekstrardeild, sjávar- útvegsdeild og upplýsingatæknideild. Endurmenntun eða símenntun hófst formlega við Háskólann á Ak- ureyri í árslok 1991. Árið 1998 var starfsemin flutt til rannsóknastofnun- ar Háskólans á Akureyri og nú er sí- menntunarstjóri í fullu starfi við stofnunina. Framboð námskeiða hef- ur aukist ár frá ári og árið 2000 voru haldin yfir 30 námskeið og sóttu þau hátt í 500 manns. Einnig eru haldnir opnir fyrirlestrar á vegum símennt- unar sem eru öllum opnir. Í vetur eru í boði um 60 námskeið. Elín Margrét Hallgrímsdóttir er forstöðumaður RHA. Hún segir að í samstarfi við hugbúnaðarfyrirtækið Opnar gáttir sé boðið upp á fjölbreytt vefbundið nám (Online Learning). Fyrst um sinn verður eingöngu boðið upp á tölvunám og tölvutengt nám. Námið fer fram um tölvu nemand- ans en hann tengir sig við námstorgið í gegnum vefvafara, venjulega Explorer eða Netscape. Á námstorg- inu (www.namstorg.is) er hugbúnað- ur sem stýrir aðganginum að náminu og skráir námsframvindu nemenda. Framleiðendur námsefnisins, fyr- irtækið NETg, hafa hlotið viðurkenn- ingar fyrir kennslufræðilega upp- byggingu námsefnisins og er efni þeirra notað til kennslu víða í háskól- um í Bandaríkjunum og í vaxandi mæli í Evrópu. Nánari upplýsingar og opnunartilboð er að finna á heima- síðu RHA undir slóðinni www.unak.is/rha „Einnig er í gangi hjá okkur frá í haust þriggja anna nám í stjórnun og rekstri í heilbrigðisþjónustu í fjar- kennslu frá EHÍ og þriggja anna staðbundið nám í stjórnun fyrir sveit- arstjórnendur,“ segir Elín Hallgríms- dóttir, forstöðumaður RHA, og upp- lýsir um nokkur námskeið á vorönn 2002. Raddbeiting og lestur Raddbeiting og framsögn, heitir eitt þeirra og er ætlað þeim sem reyna á röddina í leik og starfi. Rósa Eggertsdóttir verður með tvö námskeið tengd lestri. Lestrarerfið- leikar barna heitir annað þeirra og er ætlað foreldrum og aðstandendum barna með lestrarerfiðleika. Það er 6. febrúar kl. 19:30–21:30. Lestur og les- hömlun (lesblinda), heitir hitt og er ætlað einstaklingum með leshömlun Markmið þess er að gefa þátttakend- um kost á að öðlast nokkurn skilning á lestri og lestrarerfiðleikum og hvers konar leiðir þeir sem eiga við lestr- arörðugleika að etja geta nýtt sér í námi og daglegu lífi. Þetta er lengra námskeið og verður í nokkra daga í febrúar og mars. Jón Björnsson „Santiagofari“ verð- ur með námskeiðið Jakobsvegurinn – pílagrímaleiðin til Santiago de Comp- ostela á Spáni. En á 12. öld var orðinn til vegur frá Pyreneafjöllum til San- tiago, því pílagrímaleiðir úr Evrópu sameinuðust við upphaf þessa vegar. Af námskeiðum sem falla undir uppeldis- og kennslumál, má nefna Segðu mér sögu ... en það er um Brúðu- og hreyfimyndagerð. Út- gangspunkturinn í því er að nýta mis- munandi efnivið til þess að segja sögu og verður unnið úr íslensku ullinni. Arna Valsdóttir, lektor HA, og Guð- rún Hadda Bjarnadóttir myndlistar- maður kenna á því. Heilbrigði og stjórnun Mörg önnur mikilvæg námskeið eru undir þessum flokki, og undir flokknum heilbrigðis- og félagsmál einnig, t.d. kynferðislegt ofbeldi gegn börnum, en það er ætlað fagfólki í fé- lags-, heilbrigðis- og skólaþjónustu og öðrum sem koma að slíkum málum. Markmið námskeiðsins er að þátt- takendur öðlist þekkingu á eðli og umfangi kynferðisofbeldis gegn börn- um, kynnist aðferðum við könnun, rannsókn og meðferð slíkra mála. Þekki málsmeðferð yfirvalda við með- ferð og úrlausn málanna og bregðist rétt við ef þeir fá vitneskju um að barn sæti kynferðisofbeldi. Kennarar eru Vigdís Erlendsdóttir sálfræðing- ur, Sif Konráðsdóttir hrl., og Þóra Fischer kvensjúkdómalæknir. Lokst má nefna námskeið úr flokknum Stjórnun, rekstur og fjár- mál. Rafn Kjartansson verður með námskeiðið Enska fyrir erlend við- skipti. Áhersla verður þar á þjálfun í að kynna og ræða efni viðskiptalegs eðlis til eflingar samskiptahæfni og auka orðaforða tengdan viðskiptum. Þannig mætti lengi telja. Heima- síðan finnst á vef Háskólans á Akur- eyri; www.unak.is Símenntun RHA, Háskólinn á Akureyri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.